Sunnudagsblaðið - 01.09.1957, Side 7

Sunnudagsblaðið - 01.09.1957, Side 7
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 503 aðri en 732. Keisarinn var flúinn. Vínarborg herjuð hinum bannvœn ustii sóttum, hungri og kulda, og með dégi hverjum þrengdist járn- hringur umsátursmannanna. Þá var það sem ungur pólskur maður snéri sér til borgarstjórans. Þessi ungi Pólverji hét Georg Kol- schitzky, og það sem hann bauð Vínarbúiim, var hvorki meira né minna en það, að gerá tilraun til að smjúgá í gegnum herlínu Kara Mústafas, umsátursmannanna og revna að ná sambandi við hjálpar- sveitir, undir stjórn hertogans af Lothringen. Tilbbði þessa unga og hugrakka Pólverja var tekið með miklum fögnuði. Kolschitzky hafði búið í Tyrklandi um nokkurt árabil, og' stóð því vel að vígi að því léyti að hann talaði tyrknesku sem inn- fæddur. Hann dulbjó sig sem Tyrkja, og um nóttina 13. ágúst yfirgaf hann Vínarborg ásamt þjóni sínum, Mikalowitz. Veðrið var þeim mjög hagkvæmt. Grenj- andi rigning og hávaðarok. — Allir hundtyrkjarnir voru inni í tjöldum sínum. óáréittir náðu þeir félagar að komast inn í miðjar her- búðir óvinanna, en þá voru þeir líka stöðvaðir og teknir höndum af ungum liðsforingja, sem undr- andi virti fyrir sér þessa tvo renn- blautu menn og tók að spyrja þá spjörunum úr, hvaðan þeir kæmu og hvert þeir ætluðu o. s. frv. Kolschitzky skýrði frá því, að hann héfði allt í einu fengið óvið- ráðandi löngun til þéss að bragða á hinum dýrðlegum drúfum, seín sagt væri að yxu í hlíðum vínvið- arhéraðanna vestan við herbúðirn- ar. Dauðþreyttur af að berjast gegn stormi og stórregni, virti K. hinn unga liðsforingja fyrir sér og hugs aði: tekur harin þessa skýringu gilda, bölvaður! Af látbragði liðsfóringjans mátti elckert ráða. En eitt augnablik hélt K. að hann hefði sigrað. En þegar liðs- foringinn skipaði honum að fylgja sér eftir inn í tjaldið til þess að yfirheyra hann betur, var honum Ijóst, að hann hefði beðið ósigur. Og sennilega hefði hann líka beðið algjöran ósigur, ef liðsfor- inginn hefði ekki til þess að örfa hann til frásagnar meir en orðið var, boðið honum upp á kaífi. K. gat ekkert betur óskað sér. Kaffið hressti hann, þreytan hvarf, og hinar yfirspenntu taugar hans ró- uðust. Kaffið gaf honum endur- nýjað þrek og hugrekki,'svör hans og frásögn öll varð svo sannfær- andi, >að allur efi hins unga tyrk- neska liðsforingja hvarf með öllu, og lét hann K. síðan fara ferða sinna. Styrktur og efldur að endurnýj- uðurri þrótti vegna áhrifa hins tyrkneska kaffis komst K. ekki aðeins í gegnura það sem eftir var af herbúðum fjandanna, heldur og alla leið til höfuðstöðva hertogans af Lothringen og gat rekið við hann erindi hinna umsetnu borg- arbúa og útvegað þeim þá hjálp, sem dugði. Fyrir þetta handarvik fekk K. 2000 gyllina laun, og auk þess allt það kaffi, sem fannst í herbúðum tyrkjanna að aflokinni sigursælli orrustu yfir þeim. Um 500 kaffisekki fekk K. og það ætlaði að ganga verr fyrir K. að losna við þá og hafa nokkuð upp úr þeim en hann bjóst við í fyrstu. Vínarbúar vildu miklu fremur sætabrauð sitt eri þennan biksvarta beizka drykk. En þá fann hann upp á því, vegna sælkeraeðlis Vínarbúa, að blarida kaffið með sírópi og mjólk og ennfremur að hafa með því sæt- ar kökur, og þannig gekk það í þá. En með þéssu ritáði K nafn sitt öðru sinni á spjöld sögunnar, því hann hafði fundið lcaffið upp því formi, sem Evrópumenn neyta þess enn í dag'. Þetta var árið 1685. Sama ár fæddist Joh. Seb. Bach, sem eins og vitað er, samdi heims- ins fyrstu kaffikantötu: „Hversu bragðast þú ekki kaffi — sætar og' líflegra en þúsund kossar“. Áður en Evrópumenn fóru að drekka kaffi með rjómá, höfðu þeir þegar í nbkkur ár drukkið það á arabiska vísu, svart. Þó að það væru Fenevjamenn, sem einna mest börðust við Tyrki, þá voru það þeir líka, sem einna mest slciptu við þá, og þegar þeir sáu, hversu heiitug verzlunarvara kaffið var, byrjuðu þeir sjálfir að verzla með það. Árið 1645 hófst káfíidrykkja á ítaliii, fyrir aðgerðir Feneyjabúa, og' þar sem viðskipti þeirra og Eng- lendiriga stóðu með miklum blóma um þessar mundir, varð káffi- drykkja brátt almenn í Eriglandi, og þaðan barst þessi nýi drykkju- siður til Hamborgar, og í lok 17. aldár fyrir áhrif frá Hamborg, hófst þessi Islams-vínneyzla á Noröurlöndum. Eins og í Austurlöndum blómstr uðu kaffihúsin brátt um alla Evr- ópu í spor einkaneyzlunnar — eða í heimahúsum. Árið 1652 stofnar Grvkki nokkur, Pascal Rosea, fyrsta kaffihúsið á Frakklandi, í Marseílle. Og kaffisagan endurtók sig. Skóli þekkingar og vizku höfðu Tvrkir kallað kaffihúsin-----og skóli þekkingar og vizku verða kaffihúsin út um alla Evrópu. Þau urðu stefnumótastaðir vitr- inga, og svo mjög varð kaffi og upplýsing samnefnt, að þegar ítal- inn Pietro Veri vildi skíra tímarit um menningarmál, sem hann gaf út í Sviss, virðulegt og viðeigandi Gjörið svo vel að flctta á bls. 507.

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.