NT - 27.11.1985, Síða 3
Þróunarfélagið:
Verður ekki við
Rauðarárstíg
- segir Davíð Scheving nýkjör-
inn formaður stjórnar félagsins
■ „Eitt er víst að heimilisfang
Þróunarfélagsins verður ekki við
Rauðarárstíg," sagði Davíð Schev-
ing Thorsteinsson, nýkjörinn stjórn-
arformaður Þróunarfélagsins, en
fyrsti fundur stjórnar var haldinn í
gær og voru formaður og varafor-
maður félagsins kosnir þá. Þor-
steinn Ólafsson, framkvæmdastjóri
SÍS, var kjörinn varaformaður.
Aðrir í stjórn Þróunarfélagsins eru
Guðmundur G. Pórarinsson, verk-
fræðingur, Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskipafélagsins og Jón
Ingvarsson hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna.
Davíð sagði við NT að hús
Byggðastofnunar við Rauðarárstíg
væri allt of stórt og fínt fyrir félag
eins og Þróunarfélagið, en allt kapp
verður lagt á að hafa starfsfólk sem
fæst eins og eins litla yfirbyggingu
Minnihlutaflokkarnir í borgarstjórn:
Formleg kæra
til Alexanders
vegna skipunar í stjórn Granda
■ Borgarfulltrúar minnihlutaflokk-
anna í borgarstjórn hafa snúið sér
formlega til félagsmálaráðuneytisins
vegna vinnubragða Davíðs Oddsson-
ar borgarstjóra sem hann viðhafði á
stofnfundi hlutafélagsins Granda hf.
13. nóvember sl. Pá tilnefndi borgar-
stjóri einn og sér þrjá stjórnarmenn
Reykjavíkurborgar í nýja fyrirtækinu
án þess að leggja málið áður fyrir
borgarráð eða hafa nokkurt samráð
við minnihlutaflokkana í borgar-
stjórn.
Borgarfulltrúar minnihlutans telja
að þessi ráðstöfun borgarstjóra brjóti
gegn grundvallarreglum um fulltrúa-
lýðræði í málefnum sveitarfélaga og
gangi í berhögg við samþykkt um
stjórn Reykjavíkurborgar sem stað-
fest var af félagsmálaráðuneytinu 14.
jan. sl. og taki sér vald sem hann ekki
hefur.
Þar eð lögmæti greindra athafna
borgarstjóra heyrir undir úrskurðar-
vald félagsmálaráðherra krefjast
minnihlutaflokkarnir að félagsmála-
ráðherra úrskurði hvort það heyri
undir borgarstjórn að kjósa með
lýðræðislegum hætti áðurnefnda þrjá
menn í stjórn Granda hf. eða ekki.
Kappkostað að
samstilla reksturinn
- segir Brynjólfur Bjarnason
framkvæmdastjóri Granda hf.
■ „Þetta hefur gengið stór-
slysalaust. Við höfum kappkostað að
ná utan um reksturinn þessa rúmu
viku sem liðin er frá því Grandi hf.
tók til starfa,“ sagði Brynjólfur
Bjarnason framkvæmdastjóri Granda
hf., sem ísbirninum og BÚR var
steypt saman í, spurður um hvernig
gengið hefði.
Brynjólfur sagði að starfsfólk allt
hefði verið mjög jákvætt, þótt hlutir
hafi skarast svo sem í móttöku og
dreifingu á hráefni því sömu vinnuað-
ferðir hafi ekki að öllu leyti verið
notaðar í gömlu fyrirtækjunum. Gert
hefði verið í því að láta starfsfólkið
kynnast fyrirtækinu nýja. Viðskipt-
aaðilar hefðu sýnt nýja fyrirtækinu
umburðarlyndi meðan það væri að
komast í gang.
Brynjólfur sagði að 475 tonnum af
fiski hefði verið landað úr fjórum
togurum þessa rúmu viku og aflinn
væri aðallega karfi en nokkru hefði
einnig verið landað af þorski. Stefnt
væri að því að samstilla rekstur togar-
anna þannig að þeir kæmu með réttu
millibili með hráefni í bæði frystihús-
in, Norðurgarð og Grandagarð, og að
4 togarar lönduðu að öllu jöfnu í
hverri viku.
í heild sagðist Brynjólfur vera mjög
bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins.
Saltfiskverkun væri enn sem komið er
í gamla ísbjarnarfrystihúsinu á Sel-
tjarnarnesi og á Meistaravöllum.
Ekki hefði enn tekist að finna nýtt
húsnæði undir saltfiskverkunina og
Brynjólfur sagðist ekki búast við að
■ Grandagarður, annað frystíhús
nýja fyrírtækisins Granda hf. sem
BUR og ísbirninum var steypt saman
í fyrir skenunstu. NT-mynd: Svcnir
það yrði alveg á næstunni. Ef kaup-
andi fyndist hins vegar fljótlega að
ísbjarnarhúsinu sem er til sölu yrði
saltfiskverkuninni þar komið fyrir
einhvers staðar í húsnæði nýja fyrir-
tækisins. Borgarsjóður á hins vegar
húsið á Meistaravöllum og óvíst er
um framtíð þess.
Miðvikudagur 27. nóvember 1985 3
■ Frá stofnfundi íslenska þróunarfélagsins hf. sl. laugardag.
NT-mynd: Sverrir
og mögulegt er. Bjóst Davíð við að
um þrír starfsmenn ættu að geta
annað starfseminni.
Stjórn félagsins var kosin á stofn-
fundi þess sl. laugardag og þar sem
félagið er algerlega fjárvana enn
bauð aldursforseti stjórnar upp á
Trópí og Svala. Sagði Davíð að
fyrstu afborganir af hlutafjárloforð-
um ættu að berast félaginu fyrir 23.
desember, hinsvegar bjóst hann
ekki við að félagið byrjaði á því að
deila út jólagjöfum. Eru það um 85
milljónir sem eiga að greiðast fyrir
þann tíma. Restina af 340 milljón-
unum sem lofað var eiga hluthafar
að greiða á þrem árum. Þá hefur
félagið loforð um ríkisábyrgð á erl-
end lán að 450 milljónum króna.
Davíð sagði að félagið ætti að
stuðla að allri nýsköpun í atvinnulíf-
inu og yrði vonandi þjóðfélaginu
lyftistöng í framtíðinni. Sagði hann
að aðalmálið væri að stjórnin væri
samhent og sýndist honum góðar
horfur á því, því honum litist vel á
að vinna með þessum mönnum.
Stólar
frá Stáliðjunni
- vom gegn
þreytu
Skrifborðsstólamir frá Stáliðjunni eru
hannaðir í samráði við sjúkraþjálfara.
Þeir fást í 10 gerðum með eða án
arma og henta því við margbreytilegar
aðstæður. Meðal viðskiptavina okkar
eru stór fyrirtæki og stofnanir, m. a.
Póstur og sími og Ríkisspítalarnir.
íslensk framleiðsla
— okkar stolt
STÁLIÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211