Morgunblaðið - 12.07.2004, Page 24
MINNINGAR
24 MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Tyrfingur Sig-urðsson fæddist í
Keflavík 13. júní
1936. Hann lést á
heimili sínu aðfara-
nótt miðvikudagsins
30. júní síðastliðins.
Foreldrar hans voru
hjónin Sigurður Jó-
hann Guðmundsson,
f. 21. júlí 1906, d. 1.
maí 1965, sjómaður
og bifreiðastjóri, og
Sigrún Hannesdóttir,
húsmóðir, f. 22. sept-
ember 1911, d. 24.
júlí 2001. Þau bjuggu
allan sinn búskap í Keflavík. Þau
eignuðust níu börn. Þau eru: Guð-
mundur, kvæntur Sesselju Ingi-
mundardóttur, Arnbjörg, d. 6.
apríl 1987, Hannes, kvæntur Dag-
mar Jóhannesdóttur, Sigurður,
kvæntur Eddu Lúðvíksdóttur,
Guðni Sigurbjörn, kvæntur Guð-
rúnu Mortensen Sigurðsson,
Grétar Þór, d. 24. nóvember 1945,
Grétar Þór, kvæntur Signýju Sig-
urhansdóttur, Lilja Björk, gift
Sigurði Ólafssyni.
Tyrfingur kvæntist 2. febrúar
1957 Sigrúnu Guðnadóttur, f. 21.
febrúar 1939 í Reykjavík. For-
eldrar hennar voru Guðni Bjarna-
son verkstjóri, f. 20. júní 1907, d.
11. september 1989, og Jónína
Davíðsdóttir húsmóðir, f. 10. jan-
úar 1913, d. 31. desember 2003.
Börn þeirra eru: 1) Guðni Tyrf-
ingsson, arkitekt, f. 10. september
1956. Eiginkona hans er Auður
Alfreðsdóttir innanhússarkitekt,
f. 20. nóvember 1957. Börn þeirra
eru: Sigrún Guðnadóttir, f. 1. maí
1979, sambýlismaður Jesper
Wagner. Snædís Guðnadóttir, f.
14. október 1980. Alfreð Guðna-
son, f. 12. október 1990. Öll búsett
í Danmörku. 2) Sig-
urður Tyrfingsson,
fasteignasali, f. 25.
desember 1960.
Börn hans eru Tyrf-
ingur Sigurðsson, f.
28. október 1989.
Styrmir Sigurðsson,
f. 16. október 1991.
Breki Sigurðsson, f.
23. desember 1997.
Fóstursonur Sigurð-
ar er Freyr Ágústs-
son, f. 29. október
1986. 3) Þórunn J.
Tyrfingsdóttir,
starfsstúlka á
Sunnuhlíð, f. 18. janúar 1964. Eig-
inmaður hennar er Jóhann Dal-
berg Sverrisson, sjómaður, f. 30.
janúar 1964. Sonur Þórunnar er
Guðni Bjarnason, f. 15. janúar
1990. Sonur Þórunnar og Jóhanns
er Bjartur Dalberg Jóhannsson, f.
1. júní 2001.
Tyrfingur ólst upp í Keflavík
og stundaði meðal annars versl-
unarstörf. Hann lærði húsasmíði
hjá Guðmundi Skúlasyni og Þór-
arni Ólafssyni. Árið 1962 flutti
hann ásamt fjölskyldu sinni í
Kópavog og hafa þau búið þar
alla tíð síðan. Lengst af starfaði
Tyrfingur sem sjálfstæður bygg-
ingameistari en síðustu tíu árin
sem byggingarstjóri hjá Húsanesi
ehf. Tyrfingur starfaði mikið að
félagsmálum. Hann var fulltrúi í
byggingarnefnd Kópavogs í 12 ár.
Hann var ötull félagi í Lions-
klúbbi Kópavogs og sat í fulltrúa-
ráði sjálfstæðisfélaganna í Kópa-
vogi í áraraðir. Tyrfingur gekk í
Frímúrararegluna á Íslandi árið
1985.
Útför Tyrfings verður gerð frá
Hallgrímskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Í dag kveðjum við Tyrfing,
tengdaföður minn, sem skyndilega
og allt of fljótt var hrifinn í burtu frá
okkur.
Ég kom fyrst inn á heimili Tyrf-
ings og Sigrúnar fyrir 27 árum, þeg-
ar ég kynntist Guðna, elsta syni
þeirra. Af þeim geislaði lífsgleði og
heimili þeirra einkenndist af heið-
ríkju og fegurð. Samrýndari og
elskulegri tengdaforeldra gat ég
ekki hugsað mér.
Tyrfingur var 18 ára og Sigrún
aðeins 15, þegar þau kynntust og
dönsuðu sín fyrstu spor í Bíókjall-
aranum í Keflavík. Þar var lagður
grunnur að farsælu hjónabandi og
ævilangri tryggð. Með einstökum
kærleika ólu þau upp börnin sín
þrjú, Guðna, Sigga og Jónu, sem nú
sakna ástkærs föður, sem var þeirra
stoð og stytta.
Er ég fór að venja komu mína á
heimili þeirra við Sunnubraut í
Kópavogi, fann ég hvernig ég var
umvafin sterkum örmum, þar sem
hjartagæskan og tillitssemin var í
fyrirrúmi. Tyrfingur var höfðingi
heim að sækja, enda var ætíð sér-
lega gestkvæmt á heimili þeirra.
Fjölskylda, vinir og vandalausir
gátu ávallt leitað aðstoðar og góðra
ráða hjá tengdapabba, og hafði hann
unun af að hjálpa öðrum.
Barnabörnin níu fengu ætíð bros
og knús frá afa. Hann tók þau á kné
sér, oft fleiri en eitt í einu, söng fyrir
þau og spurðist fyrir um hagi þeirra.
Hann kenndi þeim að dugnaður og
vinnusemi eru til farsældar og að
samheldni og kærleikur eru besta
veganestið.
Tyrfingur var atorkusamur og
ábyrgðarfullur heimilisfaðir sem
verndaði og hlúði að heimili sínu,
eiginkonu og börnum. Hann var
ætíð sá sem vaknaði fyrstur á
morgnana og aldrei taldi hann eftir
sér að vinna hörðum höndum til að
sjá fjölskyldu sinni farborða. Ófáar
eru þær byggingar sem Tyrfingur
hefur séð um framkvæmdir á með
mikilli ábyrgðartilfinningu og alúð.
En það var líka tími til að sinna
áhugamálum sínum og vinum.
Ferðalög með vinum innanlands og
utan voru kærkomin afþreying og
oft var kátt á hjalla. Tyrfingur var
hrókur alls fagnaðar og hafði unun
af að gleðja og veita. Margir hafa
notið saltkjötsveislnanna á Spáni og
smurbrauðsins í fellihýsinu að
ógleymdum glæsilegum matarboð-
um á Sunnubraut. Tyrfingur naut
þess að hafa fullt hús gesta og safna
fjölskyldu og vinum í kringum sig.
Tengdaforeldrum sínum var hann
sem sonur og taldi aldrei eftir sér að
gefa þeim tíma og aðstoð.
Rómantísku stundirnar með Sig-
rúnu voru Tyrfingi afar mikilvægar,
hvort sem var yfir kertaljósi í stof-
unni heima eða í fellihýsinu sínu. Þar
áttu þau sínar helgu stundir, þar
sem þau nutu þess að vera tvö sam-
an. Börnum og barnabörnum fannst
þetta svo yndislegt, enda afi og
amma ætíð ung í anda og eins og
nýtrúlofuð.
Minnisstæð er ferðin okkar til
Mallorka fyrir ári. Við áttum ómet-
anlegar stundir saman, öll fjölskyld-
an og þar naut Tyrfingur sín vel með
allan barnahópinn sinn í kringum
sig. Gleymi ég því aldrei þegar þau
Sigrún komu tjúttandi eftir götunni
eftir að við höfðum átt ánægjulega
kvöldstund saman.
Lífi þeirra er best lýst með orðum
tengdamömmu: „Ég mun þakka fyr-
ir hvern þann dag, sem ég hef átt
með Tyrfingi.“
Guð blessi minningu góðs tengda-
föður og afa.
Þín tengdadóttir,
Auður.
Í dag þegar ég kveð elskulegan
bróður minn, streyma hugsanirnar
fram hver af annarri. Það eru mörg
ár síðan þú fékkst það hlutverk að
leiða mig inn kirkjugólfið og var
brúðkaupsveislan haldin heima hjá
ykkur Sigrúnu þar sem endurspegl-
uðust sterkir eiginleikar ykkar
hjóna, sem voru að gleðja, gefa og
veita. Heimili ykkar Sigrúnar bar
ætíð vott um mikla samheldni og
hjartahlýju sem var til fyrirmyndar.
Bróðir minn var traustur bakhjarl
sem var gott að eiga að og vera í ná-
vist við.
Nú, er lífsins leiðir skilja,
ljúf og fögur minning skín,
um þig kæri bróðir,
ætíð sönn var tryggðin þín,
gefin mér í gleði og þrautum.
Gulli betri drengskap þinn
fann ég gegnum árin,
elskulegi bróðir minn.
Ástkær bróðir varstu
allt frá fyrstu bernskutíð.
Öllu skyldir fús að fórna,
fyrir mig ár og síð.
Bestu gjafir vildir veita,
vakti blíð þín kærleikslund,
yfir minni ævibraut,
ávallt fram á hinstu stund.
Góður bróðir gæðin mörgu,
gleymast aldrei minni sál.
mig gladdir allar stundir,
ætíð var þitt hjartans mál.
Hönd þín mig litla leiddi,
ljúfur skildir bros og tár.
Sæla og bjarta sólskinsdaga,
saman áttum liðin ár.
Fjölskyldu minni tryggur vinur
traustan reyndi drengskap þinn.
Öll, við þökkum þér af hjarta,
þúsundfalt í hinsta sinn.
Hugljúf mynd, er hjörtun geyma,
hlý sem vorsins geisli skín,
hana við eigum blíða og bjarta.
Blessuð veri minning þín.
Elsku Sigrún, Guðni, Auður,
Siggi, Jóna, Jóhann og börn, orð fá
ekki lýst hryggð minni yfir missi
ykkar. Guð gefi ykkur styrk til að
takast á við sorgina.
Lilja systir.
Það var okkur mikið áfall, þegar
okkur bárust þau sorglegu tíðindi að
náfrændi, vinur og starfsmaður okk-
ar, Tyrfingur Sigurðsson, hefði
óvænt kvatt þennan heim.
Tengsl Tyrfings við okkur spanna
langan tíma og hafa frá upphafi ver-
ið djúp og einlæg. Tyrfingur var ná-
frændi Halldórs Ragnarssonar, eins
eigenda Húsaness, og þar mynduð-
ust fyrstu tengslin.
Halldór er á sama reki og Guðni
sonur Tyrfings og var mikill vin-
skapur þeirra strax frá barnsaldri
og dvaldi Halldór oft á tíðum á heim-
ili Tyrfings og Sigrúnar og eru þær
minningar Halldóri afskaplega kær-
ar.
Á upphafstíma Húsaness lágu
leiðir okkar saman á ný, þá var Tyrf-
ingur, reyndur byggingarmeistari,
félaginu oft innan handar við skipu-
lagningu verka. Gengum við ekki
bónleiðir til búðar þar sem Tyrfing-
ur var annars vegar.
Vorið 1994 var Tyrfingur ný hætt-
ur rekstri sem byggingarverktaki
eftir mörg góð og farsæl ár og
bauðst þá til að ganga til liðs við okk-
ur og var hann í okkar liði allar göt-
ur síðan.
Tyrfingur var um margt einstak-
ur maður og sérstaklega eljusamur
starfsmaður. Hann bar hag fyrir-
tækisins alltaf í bjósti og oftast bet-
ur en sinn eigin. Tyrfingur var ein-
staklega nákvæmur maður og
snyrtimenni fram úr hófi og báru
byggingarstaðir hans þess ávallt
merki.
Tyrfingur var mjög léttur í lund
og einstaklega var nú gaman á sam-
komum Húsaness þar sem þau hjón
voru, gleðin geislaði af þeim í alla
staði og komum við til með að sakna
nærveru þeirra í framtíðinni.
Tyrfingur vildi vinna í sátt við alla
menn. Kom það einu sinni til að til
viðskiptauppgjörs kom á milli okkar,
Tyrfingur hélt fast um sitt og við um
okkar, en að lokum mættust menn á
miðri leið og þegar menn stóðu upp,
tók Tyrfingur utan um okkur og
spurði: „Erum við ekki allir sáttir?“
Tyfingur var vinur okkar í raun
og er söknuður okkar mikill, en eitt
er víst að sveit hins hæsta höfuðs-
manns er betur skipuð með Tyrfing
innan borðs.
Elsku Sigrún og börn, við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð vegna
fráfalls Tyrfings. Megi góður guð
styrkja ykkur.
Halldór, Margeir og Jóhannes.
Allir gera sínar áætlanir og meðal
annars hvernig verja skuli sumar-
leyfinu. Það höfðum við hjónin einn-
ig gert. Fyrst skyldi halda til Ham-
borgar í eina viku og þiggja heimboð
vina okkar sem þar búa.
Eftir heimkomuna þaðan var
ákveðið að fara austur á land, á mín-
ar æskuslóðir með vinum okkar
Tyrfingi og Sigrúnu. Kvöldið áður
en haldið var utan talaði ég lengi við
Tyrfing í síma og hann tjáði mér að
allt væri tilbúið til ferðarinnar aust-
ur. Búið að fara yfir allt í fellihýsinu
og jeppinn var líka allur yfirfarinn.
Ákveðið var að leggja sem fyrst af
stað eftir að við kæmum að utan.
En allt er í heiminum hverfult.
Fyrsta morguninn í Hamborg hring-
ir farsíminn. Í símanum er Sigrún og
flytur þær sorgarfréttir að Tyrfing-
ur hafi dáið þá snemma um morg-
uninn. Þvílík fregn og þvílík áhrif
sem fréttin hafði. Því verður ekki
lýst. En við gátum ekkert gert.
Kynni okkar hófust 1982 úti á
Kanarí. Yfirbókuð hótel þar leiddu
til þess að við urðum að vera fjögur
saman í íbúð sem ætluð var einum
hjónum. Tilviljun réð því að það voru
Tyrfingur og Sigrún sem voru með
okkur Donnu í íbúð. Þannig hófust
kynni sem leiddu til okkar áralöngu
vináttu, vináttu sem aldrei bar
skugga á.
Margar eru ferðirnar innanlands
sem utan er við höfum farið saman
og lengi munu geymast okkur í
minni.
Að Sunnubraut 6 bjuggu þau
Tyrfingur og Sigrún sér yndislegt
heimili sem ber gott vitni smekkvísi
þeirra og samheldni. Þau hjón voru
alltaf svo samtaka um allt sem þau
gerðu og allt var svo ljúft og gleði-
ríkt og vel af hendi leyst.
Tyrfingur var mikill félagsmála-
maður. Hann var með fyrstu fé-
lögum í Lionsklúbbi Kópavogs og
starfaði þar af mikilli elju til dauða-
dags. Hann hlaut ótal viðurkenning-
ar fyrir störf sín þar og nú fyrir
fáum vikum æðsta heiðursskjöld
Lions hreyfingarinnar.
Tyrfingur aðhylltist stefnu Sjálf-
stæðisflokksins og var góður mál-
svari hans. Hann sat í fulltrúaráði
flokksins í Kópavogi í áratugi. Þar
starfaði hann í hinum ýmsu nefndum
og ráðum. Hann var fulltrúi flokks-
ins í byggingarnefnd Kópavogs í 12
ár. Þar reyndist hann glöggur og
umfram allt réttsýnn í öllum málum
og þar nýttist þekking hans vel.
Tyrfingur lærði húsasmíði og afl-
aði sér fljótt meistararéttinda og
starfaði sjálfstætt sem bygginga-
meistari nær alla sína starfsævi. Þau
eru orðin mörg húsin stór og smá
þar sem hann lagði gjörva hönd að.
Nú skilja leiðir, svo fyrirvara-
laust, svo allt of fljótt. Traustur og
tryggur vinur er horfinn á braut.
Hans er sárt saknað. En tíminn líður
og ég bíð eftir þeim tíma að við get-
um farið að njóta minninganna um
allar þær góðu og gleðiríku stundir
sem við áttum saman. Sá tími kemur
og minningarnar verða ekki frá okk-
ur teknar.
Elsku Sigrún og fjölskylds. Þið
hafið misst mikið, en hjá ykkur er
mikið af góðu fólki sem vill styðja
ykkur og styrkja í ykkar djúpu sorg.
Leitum huggunar hvert hjá öðru.
Við Donna sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um ykkur Guðs blessunar.
Guðni Stefánsson.
Það var harmafregn, er okkur
barst sú frétt að vinur okkar og
ferðafélagi Tyrfingur Sigurðsson
væri látinn.
Helgina fyrir andlát hans hafði
hann ásamt Sigrúnu konu sinni verið
í mannfögnuði við sumarbústað okk-
ar hjóna í Grafningi, þar sem þau
samfögnuðu okkur ásamt mörgum
gömlum ferðafélögum og vinum.
Þetta var síðasta ferð Tyrfings í
þessu lífi og hann naut hennar til
fulls við hjarta íslenskrar náttúru,
þingvallableikjuveislu á föstudegi,
skoðunarferð á laugardegi og við
harmonikuspil og söng gömlu ferða-
félaganna á kvöldin.
Það voru margar ferðir farnar er-
lendis sem hérlendis og ávallt um
verslunarmannahelgi eitthvað um
landið. Ein slík var farin að Ármúla
við Ísafjarðardjúp árið 1991. Þar var
gist í tjöldum og tjaldvögnum,
einnig í hinu aldna húsi Sigvalda
Kaldalóns. Þar voru stórar veislur
haldnar og eitt kvöldið var hafður
lax úr sjókvíum á Ísafjarðardjúpi í
matinn. Tyrfingur sá um að stjórna
eldamennskunni og flakaði laxinn of-
an í allan mannskapinn. Óvenju
hlýtt var við Djúp þessa helgi og fór
hitinn í 25 stig í rjómalogni. Þessi
veðurblíða var því notuð og fengnar
tvær ferjur frá Ísafirði, siglt með
þeim frá Bæjum á Snæfjallaströnd
fyrir Bjarnarnúp inn að Látrum í
Aðalvík. Þar var mætt í stórveislu og
sextugsafmæli Friðriks Her-
mannssonar. Það var einnig farið á
ball í samkomuhúsinu á Nauteyri,
þannig að margt gerðist þessa eft-
irminnilegu verslunarmannahelgi.
Sennilega hafa Tyrfingur og Sigrún
verið með sitt gamla litla tjald, sem
fylgdi þeim nánast alla tíð þar til síð-
ustu árin. Á góðum morgnum var
Tyrfingur kominn út fyrir tjaldskör-
ina, hellti upp á kaffi og hafði til flat-
kökur með hangikjöti og þar var
gott að koma við. Tjaldið er nú
reyndar búið að gera upp og það er í
eigu fjölskyldunnar sem minjagrip-
ur. Þessarar ferðar er nú sérstak-
lega minnst sem einnar af mörgum
skemmtilegum með þessum vinfasta
og hjartahlýja manni sem Tyrfingur
var.
Þegar að þessum ferðalokum er
komið viljum við hjón ásamt mörg-
um vinum og félögum úr ferðahópi
Tyrfings Sigurðssonar senda Sig-
rúnu og fjölskyldu hennar samúðar-
og saknaðarkveðjur.
Gylfi Guðjónsson,
Elfa S. Guðmundsdóttir.
Minningarnar streyma fram nú
þegar við kveðjum vin okkar Tyrfing
eftir nær fjörutíu ára vináttu.
Fyrstu kynni okkar af þeim hjónum
Tyrfingi og Sigrúnu voru þegar
Grétar fékk hann til að ganga í
Lionsklúbb Kópavogs, en þar starf-
aði hann af heilum hug allar götur
síðan. Margar ánægjustundir áttum
við með þeim, bæði sem tengdust fé-
lagsskapnum í Lions og þess fyrir
utan. Í gamla daga þegar börnin
okkar voru lítil heimsóttum við
hvort annað, fórum í tjaldferðir sam-
an á sumrin og einnig höfum við tek-
ið þátt í öllum stórviðburðum hjá
fjölskyldum hvort annars, s.s. stór-
afmælum, fermingum eða giftingum.
Þá hafa þau Tyrfingur og Sigrún
verið okkar bestu og nánustu ferða-
félagar og höfum við ekki tölu á öll-
um þeim skemmtilegu utanlands-
ferðum þar sem við höfum notið
samveru þeirra í gegnum árin. Síð-
asta ferðin okkar saman var til Róm-
ar síðast liðið vor með félögum úr
Lionsklúbbi Kópavogs.
Tyrfingur hafði létta lund og stór-
an og góðan faðm þegar hann heils-
aði eða kvaddi vini sína. Hann var
sannur vinur sem gott var að vera í
félagsskap með. Það er með miklum
trega sem við kveðjum vin okkar,
hans verður sárt saknað.
Elsku Sigrún, börn, tengdabörn
og barnabörn, megi guð styrkja ykk-
ur á þessum erfiðu tímamótum.
Ykkar vinir,
Hildur og Grétar.
TYRFINGUR
SIGURÐSSON
Fleiri minningargreinar
um Tyrfing Sigurðsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar þeirra eru:
Pétur og Dollý, Sveinn Ingason.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Ef útför hefur farið fram eða grein
berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar sem
pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áð-
ur en skilafrestur rennur út.
Minningar-
greinar