Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 12

Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Viðbrögð við forsetakosningunum í Bandaríkjunum Forseti Íslands og utanríkisráðherra sendu í gær George W. Bush skeyti þar sem honum er óskað til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Forsætisráðherra telur mikilvægt að skýr úrslit skuli hafa fengist í kosningunum, en forystumenn stjórnarandstöðunnar telja hins vegar að úrslitin séu vond tíðindi. HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra segir George W. Bush hafa unnið glæsilegan sigur í bandarísku for- setakosning- unum í gær. Halldór telur það skipta mjög miklu máli bæði fyrir Bandarík- in og heims- byggðina alla að úrslit kosn- inganna hafi verið með svo af- gerandi hætti, vegna þess að nú geti enginn efast um niðurstöður kosninganna líkt og fyrir fjórum árum. „Ég geri mér miklar vonir um það að forsetinn beiti sér fyrir því að, ekki aðeins að sameina Bandaríkjamenn, heldur líka ná betra samkomulagi við Evrópu og Mið-Austurlönd,“ segir Hall- dór. Betra samkomulag næst ef Bandaríkjaforseti beitir sér af fullum krafti í því að koma á friði milli Ísrael og Palestínu, segir Halldór, og hefur trú á því að George W. Bush komi til með að gera það. Halldór segir ríkisstjórn Ís- lands áfram leggja áherslu á að viðhalda farsælu varnarsamstarfi við Bandaríkjastjórn varðandi samskipti þjóðanna. „Bush forseti hefur sagt okkur það að hann vilji ná niðurstöðu sem við getum sætt okkur við. Við treystum því að svo verði,“ segir Halldór. Mikilvægt að úrslitin voru afgerandi Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra „ÉG ER nú hér staddur á Norð- urlandaráðsþingi og ég get ekki betur heyrt en að allir, fyrir utan nokkra últra-hægrimenn, séu nú svolítið slegnir yfir úrslitunum í forsetakosning- unum í Banda- ríkjunum. Mér finnst það vera almenn viðbrögð hér meðal nor- rænna starfs- bræðra minna. Mönnum finnst það ekki vita á gott ef við eigum fjögur ár í viðbót í vændum af því sama. Ég held það gildi fyrir Evr- ópu í stórum stíl og stóran hluta heimsins,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. „Ég var hér í hörðum og snörpum orða- skiptum við hægrimenn áðan og ég komst nú að þeirri niðurstöðu að það væru kannski fimm menn í heiminum sem væru tiltölulega ánægðir með þetta, Blair og Hall- dór Ásgrímsson, Anders Fogh- Rasmussen, John Howard í Ástr- alíu og svo hægrimaðurinn Inge Lønning, fyrrverandi forseti Norð- urlandaráðs, sem ég var að glíma við.“ Sigur Bush kom Steingrími að vísu ekki á óvart en hann segist þó hafa átt von á að hann ynni með minni mun. Hann segist ekki hafa reiknað með mikilli pólitískri breytingu ef Kerry hefði verið kos- inn. „En ég verð auðvitað að vera hreinskilinn og segja að mér hefði fundist nánast allt betra en Bush. Ég er í því sérstaklega að hugsa til utanríkismálanna en út af fyrir sig líka til efnahagsstefnunnar, skatta- stefnunnar, sem mér finnst vera skelfileg og mylur undir þá ríku. En maður er auðvitað fyrst og fremst að hugsa um heimsmálin og það er eiginlega skelfileg tilhugsun að sjá fyrir sér fjögur ár í viðbót af bush-isma í heimsmálunum.“ Steingrímur segist ekki vera í neinum vafa um að það hefðu að minnsta kosti opnast möguleikar til þess að fara að byggja aftur upp trúnaðartraust og eðlileg samskipti milli t.d. Evrópu og Bandaríkjanna og í raun og veru á milli Banda- ríkjanna og meira eða minna af- gangsins af veröldinni ef Kerry hefði sigrað. „Það er líka hrollur í manni vegna þess að nú mun hann telja sig hafa skýrt umboð til þess að halda áfram á sömu braut og túlka úrslitin m.a. þannig að þetta sé sérstakur stuðningur við hvernig hann hefur hegðað sér í alþjóða- málum. Kannski er það óhugnan- legasta ekki tengt Bush sjálfum, sem maður veit ekki alltaf hversu mikill gerandi er, heldur klíkunni á bak við hann, Rumsfeld, Cheney, Ashcroft og þeim. Það er kannski alvarlegast að þeir skuli halda völdum, haukarnir á bak við Bush.“ DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra sendi George W. Bush heillaóskir vegna sigurs hans í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í gær. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, óskaði George W. Bush til hamingju með endurkjörið. Jafnframt lét forseti Íslands í ljós þá ósk að samband landanna verði áfram náið og sterkt og í anda þeirra hugsjóna lýðræðis og framfara sem einkennt hafa samvinnu Íslendinga og Banda- ríkjamanna um langa hríð. Sendu heillaóskir „Allt betra en Bush“ Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar „MÉR fannst Kerry geðþekkari sem einstaklingur og almennt er ég þeirrar skoðunar að stefna demókrata sé miklu hlýlegri og vinsamlegri öðrum þjóðum utan Bandaríkjanna. Ég tel að það skipti miklu máli að yfirburðafor- ysturíki, eins og Bandaríkin eru, sé mannlegt og sýni nærgætni í samskiptum,“ segir Össur Skarphéðinssson, formaður Sam- fylkingarinnar, um úrslit forseta- kosninganna vestra. Hann segist hafa reiknað með endurkjöri Bush allan tímann og því hafi nið- urstaðan ekki komið sér á óvart þótt svo hafi virst skömmu fyrir kosningar að Kerry væri að sækja í sig veðrið en tekur jafnframt fram að það sé engu að síður ánægjulegt að svo virðist sem úr- slitin séu þrátt fyrir allt töluvert skýrari en síðast. Það skipti miklu máli fyrir lýðræðið og fyrir svona stórt ríki að það séu ekki áhöld „Allt getur gerst í vímu svona sigurs“ Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar um hvar meirihlutinn liggur og að ekki skuli hafa komið upp sú skelfilega staða eins og síðast þeg- ar Al Gore fékk meirihluta at- kvæða en minnihluta kjörmanna. Um utanríkismálin segir Össur að Bush og hin harðsnúna klíka í kringum hann hafi komist til valda með óskaplega fastmótaða stefnu. „Ég óttast auðvitað að þetta endurnýjaða umboð Bush verði þeim tilefni til að dusta ryk- ið af t.d. þeim skelfilega þætti í ut- anríkisstefnunni sem þeir kalla forvarnarstríð. Ég minnist þess að þeir geipuðu hátt um nauðsyn þess að afvopna ríki sem hugs- anlega gætu ógnað þeim að þeirra mati. Þeir töluðu um öxul hins illa og þar á meðal var ríki sem við höfum nýlega bundist stjórnmála- sambandi við, þ.e.a.s. Íran. Ég auðvitað þori ekki að hugsa þá hugsun til enda.“ Um samskipti Ís- lands og Bandaríkjanna í tíð Bush segir Össur að sem Íslending hafi hann auðvitað á stundum sett hljóðan yfir þeim vinnubrögðum sem hann fylgdist með sem stjórn- málamaður úr návígi af hálfu Bandaríkjanna við Íslendinga þeg- ar viðkvæm utanríkismál eins og samskipti þjóðanna á sviði örygg- ismála eru reifuð. „Mér finnst sem fimmtíu ára náin vinátta hafi að litlu orðið á stundum þegar, mér liggur við að segja ítrekað, eru teknar einhliða ákvarðanir af hálfu Bandaríkjamanna sem varða öryggi þar sem við höfum í reynd treyst á tiltekna samninga við þá. Sú mynd sem ég hef gert mér af einstaklingnum John Kerry og þeim hópi manna og kvenna sem hann hefur starfað með er þess eðlis að ég hefði ætlað að sam- skiptin yrðu önnur með hann í brúnni,“ segir Össur. RANNVEIG Guðmundsdóttir al- þingismaður var á þingi Norður- landaráðs í gær kjörin forseti ráðsins og Jónína Bjartmars alþingismaður var kjörin varaforseti en Ísland fer með formennsku í Norðurlandaráði næsta árið. Rannveig sagði við Morg- unblaðið að forsetastarfið væri víð- tækt verkefni, afar áhugavert og hún væri mjög stolt af því að taka við því fyrir hönd Íslands. „Það skiptir miklu máli að hafa verið einhuga útnefnd af hálfu Ís- landsdeildar Norðurlandaráðs til að taka við þessu embætti. Ekki fyrst og fremst mín vegna heldur vegna þess að jafnaðarmaður frá Íslandi hefur aldrei áður gegnt embætti forseta Norðurlandaráðs. Ég tek þess vegna við þessu embætti með nokkurri lotn- ingu,“ sagði Rannveig. „Og það að taka við embætti forseta Norður- landaráðs á þessum tíma þýðir ekki að maður fari bara á fundi á Norð- urlöndunum til að tala um Norður- löndin og okkur sjálf. Starfið innan Norðurlandaráðs er orðið svo miklu meira og stærra. Norðurlönd og Norðurlandaráð njóta mikillar virð- ingar alls staðar í kringum okkur og því er mjög mikilvægt að Norðurlönd miðli af reynslu sinni og séu þátttak- endur þar sem þess er óskað.“ Sjónir Norðurlandaráðs beinast nú mjög í suður Rannveig hefur starfað í Norður- landaráði með stuttum hléum frá árinu 1991 og segist hafa upplifað miklar breytingar á störfum ráðsins, þekki þróun þess og geri sér grein fyrir því að nú sé ákveðin þróun í gangi. Norðurlandaráð hafi fengist við gífurlega stór og mikil verkefni á því sviði að móta sameiginlega lög- gjöf og tryggja sameiginleg réttindi fyrir alla íbúa Norðurlandanna svo þeir geti farið um Norðurlönd í störf, nám og búsetu hvar sem er og samt upplifað að þeir séu heima. Þetta verði áfram grunnþættir í starfi Norðurlandaráðs. Síðustu ár hafi staðið yfir úttekt á því hvaða hindr- anir verði í vegi fólks við flutning og viðskipti milli landanna og vinna standi yfir við að afnema þessar hindranir. „En samhliða því að við höfum ver- ið að skapa þessi skilyrði fyrir íbúa norðursins hefur Norðurlandaráð verið frumkvöðull að samstarfi yfir landamærin á mjög mörgum merki- legum sviðum. Norðurlandaráð hafði m.a. frumkvæði að því að sett yrði á laggirnar sérstakt samstarf land- anna við norðurskautið og fékk með sér Rússland, Kanada og Bandaríkin. Síðan þróaðist það í sjálfstætt sam- starf landanna sem allir gera sér grein fyrir að er mjög mikilvægt. Norðurlandaráð tók upp sérstakt samstarf við Eystrasaltslöndin þegar þau urðu frjáls og breytti m.a. innra skipulagi sínu til að það gæti gengið skipulega fyrir sig. Á sama tíma voru fleiri Norður- landaþjóðir að sækja um aðild að Evrópusambandinu þannig að það má segja að Norðurlandaráð hafi skipt verkefnum sínum í þrennt: Grannsvæðastarf sem sneri fyrst og fremst að þessum þremur Eystra- saltslöndum; Evr- ópumál sem lutu að því að Norður- löndin fylgdust með því hvað væri að gerast í Evr- ópusambandinu og þriðja verkefn- ið laut að innra starfi Norður- landanna. Norðurlanda- ráð hefur haft mikið frumkvæði að því að vinna að mikilvægum málum yfir landamæri. Þegar ég tala nú um þróun í starfi ráðsins, þá er ég m.a. að vísa til þess, að það er í gangi um- ræða milli Norðurlandaráðs og for- seta þjóðþinga Norðurlandanna um það hvernig hægt er að gera þetta Norðurlandasamstarf enn skilvirk- ara og hvernig hægt er að tengja það betur störfum þjóðþinganna. Á sama tíma er mjög áleitin um- ræða uppi, bæði hjá okkur í ráðinu sjálfu og í þjóðþingunum, um það hvernig hlutverk Norðurlandanna á að vera í Evrópu, sem hefur ger- breyst á einum áratug. Nú höfum við eignast nýja nágranna í austri og ef til vill verða þeir orðnir aðilar að Evr- ópusambandinu áður en við vitum af. Það þarf að rækta sambandið við þessa nágranna, það þarf að byggja brýr yfir landamæri og nú er Norð- urlandaráð að byggja brú yfir til norðvesturhluta Rússlands. Menn horfa nú mjög í suður og austur vegna þessarar stækkunar Evrópu- sambandsins,“ sagði Rannveig. Umræða um hlutverk Norðurlandaráðs í Evrópu mjög áleitin Hún segir að umræðan um hlut- verk Norðurlandaráðs í Evrópu sé jafnvel enn áleitnari nú en þegar þrjú Norðurlandanna gengu í Evrópu- sambandið. „Þegar þessi umræða er uppi um hlutverk ráðsins í Evrópu, um að skerpa línurnar í Norður- landaráði og auka samvinnu yfir landamæri í austur og nú sérstaklega suður, þá finnst mér ekki verra, að forsetaembætti Norðurlandaráðs sé í höndum Íslendinga, til að tryggja að það gerist ekkert sem setji okkur á Vestur-Norðurlöndum og upp við norðurskaut til hliðar,“ sagði Rann- veig. „Norðurlöndin ætla ekkert að sitja hjá þegar Evrópa er að mótast, þau ætla sér hlutverk þar. Við Íslend- ingar erum alveg sammála því að Norðurlandaráð eigi að hafa hlutverk í Evrópu en mér finnst skipta máli, að við gætum þess að samhliða því að menn horfi til austurs og suðurs muni menn eftir því hversu óhemjumikil- vægt norðurskautssvæðið er, ekki síst á umhverfis- og loftslagssviðinu.“ Hún segir að umræðan um hlut- verk Norðurlandanna í Evrópu hafi snúist um hvort samstarf Norður- landanna við Eystrasaltslöndin eigi að renna saman í einhvers konar Eystrasaltsríkjasamstarf, hvort búa eigi til eitthvert stórt norður-evr- ópskt þingmannasamstarf eða hvort Norðurlandaráð eigi að vinna út frá sínu kjarnasamstarfi og nýta reynsl- una af því til að verða mótandi í ólíku og árangursríku svæðasamstarfi í Evrópu „Þessi síðasta leið finnst mér afar áhugaverð og ég mun vinna að slíkri niðurstöðu,“ sagði Rannveig. Barátta gegn mansali og skipulagðri glæpastarfsemi mjög mikilvæg Rannveig segir, að mikið sé rætt um umhverfismál innan Norður- landaráðs, ekki síst gagnvart Rúss- landi. Samstarf eigi sér stað við Rússland gegnum heimskautasam- starfið, gegnum Barentshafssam- starfið og gegnum Eystrasaltssam- starfið, og nú sé verið að tala um að koma á þingmannasamstarfi við norðvesturhluta Rússlands sem yrði á öðrum nótum en hefðbundið landa- samstarf. Þá segir hún að mannréttindamál, einkum í nágrannalöndunum í austri, og vinna við að jafna kjör í fátækum nágrannalöndum Evrópusambands- ins sé þvílíkt verkefni að Norður- landaráð muni ekki sitja hjá auk þess sem ráðið láti varnir gegn mansali og skipulagðri glæpastarfsemi mjög til sín taka. „Þetta er verkefni sem verð- ur mjög ofarlega á baugi á komandi ári og ég vil, að því leyti sem mér er unnt, vinna að því að við getum haml- að gegn sölu á ungum konum og börnum,“ sagði Rannveig Guð- mundsdóttir. Rannveig Guðmundsdóttir Mjög mikilvægt að Norðurlönd miðli af reynslu sinni Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaður Samfylkingarinnar kjörin forseti Norðurlandaráðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.