Morgunblaðið - 17.07.2004, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ALLT stefnir í metkolmunnaafla ís-
lenskra skipa á þessu ári. Aflinn á
árinu er nú orðinn nærri þriðjungi
meiri en á sama tíma á síðasta ári en
þá veiddu íslensk skip meira af kol-
munna en nokkru sinni fyrr, um
hálfa milljón tonna. Þó verður að
teljast hæpið að skipin nái að veiða
allan kolmunnakvóta ársins. Mok-
veiði hefur verið austur af landinu
síðustu vikur, í júnímánuði veiddist
rúmt 91 þúsund tonn sem er 66%
meiri afli en í júní í fyrra. Heldur
hefur þó dregið úr aflabrögðunum
síðustu daga og að sögn Guðmundar
Sveinbjörnssonar, skipstjóra á Ás-
grími Halldórssyni, er afli nú tregur.
Stefnir
í metafla
Þriðjungi meiri/11
Góð kolmunnaveiði
MARKVÖRÐUR Hauka var einbeittur á svip í
gær í rimmu sinni við knöttinn er leikmenn liðs-
ins hituðu upp fyrir átökin á Gullmóti JB og
Breiðabliks í Smáranum.
Metþátttaka er á mótinu þar sem rúmlega
1.500 stúlkur á aldrinum 6–16 ára taka þátt, en
mótið fór fyrst fram árið 1984 og hefur vaxið
með hverju ári síðustu tvo áratugi. Lukkudýrin
eru mikilvægur þáttur í undirbúningi fyrir mót
sem þetta og fengu Haukabangsarnir að vera
með í léttum leik í veðurblíðunni í Kópavogs-
dalnum. Knattspyrna er að sjálfsögðu aðal-
atriðið á mótinu en í leikjum gærdagsins var það
leikgleðin, ákefðin og eftirvæntingin sem var í
aðalhlutverki – samkvæmt venju.
Morgunblaðið/Eggert
Lukkudýr á Gullmóti í Smáranum
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR í
stöðvarhúshvelfingu Kárahnjúka-
virkjunar hefjast eftir helgina. Það
er Fosskraft sem sér um þennan
hluta verksins, en framkvæmdir á
vegum fyrirtækisins hafa gengið
mjög vel og eru talsvert langt á
undan áætlun. Fyrirtækið er búið
að bora um 75% af öllum jarð-
göngum og mun klára borun í
haust.
Hermann Sigurðsson, verkfræð-
ingur hjá Fosskrafti, er ánægður
með gang verksins. Hann tók einn-
ig þátt í gerð Hvalfjarðarganga.
„Þetta hefur gengið vel eins og í
Hvalfjarðargöngum. Vinnan er
svipuð nema að því leyti að þar vor-
um við með sjóinn fyrir ofan okkur
og höfðum eðlilega áhyggjur af
honum. Hér er hins vegar um
flóknari framkvæmd að ræða og
miklu meira um mælingar,“ sagði
Hermann, en göngin í Fljótsdal eru
mörg og af ýmsum gerðum.
Núna í vikunni hefst vinna við
steypta bita í lofti stöðvarhússhvelf-
ingarinnar, en í honum kemur til
með að hanga krani sem verður
notaður við byggingu stöðvarhúss-
ins.
Fljótlega hefst einnig vinna við
borun seinni fallganganna en vinnu
við fyrri göngin lauk fyrir nokkrum
vikum.
Almennt gengur vinna við Kára-
hnjúkavirkjun vel. Jarðgangavinnan
er á undan áætlun, en vinna við
sjálfa stífluna er hins vegar nokkr-
um vikum á eftir áætlun. Ástæðan
er sú að botn gilsins reyndist gljúp-
ur og þurfti að grafa 12 metrum
lengra niður en áætlanir gerðu ráð
fyrir. Bergið í botninum er einnig
talsvert sprungið. Talsmenn Im-
pregilo og Landsvirkjunar telja að
allir möguleikar séu á að vinna upp
þann tíma sem hafi tapast. Þeir eru
bjartsýnir á að það takist.
Smíði í stöðvarhús-
hvelfingu að hefjast
Morgunblaðið/Egill Ólafsson
Uppsetning á borunum sem Impregilo notar er langt komin. Afköstin hafa
verið 33 metrar á dag að meðaltali, en afköstin þurfa að vera 25 metrar svo
að verkáætlun haldist. Mest hafa afköstin verið 80 metrar á dag.
Stíflan/8
Framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun ganga almennt vel
TUTTUGU og fjórir bíllyklar að
jafnmörgum bílum fundust á
manni sem lögreglan í Reykjavík
handtók í gær vegna gruns um
þjófnað.
Handtaka mannsins, sem hef-
ur nokkrum sinnum áður komið
við sögu lögreglu, tengdist öðru
máli en lögreglan fann lyklana
við leit á manninum.
Samkvæmt upplýsingum frá
aðalvarðstjóra lögreglunnar í
Reykjavík er ekki enn vitað
hvernig maðurinn notaði lyklana
og hvort þeir hafa verið notaðir
til innbrota í bifreiðir en yfir-
heyrslur yfir manninum fóru
fram síðdegis í gær. Aðalvarð-
stjóri mundi ekki eftir því að lög-
reglan hefði fundið annað eins
magn af bíllyklum á einum og
sama manninum.
Að sögn lögreglu hefur bíl-
þjófnaður þó ekki færst í aukana
að undanförnu og ekki hefur orð-
ið vart við að bílþjófar séu betur
tækjum búnir en áður.
Lögreglan í Reykjavík vill af
þessu tilefni ítreka við ökumenn
að ganga eins tryggilega frá öku-
tækjum og kostur er og skilja
ekki aukalykla eftir á glámbekk
eða inni í bílnum, t.d. í hanska-
hólfi.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglumennirnir Ríkharður Örn Steingrímsson og Karl Arnarson
(til hægri) eru með lyklana 24 sem fundust í fórum mannsins.
Handtekinn með
24 bíllykla á sér
TALSMAÐUR hjá Herra Örlygi
hefur staðfest að skoska rokk-
sveitin Franz Ferdinand muni
halda tónleika
hér á landi. Fara
þeir fram 18.
desember í
Kaplakrika. Með-
limir hljómsveit-
arinnar eru
steinhissa á því
að hafa selt
fyrstu plötu sína,
sem út kom í
febrúar, í 1,2 milljónum eintaka.
Bassaleikarinn, Bob Hardy, er mik-
ill áhugamaður um Ísland og hlakk-
ar mikið til Íslandsfarar.
Franz Ferdin-
and kemur
Snilld/48
♦♦♦