Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 11
FRÉTTIR
VETRARSALA
4 DAGAR
Dömur
Flístreflar 3.790 3.032
Vaxjakkar 24.990 19.992
Rennd jakkapeysa 7.490 5.992
Ullarjakki 24.990 19.992
Herrar
Skyrtur frá 3.690 2.952
Peysur frá 4.990 3.992
Treflar frá 2.490 1.992
Kringlunni sími 581 2300
Vinnustofa SÍBS
Sími 5628500
bréfabindin
www.mulalundur.is
NOVUS B 50/3
Heftar allt að 140 blöð.
Með stillingu til að hefta
allt að 8 cm frá kanti
Verð 7.450 kr/stk
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680,
Seltjarnarnesi, s. 561 1680.
iðunn
20%
afsláttur af
MAC
flauelsbuxum
fimmtudag til
sunnudags
RALPH LAUREN
SMÁRALIND - SÍMI 561 1690
Glæsilegt úrval
af flottum peysum,
bolum og skyrtum
Fitulausa pannan
Smiðjuvegi 11, gul gata, Kóp., sími 568 2770. Opið 9-12 og 13-17.
Keramik- og títanhúð sem flagnar ekki af
• Steiking án feiti
• Maturinn brennur ekki við
• Þolir allt að 260 gráður í ofni
Tilvalin
jólagjöf
Pönnur og pottar í úrvali
Upplýsinga- og fræðslunefnd Sjálfstæðisflokksins
Laugardagskaffi í Valhöll
6. nóvember kl. 10.30
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík
sími 515 1700 www.xd.is
Sigríður Anna Þórðardóttir,
umhverfisráðherra,
flytur framsögu og spjallar
við fundarmenn.
Fundarstjóri verður Eyþór Arnalds,
formaður upplýsinga- og
fræðslunefndar.
Allir velkomnir!
FLUGHRÆÐSLUNÁMSKEIÐ
Undirritaður heldur í samvinnu við Flugfélag Íslands námskeið til að
takast á við flughræðslu. Námskeiðið verður haldið sunnudaginn 7. nóv.
frá kl. 9.00-17.00 á Hótel Loftleiðum og kostar kr. 6.000.
Þeir, sem þess óska, geta síðan farið með mér í flug til Akureyrar fram og
til baka með Flugfélagi Íslands næstu daga á eftir og kostar það aukalega.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 849 6480 og
runargu@simnet.is
Rúnar Guðbjartsson, sálfræðingur og fyrrverandi flugstjóri.
UNGIR Íslendingar í
ljósi vísindanna nefnist
málþing um börn og
unglinga sem Páll Skúla-
son háskólarektor og
Þórhildur Líndal, um-
boðsmaður barna, efna
til í Háskóla Íslands á
morgun kl. 12.45–17. Á
málþinginu munu vís-
indamenn og fagfólk af
ýmsum fræðasviðum
kynna rannsóknir á hög-
um og háttum íslenskrar
æsku og eiga samræður
við þátttakendur.
Málþingið hefst á lyk-
ilerindum þeirra Stefáns
Ólafssonar, prófessors í
félagsfræði við HÍ, Þór-
arins Sveinssonar, dós-
ents í lífeðlisfræði við HÍ, Dagnýjar
Kristjánsdóttur, prófessors í ís-
lensku við HÍ, og Geirs Gunnlaugs-
sonar, barnalæknis og forstöðu-
manns Miðstöðvar heilsuverndar
barna. Að erindum loknum geta ráð-
stefnugestir síðan valið milli níu mál-
stofa þar sem til umfjöllunar eru m.a.
málefni á borð við börn og mennta-
kerfið, heilsufar, líðan og lífsstíll
barna og nútímafjölskyldan.
Aðspurður segist Þórarinn Sveins-
son, dósent í lífeðlisfræði við Háskóla
Íslands, munu í framsögu sinni
kynna frumniðurstöður rannsóknar
sem unnin var í samvinnu fjölmargra
vísindamanna í fyrra þar sem holda-
far 9 ára og 15 ára barna var skoðað.
„Rannsókn okkar beindist fyrst og
fremst að því að kanna hvaða þættir
það eru í lífsstíl einstaklinganna sem
fylgir mest hætta á að
lenda í þeim hópi sem
telst of þungur. Reyna
að útskýra af hverju
sum börn eru of þung
og hvað of feitu börnin
gera öðruvísi en önn-
ur. Niðurstöður okkar
sýna að það er samspil
margra þátta, líffræði-
legra, félagslegra og
næringarlegra, sem
hefur áhrif á þessa
þróun ofþyngdar hjá
börnum og ungling-
um.“
Að sögn Þórarins
má sjá að hlutfall of
þungra barna fer
hækkandi á síðustu ár-
um og það sé ákveðið
áhyggjuefni að hlutfall offitu sé held-
ur hærra hjá 9 ára börnunum en hjá
þeim 15 ára. „Þegar við skoðum
hvernig börnin sem í dag eru 15 ára
voru þegar þau voru 9 ára og berum
þau saman við 9 ára börnin í dag þá
kemur fyrrnefndi hópurinn betur út.
Það þýðir í raun að 15 ára krakkarnir
voru mun betur á sig komnir þegar
þeir voru 9 ára, heldur en börnin sem
eru 9 ára í dag. Það er því greinilegt
að ástandið fer mjög hratt versn-
andi.“
Málþingið, sem fram fer í hátíðasal
og kennslustofum HÍ, er öllum opið
og er aðgangur ókeypis, en þar sem
húsrými er takmarkað eru þeir sem
hug hafa á að sækja ráðstefnuna
beðnir að skrá þátttöku sína. Skrán-
ing fer fram á skrifstofu rektors HÍ
eða rafrænt á vef HÍ: www2.hi.is.
Málþing um börn og unglinga í HÍ
Heilsufar, líðan
og lífsstíll barna
til skoðunar
Þórarinn Sveinsson ætl-
ar að kynna nýja rann-
sókn á holdafari 9 ára
og 15 ára barna.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær hálfþrítugan mann í 30
daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að
nefbrjóta konu fyrir utan skyndibita-
stað við Ingólfstorg í miðborg
Reykjavíkur. Dómari komst að þeirri
niðurstöðu að konan hefði átt nokkra
sök á átökunum og yrði því að bera
hluta tjóns síns sjálf.
Konan sem varð fyrir árásinni og
eiginmaður hennar voru í biðröð við
veitingastaðinn þegar deilur hófust
milli þeirra og pars sem stóð við bið-
röðina, en konan hélt því fram að par-
ið hefði reynt að troða sér fram fyrir
röðina. Lýsing fólksins á atburðum
fyrir dómi var með talsvert ólíkum
hætti en vitni lýstu því að konan og
eiginmaður hennar hefðu gengið
harðar fram en parið. Átökunum
lyktaði með því að hinn ákærði sló
konuna í andlitið þannig að hún nef-
brotnaði og hlaut skurð við nefrót.
Vitni sagði að þetta hefði hann gert
vegna þess að konan hékk í hári unn-
ustu hans og vildi ekki sleppa. Mað-
urinn bar því á hinn bóginn við að um
sjálfsvörn hefði verið að ræða en á
það féllst dómarinn ekki. Hann taldi á
hinn bóginn að konan ætti nokkra sök
á átökunum og yrði því að bera hluta
tjónsins sjálf.
Konan sem maðurinn nefbraut og
eiginmaður hennar kröfðust 1,3 millj-
óna í bætur vegna kostnaðar vegna
læknisaðgerða, skemmda á fatnaði,
launataps, ferða- og flutningskostn-
aðar og miska. Bótakröfum var vísað
frá dómi að öðru leyti en því að mað-
urinn var dæmdur til að greiða fórn-
arlambi sínu 100.000 krónur ásamt
vöxtum, svo og allan sakarkostnað.
Fullnustu refsingar mannsins var
frestað um tvö ár og fellur hún niður
eftir þann tíma haldi hann skilorðið.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari
kvað upp dóminn. Daði Kristjánsson
flutti málið f.h. lögreglustjórans í
Reykjavík en Benedikt Ólafsson hdl.
var til varnar.
Nefbrotin kona
átti nokkra sök á
átökunum