Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 26
26 | 28.3.2004 er kannski vegna þess að fólk veltir því meira fyrir sér hvað fer í körfuna; skoðar, spáir og spekúlerar. Hillur heilsubúðanna og heilsuhorna stórmarkaðanna, þar sem flestar lífrænar vörur er að finna, eru ólíkar öðrum. Umbúðirnar utan um mat- vælin eru nánast alltaf glærar eða í hlutlaus- um lit, eins og til að undirstrika að þær séu svo sannarlega ekki aðalatriðið. Samt eru umbúðirnar stór hluti af því að vörurnar fá þennan ákveðna sjarma. Að hugsa um það sem við látum ofan í okkur Jafnvel þótt við vitum ekki með vissu hvort eða hversu mikla kosti lífrænar vörur hafa fram yfir þær hefðbundnu er það víst að þeir sem vanda fæðuvalið njóta þess að borða með góðri samvisku og uppskera ánægju og vellíðan. Það er mikils virði að velja af kost- gæfni það sem við látum ofan í okkur, hvort sem við veljum lífrænt eða annað. Ekki bara grænmetisfæði Lífræn fram- leiðsla einskorðast ekki við jurtafæði. Á með- al lífrænna vara eru eru ekki bara grænmeti og korn held- ur líka kjöt, fiskur og mjólk- urvörur. Það er meira að segja framleitt súkkulaði og annað sælgæti úr lífrænum hráefnum. Lífrænt er ekki trygging fyrir því að við borðum hollari mat – það er alltaf jafn mikilvægt að vanda valið og kunna sér hóf. Vistvæn framleiðsla Vörur geta verið umhverfisvænar án þess að vera lífrænar. Vörur teljast umhverfisvænar ef þær eru spar- neytnar á orku og auðlindir, endurnýtt efni eru notuð eins og frekast er kostur og framleiðslan veldur ekki mengun. Neytendur geta líka gert sitthvað til vera vænni við umhverfið, s.s. valið umhverfismerktar vörur, lágmarkað umbúða- notkun og hugað að endurvinnslu. Síðast en ekki síst er það umhverfinu til góða að velja sem oftast íslenskt og helst vörur úr eigin heima- byggð þar sem langar flutningsleiðir eru um- hverfinu óhagstæðar. Lífrænir ávextir og grænmeti – innkaup Hvort sem þú velur lífrænt eða hefðbundna fram- leiðslu er vert að muna …  Fjölbreytt fæðuval er lykillinn að holl- ustu og vellíðan – ekki einskorða ykkur við eina tegund.  Skoðið ávexti og grænmeti vel – er varan fersk og þroskastigið rétt?  Geymsla ferskra ávaxta og grænmetis rýrir gæðin – njótið á meðan varan er ný!  Nauðsynlegt er að þvo alla ávexti og græn- meti fyrir neyslu – líka lífræna vöru. Nokkrir íslenskir tenglar um lífræna ræktun, bú- skap og framleiðslu: www.mmedia.is/tun/ - www.yggdrasill.is - www.vortex.is/biobu/ -www.land- vernd.is/vistvernd/ - www.bondi.is/landbunadur/wgbi.nsf/key2/lifraennbuskapur www.ms.is - lifraent.hvanneyri.is/ Anna Sigríður er matvæla- og næringarfræðingur. naering@simnet.is Heilsufarið, umhverfið og dýrin Fólk kýs lífrænar vörur ýmist af heilbrigðisástæð- um, umhverfissjónarmiðum eða af hjartagæsku gagnvart dýrum. Í lífrænni fram- leiðslu eru eingöngu notaðar lífrænar leiðir til að stuðla að vexti plantna og dýra og hefta útbreiðslu skordýra og illgresis. Skipti- ræktun er notuð til að örva jarðveginn og næringarefnum er viðhaldið með lokaðri hringrás að mestu. Hugsað er fyrir því að dýr- in fái þá hreyfingu sem þau þarfnast og þau eru nærð út frá heilsufarssjónarmiðum en ekki bara með því markmiði að fá sem stærst- ar skepnur á sem skemmstum tíma. Næringargildið Þeim sem rannsakað hafa næringargildi lífrænna matvæla, og þá fyrst og fremst lífrænt ræktaðra ávaxta og græn- metis, ber ekki saman um hvort þau hafi nokkra sérstöðu. Einn helsti vandinn er að rannsóknirnar eru fáar og ekki hefur alls stað- ar verið vandað til verksins. Lífrænt ræktaðar kartöflur og sumt grænmeti virðist þó inni- halda nokkru meira C-vít- amín en sömu vörur við hefðbundna ræktun og í líf- rænu korni er próteinmagn- ið minna en próteingæðin jafnframt meiri en í því venjulega. Næringargildið er þó ekki bara undir fram- leiðslunni sjálfri komið. Það getur verið mjög breytilegt innan tegunda óháð ræktun- araðferðum auk þess sem næring jarðvegsins, veður- far, sólskin, væta og vindar geta skipt sköpum. Að komast á bragðið En það er fleira sem kemur til en næringarefnin. Margir hafa fallið fyrir góðu bragði lífrænnar fæðu. Einhvern veginn virðast eplin alltaf vera safaríkari, bragðið af korninu meira og kjötið meyrara. Og hvað er ánægjulegra en gott bragð í munni? Bragðið ræður líka almennt mestu um það hvað verður fyrir valinu þegar matur er annars veg- ar. Hærra verð Það er dýrara að velja lífrænt, enda er framleiðsla líka dýrari. Það er ekki á allra færi að leggja út fyrir þessum viðbótarkostnaði og því hlýtur lífrænt að flokkast sem hálfgerður lúxus. Það er til lítils að hafa hollustuna í fyrirrúmi ef ekki er til nóg að borða. Það skiptir máli fyrir heilsuna að dagleg neysla af ávöxtum, grænmeti og grófu korni verði ekki af of skornum skammti. Það er því kannski ráð fyrir marga að velja lífrænt í bland við annars vel valda vöru úr hefðbundnu rekkunum. Smart Á síðustu árum hefur lífræn ræktun orð- ið sífellt vinsælli. Ekki bara af því að fólk vill vera gott við sig sjálft, umhverfið og dýrin. Það er smart að velja lífrænt og það skiptir ekki síður máli en að velja réttu innréttinguna í eldhúsið að hafa það rétta í skápunum. Innkaupaferðin með endurunna innkaupanetið er tákn um ákveðin lífsgildi. Í öðrum heimi Það er eins og viss ró og jafnvægi sé yfir öllu lífrænu, það eru ekki bara dýrin og plönturnar sem fá meiri tíma til að vaxa heldur virðist hraðinn falla niður umhverfis þessar vörur og við gefum okkur líka meiri tíma í innkaupin. Það HOLLUSTA | ANNA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR LÍFRÆN RÆKTUN Grundvallarhugsun í lífrænni ræktun er að stuðla að frjósömum jarðvegi til lengri tíma með sjálfbærri ræktun L jó sm yn di r: K ri st in n In gv ar ss on

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.