Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 8

Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ertu líka farinn að bíta, rakkinn þinn? Poul Schlüter, sér-legur fulltrúi nor-rænu samstarfs- ráðherranna, segir í nýrri greinargerð um afnám landamærahindrana á Norðurlöndum, að með sí- aukinni hnattrænni sam- keppni sé mikilvægt að Norðurlöndunum takist að marka sér stöðu sem opið og landamæralaust svæði. Þróun Evrópusambands- ins geri það takmark enn brýnna og þá ekki síst stækkun sambandsins sem þýði einingu Evrópu. „Hér hvorki getur né á norræn samvinna að keppa við evrópska sam- vinnu heldur haga sínu í samræmi við það. Helst ættum við að ná skrefinu lengra varðandi hreyfan- leika þegna milli norrænna landa og viðskipti og fjárfestingar fyrir- tækja yfir landamæri. Norðurlönd ættu að vera brautryðjendasvæði fyrir árangursríkan innri markað. Sú vinna sem nú er hafin verður að hafa í för með sér raunhæfar úr- bætur,“ segir Schlüter í greinar- gerð sinni, sem hann skilaði til þings Norðurlandaráðs í Stokk- hólmi. Árangur hefur náðst Schlüter hefur unnið að því und- anfarin ár að skilgreina landa- mærahindranir innan Norður- landanna og benda á leiðir til að leysa vandamálin. Hann segir í greinargerðinni að nokkur árang- ur hafi náðst í því starfi að afnema landamærahindranir milli Norð- urlandanna og orðið sé auðveldara að starfa og stunda nám í öðru Norðurlandi en heimalandinu. Hingað til hafi frjáls för borgar- anna verið í brennidepli, en á næsta ári verði unnið að því að ryðja úr vegi hindrunum sem verða á vegi atvinnufyrirtækja. Fram kom hjá Drífu Hjartar- dóttur alþingismanni í umræðum á þingi Norðurlandaráðs um greinargerð Schlüters, að nærri sex af hverjum tíu fyrirtækjum mæti hindrunum þegar þau flytji vörur sínar til annarra Norður- landa. „Þetta ætti ekki að vera raunin milli tveggja norrænna grannlanda,“ sagði Drífa og bætti við að staðan væri ekki viðunandi, hvorki fyrir fyrirtækin né stjórn- málamennina. Í greinargerðinni er farið yfir ýmis málasvið, vandamál eru skil- greind, tillögur til lausnar og hvaða niðurstöður hafi fengist. Á blaðamannafundi þar sem Schlüt- er kynnti greinargerðina, lagði hann áherslu á að pólitískur vilji yrði að vera fyrir hendi svo hægt væri að leysa þau vandamál sem við væri að glíma. Sem dæmi um góðan árangur á þessu sviði væri samningur um skráningu í þjóð- skrá, sem samstarfsráðherrar Norðurlanda skrifuðu undir á mánudagskvöld í Stokkhólmi. Samningurinn felur í sér að ekki verður lengur þörf á norrænu flutningsvottorði og því þarf ekki að bíða eftir tilheyrandi pappírum til að hægt verði að úthluta kenni- tölu ef borgararnir koma ekki með pappírana með sér. Schlüter sagði á blaðamanna- fundinum, að áður hefði staðan verið sú, að ef t.d. Dani flytti til Svíþjóðar og ætlaði að leigja sér íbúð, hefði hann þurft að fá kenni- tölu í Svíþjóð til að gera leigu- samning. Slík kennitala fékkst hins vegar ekki nema viðkomandi hefði fengið þar húsnæði. Þegar Schlüter var beðinn að nefna dæmi þar sem pólitískur vilji hefði ekki verið fyrir hendi, sagði hann að samnorræni vinnu- markaðarsáttmálinn, sem tryggir að norrænir þegnar geti unnið að vild í öðru norrænu landi, nái ekki til um 750 þúsund manna, sem eru frá ríkjum utan Norðurlandanna en hafa fengið varanlegt atvinnu- eða landvistarleyfi í einu ríkjanna. Schlüter sagðist hafa lagt til að íhugað yrði að vinnumarkaðar- sáttmálinn næði til þessa fólks, en norrænir vinnumálaráðherrar hefðu ákveðið að hafna þeirri til- lögu. Í staðinn verður skipaður norrænn vinnuhópur sem á að endurskoða norræna sáttmálann um samnorrænan vinnumarkað. Í greinargerð sinni nefnir Schlüter sérstaklega vandamál vegna íslenskrar nafnahefðar en dæmi séu um það að yfirvöld í öðr- um norrænum ríkjum hafi hafnað tilmælum foreldra við að skrá ís- lensku nöfnin. Schlüter segist hafa borið vandann upp við danska forsætisráðherrann og kveikjan að því hafi verið lausn, sem Svíar hefðu fundið á málinu. Þar geti nú íslenskir borgarar, sem hafa jafnframt sænskt ríkis- fang, haldið eða hlotið það nafn sem þeir kjósa í samræmi við ís- lenska nafnahefð. Schlüter segist hafa verið upplýstur um að vand- inn sé til umfjöllunar sem liður í vinnu nafnalaganefndar og sú nefnd hafi sent frá sér álitsgerð sem taki m.a. á slíkum vanda. Schlüter segist hins vegar bíða frekari umfjöllunar. Fréttaskýring | Greinargerð um afnám landamærahindrana á Norðurlöndum Löndin marki sér stöðu sem opið svæði Nærri sex af hverjum tíu fyrirtækjum mæti hindrunum í viðskiptum Poul Schlüter fyrrverandi forsætisráðherra. Árangur hefur þegar náðst í því að afnema hindranir  Í nýrri greinargerð um afnám landamærahindrana á Norður- löndum er lögð áhersla á að með aukinni hnattrænni samkeppni sé mikilvægt að Norðurlönd- unum takist að marka sér stöðu sem opið og landamæralaust svæði. Nokkur árangur hafi þeg- ar náðst í því að afnema landa- mærahindranir milli Norður- landanna og orðið sé auðveldara að starfa og stunda nám í öðru landi en heimalandinu. gummi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.