Morgunblaðið - 04.11.2004, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.11.2004, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR edda.is Spennandi fantasía Á meðan Signý sefur á spítalanum þarf ævintýrapersónan hennar - Leda - að kljást við erfiðar þrautir í öðrum heimi. Æsispennandi bók eftir verðlaunahöfundinn Ragnheiði Gestsdóttur. Leikur á borði - Íslensku barnabókaverðlaunin 40 vikur - Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur NOKKUÐ hefur dregið úr gos- virkni í Grímsvötnum auk þess sem hlaup í Skeiðará virðist í rénun. Ekki var hægt að fljúga yfir gos- stöðvarnar í gær vegna veðurs en áfram er fylgst með framvindu gossins. Almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra hefur sent frá sér við- vörun til ferðamanna á Vatnajökli, um að ferðir í nágrenni við gos- stöðvarnar í Grímsvötnum séu mjög hættulegar. Að sögn Al- mannavarnadeildar hafa fregnir borist af því að ferðalangar hafi lent í vandræðum með að komast ofan af jöklinum í fyrradag. Ferða- mönnum er bent á að hættusvæðið nær að minnsta kosti 2 kílómetra út frá eldstöðinni. Hnit gígsins eru 64° 23.9’ N, 17° 23,5’ V. Virknin í gosstöðvunum í Gríms- vötnum var nokkuð breytileg í fyrrinótt og um miðnættið dró nokkuð úr krafti gossins, en jókst svo aftur um kl. 02:30 en skjálfta- virkni var ekki mikil. Rennslið í Skeiðará minnkar mikið Vegurinn um Skeiðarársand, sem lokað var í fyrrinótt af öryggis- ástæðum, var opnaður aftur í gær- morgun eftir að vegagerðarmenn frá Höfn fóru yfir sandinn og sáu engar skemmdir. Skeiðarárhlaup virðist hafa náð hámarki í fyrradag en rennslið var þá um 2.600 rúm- metrar á sekúndu. Rennslið var komið niður í tæpa 1.100 rúmmetra á sekúndu um hádegið í gær og minnkaði eftir því sem leið á dag- inn. Til samanburðar má nefna að venjulega er rennslið í Skeiðará nokkrir tugir rúmmetra á sekúndu á veturna. Í hamfarahlaupinu mikla í október 1996 fór rennslið hins vegar í 45 þúsund rúmmetra. Öskugeirinn færðist í vesturátt yfir Norðausturlandi í gær og var talsvert öskufall í Laxárdal í Suður- Þingeyjarsýslu, Mývatnssveit, Fnjóskadal og Bárðardal. Einnig var öskufall á Akureyrarflugvelli. Í Möðrudal, þar sem mjög mikið öskufall var á þriðjudag, bar nánast ekkert á því í gær. Sextán geitur eru á bænum og tókst að finna fimm þeirra á þriðjudagskvöld og afganginn í gær. Hefur búsmali að öðru leyti verið settur á hús þar sem því hefur verið viðkomið þar sem öskufalls hefur gætt. Að sögn Önnu Birnu Snæþórsdóttur á Möðrudal var mjög óþægilegt að fara út undir bert loft þegar ösku- fallið var sem mest og sveið undan öskunni. Þegar vindur snerist til suðaustanáttar í gær snarminnkaði öskufallið á Möðrudal en herjaði í staðinn á svæði vestar á Norðaust- urlandi. Að sögn Guðrúnar Péturs- dóttur á Árhólum í Laxárdal var jörð grá að lit í gær og sagðist hún aldrei hafa séð jafnmikla ösku frá neinu eldgosi. Búist er við vaxandi norðvest- anátt í dag, fimmtudag og segir Veðurstofan að hugsanlega gæti orðið öskufall í Höfn í Hornafirði. Dregur úr gosvirkni í Grímsvötnum Öskufall í Laxárdal og Mývatnssveit Ljósmynd/Kristján Þór Kristjánsson Ekki viðraði til flugs yfir Grímsvötn í gær, en í fyrradag var gosmökkurinn stór og mikill. LÖGREGLAN í Reykjavík hefur lokið rann- sókn á dauða Sri Rhamawati og voru málsgögn í gær send til ríkissaksóknara. Hákon Eydal, fyrrum sambýlismaður og barnsfaðir hennar, hefur játað að hafa orðið henni að bana að heimili hans í Reykjavík hinn 4. júlí sl. Hann mun sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í málinu. Úrskurðuð ósakhæf Þá hefur lögregla lokið rannsókn á láti 11 ára stúlku sem lést af völdum stungusára sem hún hlaut á heimili sínu í lok maí síðastliðinn, og hafa málsgögn verið send ríkissaksóknara. Lögregla telur ljóst að móðir hennar hafi veitt henni áverkana en hún ber við minnisleysi um atburðina. Móðirin hefur verið úrskurðuð ósakhæf og er hún nú vistuð á réttargeðdeild- inni að Sogni. Manndrápsrannsókn lokið Málsgögn hjá ríkissak- sóknara GUNNAR Rúnar Pétursson bóndi í Vogum í Mývatnssveit var í gær að hýsa fé sem hann átti á túni á Ytri- Höfða. Áður höfðu bændur í Vogum sótt fé á tún í Hofsstaðaheiði. Í fyrranótt gerði nokkurt öskufall í Mývatnssveit og var það mest niður við Helluvað og í Hofsstaðaheiði. Þar eru fannir talsvert mikið gráar. Eru farnir að hýsa Morgunblaðið/Birkir Fanndal BLAÐBERUM Morgunblaðsins býðst nú að fá gult endurskinsvesti til að klæðast á meðan þeir bera út blöðin til að þeir sjáist betur í skammdeginu. Vestin eru einkum ætluð þeim sem bera út þar sem umferð er, en á höf- uðborgarsvæðinu einu eru rúmlega 400 blaðberar, að sögn Arnar Þór- issonar, áskriftarstjóra Morgunblaðs- ins. Blaðberum stendur einnig til boða að fá mannbrodda til að kljást við svell- bunka vetrarins, og til að nálgast vest- in og broddana þurfa blaðberar að setja sig í samband við blaðið. Þegar hafa um 200 vesti og talsvert af mann- broddum farið til blaðbera. Rétt er að minna áskrifendur Morg- unblaðsins á að hafa útidyraljós kveikt á morgnana svo blaðberar sjái til verka í skammdeginu sem nú er skollið á. Blaðberar fá endur- skinsvesti Morgunblaðið/Golli Gulu endurskinsvestin ættu að gera ökumönnum auðveldara að sjá blaðbera Morgunblaðsins í myrkrinu og auka öryggi þeirra. fyrir flugumferð og verður svo áfram þar til nánari upplýsingar liggja fyrir um útbreiðslu gosmakkarins og öskunnar frá gosinu. Lokunin á þessu svæði hefur ekki haft mikil áhrif á alþjóðaflugið, en þó hefur þurft að beina flugvélum suður fyrir lokaða svæðið. FLUGMÁLASTJÓRN fékk skeyti frá sænsku veður- stofunni í fyrrinótt þar sem tilkynnt var um gosmökk sem náði frá 15 þúsund fetum og upp í 50 þúsund feta hæð yfir sunnanverðri Skandinavíu. Eldgosið í Gríms- vötnum hefur valdið því að um 311 þúsund ferkíló- metra svæði norð-austur af gosstöðvunum er enn lokað Gosmökkur yfir sunnanverðri Skandinavíu TALIÐ er öruggt að þrengt hafi verið að hálsi Sæunnar Pálsdóttur, sem ráðinn var bani í íbúð í Hamraborg á mánudag, með þvottasnúru sem lögregla fann í íbúðinni. Friðrik Björgvinsson, yfirlög- regluþjónn í Kópavogi, vildi ekki staðfesta þessar upplýs- ingar í gær. Eiginmaður konunnar, Magnús Einarsson, hefur ját- að að hafa orðið henni að bana. Hann hefur verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 15. desember og situr nú í ein- angrun. Friðrik vildi ekki segja frá því hvort hann hefði gefið einhverjar skýringar á atlögunni en hann hefur ein- ungis verið yfirheyrður einu sinni vegna málsins. Þrengt að hálsi með snúru

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.