Morgunblaðið - 28.03.2004, Page 22
Í deildinni sem Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir lýkur bráttprófi frá við Hönnunarakademíuna í Eindhoven, erhvatt til sjálfstæðrar sköpunar frá nýjum sjónarhornum.
Námsbrautin nefnist Maður & tilvera, en af öðrum brautum
akademíunnar má nefna Maður & mennska og Maður &
makindi. Guðrún Lilja getur varla beðið eftir að ljúka náminu
og koma heim til Íslands, þar sem hún hyggst setja á fót eigin
hönnunarstofu undir merkinu Bility, sem hún hefur þegar fest
á sum verk sín. „Draumurinn er samvinna í frjóum hópi – það
hljómar meira spennandi en einyrkjan,“ segir hún.
Og þá er ágætt að hafa í farteskinu meðmæli frá hönn-
uðinum Richard Hutten, sem er af mörgum talinn í hópi
fremstu hönnuða í Hollandi. Hann hreifst svo af stólnum Flit
að hann vildi ólmur fá eintak í hönnunarsafnið sitt. Úr varð að
þau skiptust á stólum og þannig fékk hann hinn litríka Flit
sem Guðrún Lilja hannaði og skírði með því að slá saman orð-
unum „fly“ og „sit“.
„Þetta er stóll sem má sitja á, eins og títt er með góða stóla.
Með einu handtaki er svo hægt að krækja línu í og láta hann
fljúga sem flugdreka,“ útskýrir Guðrún Lilja, sem í fyrra
hannaði líka handtöskur sem hægt var að nota sem púða fyrir
þreytta sitjanda. Voru þær sýndar á tískusafni í Belgíu, ásamt
hönnun Kenzo, Moschino og fleiri.
Væntanleg húsgögn rekur að landi Af öðrum hugverkum
hennar sem vakið hafa athygli er fatnaður fyrir ófrískar konur,
sem sýnir með fljótandi kristalstækni þegar ófætt barnið
sparkar eða hreyfir sig. Er þá magastykki flíkurinnar bólstrað
eða fóðrað með hinu fljótandi efni. „Hugmyndin er líka að
setja þetta á boli fyrir karlmenn, þá er kristöllunum komið fyr-
ir á hjartastað flíkurinnar og öllum verður ljóst þegar hjartað
slær örar. Þetta er svona til að við sjáum betur hvað strákarnir
eru að hugsa,“ útskýrir Guðrún Lilja og hlær. Þróunardeild
Philips hefur ákveðið að styrkja og styðja við hugmyndina, en
Philips styrkir um 500 hönnunarverkefni á ári og ekki útséð
um hver þeirra fara á endanum í framleiðslu.
Og leikgleði Guðrúnar Lilju birtist víðar. Nefna má garð-
hellur með litlum stiga niður í jörðina, sem er hugsaður fyrir
mýsnar, álfana eða aðrar þær verur sem ímyndunaraflið kveik-
ir með fólki. Önnur tegund garðhellna er jafnframt eins konar
útiarinn. Í yfirborð hverrar hellu er grópað mynstur, þangað er
eldfimu efni svo sprautað og kveikt í þannig að hellan skíðlog-
ar á síðkvöldum. „Ég hef gert prótótýpur af þessum hellum en
þær eru ekkert komnar lengra í bili, enda of mikið að vera að
hugsa um framleiðslu meðfram síðasta áfanga námsins ... en
kannski BM Vallá heima hafi áhuga,“ segir hún kímin.
Ísland er sem sé ofarlega í huga og það kemur fram í reka-
viðarverkefninu sem Guðrún Lilja hefur á teikniborðinu. Þar
er unnið með rekavið af Íslandsströndum, smíðuð úr honum
garðhúsgögn og þau merkt hvert fyrir sig eftir því á hvaða
fjöru efniviðinn rak að landi.
Að þykja vænt um hlutina „Já, það er sem sagt fullt að gera,“
viðurkennir hún. „Ég er líka gestanemandi í mastersáfranga
hjá Jurgen Bey sem er einn af frumkvöðlum þeirrar kynslóðar
Hollendinga sem endurhanna upp úr gömlum hlutum og gefa
þeim þannig nýtt líf. Það er nýja stefnan í hönnuninni núna,
enda spyr maður sig stundum: Hvers vegna að hanna enn einn
stólinn þegar minnst milljón tegundir eru fyrir á markaðnum
sem enda flestar á haugunum fyrr eða seinna?
Við Íslendingar erum einna verstir í þessu lífsgæðakapp-
hlaupi; erum alltaf að kaupa eitthvað nýtt og eltum strauma og
stefnur á öllum sviðum. Næstu verk sem ég er að vinna tengj-
ast akkúrat þessum pælingum, að fá fólk til þess að mynda
sterkari tilfinningatengsl við það sem keypt er svo það losi sig
síður við það. Svona eins og þegar maður heldur upp á hlut af
því amma átti hann. Þetta snýst um hluti með sál eða sögu eða
sýnilegan innri strúktúr.“ sith@mbl.is
Á kvöldin loga hellurnar í garðinum.
HÖNNUN | SIGURBJÖRG ÞRASTARDÓTTIR
FLJÚGANDI STÓLAR OG LOGANDI HELLUR
Höfuð konu í Hollandi er að springa af hugmyndum
Garðhellan með grópinni,
sem nota má sem arin.
„Þetta er leikur að tilfinningum. Ef
manneskjan ruggar alltaf í sitthvora
áttina, færist hún aldrei úr stað,“
segir Guðrún Lilja um þennan stól.
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
með „Flit“ sem er bæði
flugdreki og stóll.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
40
xx
03
/2
00
4
Nokia 3310
Einfaldur, ódýr og mjög góður sími.
Verð 9.900 kr.
Verslanir Og Vodafone: Kringlunni, Smáralind, Síðumúla 28, Skífunni Laugavegi 26,
Hafnarstræti Akureyri og umboðsmenn. Þjónustuver sími 1414, www.ogvodafone.is
Frítt að senda Myndskilaboð til 1. sept. 2004.
Símann er eingöngu hægt að nota með símkorti frá Og Vodafone.
Risapáskaegg fylgir!
M
yndskilab
oð
Frí
tt að senda