Morgunblaðið - 17.07.2004, Page 22

Morgunblaðið - 17.07.2004, Page 22
MINNSTAÐUR 22 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Selfoss | „Þetta kom nú til vegna þess að ég lenti í smáveðmáli um síðustu áramót og sagði að ég myndi raka mig þegar ákveðnu máli lyki. Ég hélt að málið tæki stuttan tíma en svo varð ekki og þegar kom að rakstri var hárið og skeggið orðið nokkuð mikið. Einar Már Guðmundsson rithöfundur bað mig að gera Friðriki Þór kvik- myndagerðarmanni viðvart um þennan hárvöxt. Hann var þá með kvikmyndun á Bjólfskviðu í undirbúningi með öðrum og bað mig að skerða ekki hár og skegg. Nú er ég búinn að fara í viðtöl og hef lesið handritið og líst bara vel á þetta,“ segir séra Kristinn Á. Friðfinnsson, sókn- arprestur í Hraungerðisprestakalli, en það hefur vakið athygli fólks hversu hár og skegg hans er mikið. Séra Kristinn býr á Selfossi og hefur verið prestur í 14 ár í prestakalli sínu en í starfi sínu hefur hann lagt áherslu á að þjónusta samfélagið með því að aðstoða fólk í ýmsum vandamálum sem steðja að. „Þetta er sálgæsla sem hefur vax- ið mjög og er nú orðin hátt í 90% af starfi mínu. Hér er yfirleitt um að ræða persónuleg vanda- mál ungs fólks, vanda einstaklinga í sálarnauð og tilvistarkreppum og svo hjónaviðtöl. Ég legg áherslu á að vinna að þessum verkefnum með markvissu faglegu verklagi. Ég hef í vaxandi mæli fengið fólk til mín frá heilsugæslunni sem læknar vita að þarf á kerfisbundnum viðtölum og handleiðslu að halda,“ segir séra Kristinn sem hefur sótt sér aukna menntun á þessu sviði. „Ég hef sérhæft mig í sálgæslu og nota sérstakar að- ferðir við hana sem byggjast á markvissu verk- lagi og viðurkenndri aðferðafræði sem skilar oft- ast góðum árangri ef vilji skjólstæðinga er fyrir hendi. Það er mikil þörf á því að gefa fólki kost á að tjá sig vel. Ég fer síðan yfir þá verkáætlun sem ég hef í hyggju að starfa eftir og legg það undir fólkið til samþykkis áður en við hefjumst handa. Það tryggir stefnufestu og skilvirkni. Fólk er stundum hrætt og kvíðið að tjá sig um viðkvæm persónuleg mál og þá skiptir miklu máli að byggja upp traust,“ segir séra Kristinn og enn- fremur að þetta sé mjög gefandi þáttur í starfi hans. „Það þurfa allir á því að halda að tala við einhvern og eiga trúnað en í dag virðist sem hjón eigi það til að fjarlægjast hvort annað og síðan eru það fordómarnir í samfélaginu sem eru oft hindrun fyrir þá sem eiga í vanda. Það vill enginn láta dæma sig. Það þarf oft að byggja upp tengsl- anet í kringum einstaklinga sem lifa í einangrun og laða fram samfélag fyrir þá í gegnum sam- starf við annað fólk og stofnanir,“ sagði Kristinn. „Ég er á vissan hátt dálítið hræddur um stöðu hjónabandsins og finnst að það sé alið um of á sjálfselsku í samböndum fólks og það vanti meiri ábyrgðartilfinningu. Það er mikil yfirborðs- mennska í gangi. Fólki finnst það eiga sig sjálft Prestsstarfið gefur manni stórkostlegar stundir Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Leikari: Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sóknarprestur í Hraungerðisprestakalli, á skrifstofu sinni. og að það eigi rétt á hinu og þessu svo sem að fara eitt út að skemmta sér, svo dæmi sé tekið. Ég held að sjónvarpið og auglýsingarnar dragi bæði egóið og dýrseðlið um of fram hjá fólki. Það er hins vegar nauðsynlegt að fólk þreyi þorrann og standi af sér stormana í stað þess að gefast upp,“ segir séra Kristinn sem lítur á sálgæslu- starfið sem sjálfsagða kærleiksþjónustu kirkj- unnar við samfélagið og jafnframt besta sókn- arfærið til að efla trúnaðinn við fólkið í landinu þó að yfirleitt sé lítið talað um þennan þátt í starfi kirkjunnar. „Mér finnst dýrmætt og gaman að vera prest- ur. Þetta er fjölbreyttur lífsmáti sem reynir á svo margt í manni og það koma upp stórkostlegar stundir af ýmsu tagi í starfinu sem maður gleym- ir aldrei og svo er það þessi mikla og gefandi ná- lægð við fólk sem vill takast á við lífið.“ Séra Kristinn Á. Frið- finnsson er með ábúð- armikið hár og skegg Ítrekanir | Undanfarnar vikur hafa nem- endur verið að staðfesta skólavist sína næsta vetur með því að greiða innrit- unargjöldin vegna haustannar 2004. Ein- daginn var 5. júlí, og nú hafa 708 greitt gjöldin, en á mánudaginn munu ítrek- unarbréf fara í póst til þeirra 176 nemenda sem ekki hafa greitt þau. Í ítrekunarbréf- inu kemur fram að viðkomandi verði teknir af nemendaskránni hafi þeir ekki gert hreint fyrir sínum dyrum eigi síðar en fimmtudaginn 22. júlí. – Nokkrir nemendur eru á biðlista eftir skólavist.    Íþróttahúsið | Bygging íþróttahúss Fjöl- brautaskóla Suðurlands er nú á lokastigi. Föstudaginn 16. júlí er stefnt að verklokum varðandi íþróttasalinn og tilheyrandi rými en þriðjudaginn 27. júlí varðandi vest- urálmu hússins en þar er m.a. að finna sex bóklegar kennslustofur. Fyrri hluti ágúst- mánaðar verður síðan nýttur til þess að koma lausum búnaði og tækjum fyrir í hús- inu. Ekki hefur verið ákveðið hvenær bygg- ingin verður formlega vígð en hugsanlega verður það um miðjan september.    Áhugi á Eyrarbakka | Áhugi er fyrir lóð- um á Eyrarbakka en ESK ehf. í Reykjavík hefur sótt um þrjár parhúsalóðir í Hjalla- dæl á Bakkanum. Afgreiðslu umsóknar þeirra var frestað í skipulags- og bygg- inganefnd.    Sendiboðinn | Skipulags- og bygging- arfulltrúi Árborgar hefur ákveðið að stað- setning listaverksins Sendiboðans verði á opnu svæði milli Langholts og „Fjallsins eina“. Listaverkið hefur verið á nokkru flakki og í ljós mun koma hvort þessi stað- setning byggingarfulltrúa verður viðvar- andi en bæjarráð fól honum að finna nýjan stað fyrir listaverkið þegar óánægja kom fram með staðsetningu á hringtorgi við Suðurbyggð.    Skólaræsting boðin út | Eftirfarandi til- boð bárust í ræstingu og hreingerningu á Sunnulækjarskóla 2004–2007. Allar fjár- hæðir eru án vsk. ÓS verktakar sf. buðu 351.637 kr. Ræstingarþjónustan sf. 644.258 kr. Gæðaræsting ehf. 570.193 kr. Iss Ísland ehf. 515.333 kr. Moppan 986.059 kr. Enjo 690.979 kr. Bónbræður ehf. 565.570 kr. Hreint ehf. 410.723 kr. Hreint ehf. Frá- vikstilboð 373.567 kr. Bæjarmál í Árborg Laxamýri | Ólafur Atlason er þriðji framkvæmdastjóri Garðræktarfélags Reykhverfinga hf. í beinan karllegg. Eru langfeðgarnir þeir einu sem stýrt hafa starfsemi þessa 100 ára hluta- félags sem er eitt af þeim elstu á land- inu. Garðræktarfélag Reykhverfinga hf. starfar á Hveravöllum í Suður- Þingeyjarsýslu. Það var stofnað 17. júlí 1904 á Reykjum og verður því hundrað ára í dag. Á stofnfundinum voru 23 menn, flestir ábúendur í Reykjahverfi. Baldvin Friðlaugsson var fyrsti framkvæmdastjóri félags- ins, þá sonur hans, Atli Baldvinsson. Ólafur tók síðan við af föður sínum og hefur rekið fyrirtækið í mörg ár. Ólaf- ur og kona hans, Alda Pálsdóttir, eru aðaleigendur fyrirtækisins eftir að þau keyptu eignarhluti Kaupfélags Eyfirðinga og Þingeyinga á árinu 2001 en kaupfélögin höfðu lengi verið helstu bakhjarlar þess. Gróðurhúsin á Hveravöllum eru um 6900 fermetrar. Á þessu ári nem- ur heildarframleiðslan allt að 190 tonnum og þar af eru tómatar um 160 tonn, gúrkur 16 tonn og paprikur 8 tonn. Þá er framleitt mikið af sum- arblómum sem seld eru á vorin. Yfir sumarið eru 16 heil störf í fyrirtækinu en segja má að um 9 ársverk sé að ræða fyrir utan verktakavinnu við ýmsar framkvæmdir sem keypt er þar fyrir utan. Tómata- og gúrkurækt frá árinu 1933 Fyrirtækið var landnemi á sínu sviði og varð það að mæta ýmsum örðugleikum í uppvexti sínum. Fyrstu ár sín stóð félagið nær einungis að kartöflurækt við hverina og 1910 var uppskeran um 370 tunnur, en Þing- eyingum þótti mikið hagræði á þeim tíma að geta fengið þessa vöru keypta á heimaslóðum. Sótti þá fólk úr nær- sveitum vinnu við hverina haust og vor. Auk kartöfluræktarinnar hafði félagið dálitla rófnarækt, túnrækt og engjaheyskap. Um tíma var heyöflun allstór liður í rekstrinum. Haustið 1933 var fyrsta gróðurhús- ið byggt og var stærð þess 50 fer- metrar og þremur árum síðan var byggt annað hús helmingi stærra. Þar með hófst tómata- og gúrkurækt og horfið var frá heyöflun og kart- öflurækt. Það var mikill áfangi og eft- ir á sögðu menn að komið hefði ný landbúnaðarframleiðsla, ný og holl fæða suðrænnar ættar og með félag- inu hefði atvinna í héraðinu aukist. Undir stjórn Ólafs og Öldu hefur Garðræktarfélagið áfram lagt áherslu á að halda góðu sambandi við neyt- endur í Þingeyjarsýslum. Það hefur marga áskrifendur að grænmeti sem felst í því að fólk fær sent vikulega yf- ir sumartímann böggul með nýjum tómötum, gúrkum og fleiru heim í póstkassann. Þá segir Ólafur að sumarblómasal- an gefi tækifæri til persónulegra kynna en mjög margir fá sér bíltúr á vorin og kaupa blóm og aðra fram- leiðslu um leið og þeir hitta þá sem vinna í fyrirtækinu. Ný tækifæri Með nýjum eigendum koma alltaf nýjar áherslur og hægt er að velta því fyrir sér hvort hundrað ára fyrirtæki sem hefur verið í stöðugri þróun í alla þessa áratugi, ætli sér eitthvað fram á veginn í garðræktinni á næstunni. Ólafur segir tækifærin mörg en þau kosti peninga vegna allrar þeirrar tækni sem krafist er í nútímagróður- húsum. Nefnir kostnað við að koma upp búnaði til lýsingar og heilsárs- ræktunar. Selja þurfi mikið af græn- meti á háu verði til að það borgi sig. Hins vegar sé áhugavert að geta víkk- að út starfsemina með þessum hætti og tekist á við ný tækifæri. Maður fram af manni við stjórnvölinn Morgunblaðið/Atli Vigfússon Eigendur: Ólafur Atlason og Alda Pálsdóttir í einu af gróðurhúsunum á Hveravöllum í Reykjahverfi. Tómatar tóku við af kartöflum hjá Garðræktarfélagi Reykhverfinga sem starfað hefur í heila öld ÁRBORGARSVÆÐIÐ LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.