NT - 27.11.1985, Side 7
Miðvikudagur 27. nóvember 1985 7
Útlönd ”
■ Beirútbúar eru búnir að fá nóg af einkaherjum sem hafa lagt stóra hluti Beirútborgar í rúst með bræðravígum sínum.
Beirútbúar þreyttir á blóðbaðinu:
Skotglaðir leið-
togar handteknir
Biskupalýðræði
í páfagarðinum?
PáfagarOur-Keuter
■ Kaþólskir kirkjuleiðtogar, sem nú
þinga í páfagarði uni breytingar á
starfi og stöðu kaþólsku kirkjunnar,
hafa látið í Ijós þá skoöun að nauðsyn-
legt sé að auka valddreifingu og
lýðræði í kirkjunni.
Maxint Hermaniuk erkibiskup frá
Winnipeg í Kanada lagði meðal ann-
ars til að stofnað yrði biskuparáð sem
hefði laga- og framkvæmdavald til að
stjórna málefnum kirkjunnar í sam-
ráði við páfann.
Aðrir biskupar hafa lagt áherslu á
að ekki verði aftur snúið á þeirri
umbótabraut sem kirkjan sé nú á þótt
nokkrir íhaldssamir feður hafi kvart-
að yfir upplausn á undanförnum
tuttugu árum.
Kirkjuþingið, sem hófst um helg-
ina, stendur í tvær vikur.
Ungverjar óhræddir
við vestræn dagblöð
Budapest-Keuter
■ Kapítalísk dagblöð frá Vestur-
löndum eru nú fáanleg í Ungverja-
landi sem er þannig orðið fyrsta
kommúnistaríkið sent leyfi-r almenn-
ingi að kaupa vestræn dagblöð á
almennum blaðsölustöðum.
Vestræna blaðasalan hófst á meðan
alþjóöleg menningarráðstefna, með
fulltrúum haðanæva að úr heiminum,
stóð yfir í Búdapest. Ráðstefnunni
lauk í gær cn ungversk stjórnvöld
segja að blaðasölunni verði haldið
áfram.
Bela Koepeczi menningarráðherra
Ungverjalands sagði á umræðufundi í
tiusturríska sjónvarpinu um síðustu
helgi að Ungverjar gætu náð sjón-
varps- og útvarpssendingum frá Vest-
urlöndum. Það væri því engin ástæða
til að meina þeim að lesa dagblöð
þaðan.
Blöðin, sem almenningi í
Ungverjalandi er nú boðið upp á. eru
m.a. The Times. Frankfurter Allge-
meine, Lc Monde, The international
Herald Tribune og íhaldsblaðið Die
Presse frá Austurríki.
Beirút-Reuter:
■ Samtök andstæðra fylkinga mús-
lima, sem hafa'að undanförnu barist
í Beirút, hafa látið handtaka 46
hermenn og foringja í einkaherjum
sínum og ásakað þá um að vera
friðarspillar og ofstopamenn. Beirút-
búar vonast til þess að bræðravígum
múslima, sem stóðu í fimni daga sé nú
lokið.
Bardagarnir hófust eftir að her-
menn í einkaher Framfaraflokks
sósíalista, sem er undir forystu drúsa-
leiðtogans Walids Jublatts, rifu niður
fána á þjóðhátíðardegi Líbanons í
seinustu viku. Jublatt hefur viður-
kennt að „óupplýsir“ foringjar í
einkaher flokksins hafi með þessu
rofið friðinn.
Amal-sveitir shita brugðust hart
við og í fimm daga börðust einkaher-
irnir, sem báðir njóta stuðnings Sýr-
lendinga, um yfirráð í einstökum
hverfum. Peir hafa nú skilað aftur
svæðum sem þeir náðu hvor frá öðr-
um og sameiginlegar friðarsveitir liafa
verið stofnaðar til að tryggja að átök
brjótist ekki aftur út.
Almenningur í Beirút Iét í gær í
ljós óánægju sína með einkaherina
sem þeir forðast venjulega að gagn-
rýna vegna ótta við þá. Fréttamaður
Reuters varð vitni að því að gömul
kona formælti hermönnum sem voru
að fylgja föllnum félögum til grafar.
Hún kallað m.a: “Farið og berjist við
gyðingana. Hættið að drepa hver
annan.“
Einn af leiðtögum verkalýðsfélags
sunni-múslima hvatti í gærtil allsherj-
arverkfalls á föstudag til að mótmæla
stríði einkaherjanna í Beirút. Hann
krafðist þess að allir einkaherir verði
gerðir útlægir úr Beirút. Þessi afstaða
virðist eiga sér mikinn hljómgrunn
meðal aimennings í borginni.
Víetnamar biðja
um aðstoð vegna
uppskerubrests
Hanoi-Reuter
■ Víetnömsk stjórnvöld hafa beðið
alþjóðahjálparstofnanir um neyðar-
aðstoð vegna gífurlegra skemmda
sem fellibylir hafa valdið að undan-
förnu á uppskeru og mannvirkjum.
Að sögn stjórnvalda hafa fellibylir
eyðilagt allt að 800.000 tonnum af
hrísgrjónum og skemmt um 400.000
hektara af landbúnaðarlandi á Rauð-
ársvæðinu og í Binh Tri Thien-fylki í
Mið-Víetnam.
Víetnamskir embættismenn segja
að Sovétríkin. Efnahagsbandalag
Evrópu og alþjóðlegar hjálparstofn-
anir hafi sent matvæli, föt, lyf og
önnur hjálpargögn til óveðursvæð-
anna. Það sé samt engan veginn nóg
þar sem neyðin sé mikil.
La Xuan Dinh framkvæmdastjóri
alþjóðadeildar landbúnaðarráðu-
neytis Víetnams segir að vegna óveð-
ursskemmdanna hafi Víetnamar
varla nóg til að brauðfæða þær 60
milljónir sem búa í Víetnam.
Dinh segir að mikið vanti upp á að
Víetnamar hafi nóg að bíta og
brenna. Þeir borði aðallega kornmeti
en það vanti eggjahvítu í daglega
fæðu þeirra. Engin mjólk sé til fyrir
börn og sjúklinga þar sem aðeins
5000 mjólkurkýr séu í landinu.
Víetnamar stefndu upphaflega að
því að ná 19 milljón tonna kornupp-
skeru í ár. En vegna óveðursins er
ólíklegt að þeim takist að ná mikið
meiri uppskeru en í fyrra þegar hún
var 17,8 milljón tonn.
Herþota
missir
sprengju
í Madrid
Madrid-Reutcr
■ Spænskur orustuflugmaður missti
óvart sprengju úr Phantom-orustu-
þotu sinni yfir íbúðahverfi í Madrid
í gær að sögn spænsku lögreglunnar.
Sprengjan var óvirk en olli samt
verulegum skemmdum á þremur
húsunt. Engin slys urðu á mönnum.
Auglýsing um innlausn
happdrættisskuldabréfa
ríkissjóös
G flokkur 1975
Hinn 2. desember hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs
í G flokki 1975, (litur: grágrænn (avokado)).
Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 2.000, nú kr. 20,00,
verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á
vísitölu framfærslukostnaðar frá útgáfudegi á árinu 1975 til gjalddaga í ár.
Innlausnarverð hvers skuldabréfs í greindum flokki er kr. 814,45
Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda á,
að bréfin eru eingöngu innlevst í afgreiðslu Seðlabanka íslands.
Hafnarstræti 10. Revkiavfk.
Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu
Seðlabankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða
hvar sem er á landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans.
Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar vísitölu
framfærslukostnaðar.
Skuldabréfin fyrnast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 1. desember 1985.
Reykjavík, nóvember 1985
SEÐLABANKI ISLANDS