Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 1

Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 301. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Syngur um ástina Idol-stjarnan Jón Sigurðsson gefur út hljómdisk | Menning 46 Ver | Nýta vel Fiskistofu  Alíslenskt góðmeti Viðskipti | Hækkun hlutabréfa yfir heiði  Sjálfkjörið bankaráð Íþróttir | Ólöf María á evrópsku mótaröðinni  Öruggt hjá Keflvíkingum kynna sjónarmið sín fyrir borgarbú- um. Borgarfulltrúar og borgarstjóri eru sammála um að leiða málið sam- eiginlega til lykta.“ Aðspurð hvort hún teldi að sam- starf R-listans væri í hættu sagði Anna svo ekki vera. Sagði hún enn- fremur að sameiginleg ákvörðun yrði tekin um framhald málsins strax í næstu viku. Einn heimildarmaður blaðsins sagði að umræða um þetta mál í fjöl- miðlum hefði verið mjög hröð, en ákveðið hefði verið að hún ætti ekki að ráða ferðinni. Þórólfur hefði staðið sig vel sem borgarstjóri og ætti inni að fá sitt tækifæri. Um tíma í gær var samkvæmt heimildum Morgunblaðsins útlit fyrir að Þórólfi yrði gert að segja af sér í dag, virtist sem samstaða gæti orðið um að Dagur B. Eggertsson settist í ÞÓRÓLFI Árnasyni borgarstjóra var á löngum fundi borgarstjórnar- flokks Reykjavíkurlistans í Ráðhús- inu í gærkvöldi gefið ráðrúm til að skýra sín sjónarmið gagnvart borg- arbúum. Umræðan síðustu daga um skýrslu Samkeppnisstofnunar hefði gert stöðu borgarstjórans erfiða. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins leit um tíma út fyrir það í gær að hann myndi segja af sér í dag. Að loknum fjögurra tíma fundi kom Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi fram á tólfta tímanum og las eftirfar- andi samþykkt flokksins fyrir frétta- menn, sem hefði verið samhljóða: „Borgarstjórnarflokkur Reykja- víkurlistans telur að umræða síðustu daga um skýrslu Samkeppnisstofnun- ar hafi gert stöðu Þórólfs Árnasonar borgarstjóra erfiða. Borgarstjórnar- flokkurinn vill gefa Þórólfi tóm til að stól borgarstjóra og „kláraði kjör- tímabilið“ eins og það var orðað, en ljóst væri að ekki yrði leitað út fyrir raðir borgarfulltrúa R-listans að næsta borgarstjóra. Í gærkvöldi breyttist þetta og fær Þórólfur nú ráðrúm til þess að fara yfir málið, jafnvel fram í næstu viku. Óvíst er hvað þá gerist, en samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er inni í mynd- inni að hann muni þá láta af embætti. Þórólfur sagði við fréttamenn að farið hefði verið vel yfir málin á löngum fundi í gærkvöldi. Sagðist hann vel skilja gremju fólks í garð ol- íufélaganna. Hann sagðist hafa viljað fá að vita að staða sín væri ljós meðal félaga sinna. Hann væri ánægður með að staðan hefði skýrst og myndi taka næstu daga í að fara yfir sín mál. Umræðan hefur gert stöðu Þórólfs erfiða Samþykkt borgarstjórnarflokks R-listans frá í gærkvöldi  VG vill/6 GEORGE W. Bush hét því í gær að reyna að ávinna sér traust þeirra ríf- lega 55 milljóna Bandaríkjamanna sem greiddu keppinauti hans, demó- kratanum John Kerry, atkvæði sitt í forsetakosningunum sem fram fóru í Bandaríkjunum á þriðjudag. „Til að gera þessa þjóð öfluga og betri mun ég þurfa stuðning ykkar, ég mun leggja hart að mér til að verðskulda hann,“ sagði Bush eftir að ljóst var orðið að hann hafði verið endurkjör- inn forseti Bandaríkjanna. Bush flutti ávarp í gærkvöldi skömmu eftir að Kerry hafði lýst sig sigraðan í ræðu sem hann hélt í Bost- on. „Bandaríkjamenn hafa fellt dóm sinn og ég stend auðmjúkur frammi fyrir því trausti sem samborgarar mínir hafa sýnt mér,“ sagði Bush. „Þessum dómi fylgir sú ábyrgð að þjóna öllum Bandaríkjamönnum vel,“ bætti hann síðan við. Sagði hann Kerry geta verið stoltan af þeirri „öfl- ugu baráttu“ sem hann hefði háð og þakkaði hann demókratanum vinsam- legt símtal hans fyrr um daginn. Sterk staða á Bandaríkjaþingi Mörg erfið verkefni bíða forsetans á nýju kjörtímabili. Þarf hann m.a. að leita leiða til að stilla til friðar í Írak og tryggja pólitískan stöðugleika. Hann hét því í gær að hopa hvergi í barátt- unni við alþjóðlega hryðjuverkahópa og sagði jafnframt að nú biði það verkefni að umbylta „úreltu skatta- kerfi“ í Bandaríkjunum, vinna að úr- bótum á almannatryggingakerfinu og halda í heiðri „helgustu gildi fjöl- skyldunnar og trúarinnar“. Ætti Bush að vera vel í stakk búinn til að ná fram stefnumálum sínum því repúblikanar hafa áfram meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings. Úrslit í Ohio voru ekki endanlega orðin ljós þegar Kerry viðurkenndi ósigur sinn þar. Með sigri í Ohio fór Bush í 274 kjörmenn, en 270 kjör- menn þarf til að ná kjöri sem forseti Bandaríkjanna. Skiptir því ekki máli hver verða úrslit í Iowa, en þaðan koma sjö kjörmenn, og Nýju-Mexíkó, en þaðan koma fimm, en þau verða líklega ekki ljós fyrr en í dag. Bush fékk næstum fjórum milljónum at- kvæða meira en Kerry í heildina. Kjörsókn hefur ekki verið meiri í for- setakosningum síðan 1968 en allt að 120 milljónir manna mættu á kjör- stað, um 60% atkvæðisbærra manna. Repúblikaninn George W. Bush endurkjörinn forseti Bandaríkjanna Segist vilja ávinna sér traust allra kjósenda Reuters George W. Bush veifar til stuðningsmanna sinna í gær. Með honum er fjölskylda hans og Dick Cheney varaforseti. Washington, Boston. AP, AFP.  Sjá umfjöllun bls. 14–16 JOHN Kerry lýsti því í gær yfir að hann teldi ljóst að niðurstaðan í for- setakosningunum í Bandaríkjunum gæti ekki orðið demókrötum í hag. Sagðist hann því hafa hringt í George W. Bush og óskað honum til hamingju með sigurinn. Kerry sagði að nú yrði að brúa þá djúpu gjá sem klyfi bandarísku þjóðina. „Við ræddum um hættuna sem fylgir sundrungu í samfélagi okkar og þörfina, þá miklu þörf, á því að finna samhljóm,“ sagði Kerry um samtal það sem hann átti við Bush. „Ég vona að í dag getum við byrjað að græða sárin.“ Kerry sagði að hann hefði komist að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa rýnt í stöðuna í Ohio, að hann gæti ekki haft betur þar í baráttunni við Bush. Engu skipti þó að tugir þús- unda atkvæða væru enn ótaldir. Ekki væri því ástæða til að draga málið frekar. „Niðurstöðunni eiga kjósendur að ráða, hún á ekki að ráðast af langvinnum lagalegum átökum,“ sagði Kerry. Reuters Kerry viðurkennir ósigur Úr verinu, Viðskipti, Íþróttir YASSER Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, var fluttur á gjörgæslu- deild á hersjúkrahúsi í útjaðri Par- ísar í gær og sögðu heimildarmenn í palestínsku heimastjórninni að heilsu hans hefði hrakað mikið yfir daginn. Þeir sögðu líðan hans í gærkvöldi þó stöðuga. Flogið var með Arafat til Frakk- lands í síðustu viku eftir að hann veiktist illa. Ekki er vitað hvað þjakar Arafat en læknar telja að um alvarlegan blóðsjúkdóm geti verið að ræða. AP hafði eftir einum heimildarmanni, sem sagður er þekkja til, að Arafat þjáðist af „banvænum“ sjúkdómi. Þetta hafði hins vegar ekki fengist staðfest og palestínskur embættismaður full- yrti í gær að flutningur Arafats á gjörgæsludeild „þýddi ekki að líf hans væri í hættu“. Arafat í gjörgæslu París. AFP, AP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.