NT - 02.11.1985, Page 19
flokksstarf
Kjördæmisþing í
Vesturlandskjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarfélaganna á Vesturlandi veröur
haldiö dagana 1. og 2. nóv. á Hótel Borgarnesi. Þingiö
hefst kl. 17.30. Dagskrá:
1. Þingsetning, kosning forseta og ritara.
2. Kosin kjörbréfanefnd.
3. Ávarp gesta Unnur Stefánsdóttir formaður LFK og Finnur
Ingólfsson formaður SUF.
4. Skýrsla og reikningar stjórnar.
5. Ræður: Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra,
Aiexander Stefánsson félagsmálaráðherra, Davíð
Aðalsteinsson þingmaður.
6. Matarhlé.
7. Stjórnmálaviðhorfið, almennar umræður.
Laugardagur 2. nóvember kl. 10.00
8. Tillaga skipulagsnefndar og skýrsla og
reikningar Magna.
9. Matarhlé
10. Nefndarstörf
11. NiðurstÖður nefndar
12. Kosningar
13. Önnur mál
14. Þingslit, áætluð kl. 18.00.
Aðalfundur
framsóknarmanna í V-Skaftafellssýslu og Félag ungra fram-
sóknarmanna í V-Skaftafellssýslu verður haldinn í Leikskál-
um í Vík í Mýrdal sunnudaginn 3. nóvember og hefst kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing
3. Alþingismennirnir Jón Helgason og Þórarinn Sigurjónsson
ræða stjórnmálaviðhorfin.
4. Önnur mál.
Stjórnir félaganna
Kjördæmisþing í
Suðurlandskjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi
verður haldið föstudag og laugardag 8. og 9. nóvember n.k.
og hefstkl. 17.30 stundvíslegaáföstudeginum í Félagsheimil-
inu Hvoli Hvolsvelli. Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ræða: Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra.
3. Ræða: Framsóknarflokkurinn störf og stefna. Guðmundur
Bjarnason alþingismaður.
4. Ávarp gesta landssambanda.
5. Umræður og fyrirspurnir.
6. Þingslit kl. 17.30 á laugardeginum.
Gisting og matur á Hótel Hvolsvelli á frábærum kjörum. Félög
og einstaklingar tilkynnið þátttöku sem fyrst.
Stjómin
Siglfirðingar - Sauðkrækingar
Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeið i fram-
sóknarhúsinu við Suðurgötu Sauðárkróki fyrir konur og karla
á öllum aldri.
Námskeiðið verður haldið dagana 15., 16. og 17. nóvember
n.k. og hefst það kl. 20.00 15. nóv. Veitt verður leiðsögn í
styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköpum og
framkomu í útvarpi og sjónvarpi. Leiðbeinendur verða þær
Inga Þyrí Kjartansdóttir og Guðrún Jóhannsdóttir. Þátttaka
tilkynnist hjá Halldóru í síma 96-71118 og Guðrúnu í síma
95-25200.
Fólk er eindregið hvatt til að nota sér þetta sérstaka tækifæri.
L.S.K.
S.U.F. - Miðstjórn
Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna,
haldinn á Blönduósi 2. og 3. nóvember 1985.
Dagskrá:
Laugardagur:
1. Kl. 13:00-Setning.
Formaður S.U.F., Finnur Ingólfsson.
2. Kl. 13:10 - Kosnir starfsmenn þingsins.
a) Fundarstjóri.
b) Fundarritari.
3. Kl. 13:15 - Skýrsla stjórnar og umræða úm hana.
4. Kl. 13:45 - Framsögur.
a) Jafnrétti milli landshluta.
Þórður Ingvi Guðmundsson.
b) Heilbrigðis- og tryggingamál.
Magnús Ólafsson.
c) Menntamál.
Bolli Héðinsson.
5. Kl. 14:30 - Umræður og fyrirspurnir.
6. Kl. 15:30 - Nefndarstörf.
7. Kl. 18:00 - Fundi frestað.
Sunnudagur:
1. Kl. 10:00 - Nefndir skila áliti.
2. Kl. 12:00-Önnurmál.
Húnvetningar -
miðstjórnargestir
FUF A-Hún. heldur upp á 45 ára afmæli sitt laugardaginn 2.
nóvember kl. 21 í Félagsheimilinu Blönduósi, dagskrá:
1. Kaffiveitingar
2. Ávörp, Steingrímur Hermannsson og Finnur Ingólfsson
formaður SUF.
3. Jóhann Már Jóhannsson syngur við undirleik Sigurðar
Daníelssonar
4. Óvæntar uppákomur o.fl.
Veislustjóri verður Björn Magnússon, bóndi Hólabakka,
hljómsveitin Rót frá Sauðárkróki leikur fyrir dansi. Allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir. Stjórn FUF A-Hún.
Aðalfundur
Aðalfundur framsóknarfélagsins í Árnessýslu verður haldinn
í framsóknarhúsinu á Selfossi þriðjudagskvöldið 5. nóvember
kl. 21.00. Venjuleg aöalfundarstörf, Þórarinn Sigurjónsson
alþingismaður mætir á fundinn. Fulltrúaráösmenn eru hvattir
til að mæta á fundinn, ennfremur eru þeir fulltrúar sem ekki
gefa kost á sér áfram beðnir að tilkynna það á fundinum.
Kosning stjórnar fer nú fram samkvæmt nýjum lögum. Tveir
núverandi stjórnarmanna gefa ekki kost á sér til endurkjörs.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin
Norðurland eystra
29. Kjördæmisþing framsóknarfélaganna I Norðurlandi eystra
verður haldið á Hótel KEA Akureyri dagana 1. og 2. nóvember
n.k. Þingið hefst kl. 20:00 á föstudag og lýkur á laugardags-
kvöld.
Dagskrá:
1. Þingið sett
2. Kjör starfsmanna þingsins.
3. Nefndarkjör.
4. Skýrsla stjórnar og afgreiðsla reikninga.
5. Skýrsla þingmanna.
6. Kynning á samtökum um jafnrétti milli landshluta.
7. Umræður um 5. og 6. lið.
8. Nefndarstörf.
9. Ræða formanns Framsóknarflokksins Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra - Ávörp gesta.
10. Framlagning mála.
11. Kosningar.
12. Afgreiðsla mála.
13. Önnur mál.
14. Þlngi slitið.
Allar nánari upplýsingar veitir Áslaug Magnúsdóttir i síma
96-22479 eftir kl. 18:00.
Stjórn kjördæmissambandsins
Viðtalstími borgarfulltrúa og
vara borgarfulltrúa
Næstkomandi laugardag verða til viðtals að Rauðarárstíg 18
millikl. 11 og 12 Kristján Benediktssonog Elísabet Hauksdótt-
ir. Elisabet á sæti í Barnavemdarnefnd og Kristján í
Útgerðarráði auk Borgarráðs.
Laugardagur 2. nóvember 1985 23
Viðtalstímar
Halldór E. Sigurðsson verður til viðtals 1 iSf , jiu
á skrifstofu félagsins að Rauðarárstíg I , ■ - f*ö
18, mánudaga til fimmtudags I / \
kl. 13.30- 15.30, fyrst um sinn.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Konur Reykjavík og nágrenni
L.F.K. heldur fimm kvölda námskeið sem hefst 5. nóvember
nk. fyrir konur á öllum aldri. Fyrsta námskeiðið verður haldið
að Rauðarárstíg 18. Veitt verður leiðsögn í ræðumennsku,
fundarsköpum, i styrkingu sjálfstrausts og framkomu í útvarpi
og sjónvarpi.
Sækjum fram. Skráið ykkur hjá Þórunni í síma 24480.
Verði stillt í hóf. Fjölmennum á námskeiðið.
Stjórn L.F.K.
Spilafólk takið eftir
Hin árlega þriggjakvölda spilakeppni Framsóknarfélagsins í
Árnessýslu hefst að Borg í Grímsnesi fimmtudaginn 7.
nóvember kl. 21. Síðan i Þjórsárveri föstudaginn 15.
nóvember kl. 21. og endar aö Flúðum föstudaginn 22.
nóvember kl. 21. Glæsileg verðlaun að verðmæti um 60.000
kr. Meðal annars utanlandsferð og margt góðra muna.
Framsóknarfélag Árnessýslu
Framsóknarfélag Garðabæjar
Heldur fund mánudaginn 4. nóvember að Goðatúni 2.
Fundarefni nýtt skipulag Garðabæjar og blaðaútgáfa.
Stjórnin
Seltirningar
Aðalfundur Framsóknarfélags Seltjarnarness verður haldinn
þriðjudaginn 5. nóvember kl. 20.30 í Félagsheimilinu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Skipulagsmál og önnur bæjarmál
Félagar fjölmennið. Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Kópavogur
Almennur fundur um skipulags- og byggingamái verður
þriðjudaginn 5. nóvember kl. 20.30 að Hamraborg 5. Frum-
mælendur Sveinn V. Jónsson og Páll Helgason.
Framsóknarfélögin.
EffCO-
þurrkan
í bflinn
t bátinn
á vtnnustaðlnn J
á heimlllð :
i sumarbústaot»
i ferdalaglo *
°9 fl. A
Er þu hetur einu sinni
reynt Effco-þurrkuna viltu
ekkert annað. Effco-
þurrkan er bæði mjúk og
sterk. í henni sameinast
kostir klúts og tvists, það
eykur notagildi Effco-
þurrkunnar. Effco-þurrk-
an sýgur í sig hvers konar
vætu á svipstundu. Effco-
þurrkan er ómissandi í
bílinn, bátinn, ferðalagið,
á vinnustaðinn og til
heimilisins.
Effco-þurrkan
fæst hjá okkur,
FRAMTÆKNIs/f
Vélsmiðja
Jámsmíði - Viðgerðir
Vélaviðgerðir - Nýsmíði
Skemmuveg 34 N
200 Kópavogur
lceland
Tel. 91-641055