NT - 28.12.1985, Síða 11
rji í aðsigi en getur ekkert aðhafst. Bjami skoraði tvö mörk í gærkvöldi.
NT-mynd: Ámi Bjarna
Laugardagur 28. desember 1985 11
ísland og Danmörk mættust í landsleik í handknattleik í gærkvöldi:
Ekki lágu Danir
fullkomlega í því
Jafntefli varð í hörkuspennandi leik - íslendingar skoruðu jöfnunarmarkið á síðustu
sekúndunni - Voða gaman í Höllinni
■ Ekki lágu Danir í því. Reyndar
voru þeir næstum búnir að vinna ís-
lenska landsliðið í handknattleik í
gærkvöldi. Þeir voru yfir 20-19 og
Laugardalshöllin titraði og skalf.
Fjórar sekúndur eftir og menn gripu
andann á lofti ellegar lokuðu augun-
um nema hvort tveggja var. Auka-
kast dæmt á Dani. Sigurður Gunnars-
son fékk boltann og þrumaði honum
upp í markhornið. Glæsilegt og
menn hoppuðu hæð sína í loft upp.
Leikurinn var umfram allt spenn-
andi og skemmtilegur á að horfa.
Nokkuð mikið var um mistök, sér-
staklega í varnarleiknum og það hjá
báðum liðum. Danir léku lipurlega
og hratt og standa sannarlega V-
Þjóðverjum og Spánverjum ekki að
baki nema síður sé í handknatt-
leiksíþróttinni.
Michel Fengér náði forystunni fyr-
ir Dani með fallegu marki úr horn-
inu. Fenger var atkvæðamikill í
leiknum, góður hornamaður og
hann gerði þrjú fyrstu mörkiri fyrir
Baunverja sem byrjuðu vel, komust
í 4-1 og 5-2. Kristján Arason og
Þorgils Óttar voru einnig atkvæða-
miklir í byrjun. Þorgils skoraði tvö
mörk eftir fallegar sendingar frá
Kristjáni, sem einnig komst á marka-
listann fljótlega.
Þegar rúmar tuttugu mínútur voru
liðnar komust fslendingar yfir í
fyrsta skipti. Bjarni skorar tvö mörk
og Páll það þriðja og staðan orðin 9-
6. Danir eiga þó síðustu tvö mörkin
og staðan í hálfleik því 9-8. Fyrri
hálfleikurinn var kaflaskiptur rnjög
og norsku dómararnir settu sitt mark
á hann með stöðugum útafrekstrum.
Danir jafna metin fljótlega í síðari
hálfleiknum og komast svo yfir.
Morten Christensen var drjúgur við
markaskorunina og Nielsen og
Rasmussen hættulegir. Þegar tíu
mínútur eru liðnar er Steinar útilok-
aður en Landinn tvíeflist og jafnar
metin 13-13. Eftir það er leikurinn
hnífjafn fram á lokasekúndurnar
fyrrnefndu.
Kristján Arason átti góðan leik í
gærkvöldi. Hann skoraði fimm
mörk, átti tvær línusendingar scm
gáfu mörk og opnaði vel fyrir sam-
herja sína. Kristján er góður
leikmaður, því verður ekki neitað.
Hann var tekinn úr umferð síðustu
tíu mínútur leiksins. Páll Ólafsson
og Þorgils Óttar voru einnig í fínu
formi. Páll var grimmur við að fiska
boltann og óhræddur við Danina.
Þorgils Óttar skoraði fjögur mörk og
vann úr öllu senr hægt var að vinna úr
á línunni.
Sigurður Gunnarsson þurfti að
■ „Það vantaði marga leikmenn í
okkar lið og það hafði mikið að segja
í þessari viðureign," sagði Bogdan
Kowalczyk landsliðsþjálfari eftir
leikinn í gærkvöldi en var þó greini-
lega nokkuð hrcss með jafnteflið
sem náðist svo eftirminnilega.
„Vinstri vængurinn var hálflamað-
ur og slæmt að þurfa að nota Sigga til
Kölnarblaðið hér í Þýskalandi seg-
ir Jóhann lnga Gunnarsson hætta
störfum hjá handknattleiksliðinu
Kiel á næsta vori. Þetta kemur nokk-
uð á óvart því búist hafði verið við að
Jóhann héldi áfram með liöið í að
bregða sér í hlutverk skyttu í þessum
leik. Hann var of bráður á köflum og
reyndi rnikið upp á eigin spýtur. Skot
hans í lokin var þó það mikilvægasta
í leiknunr og ekki brást kappinn þá.
Kristján Sigmundsson lék í niark-
inu og náði sér ekki á strik. Hann
varði ein sjö skot og hefur oftast leik-
ið betur. Ellert Vigfússon spreytti sig
einnig en markvarslan í heildina var
dauf.
Danska liðið er ágætt. Það leikur
lipran handbolta og býr yfir hættu-
legum hornaleikmönnum ásamt
ágætum markmanni Paul Sörenscn.
Það er enginn vafi á að þær tvær
viðureignirsem eftir eru verða jafnar
því ekki skilur mikið að þessi lið.
að fylla upp það skarð því hann cr
ekki vanur stöðunni. Markvarslan
var einnig ekki nema í mcðallagi og
það reynist sjaldan nógu gott cf
vinna á landsieiki," sagöi Bogdan,
og bætti við að danska liðið væri gott
varnarlega séð og baráttan þar til
fyrirmyndar, eins og reyndar hjá ís-
lensku strákunum.
minnsta kosti eitt ár í viðbót. Blaðið
segir pólska leikmanninn Marek
Panas, sem leikur einmitt með Kiel-
arliðinu, taka við þjálfuninni.
Jóhann Ingi er mjög virtur hér sem
þjálfari og það verður fróðlegt að sjá
hvað muni gerast í hans málum á
næsta ári.
Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfari:
„Vantaði marga menn“
Hættir með Kiel
Kölnarblaðið segir Jóhann Inga hætta störfum í vor
Frá Gudmundi Kurlssyni frétturituru NT
í V-Þýskulandi:
lór Ásgrímsson * Jón Helgason
Ragnhildur
Helgadóttir
Árni Johnsen
Sverrir
Hermannsson
Guðmundur J.
Svavar Gestsson
Þorsteinn Pálsson
Geir
Hallgrímsson
CT/SÍA