Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Page 6

Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Page 6
450 SUNNUDAGSBLAÐIÐ Séð yfir borgina Haifa. sterkar hömlur á frekari inn- flutning Gyðinga til Palestínu og á kaup á landi handa Gyðingurn. STOFNUN (SBAELSRÍKIS. í heimsstyrjöldinni síðari röt- nðu Gyðingar í miklar raunir fyr ir tilverknað nazista í þeim lönd um. þar sem þeir náðu undirtök- um. Heimshrayfing Gyðinga taldi einu réttlátu lausnina vera þá, að Gyðingum yrðu sköpuð skilyrði til landnáms í Palestínu, en Ar- abaríkin beittu sér gegn því af öllu afli. Brezka stjórnin treysti sér að lokum ekki til þess lengur að hafa á hendi umboðsstjórn í landinu og fól málið í hendur Sam einuðu þjóðunum. ' Meiri hluti nefndar, sem Sameinuðu þjóðirn ar fólu að rannsaka Palestínu- vandamálið, mælti 1. september 1947 með því, að Palestínu yrði skipt í sex landsvæði, þrú Gyð- ingalandsvæði og þrjú Araba- landssvæði. Sjöunda landssvæðið. Jerúsalem, ásamt næsta nágrenni, þar á meðal Betlehem, skyldi vera undir alþjóðastjórn, en öll skvldu svæðin vera ein efnahagsheild og utanríkismál vera sameiginleg. Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna samþykkti þessa tillögu með meira en tveim þriðju hlutum at- kvæða 29. nóvember 1947. Full- trúar Gyðinga féllust á þessa ráðstöfun fyrir sitt leyti, en fulitrúar Araba höfn uðu henni og lýstu því yfir, að þeir myndu hindra framkvæmd hennar með valdi. Brezka stjórnin tilkynnti, að umboðsstjórn henn- ar myndi ljúka 15. maí 1948. Að kvöldi þess dags var stofnun ísra- elsríkis lýst yfir. En samtímis réð ust herir frá Egyptalandi, Traps- jórdaníu, Sýrlandi og Lrbanon á- samt herflokkum frá írak inn í Palestínu frá norðri, austri og suðri. í fjórar vikur var barizt grimmilega. En 11. júní var kom- ið á eins mánaðar vopnahléi að tilskipun Sameinuðu þjóðanna. Þá hófust bardagar að nýju. Gyð- ingar reyndust sigursælli í þar- dögunum. Eftir 10 daga orustu var vopnahléi aftur komið á. — Næsta vetur blossuðu enn upp bardagar, en í febrúar til júní 1949 tókst að koma á vopnahléi miili ísraels og næstu nábúa þess, Egyptalands, Sýrlands, Líbanons og Jórdaníu, fyrir forgöngu Sam- einuðu þjóðanna. Núverandi landa mæri ísraelsríkis eru þau, sem kveðið var á um í þessum vopna- hléssáttmálum, þ. e. a. s- þau, sem mörkuð voru af stöðu herj- anna, þegar vopnahlé var ákveð- ið. Endanlegur friður hefur ekki verið saminn enn. En landamæra skærur héldu áfram og vopnahléð reyndist óstöðugt. ísraelsmenn töldu sjálfstæði sitt og öryggi ó- tryggt cg hófu hernaðaraðgerðir í októberbyrjun 1956 til þess að friða landamæri sín. Lögðu þeir undir sig Sinaíeyðimörkna og Gasasvæðið og rufu einangrun Agabaflóans. Samkvæmt fyrir- mælum Sameinuðu þjóðanna dré ísraelsstjórn þó her sinn til baka frá þeim landssvæðum, sem hún hafði hernumið, en eftirlitssveitir Sameinuðu þjóðanna tókust á hendur að halda uppi lögum og reglu á nokkrum umdeiidum landssvæðum, þ. á. m. við Aga- baflóann, en Egyptar tóku aftur við stjórn á Gasasvæðinu. Súes- skurðinum er enn lokað fyrir skipum ísraelsmanna. Gjörið vo ve> að fletfa á bls. 458.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.