Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.01.2004, Blaðsíða 12
12 | 25.1.2004 H rafnhildur Ming, sextán mánaða, handleikur stóra kubba, tætir tepoka og rífur í pottablóm eins og henn- ar aldri sæmir. Mamma hennar, þingkonan Þórunn Sveinbjarnardóttir, fylgist með og grípur inn í þegar pottablómið er farið að þjást óþarflega mikið. „Hún hefur mikið skap og lætur ekki ganga framhjá sér,“ segir hún og horfir á dóttur sína sem hún fékk fyrst í fangið í Kína fyrir tæpum þremur mánuðum. Þá var lokið ættleiðingarferli sem alls tók tvö ár og níu mánuði. Það er ýmislegt sem getur dregið ættleiðingu á langinn, hér á landi og í heima- landi barnanna. Í Kína virðist daglegt brauð að stúlkubörn séu borin út, þar sem karlkynið er rétthærra þar í landi og lög í gildi um að hjón megi bara eignast eitt barn. Þær sem bornar eru út bjargast stundum og fá þá skjól á munaðarleys- ingjahælum eða barnaheimilum. Auglýst er eftir foreldrum þeirra og ef enginn gef- ur sig fram er hægt að huga að ættleiðingu. Umsókn Þórunnar var send til Kína haustið 2002, um fimmtán mánuðum eftir að hún var samþykkt sem kjörforeldri. Þá var Hrafnhildur nýfædd. Fæðing- ardagur hennar er skráður 28. ágúst þar sem talið er að hún hafi verið þriggja vikna þegar hún fannst í september 2002, úti á götu í Boyang í Jiangxi-héraði í Kína. Þórunn fékk myndir og upplýsingarnar um Hrafnhildi í september á síðasta ári en þá höfðu skýrslurnar um barnið legið fyrir frá í apríl sama ár og hún því tilbúin til ættleiðingar átta mánaða en ekki fjórtán mánaða eins og hún var þegar þær mæðgur hittust loks. Í skýrslunni sem Þórunn fékk í september voru myndir og skýrslur um þroska og heilsu Hrafnhildar. Þessar upplýsingar miðuðust allar við apríl sl. Skýrslur þeirra mæðgna rötuðu svo saman á ættleiðingarskrifstofu sum- arið 2003 og svo hittust þær loks hinn 2. nóvember 2003. Byrjum á núllpunkti Þórunn ákvað fyrir þremur árum að hún vildi ættleiða barn. „Ég var ekki búin að hugsa um þetta lengi þegar ég ákvað að ættleiða. Ég er nú yfirleitt fljót að taka ákvarðanir þegar ég vind mér í þær. Ákvörðunin var sú að eignast barn og síðan varð hún sú að ættleiða barnið. Ég vissi að þetta tæki sinn tíma. En ég hafði þá ráð- rúm til þess að hugsa málið og undirbúa mig að því marki sem hægt er. Allt fyrsta árið, ef ekki lengur, var þetta mjög óraunverulegt. Það var ekki fyrr en einu og hálfu ári eftir að ferlið hófst að stóra umsóknin fór til Kína; allt um mig og mína, fjárhagsstöðu og uppruna. Þá vissi ég að það var um það bil ár í að ég myndi eign- ast barn og það stóð heima. En það er ekkert öruggt fyrr en búið er að ganga frá ættleiðingunni og allir pappírar stimplaðir og frágengnir.“ Þórunn og Eydís, eldri systir hennar, fóru til Kína í lok október sl. með hópi sem var að fara að ná í alls tíu stelpur á tveimur barnaheimilum í Jiangxi-héraði. Aðlögun var engin þegar börn og foreldrar hittust í fyrsta skipti. „Ég held að það hugtak sé ekki til í Kína,“ segir Þórunn og kímir. „Okkur var skipt í tvo hópa og sátum í stóru hótelherbergi. Svo var komið með þær, kín- verska nafnið þeirra kallað upp og foreldrarnir áttu að gefa sig fram. Ég var að hitta barnið mitt í fyrsta sinn með allt fullt af embættismönnum og fóstrum og barninu leist náttúrulega ekkert á þetta.“ Þær fengu svo dálítinn frið inni á hótelherbergi og síðan kom ein af fóstrunum og gat svarað einhverjum spurningum. „Reyndar fengum við ósköp stuttan tíma til þess. Mér fannst svolítið erfitt að geta ekki setið aðeins lengur með fóstrunum og rætt um barnið en það var ekki boðið upp á það. Við byrjum bara á núllpunkti, hún þarf að kynnast mér og ég henni. En lítil börn eru svo skynsöm, þau uppgötva fljótt hver er alltaf til staðar og gefur þeim að borða og sinnir þeim. Það gengur á ýmsu en mér finnst hún Hrafnhildur hafa verið ótrúlega dugleg. Það sama má segja um hinar stelpurnar sem komu heim í nóvember. Þetta eru flottar og dugleg- ar stelpur.“ Sumar þeirra halda hluta af kínverska nafninu sínu eins og Hrafnhild- ur Ming, en kínverska nafnið hennar þýðir björt eða skínandi og er í kínversku táknað með sól og tungli. Mótmælti kröftuglega fyrstu sólarhringana Hrafnhildur var þegar búin að taka út heilmikinn þroska og var farin að tileinka sér kínverskuna þótt hún hafi ekki verið farin að segja margt þegar hún var ætt- leidd. Hrafnhildur og stelpurnar sem eru í sömu sporum og hún, að því leyti að hafa verið yfirgefnar af mæðrum sínum og svo ættleiddar, hafa orðið fyrir tveimur áföllum á stuttri ævi. „Auðvitað er það erfitt fyrir svona lítið barn að sitja skyndi- lega uppi með einhverja ókunna konu og Hrafnhildur mótmælti kröftuglega fyrstu sólarhringana, fannst þetta ómögulegt. Svo virtist hún ákveða að sætta sig við orð- inn hlut og nú gengur vel.“ Hrafnhildur dettur og fer að gráta þegar hér er komið sögu og mamman stekkur til og huggar. „Þegar hún var nýkomin heyrðist ekki í henni þótt hún dytti kylliflöt. Hún var orðin vön því að vera ekkert að kvarta en nú er hún farin að bregðast eðli- lega við. Svo er hún líka búin að læra að kyssa og knúsa og ýmislegt fleira sem gott er að kunna í lífinu,“ segir Þórunn brosandi. „En það hefur verið vel hugsað um stelpurnar á barnaheimilinu þar sem Hrafnhildur var. Hún kann að leika sér og myndar tengsl og er hraust og þrifaleg. Ákveðnin hefur komið henni vel þar sem lífsbaráttan hefur örugglega verið hörð fyrsta æviárið.“ Líf fólks breytist við að eignast barn, hvort sem það er með ættleiðingu eða öðr- um leiðum, eins og Þórunn segir þegar talið beinist að því hvernig lífið hafi breyst með Hrafnhildi Ming. „Ég var búin að venjast því að vera barnlaus en nú er komin ný manneskja í líf mitt og hún hefur forgang. Það er mjög tímabær og gleðileg breyting en auðvitað tekur svolítinn tíma að venjast því.“ Ættleiðingarferlið er lengra fyrir einhleypa en hjón og ekki öll lönd sem leyfa ættleiðingar þarlendra barna til einhleypra. „Ég fann að sumir af þessum embætt- ismönnum áttu erfitt með að láta það ríma að ég væri einstæð móðir og stjórn- málamaður. Ég þótti því frekar skrýtin.“ „Baraðferðin“ hentar ekki Það þykir enn frekar sérstakt hér á landi að einhleyp kona ættleiði barn þótt það þyki sjálfsagt til að mynda í Bandaríkjunum og víðar. Vinum Þórunnar í útlöndum fannst þetta fulllkomlega eðlileg ákvörðun og spurðu ekki sömu nærgöngulu spurninganna og sumir Íslendingar hafa gert. „Fyrir einhverjar konur skiptir það miklu máli að ganga með og fæða barnið sitt. Ég er bara ekki þannig gerð og það vegur ekki þungt hjá mér. Ég varð vör við það framan af, þegar ég var farin að segja fólki frá þessu, að þótt allir væru mjög glaðir fyrir mína hönd voru sumir samt dálítið hissa á því að ég skyldi velja þessa leið. Kannski sérstaklega á Íslandi því Íslendingar hafa nú löngum notað gömlu „baraðferðina“ við að eignast börn, þ.e.a.s. með ókunnugu fólki. Það er ekki aðferð sem hentar mér.“ Þórunn var 35 ára þegar hún ákvað að hún vildi eignast barn. „Það hefur aldrei verið neitt markmið í mínu lífi að verða einstæð móðir, nema síður sé, en auðvitað kemur að því að maður horfist í augu við það hvort maður ætlar að eignast barn eða ekki. Örlögin hafa hagað því þannig að ég geri það ein. Ef aðstæður væru með einhverjum öðrum hætti hefði niðurstaðan líklega orðið sú sama.“ Að mati Þórunnar ætti fólk sem á í vandræðum með að eignast barn að íhuga ættleiðingu fyrr en nú er raunin. „Ætli fólk á annað borð að eignast barn eða börn er ættleiðing kostur sem allir ættu að velta fyrir sér. Flestir sem eiga við barnleysi að stríða virðast tilbúnir til að leggja mjög mikið á sig andlega og líkamlega til að eignast barnið sitt, til dæmis að fara í glasafrjóvganir. En svo virðist ættleiðingin ekki eins nærtæk. Því er stundum allt annað fullreynt þegar fólk fer að hugleiða ættleiðingu sem alvörukost. Ættleiðing tekur sinn tíma og henni fylgir mikil skrif- finnska. Fólk verður því að vera tilbúið að opna einkalíf sitt fyrir félagsráðgjöfum, barnaverndarnefndum og ráðuneyti dómsmála og færa ítarleg rök fyrir ósk sinni og því að maður geti talist gjaldgengt foreldri. Ef maður er tilbúinn til þess er það algjörlega fyrirhafnarinnar virði.“ Eftir allt saman bara einn heimur Það gerist varla lengur að börn sem fæðast á Íslandi séu ættleidd. „En áður fyrr voru börn borin út á Íslandi eins og þau eru borin út í Kína núna, eða fjölskyldur leystar upp vegna fátæktar. Um allan heim eru börn sem vantar foreldra en lífið er ekki það einfalt að það sé hægt að para þau öll saman við foreldra í fjarlægum löndum. Eins og kemur svo berlega í ljós í ættleiðingarferlinu, þá er hin endanlega ákvörðun í höndunum á yfirvöldum þess lands sem barnið er frá. Og það land, í mínu tilfelli Kína, setur sínar reglur og sín skilyrði. Það er ekki sjálfsagt að leyfa ættleiðingar til útlanda og oft spurning um þjóðarstolt. Í ýmsum löndum eru ætt- leiðingar til útlanda ekki leyfðar af því að yfirvöld vilja ekki að börnin fari annað. Ég get að mörgu leyti skilið það en ef maður hugsar fyrst og fremst um velferð barnanna á ekki að skipta neinu máli hvar þau lenda, í upprunalandi sínu eða ein- hverju öðru.“ Þórunn hefur starfað fyrir Alþjóða Rauða krossinn í þróunarlöndunum og „Ég var búin að venjast því að vera barnlaus en nú er komin ný manneskja í líf mitt og hún hefur forgang. Það er mjög tímabær og gleðileg breyting en auðvitað tekur svolítinn tíma að venjast því.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.