Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Síða 5

Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Síða 5
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 449 Frá Jerusalem; húsið efst á myndinni til vinstri er Hótc-I Davíðs konungs, þarsm Gylfi Þ. Gíslason og kona hans bjuggu meðan þau dvöldu í borginni. ingar afiur á dögum KýrosarPersa kóngs, endurskipulögðu þjóðlíf sitt og byggðu sér annað musteri. Síðar lagði Alexander mikli land- ið undir sig, en arftakar að ríki hans urðu Egyptar og Sýrlending ar. Þegar Gyðingar höfðu verið sviptir sjálfsforræði, gerðu þeir uppreisn gegn vaidhöfum landsins og var stjórnað af höfðingjum og konungum Makkabea frá árinu 142 til 37 fyrir Krist. En um þetta leyti voru Rómverjar að leggja undir sig heiminn, og þeir náðu tökum á Gyðingalandi. Gyðingar sýndu mótþróa, þangað til must- erið var eyðilagt árið 70 og veru- legur liluti landsins eyddur árin 132—135. Rómverjar hugðust yf_ irbuga Gyðinga fullkomlega og breyttu nafni landsins í Sýría Pal- estína, og á Palestínunafnið rót sína að rekja til þess. Gyðingum fækkaði mjög í Land inu lielga á næstu öldum eftir að Eómverjar brutu á bak aftur upp- reisn þeirra. Allfjölmennar Gyð- ingabyggðir komust á fót í Aust- ur-Evrópu og Vestur-Evrópu og Asíu, en Gyðingarnir litu að veru legu leyti á sig sem útlaga og horfðu saknaðar- og vonaraugum til landsins, er feðnr þeirra höfðu orðið að yfirgefa. Hópar fóru til heimkynna feðranna í píiagríms- ferðir eða til þes að nema land. Arabar gerðu innrás í Palestínu 636, Krossfarar 1099, Tatarar 1244 og Tyrkir 1517, en alltaf héldu þeir tiltölulega fáu Gyðing- ar, sem bjuggu í landinu, áfram að skoða það sem sitt land og Gyð ingar í öðrum löndum að dreyma um endurheimt þess. Á 19. öld fjölgaði Gyðingum í Palestínu verulega, og upp kom meðal þeiri'a sterk hreyfing' í þá átt að efla heilbrigt þjóðlíf sitt með því að hverfa aftur til moldarinnar. Við lok aldarinnar höfðu um 20 ný- býlahverfi Gyðinga verið stofnuð. Samtímis jókst þeirrj liugmynd mjög fylgi meðal Gyðinga um gjörvallan heim að koma aftur á fót þjóðarheimili Gyðinga á hin- um fornu slóðum. Árið 1897 stofn aði Theodór Herzl ’heimshreyfingu Síonista á þingi í Basel. Var það markmið hreyfingarinnar að koma á fót í Palestínu heimili fyrir Gyð- inga. og skyldi það njóta alþjóð- legrar verndar. Straumur inn- flytjenda óx til Palestínu, inn- fiytjendurnir námu land, hófu ið.uekstur, byggðu borgir og þorp. Komið var á fót þjóðarsjóði Gyð- inga, sem Gyðingar hvarvetna lögðu í og hafa skyldj það hlut- verk að kaupa land í Palestínu og skyldi það vera eign Gyðinga- þjóðarinnar. Þegar fyrri heims- styrjöldin braust út, voi'u 85 þús- und Gyðingar í Palcstínu og litu þar á sig sem þjóðarheild og bjuggu á um 50 svæðum, þar á meðal í um 40 nýbýlahverfum. í heimsstyrjöldinni fyrri eða árið 1917 gaf brezka stjórnm út Bal- four-yfirlýsinguna svoköiiuðu, þar sem hún lýsti fylgi við stofnun þjóðarheimilis fyrir Gyðinga í Palestínu. Bretar höfðu hernum- ið landið í átökum við Tyrki, og eftir heimsstyrjöldina fól þjóðá- bandalagið brezku stjórninni um- boðsstjórn í Palestínu, sem þá tók einnig til Transjórdaíu. Eftir því sem Gyðingum í Palestínu fjoig- aði, óx andstaða Araba í landinu og nágrannalöndum gegn þessari þróun. Það kom til hverrar upp- reisnarinnar á fætur annarri af hálfu Araba. Að lokum fór svo, að 1939 lagði brezka stjórnin

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.