Morgunblaðið - 17.07.2004, Side 27

Morgunblaðið - 17.07.2004, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2004 27 - m og þá tu- nda á að þegar a sem og æsku- vel heppn- nað komið að þjón- semi sem r með. mín að afa allt ni könnu r virði að . íþrótta- n starfs- unglinga- starfi fyrir viðkomandi hverfi. Tel ég það mun heppilegri og ár- angursríkari hverfavæðingu að borgin auki samstarf sitt við frjáls félagasamtök, sem nú þegar eru starfandi með mannafla og húsnæði úti í hverfum borgarinnar, í stað þess að setja stórfé í uppbyggingu og rekstur nýrra borgarstofnana sem ganga eiga undir nafninu þjón- ustumiðstöðvar. Afdrif tillögu sjálfstæðismanna urðu þau að ákveðið var að hleypa nokkrum tilraunaverkefnum með íþróttafulltrúa af stað árið 2001. Annars vegar voru þrjú íþróttafélög styrkt til að ráða til sín íþróttafull- trúa, sem voru undir stjórn félag- anna sjálfra og með aðsetur á svæð- um þeirra. Hins vegar réð borgin til sín tvo starfsmenn sem ætlað var að sinna íþrótta- og æskulýðsstarfi í ákveðnum hverfum og höfðu aðsetur í svokölluðum þjónustumiðstöðvum. Ekki leið á löngu uns það kom í ljós að fyrri útfærslan heppnaðist betur, þ.e. þegar íþróttafulltrúar voru starfsmenn viðkomandi íþróttafélaga og með aðsetur á svæði þeirra. Taldi ég að þetta fyr- irkomulag hefði þegar sannað sig svo vel á árinu 2002 að gera ætti öll- um hverfisíþróttafélögum kleift að ráða til sín íþróttafulltrúa árið 2003. Áhugaleysi R-listans Það gekk þó ekki eftir þar sem borgarfulltrúar R-listans voru ekki á sama máli og drógu lengi vel lapp- irnar í íþróttafulltrúamálinu sem mest þeir máttu. Um síðustu áramót kom í ljós að í fjárhagsáætlun R-list- ans fyrir 2004 var ekki gert ráð fyrir stuðningi vegna nýráðningar íþróttafulltrúa við þau hverf- isíþróttafélög sem eftir höfðu leitað og uppfylltu þær kröfur sem ÍTR hafði sett. Aukinheldur ákvað R-listinn að hætta stuðningi við þau íþróttafélög sem höfðu haft íþrótta- fulltrúa í tilraunaskyni frá og með 1. maí sl. þrátt fyrir mótmæli okkar sjálfstæðismanna. Ekki var heldur gert ráð fyrir kostnaði vegna íþróttafulltrúa til hverfisíþrótta- félaga í öllum hverfum í fjárhags- ramma ÍTR fyrir árið 2005 né í þriggja ára áætlun borgarinnar. Töl- urnar tala sínu máli og segja sitt um afstöðu R-listans. Eftir að þetta varð ljóst, sóttu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins það hins vegar fast að R-listinn breytti stefnu sinni í málinu og gengi þegar til samninga við öll hverf- isíþróttafélögin um stuðning við störf íþróttafulltrúa, hvort sem þau hefðu haft slíkan fulltrúa fyrir eða ekki. Voru tillögur og bókanir um slíkt lagðar fram á vettvangi ÍTR en einnig í borgarráði og borgarstjórn. Málið var einnig rætt á samráðsvett- vangi íþróttafélaganna, m.a. á þing- um Íþróttabandalags Reykjavíkur og Íþróttasambands Íslands, þar sem skorað var á borgaryfirvöld að vinna með íþróttafélögunum í þessu máli. Málið vonandi í höfn Lyktir málsins urðu þær að í maí sl. féllust fulltrúar R-listans á sjón- armið sjálfstæðismanna og fékkst það þá loks samþykkt í Íþrótta- og tómstundaráði að gerðir yrðu þjón- ustusamningar við hverfisíþrótta- félög um íþróttafulltrúa. Er vonast eftir því að gengið verði frá slíkum samningum í haust eða vetur. Með stuðningi við störf íþrótta- fulltrúa félaga er stigið mikilvægt skref í samstarfi Reykjavíkurborgar og frjálsra félagasamtaka. Í honum felst þýðingarmikil viðurkenning gagnvart starfi félaganna í þágu barna og ungmenna í borginni og verður vonandi til þess að efla það enn frekar. æskulýðsstarf- asamtaka Höfundur er borgarfulltrúi. kjartan@reykjavik.is Morgunblaðið/Árni Torfason U ndanfarnar vikur hafa Staksteina- og leiðarahöfundar ítrekað afgreitt und- irritaðan sem ómarktækan „gamlan herstöðv- arandstæðing“, fastan í hjólförum kalda stríðsins eða ekki í tengslum við veruleikann. Umfjöllun Morg- unblaðsins nær þó nýjum hæðum í Staksteinapistli 9. júlí sl.: „Stein- grímur J. Sigfússon sagði: „Ör- yggi fæst með friðsamlegu sam- starfi við nágranna okkar.“ Og síðan er spurt: „Og er það svo? Er það nægjanlegt til að tryggja ör- yggi og sjálfstæði lands okkar að lifa hér í friði við nágranna okkar? Ekki dugði það Spánverjum fyrir nokkrum mánuðum, þegar alþjóð- legir hryðjuverkamenn gengu þar til verks. Í hvaða heimi lifir Stein- grímur J. Sigfússon?“ Ekki þarf nú Morgunblaðið meira til en þessa stuttu setningu sem féll í viðtali við blaðamann Mbl. þegar ég var beðinn um við- brögð við fundi Davíðs Oddssonar og Bush Bandaríkjaforseta. Út af fyrir sig stendur þessi setning mín fyllilega fyrir sínu en afstaða mín til utanríkis- og friðarmála tekur til fleiri atriða. Get ég vitnað þar til ræðuhalda innanlands og er- lendis og greinarskrifa m.a. í Morgunblaðinu. Samtökin „Varð- berg“ buðu mér að gera grein fyr- ir minni sýn á þessa hluti fyrir nokkrum misserum. Í riti stjórn- málfræðinema hef ég birt ítarleg- ar greinar með nokkurra ára milli- bili þar sem ég geri grein fyrir viðhorfum mínum til öryggismála Íslands í samhengi við hugmyndir um æskilega þróun öryggismála í heiminum. Of langt mál yrði að endursegja þá hluti hér en nefna má eftirfarandi: – Að Ísland í fyrsta lagi skipi sér á bekk með þeim þjóðum sem berjast fyrir breyttum áherslum og nýskipan öryggismála í heim- inum. Við eigum sem smáþjóð að leggja okkar lóð á þær vog- arskálar og hafna leið stórveld- anna; hernaðarhyggju og hern- aðarbandalögum. Stefnt verði að víðtækum alþjóðasamningi um gagnsæi og takmarkanir vopna- viðskipta og fest í sessi regla um engar herstöðvar ríkja utan eigin landamæra. – Í öðru lagi eigum við að ger- ast liðsmenn baráttunnar fyrir uppbyggingu nýs alþjóðlegs ör- yggisgæslukerfis þar sem svæð- isstofnanir eins og ÖSE og Sam- einuðu þjóðirnar eða nýtt endurskipulagt öryggisráð mynd- uðu heildstætt öryggisgæslukerfi í heiminum. Hrygglengjan í slíku öryggisgæslukerfi á að vera ör- yggisgæslusveitir sem SÞ eða svæðisbundnar stofnanir hafi sjálfar yfir að ráða; fjölþjóðlegar blandaðar sveitir sem slíkir aðilar geti sent til óróleikasvæða. – Ég hef í þriðja lagi bent á for- dæmi Álandseyja sem eru vopn- laust og hlutlaust svæði, („demilit- ariserat“ og „neutraliserat“) að stofni til á grundvelli 150 ára gam- als samkomulags. Þessi skipan mála hefur reynst Álandseyingum vel og í grunninn hefur þetta gamla samkomulag haldið um að á Álandseyjum séu ekki byggðar herstöðvar eða þar staðsettur ann- ar sá búnaður sem nágrannaríkj- um geti stafað hætta af. – Í fjórða lagi væri eðlilegt að Íslendingar fylgdu eftir vopnleysi sínu og hlutleysi með kjarnorku- friðlýsingu landsins og íslenskrar lögsögu. Við myndum með samn- ingum við nágrannaríki og banda- lög leita viðurkenningar á þessari stöðu og fá menn til að undirgang- ast að virða hana með sambæri- legum hætti og griðasamningar Álandseyja gera. Auðvitað höldum við uppi löggæslu, landhelg- isgæslu og landamæraeftirliti af þeim myndugleik að ribbalda- hópar eða glæpagengi geti ekki vaðið uppi en hvorki hervæðumst né förum þar með ógnum nein- um. – Loks á Ís- land að beita sér sérstaklega fyrir því að efla borg- aralegt, fyr- irbyggjandi, frið- argæslu- og friðarvarðveislu- starf. „Civil och förebyggande krishantering“ gæti slíkt kallast á sænsku og hefur verið talsvert á dagskrá Norðurlandaráðs. Það að berjast gegn fátækt og misskipt- ingu, jafna lífskjör, efla lýðræði og mannréttindi o.s.frv. eru vænlegri og varanlegri aðferðir en að trúa stálinu. Sett í þetta samhengi er brott- för hersins á Keflavíkurflugvelli og brotthvarf Íslendinga úr þeim hópi ríkja sem styðja hern- aðarhyggju bandarískra stjórn- valda nokkuð annað mál. Eða hvað? Er mikill fortíðarsvipur á því að tefla fram djörfum hug- myndum um endurskipulagningu öryggismála í heiminum? Ætli það séu ekki aðrir en undirritaður sem eigi frekar í vandræðum með að komast upp úr hjólförum kalda stríðsins. Það er brjóstumkenn- anlegt að sjá Morgunblaðið berj- ast um á hæl og hnakka í sinni íhaldssömu vörn fyrir fylgispekt íslenskra stjórnvalda við Banda- ríkin. Ömurlegt var hvernig Morg- unblaðið miðlaði lygaþvælunni sem réttlæta átti árásina á Írak. Vonbrigðin leka af síðum Mbl. yfir því að þrátt fyrir allan hinn dygga stuðning blaðsins og hægri og miðju aflanna í íslenskum stjórnmálum skuli herinn bara si- svona ætla að fara. Fyrst var Ís- lendingum troðið inn í NATO og tekið við bandaríska hernum í óþökk meirihluta íslensku þjóð- arinnar. Svo var staðið við bakið á Bandaríkjamönnum í Víetnam- stríðinu sem Morgunblaðið studdi dyggilegar og lengur en flestir vestrænir fjölmiðlar. Kosovo, Afg- anistan, Írak, allt þetta og miklu meira hefur Mbl. lagt af mörkum til hinnar miklu samstöðu. Og hver eru launin, hvert er þakk- lætið? Jú, dónaskapur af því tagi að tilkynna mönnum upp úr þurru á vordögum 2003 að herþoturnar séu að fara. Já, laun heimsins eru vanþakk- læti, ekki satt, ágætu Morg- unblaðsmenn? En hvernig væri að horfast nú bara í augu við raun- veruleikann og taka nútímanum eins og menn í stað þess að svala vonbrigðasviðanum í brunnum for- aktar á öðrum skoðunum og lífs- viðhorfum. Laun heims- ins eru van- þakklæti Steingrímur J. Sigfússon svarar Staksteinahöfundi Morgunblaðsins Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs og situr í utanríkismálanefnd Alþingis. ’Vonbrigðin leka af síðum Mbl.yfir því að þrátt fyrir allan hinn dygga stuðning blaðsins og hægri og miðju aflanna í íslensk- um stjórnmálum skuli herinn bara si-svona ætla að fara.‘ róun- að vinna ögð á lífskjör ga við- viðmið er rkmið slend- n og vinna í und- ð styðja fslönd- með því kunnáttu endingar efur agt ra sem auka ar og heil- nu miðar lýðræð- afnrétti, til þarfa ðu sam- sem n á for- a, í anda með hlið- narsam- bótum ð draga xtur ríki ótum. ðla að num með ingu öfl- mhverfis. eta falist í aðstoð til stjórnvalda við setningu laga og reglugerða sem stuðla að efl- ingu einkageirans, vaxandi milli- ríkjaviðskiptum, auknum atvinnu- tækifærum og réttlátri vinnulöggjöf. Á þeim vettvangi mun stofnunin einnig í auknum mæli greiða fyrir samskiptum og samvinnu fyrirtækja og samtaka í samstarfslöndunum við sambærilega aðila á Íslandi. Önnur meginforsenda, sem unnið er eftir, snýr að umhverfisvernd. Á leiðtoga- fundi Sameinuðu þjóðanna um sjálf- bæra þróun, í Jóhannesarborg í september 2002, voru endurnýjaðar skuldbindingar, sem gerðar voru á leiðtogafundinum í Ríó um umhverfi og þróun og markaðar helstu áherslur í umhverfis- og þróun- armálum á komandi áratug. Meg- insjónarmið sjálfbærrar þróunar, þ.e. efnahagsvöxtur, félagsleg vel- ferð og verndun umhverfis, eru mik- ilvægur þáttur í starfsemi flestra þróunarsamvinnustofnana og mun ÞSSÍ stefna að því að samþætta þau sjónarmið allri starfsemi sinni. Í þeim verkefnum stofnunarinnar sem tengjast auðlindanýtingu, svo sem í fiskimála- og jarðhitaverk- efnum, skal leggja sérstaka áherslu á umhverfisvernd og sjálfbæra nýt- ingu. Fleiri forsendur mætti nefna, t.d. jafnréttismál, en þúsaldarmark- miðin leggja áherslu á nauðsyn auk- ins samfélagslegs jafnréttis í barátt- unni gegn fátækt. Flestar þróunarsamvinnustofnanir leggja nú áherslu á jafnréttismarkmið í starfi sínu en margoft hefur verið sýnt fram á að mismunun milli kynjanna og önnur félagsleg mis- munun hindrar framfarir og barátt- una gegn fátækt í heiminum. Í sam- ræmi við stefnu í alþjóðlegu þróunarsamstarfi mun ÞSSÍ miða að því að samþætta jafnréttissjón- armið inn í alla starfsemi sína á næstu árum. Tekið verður tillit til þarfa og hlutverka bæði kvenna og karla við undirbúning og fram- kvæmd allra þróunarverkefna stofn- unarinnar, og þannig reynt að tryggja að bæði kynin hafi tækifæri til áhrifa, þátttöku og ábata af verk- efnunum. Þá hefur ÞSSÍ aukið framlög sín á undanförnum árum til grasrót- arverkefna meðal annars með sam- starfi við frjáls félagasamtök, bæði á Íslandi og í samstarfslöndunum. Stofnunin mun efla þetta samstarf enn frekar á næstu árum og leitast þannig við að auka stuðning við borgaralegt samfélag og lýðræð- isþróun í samstarfslöndunum og um leið að bæta skilning íslensks al- mennings á þróunarstarfi með sam- starfi við íslensk félagasamtök. Sam- starf af þessu tagi mun þó ætíð fara fram með vilja og í samráði við stjórnvöld samstarfslandanna. Val á samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnun hefur lengst af starfað í nokkrum af fátæk- ustu löndum Afríku og fram til árs- ins 2000 aðallega á sviði fiskimála. Til að þróunarsamvinna stofnunar- innar verði sem árangursríkust mun hún áfram einbeita sér að fáum sam- starfslöndum, ekki síst í suðurhluta Afríku þar sem mikil þörf er fyrir þróunaraðstoð og þar sem ÞSSÍ hef- ur langa reynslu af þróunarstarfi. Samstarf við önnur lönd en núver- andi samstarfslönd, þar á meðal við lönd í öðrum heimsálfum en Afríku, mun koma til sérstakrar athugunar samfara auknum umsvifum ÞSSÍ. Stofnunin mun einnig skoða mögu- leika á að starfa að afmörkuðum og tímabundnum verkefnum utan formlegra samstarfslanda, einkum á þeim sviðum sem íslensk sérþekking er mest, eins og í sjávarútvegi eða orkumálum. Með auknum umsvifum ÞSSÍ á undanförnum árum hafa verkefni hennar í samstarfslöndunum orðið fjölbreyttari og starfar stofnunin nú á vettvangi félags-, fræðslu- og heil- brigðismála, auk þess að starfa við fiskimálaverkefni. Til að tryggja ein- beitni og árangursríka þróun- araðstoð mun ÞSSÍ halda áfram að starfa aðallega á þessum sviðum, en áformar einnig að bæta orkumálum við þau verkefnasvið sem hún sinnir. Þannig eykst breiddin í starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hægum en öruggum skrefum sam- fara auknum framlögum íslenskra stjórnvalda til þróunarmála og í þeim tilgangi að nýta þá fjármuni sem best sem varið er til þessa mik- ilvæga málaflokks. Höfundur er stjórnarformaður Þró- unarsamvinnustofnunar Íslands og aðstoðarmaður utanríkisráðherra. ’Ein af forsendumþess að draga megi úr fátækt er að hag- vöxtur ríki samhliða félagslegum um- bótum.‘ þróunarsamvinnu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.