NT - 27.11.1985, Blaðsíða 11
fíF Miðvikudagur 27. nóvember 1985 11
LlL Ba ekur1
Þættir
frá Laufási
Bolli Gústavsson: Litið út um
Ijóra. Þættir. Skjaldborg 1985.
232 bls.
■ I þessari nýju bók sr. Bolla
Gústavssonar í Laufási eru
fimmtán þættir um menn og
málefni, flestir tiltölulega nýir
að endaniegri gerð, þótt efnis-
drög sumra séu sýnilega nokkuð
eldri. Þættirnir eru sundurleitir
að efni, en snúa þó flestir að
þeim viðfangsefnum, sem
Laufásklerki munu kærust, bók-
menntum, listum, trúmálum og
skemmtilegum samferðamönn-
unt.
Allir munu þættirnir hafa ver-
ið samdir með það fyrir augum,
að þeir birtust í blöðum eða
tímaritum og allir eru þeir
skrifaðir á lipru en vönduðu
máli og ófáir þeirra hafa að
geyma kveðskap, gamlan og
nýjan.
Eins og áður sagði er efni
þáttanna margvíslegt og koma
fjölmargir við sögu, ýmist þjóð-
kunnir menn núlifandi, látnir
skörungar og síðast en ekki síst,
menn sem munu alþjóð lítt
kunnir, a.m.k. nú á dögum, en
njóta, eða nutu, þeim mun meiri
hylli þeirra, sem þekktu þá.
Efni þáttanna verður ekki
tíundað hér og ekki verður
reynt að draga þá í dilka eftir
„gæðum“, enda er sú mælistika
oft harla óljós og fer notkun
hennar mest eftir smekk hvers
og eins. Ég get þó ekki stillt mig
um að nefna nokkra þætti, sem
mér þóttu skemmtilegri aflestr-
ar en aðrir og ræður þar kannski
mestu, að þeir rifjuðu upp göm-
ul kynni.
Þar er þá fyrst að nefna
stórskemmtilegan viðtalsþátt
við valmennið og hagyrðinginn
Bjarna Jónsson frá Gröf, sem
flestir gamlir Akureyringar
þekkja einfaldlega undir nafn-
inu Bjarni úrsmiður. Þeir Bjarni
■ Séra Bolli Gústavsson.
og sr. Bolli fara víða í þættinum
á kostum og mjög athyglisverð
þótti mér sú kenning Bjarna, að
Borgarvirki væri smíð írskra
papa. Mun þó næsta erfitt að
færa sönnur á það mál.
Bráðskemmtilegur og fróð-
legur er einnig þátturinn um
Björgvin Guðmundsson
tónskáld, ekki síst að því er
snertir samskipti hans við
Stephan G. Stephansson. Enn
ber að nefna þætti um aldamóta-
mennina Björn Bjarnarson
Dalasýsluman og dr. Valtý
Guðmundsson og síðast en ekki
síst ber að nefna þætti um
norðlensku fræðimennina tvo,
Konráð Vilhjálmsson og Hólm-
geir Þorsteinsson.
Eins og áður sagði cru þætt-
irnir í bókinni allir ritaðir á lipru
og vönduðu máli og höfundur
leyfir sér að fyrna mál sitt á
stöku stað, þó ávalit í hófi, svo
aldrei verður af skrípi, eins og
stundum vill brenna við er menn
reyna að rita mál, sem þeim er
ótamt. Góðar teikningar Lauf-
ásklerks lífga enn upp á bókina,
sem annars er að öllu leyti
ágætlega frágengin og útgefin.
Jón Þ. Þór
Árbók ís*
lands 1984
og virðist mér sent umfjöllun sé
nú heldur ýtarlegri en áður og
er það vel, mér hefur oft þótt
frásögn af ýmsum eftirminnileg-
um atburðum helsti stutt á þess-
um bókunt.
Hér er vitaskuld ekki vett-
vangur til að greina frá öllu því,
sem getið er unt í bókinni, en
lesendum til nokkurrar glöggv-
unar skal þess getið, að fjallað
er um Alþingi ogstjórnmál, alla
megin atvinnuvegi þjóðarinnar,
slysfarir og bjarganir, bók-
menntir og listir, dóms- og saka-
mál, efnahagsmál, eldsvoða,
fjölmiðla, íþróttir, kjara- og
atvinnumál, skák og bridge,
náttúru og veðurfar, skóla- og
menntamál og einn efnisflokk-
urinn ber yfirskriftina „menn og
málefni" og annar nefnist „úr
ýmsum áttum" og er þar fjallað
um málefni, sem torvelt er að
setja á bás með þeim efnisflokk-
um, sem að framan eru taldir.
Eins og þessi upptalning ber
með sér, er hér getið fjölda-
margra atburða og efna. Frá-
sögn höfundar er ávallt lipur og
greinargóð. Þarsem helst mætti
að finna er, að honurn hættir ef
til vill til þess að tína til full
smavægilega atburði. Það er þó
vissulega smekksatriði og víst
skal viðurkennt, að það sem er
lítilsháttar viðrburður í augum
eins, getur skipt miklu í augum
annars. Verður þá einnig að
hafa í huga, að höfundur virðist
hafa sett sér það markmið að
geta sem flestra atburða í Itverj-
um efnisflokki og því sjónar-
miöi er hann trúr.
Allur frágangur bókarinnar
er útgáfu og höfundi til sóma.
Bókin er prentuð á góðan
pappír, hún er handhæg í notk-
un og ekki er annað að sjá, en
að prentun hafi tekist vel.
Jón Þ. Þór.
Oft er gott
sem gamlir kveða
Erlingur Davíðsson: Aldnir
hafa orðið. Frasagnir og fróð-
leikur. Bókaútgáfan Skjaldborg
1985. 384 bls.
■ Fjórtánda bindið í ritröð-
inni Aldnir hafa orðið er nú
komið út og er mér til efs, að
nokkur bókaflokkur hafi orðið
lífseigari hér á landi, ef undan
eru skilin ritsöfn einstakra höf-
unda, ritraðir fræðafélaga og
önnur rit í þeim dúr.
Ekki mun ofsagt að bóka-
flokkurinn hafi fengið ágætar
viðtökur lesenda, enda hefur
hann að geyma efni, sem ntörg-
um er hugstætt. Á bókarkápu
þessa bindis segir: „Með hinum
öldnu, sem kveðja, hverfur
jafnan mikill fróðleikur og lífs-
viska, sem betur er geymdur."
Undir þessi orð hljóta allir að
geta tekið, og þegar flett er
bindunum fjórtán, sem þegar
eru úti komin dylst engum, að
þau hafa að geyma rnikinn fróð-
leik og margvíslegan. Erlingur
Davíðsson hefur verið einkar
laginn að velja sér sögumenn,
sem hafa að baki ólíkan lífsferil,
fólk úr sveitum og þéttbýli, úr
ýmsum starfsgreinum. sem þó á
það allt sameiginlegt, að kunna
vel að segja frá, og það sem ckki
skiptir minna máli, að hafa
eitthvað að segja frá. Því eru
þessar bækur svo ómetanleg
fróðleiksnáma sem raun ber
vitni.
Sögumenn í þessu fjórtánda
bindi eru alls sjö, og koma úr
ólíku unthverfi og ýmsurn
störfum. Þau eru: Þorsteinn
Einarsson, íþróttafulltrúi, Elín
Aradóttir, húsfreyja á Brún í
Reykjadal, Jóhann Sigurvin
Sigurðsson, formaður frá Háa-
gerði við Dalvík, Steingrímur
Sigurðsson, járnsmiður á Akur-
eyri, Hans Pedersen, danskur
maður, sem lengi hefur verið
búsettur á Akureyri, Ólafur
Þorsteinsson, forstjóri í Reykja-
vík og Jónas Pétursson fyrr-
verandi alþingismaður.
Ekki ætla ég mér þá dul að
gera upp á milli sögumanna og
reyna að draga þá í dilka, enda
væri slíkt fáránlegt, svo ekki sé
meira sagt. Sögumenn þessarar
bókar hafa allir frá mörgu fróð-
legu og skemmtilegu að segja.
þótt þeir leggi vitaskuld ólíkt
mat á eitt og annað, sem við
hefur borið á lífsgöngunni.
Það er von þess, sem þessar
línur ritar, að bókaflokkurinn
Aldnir hafa orðið megi enn
koma út um mörg ókomin ár.
Nóg er af eldra fólki í landinu,
sem kann frá mörgu að segja,
geymir fróðleik, sem betra er að
halda til haga en týna.
Jón Þ. Þór.
■ Erlingur Davíðsson.
Steinar J. Lúðvíksson: Árbók
Islands. Hvað gerðist á íslandi
1984. Myndaumsjón Gunnar V.
Andrésson.
Örn og Örlygur 1985.
351 bls.
■ Árbók íslands fyrir árið
1984 er myndarleg bók og efn-
ismikil. Þar segir frá helstu at-
burðum í öllum málaflokkum
VINSÆLASTI HERRAFATNADUR í EVRÓPU.
______________ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERD.____________
lYiClkC I ÖLLUM BESTU HERRAFATAVERSLUNUM Á LANDINU.
GÆÐIN í ÖNDVEGI
AKI'
GÆÐIN í ÖNDVEGI
Ika SKYRTUR
'—✓
iir
ika buxur
Allr/V
GÆÐIN í ÖNDVEGI
rr.elka úlpur