NT - 28.12.1985, Side 5

NT - 28.12.1985, Side 5
Laugardagur 28. desember 1985 5 ★ Fullkomin veltigrind ★ Lúxus innrétting í húsi ★ í vali miðtengd eða hliðarskipt grafa ★ Gamalreyndur mokstursbúnaður ★ Fleiri stærðir af öflugum Perkins díeselvélum ★ Hydrostatic stýri ★ Mjög öflug afturhjól ★ Vökvahemlar ★ Ný þrumu skipting á fullu afli ★ Öflugt - einfalt vökvakerfi ★ Öflug festing tengibúnaðar. ★ Nýr framöxull 4WD ★ Öflugir hjólbarðar ★ Val á fjölbreyttum aukabúnaði. MPIndustrial Áramótin nálgast: Flugeldar af öllum stærðum og gerðum Fjórtán aðilar selja í höfuðborginni ■ Lögregluembættið í Reykjavík hefur veitt leyfi til fjórtán aðila og félagssamtaka í Reykjavík, þar sem heimiluð er flugeldasala fyrir ára- mótin, Um er að ræða svipaðan fjölda og verið hefur fyrir undanfarin áramót. Að venju er mest ntegnis um íþróttafélög og björgunarsveitir ýmiskonar, sent fjármagna starfsemi sína með flugeldasölu. Hjálparsveit- ir skáta eru tvímælalaust stærstu flugeldasalarnir á íslandi. Lands- samband Hjálparsveita skáta flytur inn vörur og selur til aðila um land allt. Hjálparsveit skáta: Reykjavíkur- deild Hjálparsveitanna verður með átta útsölustaði í höfuðborginni. Þeir eru: Skátabúðin við Snorra- braut, Volvo-salurinn, Suðurlands- braut, Fordhúsið, Skeifunni, Al- aska, Breiðholti, Eiðistogi 13, skúr fyrir utan Miklagarð og einnig verð- ur selt úr bíl frá Hjálparsveitinni sem verður staddur á Lækjartorgi. Á öll- um þessum stöðum verður opið frá níu á morgnana til klukkan 22 á kvöldin. Boðið er upp á fjórar stærð- ir af fjölskyldupökkum. Þeir kosta krónur 850 þeir minnstu og allt upp í 3200 krónur þeir voldugustu. Þá bjóða skátarnir svokallað stjörnutil- boð á 350 krónur. Eins og í fyrra, skreyta stjórnmálamenn hluta af þeim rakettum sem á boðstólum eru hjá skátunum. Fyrir utan það sem áður hefur verið talið eru margvís- legar gerðir af rakettum og blysum sem sölumenn aðstoða við val á. Ellingsen Ánanaustum: Þetta er 69. árið sem Ellingsen býður upp á flugelda fyriráramótin. Þeirættu því að vita hvað þeir tala um sölu- mennirnir þar. Að venju eru fjöl- skyldupakkar af ýmsum gerðum til sölu. Verðið er krónur 800, 1300 og 1800. Stórar rakettur sem tilvalið er að skjóta í loftið og um leið klukkan slær tólf á gamlárskvöld, eru seldar í sjö gerðum. Þær kosta á bilinu 450 til 750 krónur. Opnunartími hjá Elling- sen er heldur styttri en gerist hjá hin- um hefðbundna flugeldasala. Opn- unartími fylgir reglum um opnun verslana. Fiskaklettur: Björgunarsveitin Fiskaklettur í Hafnarfiröi verður með þrjá útsölustaði í Hafnarfirði. Hjallabraut 9, Bæjarbíói og á Strand- götu. 75, í Dröfn. Verðið á fjöl- skyldupökkunum frá þeim björgun- arsveitarmönnum er krónur 500,900 og 1600. Opnunartími er 10 til 22. Jón Birgir Þórólfsson björgunar- sveitarmaður, og ein aðalsprautan í flugeldasölu þeirra Fiskakletts- manna sagði í samtali við NT að talsverð breyting hefði orðið á kaup- venjum viðskiptamanna á seinni árum. Svokallaðar „kökur" og „tívolí-bombur" njóta nú aukinna vinsælda. Jón Birgir taldi þá skýr- ingu líklegasta að þar spilaði veðrið íslenska nokkuð stóran þátt, þar sem þessi hlutir springa ekki í sömu hæð og stærstu raketturnar, sem vildu jafnvel hverfa út í sortann. Fiskaklett- ur er með flugelda og blys frá Austur- og Vestur-Þýskalandi, Kína og ís- landi. Fyrir utan björgunarsveitir og skátana, eru mýmörg íþróttafélög sem hafa selt flugelda um nokkurra ára skeið. Þar má nefna Fram sem selur að venju í félagsheimilinu, KR- ingar eru stórir í sniðum og selja m.a. í félagsheimilinu. Víkingar kaupa af skátunum og selja á einum fjórum stöðum í hverfinu. Þróttur selur sínum velunnurum í félags- heimilinu við Holtaveg. Þá eru Leikn- ir og Fylkir með flugeldasölur og einnig önnur félög sem selja minna. Fari svo að veður haldist gott, er viðbúið að sala á flugeldum verði góð hjá hinum ýmsum aðilum. Alltaf er hætt við slysum, þar sem flugeldar eru hafðir til skemmtunar á gamlárs- kvöld. Þörf er fyllstu varkárni svo MF50H POWERSHUTTLE STÓRKOSTLEG NÝJUNG ÁRMÚLA3 REYKJAVIK SlMI 38900 ekki hljótist af slys. Bannað er að halda á blysum sem ekki eru merkt sérstaklega fyrir slíka meðferð. Þá er vissara að hafa stöðuga undirstöðu þegar skotið cr upp stóru rakettun- um. Nú er ekki snjónum fyrir að fara og þarf að notast við annað. Lítra- flaska fyllt með vatni gefur stöðug- leika. Þá er einnig hægt að fá á flest- um útsölustöðum flugelda, sérstak- an stand fyrir rakettur. Ef svo illa vill til að brunasár hljótist af meðferð skot og flugelda, er rétt að kæla sárið strax og leita síðan á slysavarðstofu ef ástæðæþykir.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.