NT - 19.11.1985, Blaðsíða 5

NT - 19.11.1985, Blaðsíða 5
 Þriðjudagur 19. nóvember 1985 5 réttir Grunnurinn lagður að stofnun: Landssambands selveiðibænda Nýtingarmöguleikar kannaðir hjá veitingahúsum, minjagripa- verslunum og fataframleiðendum ■ Grunnurinn hefur verið lagður að stofnun Landssambands selveiði- bænda um land allt. Fundur haldinn á Hótel Sögu nú um helgina kaus bráðabirgðastjórn, til þess að safna gögnum um stofnstærð á selnum hér við land og nýtingarmöguleika á þeim dýrum sem má veiða. Verkefni stjórnarinnar verður m.a. að vinna úr þeim gögnum sem aflast og undirbúa stofnfund Landssambands selveiði- bænda. Árni G. Pétursson ráðunautur situr í bráðabirgðastjórninni. f september síðastliðnum fór hann um allt land og heimsótti alla selveiðistaði landsins, og ræddi við bændur sem eiga jarðir með nýtingarmöguleikum á selnum. Árni sagði í samtali við NT að nú yrðu kannaðir allir möguleikar á nýt- ingu, og hafa viðræður þegar farið fram við veitingahúsaeigendur, um hvort ekki mætti bæta selkjöti inn á -matseðla. Þá standa yfir athuganir, hvort ekki mega nýta skinnið af kópunum til fataframleiðslu. Japani , á vegum stórs fataframleiðenda í Japan, kom til Iandsins fyrir þremur árum til þess að kanna skinnið af íslenska kópnum, og varð niðurstaða hans sú að íslenski kópurinn hefði mjög sérstakan feld, og einstæðan, í heiminum. Árni sagði að talað hefði verið við minjagripaverslanir, um hvort þær væru með eitthvað unnið úr selskinni á boðstólum. Svo var, en það voru helst peningabuddur keyptar frá Þýskalandi, unnar úr selskinni frá Bretlandi. Jón Skaftason borgarfógeti: „Álagiðerað drepa okkur" ■ „Álagið er að drepa okkur. Við embættið allt hafa verkefnin marg- faldast og gífurlega mikið er að gera. Unnið er vel flesta laugardaga og öll Hvassviðrið um helgina: Talsvert eignatjón ■ Mikið hvassviðri gekk yfir land- ið um helgina. Víða fuku járnplötui af húsum og talsvert eignatjón varð af þeim sökum. Á ísafirði gekk veðrið ekki niður fyrr en í gærdag, og hafði þá orðið talsvert eignatjón. Plast hraðbátur tók^tá loft úrgarði.og fauk út á sjó. Pá var talsvert um skemmdir á þökum, og klæðning fauk af einu húsi, svo að segja í einu lagi. Akurnesingar máttu sætta sig við mikið sandrok um helgin, og sagði lögreglan að hann hefði skafið í skafla. í Hafnarfirði slitnaði trilla úr höfninni og rak hana upp, þar sem hún brotnaði í smátt. þau kvöld sem hægt er að pína, mannskapinn til, og hefst samt ekki undan,“ sagði Jón Skaftason borgar- fógeti í samtali við NT í gær. 46 þúsund þinglýsingar hafa verið afgreiddar, 26 þúsund veðbótarvott- orð gefin út, og aflýsingar hafa verið í kringum 20-30 þúsund það sem af er árinu. Petta er mun meira en allt árið í fyrra, að sögn Jóns Skaftasonar. „Þó var algert metár í fyrra,“ sagði hann. „Við höfum ekki starfsmanna- fjölda til þess að anna þessum aukna verkefnafjölda. Verkefnin hafamarg- faldast langt umfram fjölgun á starfs- fólki,“ sagði Jón. Hann benti á að það tæki allt upp í viku að fá skjöl þinglesin og sætti það mikilli gagnrýni hjá fólki. Hann sagðist vonast til þess að fljótlega yrði af því að tölvur yrðu teknar í notkun, í þinglesningardeild- inni. „Þrátt fyrir það að við fáum tölvur er viðbúið að það taki tvö til þrjú ár að tölvukeyra allar upplýsing- ar sem nauðsynlegt er áður en hægt verður að vinna með nýja laginu,“ sagði Jón. Lögfræðinga vantar í þinglesning- ardeildina, og sagði Jón að hann hefði leitað eins og útspýtt hundskinn í nokkra mánuði, en án árangurs. „Við getum ekki keppt við einka- markaðinn um launakjör og því fáum við enga menn.“ Lánsamur ökumaður: Bjargaðist með því að kasta sér úr bíl ■ Einar Halldórsson bjargað- ist á undraverðan hátt, þegar bíll hans fór fram af Óshlíðar- vegi í grennd við ísafjörð. Einar var á leið til Bolungarvíkur á íþróttaæfingu, þegar slysið varð. „Þetta gerðist svo snöggt, að maður áttar sig varla á því hvað skeður. Ég var að gramsa í tösku sem var við hliðina á mér, og keyrði síðan yfir grjót sem hafði hrunið á veginn. Þegar ég leit upp sá ég að hægri brúnin á bílnum var að fara fram af. Þá var of seint að beygja eða bremsa eða bjarga málunum. Það voru ósjálfráð viðbrögð að fleygja sér út úr bílnum,“ sagði Einar í samtali við NT. Hann var ekki í belti þegar óhappið varð. Einar slapp meó sprungna vör og lítilsháttar marbletti. Hann sagðist hafa horft á eftir bílnum, þar sem hann fór alla leið niður í fjöru. Fimmtíu til sextíu metra fall. Toppurinn á bílnum lagðist al- veg ofan í sæti og stýri eins og Einar lýsti því, og þarf ekki að spyrja að leikslokum hefði hann ekki náð að kasta sér út nógu tímanlega. Þegar Einar hafði skreiðst aftur upp á veginn fékk hann far til baka til ísafjarðar með bíl sem kom skömmu síðar. OG TOSKURIURVALI ^; ■ -,'■ ■ Teg. 6951 Kr. 2.300.- Litir: Grátt, svart. Teg. 6952 Kr. 1.850.- Litir: Grátt, svart. Hanskar Skinn Frákr. 1.195.-^^ Litur: Svart, brúnt, beige. ■ Urriðafoss i Sundahöfn, Kafari sem vinnur við könnun á boíni skipsins varð frá að hverfa vegna hreingerninga á skipinu en mikil olía hafði safnast á það á Strandstað. NT-mynd Kóbert. Skemmdirnar ekki fullkannaðar Sjópróf hófust í gær en fara verður með skipið utan til viðgerða ■ Enn er ekki vitað með vissu hversu miklar skemmdir urðu á flutn- ingaskipinu Urriðafossi sem strand- aði í Hvalfirði á föstudag þegar óveðrið gekk þar yfir. Þcgar skipið hafði náðst út og var komið í Sunda- höfn í Reykjavík var liafist handa að þrífa skipið en mikil olía hafði safnast á það á strandstað. Svo vasklega mun hafaveriögengið fram í hreingerningunum að kafari, sem vinnur við að kanna skemmdir á botni skipsins, varð frá að hverfa þar sem sjórinn var orðinn svo gruggugur að hann sá ekki til vinnu sinnar. Það er þó Ijóst að tveir af fjórum eldsneyt- istönkum skipsins hafa rifnað og svartolía og gasolía sem í þeim var lekið í sjóinn. Þegar skipið kom til hafnar var komiö fyrir flotgirðingu umhverfis það til að hindra olíumengun cn lítil sem engin olía hefur náðst í netið og því Ijóst að hún var runnin úr tönkum skipsins þegar það kom til Reykjavík- ur en það mun hafa verið á milli 50 og 60 tonn af olíu. Sjópróf hófust í gær og verður framhaldið í dag og þá mun væntan- lega fást úr því skorið af hverju skipinu var ekki haldið frá landi þegar séð var að ekki var hægt að hemja þaö við bryggju á Grundartanga. DRAUMA dansdúkkan sem dansar þrjá dansa Verð aðeins kr. 1.295.- * Ódýrustu snjóþoturnar: Litlar...................... kr. 369.- Stórar ..................... kr. 570.- m/bremsum................... kr. 699.- Stýrisþotur ................ kr. 2.295.- Enn eru til leikföng á gömlu verði Sparið þúsundir og kaupið jólagjafirnar tímanlega Póstsendum LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustíg 10 s. 14806

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.