Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Page 9

Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Page 9
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 453 er ékki einungis bráð nauðsyn- legt að leggja gangstig meðfram öUu Bankastræti, og einnig gang- brú yfir lækinn ofan á Lækjar- götu, heldur einnig halda gang- stignum áfram inn Laugaveg inn að Rauðará fyrir það fyrsta. á- samt setja þar bekki hér og hvar meðfram gangstignum fyrir þreytta að setjast á, til þess að hvíla sig. Það er ekki neinni framsýni eða fyrirhyggj u að þakka þó ekki hafi orðið slys fyrir gang- andi fólk á þeim vegi þegar hann hefur verið troðfullur bæði af ríð- andi og gangandi, konum og körl- um og klyfjuðum hestum, enda hafa hinir gangandi, ekki ósjald- an orðið að bjarga sér frá líf- tjóni eða limlestingum á götunni með því að hröklast út af vegin- um út í urðina, sem er öldungis óboðlegt hinum ungu dömum og piHum sem leita þangað til þess að lyfta sér udd, á þessari Löngu- línu Reykjavíkur, og til þess að sýna sig og sjá aðra. Þó eru slík urðar-hlaup óaðgengilegri fyrir hinar eldri frúr og ,,gentlemen“ bæjarins, sem ganga þar um til þess að njóta útsjónarinnar yfir höfnina og ieyjarnar og anda að sér hinni heilnæmu hafgolu. Bent skal á það um leið, að ótilhlýði- legt virðist, að láta grjótið liggja upp á miðjan veginn eða næstum yfir um hann, svo umfarendur komist varla leiðar sinnar. Um Suðurgötuna var ritað á þessa leið: Fáa lifandi menn mun reka minni til, að þeir hafi séð lög- regluna nokkurn tíma koma suð- ur undir Melkot á embættisgöngu hennar, og kemur það ef til vill af því, að bæjarsjóður þyrfti þá að leggja þeim til skinnsokka til þess að vaða þar í kúamykjunni, sem sú gata er þakin af. Meðal annarra orða, hvenær skyldi Reykjavíkurbúar komast á það menningarstig, að finna van- sæmi fýrir sig og bæinn í því, að iáta reka kúahjarðir sínar kvel og morgna, gaulandi og grenjandi, eins og básúnur til þess að boða siórtíðindi, og gjörandi öll sín stykki um aðalgötur bæjarins? Þetta ástand allt saman var ein af orsökunum til þess, að fram sýnir menn höfðu komið auga á að íslendingar mæítu til með Kristinn Jónsson vagnasmiður. að eignast vagna. Maður hafði verið sendur til útlanda á stvrk til þess að læra vagnasmíði, en hann hvarf frá því. Tryggvi Gunnarsson barðst fyrir því sí og æ, að gerðar yrðu akbrautir sem víðast, og viðkvæðið var jafnan hjá honum: „Það þarf að gera þetta vagnfært“. Smíði Ölfusár- brúarinnar sem Tryggvi stóð fyrir táknaði tímamót í samgöngumál- um suðurlandsundirlendisins. Tryggvi Gunnarsson tapaði 6000 krónum á verkinu, sökum þess að hann gerði meira en stóð í samn- ingnum. Hann sagði að þetta þyrfti að gera,. og svo sá hann um að það yrði gert, þó það þýddi fé úr hans eigin vasa. Kristinn Jónsson fluttist til Reykjavíkur í byrjun árs 1904. Sigurður ráðunautur Sigurðsson frá Langholti fékk Kristinn til að hefja vagnasmíðina, sem hófst í apríl 1904. Þá hófst vagnaöld á ísiandi. Sunnlenzkir bændur voru að fá veg ýfir „Fjallið“ og kom- ust ,,klakklaust“ af í kaupstaðinn. Kristinn sagði síðar fi’á komu sinni til Reykjavíkur á þsssa leið: Mér rann til rifia að sjá vinnu- brögðin. Allt var borið á bakinu. Konur báru kol og salt við upp- skipun og eins var farið með alla stykkjavöru. Þetta leiddi til upp- hafs vagnaldarinnar, sem hófst með „Kerruöldinni". Þegar Krist- inn var eitt sinn að því spurður hvar hann hefði lært að smíða vagnhjól, því ekki hafði hann ver- ið sendur á ríkisstyrk til náms- dvalar erlendis, þá svaraði bann jafn góðlátlega og vant var: Mað- ur tekur bara sundur eitt hjól og sér hvérnig það er gert. Og svo er bað búið. Þetta ber ekki að skilia á þann veg að Kristinn hafi haft neinn ýmugust á menntun. Hann lærði sína iðn eins og þá var siður, enda höfðu fæstir á þeim tíma að- stöðu til að leita sér framhalds- menntunar erlendis. En Kristinn var glöggskyggn á að finna út, hvernig vinna mætti verkið á sem einfaldastan og þó um leið á full- komnastan hátt. End.a má hæta því við, að Kristinn var landskunn ur fyrir vandvirkni sína. Sigurður, ráðunautur frá Lang- h'o.lti kvnnti sér búnaðarfram- kvæmdir erlendis. Með heimkomu háns hefst nýtt tímabil í búnaðar- sögu íslands. Hann var upphafs- maður að stofnun smjörbúanna og ritaði fyrstu greinina um það mál í 13. árgang Búnaðarritsins. Fyrsta smjörbúið var stofnað árið 1900 að Seli í Hrunamannahreppi,

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.