Morgunblaðið - 28.03.2004, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.03.2004, Qupperneq 20
20 | 28.3.2004 GEISLADISKAREKKAR | HILDUR EINARSDÓTTIR ÞARFAÞING Á GEISLADISKA ÖLD  Þessi litli geisladiskastandur, PO-Denmark. com, er hluti af stærri heild, þar sem rammarnir eru eins en notagildið mismunandi. Hann fæst í Epal og verðið er 2.480 kr.  Geisladiskarekki sem ætlaður er á borð. Hann er framleiddur hjá danska fyrirtækinu Herstal og fæst hjá Tekk-Company. Rekkinn er úr burstuðu stáli og kostar 5.900 kr.  Þessi hugvitsamlegi geisladiskastandur frá Alessi er úr plasti og fæst í Casa. Þetta eru borðar sem eru límdir á hillu eða í skúffu og eru 120 cm á lengd. Borðarnir eru klipptir niður eftir þörfum. Á heilum borða geta verið 80 diskar. Verð 1.700 kr.  Frá Exó kemur þessi geisla- diskastandur sem er úr eik. Hæðin er 140 cm og breidd 16,5 cm. Verðið 14.900 kr.  Direso er framleiðslu- heitið á þessari dönsku hirslu fyrir geisladiska, sem er ætluð á vegg. Hún fæst í Húsgagnahöllinni- Bodum og kostar 6.880 kr.  Geisladiskastandur úr áli sem kallast Eiffel. Hæðin á honum er 160 cm og hann tekur 60 diska og er til sölu í Hús- gagnahöllinni-Bodum. Verð 4.580 kr.  Portar geisladiskarekki frá Habitat. Rekkinn er úr glæru plasti og tekur 50 geisladiska. Hann má bæði vera á borði og uppi á vegg og kostar 4.500 kr. Geisladiskarekkar eru þarfaþing á hverju heimili á þessari geisladiskaöld. Oft á fólk fjöldann allan af geisladiskum og geta þeir skipt þúsundum á tónelskum heimilum. Aðrir eiga færri diska og geta rekkarnir sem hér eru sýndir hentað þeim. Oftast er það þannig að fólk er með nýjustu diskana inni í stofu hjá sér en hinir sem minna eru leiknir eru upp í skáp. Vinur minn sem er áhugamaður um hvers kyns tónlist flokkar geisladiskana í rekka eftir tónlistargerðum hvort sem það er klassík, popp, rapptónlist, hipp hopp, þjóðleg tónlist, reggi eða íslenska tónlist. Síðan raðar hann diskunum í staf- rófsröð innan hvers flokks, enda ekki vit í öðru þegar safnið er stórt. Svo er hann með eina hillu þar sem safnast þeir diskar sem hann er ekki búinn að flokka. Þegar hann hefur hlustað nægju sína þá fara diskarnir auðvitað í sinn flokk í rekkanum. Þó geisladiskarekkar séu í sjálfu sér einfaldir hlutir er hægt að hafa af þeim mikla prýði ef þeir eru skemmtilega og hugvitsamlega hannaðir. hildur@mbl.is  Vink geisla- diskarekki frá IKEA, hann er 31x16 cm á stærð og fer því ágæt- lega á borði og kostar 190 kr.  Geisladiskastandur frá Ligne Ros- et eftir hönnuðinn Arek Levy. Stand- urinn er úr áli og er 157 cm á hæð og 34 cm á breidd. Hann tekur 160 diska og kostar 36.000 kr.  CD Tube kallast þetta geisladiskastatíf úr áli frá Rosendahl, sem er til sölu hjá Epal. Það tekur 24 diska. Hönnuður er Kim Aimsig. Hægt er að fá vínrekka í stíl. Verð 7.970 kr. L jó sm yn di r: K ri st in n In gv ar ss on  Geisladiskastandur úr lagskiptu plasti. Hann er dökkrauður öðrum megin og ljósrauður hinum megin, sem gefur útlitinu aukna dýpt. Hann tekur 75 geisla- diska. Hægt er að fá tvöfaldan svona geisladiska- stand og tekur hann þá helmingi fleiri diska. Geisla- diskastandurinn, sem kallast Staccado, er frá Habitat og kostar 13.500 kr. Sá stærri kostar 23.500 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.