Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 2

Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BUSH ÁFRAM FORSETI George W. Bush var endurkjörinn forseti Bandaríkjanna í kosningum sem fram fóru í fyrradag. Þetta varð ljóst í gær þó að endanleg úrslit í Ohio-ríki lægju ekki fyrir. Þótti sýnt að demókratinn John Kerry gæti ekki brúað bilið sem var á milli hans og Bush í Ohio þó að enn ætti eftir að telja nokkra tugi atkvæða. Þar með var Bush kominn með 274 kjör- menn sem er meira en þarf til svo menn teljist hafa náð kjöri sem for- seti Bandaríkjanna. Kerry óskaði Bush til hamingju með sigurinn í gær og lýsti þeirri skoðun sinni að nú þyrfti að græða sár og stuðla að sáttum, enda einkenndi mikill klofn- ingur hið bandaríska samfélag. Bush tók undir þessi sjónarmið í ræðu sinni í gær. Grundartangi stækkar Century Aluminium, móðurfyr- irtæki Norðuráls, hefur ákveðið að fjárfesta fyrir rúmlega 7,3 milljarða króna í stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga umfram það sem áður hafði verið ákveðið og verður álverið þar með stærra en álverið í Straumsvík. Staða borgarstjóra óljós Nauðsynlegt er að gefa Þórólfi Árnasyni borgarstjóra tækifæri til að skýra þátt sinn í samráði olíufé- laganna. Þetta var samþykkt á fundi borgarstjórnarflokks R-listans í gærkvöldi. Mikil óánægja er með stöðu mála innan VG í Reykjavík og vill félagið ekki lýsa yfir trausti á borgarstjóra. Heilsu Arafats hrakar Ónafngreindir heimildarmenn innan palestínsku heimastjórn- arinnar sögðu seint í gær að líðan Yassers Arafats, leiðtoga Palest- ínumanna, hefði versnað verulega yfir daginn og var hann fluttur á gjörgæslu í gærkvöldi. Arafat er á sjúkrahúsi í Frakklandi. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 28 Erlent 14/16 Minningar 30/34 Höfuðborgin 18 Bridds 37 Akureyri 19 Bréf 28 Suðurnes 19 Kirkjustarf 40 Landið 19 Dagbók 38/41 Daglegt líf 21 Fólk 44/49 Listir 20 Bíó 46/49 Umræðan 24/28 Ljósvakamiðlar 50 Forystugrein 26 Veður 51 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                   ! " #       $         %&' ( )***                          edda.is Spilafíkill Dostojevskís Fjárhættuspilarinn er einhver frægasta og magnaðasta lýsing á áþján spilafíknarinnar sem til er. Sagan er borin uppi af meistaralegum lýsingum á innri togstreitu og hégómagirnd persónanna og hér takast á spaug og alvara; allt með þeim hætti sem lesendur þekkja vel úr öðrum meistaraverkum Dostojevskís. GUÐBJÖRN Snær Björnsson, Jón Arnar Barðdal og Ísak Örn Jafetsson í 2. og 4. bekk Flataskóla í Garðabæ hafa ekki setið auðum höndum í verkfalli kennara. Þeir eru búnir að eyða mörgum verkfallsdögum í að reisa virki við Greniás í Garðabæ. Ekki er líklegt að til bardaga komi, en víst er að hér eru góðir verkmenn á ferð. Morgunblaðið/Golli Byggja sér öflugt virki HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær tæplega þrítugan mann, Bryngeir Sigurðsson, í tveggja ára fangelsi fyrir vopnað rán í Landsbanka Íslands í maí sl. Sá sem ók bílnum var sakfelldur fyrir þátttöku en sá þriðji sýknaður. Bótakröfu Landsbankans var vísað frá þar sem hún þótti ófullkomin og meðal annars ekki ljóst að hverjum hún beindist. Með ráninu rauf Bryngeir skilorð níu mánaða fang- elsisdóms sem hann hlaut fyrir þjófnað og fíkniefna- brot og voru brotin dæmd í einu lagi. Mennirnir þrír voru allir ákærðir fyrir rán. Í dómn- um kemur fram að meðan Bryngeir fór inn í bankann biðu hinir tveir í bíl skammt frá. Þegar hann kom inn braut hann skilrúm á gjaldkerastúku, ógnaði gjald- kera og hrifsaði því næst um 570.000 krónur í pen- ingum. Fimm mínútum eftir að hann fór út úr bank- anum var hann handtekinn en honum hafði í millitíðinni tekist að kasta peningunum inn um opna rúðu á bílnum en við það dreifðust peningarnir um all- an bílinn. Hann játaði ránið en sagðist ekki vita hvað hefði orðið um peningana. Þeir sem biðu í bílnum sögðust hafa óljósar hugmyndir um fyrirætlanir Bryn- geirs umræddan dag. Þann sem ók bílnum grunaði þó hvað væri á seyði þar sem ýmislegt hefði gengið á hjá Bryngeiri og hann m.a. orðið fyrir barsmíðum vegna fíkniefnaskuldar. Eftir ránið kvaðst bílstjórinn hafa tekið að sér að greiða 260.000 króna fíkniefnaskuld hans. Fyrir þátt sinn í ráninu var bílstjórinn dæmdur fyrir hlutdeild og hlaut hann þriggja ára skilorðs- bundið fangelsi. Guðjón St. Marteinsson kvað upp dóminn. Sigríður J. Friðjónsdóttir flutti málið f.h. ákæruvaldsins. Verj- endur voru Sveinn Andri Sveinsson hrl., Jón Hösk- uldsson hdl. og Hilmar Ingimundarson hrl. Tveggja ára fangelsi vegna bankaráns TÍÐNI bankarána á Íslandi árið 2003 var sú næsthæsta á Norð- urlöndum og ein sú hæsta í Evr- ópu. Í árslok 2002 voru 178 bankabú á Íslandi, en sjö bankarán voru framin árið 2003. Það samsvarar því að 25. hvert útibú hafi verið rænt. Á Norðurlöndunum er ein- göngu hærri tíðni bankarána í Danmörku, þar sem 11. hvert útibú var rænt í fyrra. Í Noregi var hins vegar 169. hvert bankaútibú rænt og voru banka- rán þar alls átta, eða einu fleiri en á Íslandi. Víðast hvar færist ofbeldi í bankaránum hins vegar í vöxt./C1 Ein hæsta tíðni banka- rána á Íslandi SEÐLABANKI Íslands mun gefa út og setja breyttan þúsund króna seð- il í umferð hinn 8. nóvember. Felst breytingin í auknum öryggis- þáttum og lítið eitt frábrugðnu út- liti. Myndefni á breytta seðlinum nær út í brún á langhliðum hans og verður hvít jaðarrönd felld þar burt. Stærð, myndefni og litir nýja seðilsins verða óbreytt. Nýr þúsund króna seðill SÚ ÁKVÖRÐUN var tekin á sam- eiginlegum fundi þingmanna Suð- urkjördæmis í gær að fresta fram- kvæmdum á fyrirhuguðum Bakkavegi og færa 60 milljónir króna í önnur verkefni. Guðjón Hjörleifsson alþingis- maður segir að ákveðið hafi verið að nýta 55 milljónir króna til frek- ari rannsókna á jarðlögum í tengslum við hugsanleg jarðgöng milli lands og Eyja. Fimm milljónir verða svo nýttar til þess að ljúka rannsóknum á ferjulægi Bakka- fjöru. Guðjón segir nauðsynlegt að þessar rannsóknarniðurstöður liggi fyrir næsta haust en þá verður tek- in ákvörðun um framtíðarsam- göngur Eyjamanna. Vinnu við Bakka- veg frestað FERTUGUR karlmaður var í mik- illi lífshættu eftir að hann var rist- ur á kviðinn í íbúð á annarri hæð húss við Hverfisgötu í Reykjavík í fyrrinótt. Manninum tókst að kom- ast út úr húsinu og ganga hátt í 70 metra áður en hann hné niður á móts við Laugaveg 49 þar sem hann fannst liggjandi í blóði sínu. Hluti af iðrum mannsins lá úti. Lögreglan í Reykjavík fékk til- kynningu um málið laust eftir klukkan tvö. Gunnleifur Kjartans- son lögreglufulltrúi segir að meg- ináverkinn hafi verið á kvið manns- ins en vill ekki staðfesta hvaða aðrir áverkar hafi verið á mann- inum. Blóðslettur á veggjum Maðurinn var fluttur á Land- spítala þar sem hann gekkst undir aðgerð. Að sögn lækna var mað- urinn lífshættulega særður en hann var kominn úr lífshættu í gær. Svo mikið hafði blætt úr manninum á leiðinni frá Hverfis- götu að Laugavegi að lögregla gat auðveldlega rakið sig eftir blóð- slóðinni að íbúðinni þar sem árásin var framin og handtók hún þar hinn meinta árásarmann. Blóð- slettur voru í íbúðinni og á hinum grunaða, sem og í stigagangi og á húsveggjum sem maðurinn studdi sig við. Árásarmaðurinn beitti egg- vopni við árásina en Gunnleifur vildi ekki greina frá því hvort það hefði fundist. Meintur árásarmaður var síð- degis í gær úrskurðaður í gæslu- varðhald til 17. nóvember og gert að sæta geðrannsókn. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa báðir mennirnir komið við sögu lögreglu en árásarmaðurinn hefur þó ekki komið við sögu ofbeldis- mála. Gunnleifur Kjartansson tók sér- staklega fram að þetta mál tengd- ist hvorki fíkniefnum né handrukk- un. Fannst liggjandi á Laugaveginum Með mikla áverka á kvið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.