Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
TOM Daschle, leiðtogi demókrata í öldunga-
deild Bandaríkjaþings, náði ekki endurkjöri
í kosningunum á þriðjudag og repúblikönum
tókst að auka meirihluta sinn í deildinni með
mikilvægum sigrum í Suðurríkjunum. Þeir
héldu einnig meirihluta sínum í fulltrúa-
deildinni og útlit var fyrir að þeir bættu þar
við sig um sex þingsætum.
Repúblikanar voru öruggir um 54 sæti af
100 í öldungadeildinni og frambjóðandi
þeirra var sigurstranglegur í Alaska þar
sem úrslitin voru enn óráðin. Fyrir kosning-
arnar voru repúblikanar með 51 sæti í deild-
inni og demókratar 48. Einn þingmannanna
er óflokksbundinn en hefur oft stutt demó-
krata.
Demókratar vonuðu í gær að einn þing-
manna repúblikana, Lincoln Chafee frá
Rhode Island, gengi til liðs við þá í öld-
ungadeildinni. Chafee kvaðst ætla að íhuga
að ganga í demókrataflokkinn ef George W.
Bush forseti yrði endurkjörinn. Hann hefur
oft gagnrýnt stjórn Bush og kvaðst hafa
skrifað nafn föður hans, George H.W. Bush,
á kjörseðilinn í mótmælaskyni.
Fyrsti Kúbumaðurinn
í öldungadeildinni
Repúblikaninn Mel Martinez sigraði í tví-
sýnum kosningum í Flórída og verður fyrsti
kúbversk-bandaríski þingmaðurinn í öld-
ungadeildinni.
Repúblikanar sigruðu einnig í ríkjunum
Georgíu, Norður-Karólínu, Suður-Karólínu
og Louisiana eftir harða baráttu. Er þetta í
fyrsta skipti sem repúblikani fær sæti í öld-
ungadeildinni fyrir Louisiana frá stjórnar-
farslegri endurskipulagningu Suðurríkjanna
eftir að borgarastyrjöldinni lauk 1865.
Er þetta í fyrsta skipti í rúm 50 ár sem
flokksleiðtogi í öldungadeildinni nær ekki
endurkjöri.
Útgöngukönnun Associated Press bendir
til þess að Thune hafi notið góðs af því að
margir kjósendanna í Suður-Dakóta töldu
siðferðisleg gildi og baráttuna gegn hryðju-
verkastarfsemi skipta mestu máli í kosning-
unum.
Kosið var um 34 sæti í öldungadeildinni að
þessu sinni. Demókratar áttu á brattann að
sækja þar sem baráttan var í flestum til-
vikum hörðust í ríkjum þar sem fylgi George
W. Bush Bandaríkjaforseta er mikið.
Í meirihluta í tólf ár í röð
Útlit var fyrir að repúblikanar bættu við
sig um sex þingsætum í fulltrúadeildinni og
fengju að minnsta kosti 233 sæti af 435. Þeir
voru öruggir um 229 sæti í gær og frambjóð-
endur þeirra höfðu forskot í fjórum öðrum
kjördæmum. Demókratar fengu minnst 200
sæti og frambjóðandi þeirra var með forskot
í einu kjördæmanna.
Fyrir kosningarnar voru repúblikanar
með 227 þingmenn í fulltrúadeildinni og
demókratar 205. Tvö þingsæti voru auð og
einn þingmannanna var óflokksbundinn en
studdi demókrata.
Er þetta í fyrsta skipti í 70 ár sem repú-
blikanar eru í meirihluta í fulltrúadeildinni í
tólf ár í röð.
Nánast allir sitjandi þingmenn fulltrúa-
deildarinnar náðu endurkjöri. Búist er við að
nokkurra daga bið verði á því að úrslitin í
kosningunum til fulltrúadeildarinnar liggi
fyrir. Líklegt var að kjósa þyrfti aftur í
tveimur kjördæmum í Louisiana og úrslit
voru enn óráðin í nokkrum sambandsríkjum.
Repúblikanar lögðu mikla áherslu á að
fella Tom Daschle, sem var fyrst kjörinn í
öldungadeildina fyrir Suður-Dakóta árið
1986 og sat áður í átta ár í fulltrúadeildinni.
Hann var síðast endurkjörinn 1998 og fékk
þá 62% atkvæðanna. Kjörfylgi hans var 49%
á þriðjudag og frambjóðandi repúblikana,
John Thune, fékk 51%. Munurinn var um
4.500 atkvæði.
Repúblikanar unnu óvænta sigra í þingkosningunum í Bandaríkjunum
Felldu Tom Daschle og
juku þingmeirihlutann
Washington. AP, AFP.
AP
Tom Daschle ber sig vel og kveður stuðnings-
menn sína í Sioux Falls í Suður-Dakóta í gær.
Hann féll naumlega fyrir John Thune.
DEMÓKRATINN Barack Obama sigraði
með yfirburðum í kosningum í Illinois til
öldungadeildar Bandaríkjaþings og hann
verður eini blökkumaðurinn í deildinni á
næsta kjörtímabili.
Obama er 43 ára og sonur blökkumanns
frá Kenýa og hvítrar konu frá Kansas. Hann
sóttist eftir þingsæti, sem repúblikanar
höfðu haft, og sigraði frambjóðanda þeirra,
Alan Keys, íhaldssaman blökkumann.
Sigur Obama var aðalfréttin í fjölmiðl-
unum í Kenýa og mikill fögnuður var í þorpi
forfeðra hans, Nyang’oma, í vestanverðu
landinu.
„Ég efaðist ekki um að hann myndi sigra,
ég treysti Allah,“ sagði 83 ára gömul amma
frambjóðandans, Sarah Onyango Obama.
Héraðshöfðingjar komu saman í þorpinu og
einn þeirra lýsti Obama sem „stærstu von
Afríku og Kenýa“ er myndi treysta sam-
band landsins við Bandaríkin.
Mikil fátækt er í Nyang’oma og flestir
þorpsbúanna búa í moldarkofum með
stráþökum. Ástandið þar hefur versnað
síðustu ár vegna alnæmisfaraldurs og at-
vinnuleysis.
AP
Nýkjörinn öldungadeildarþingmaður í Ill-
inois, Barack Obama, með eiginkonu sinni,
Michelle, í Chicago eftir sigurinn.
Sigri Obama
fagnað í Kenýa
Nyang’oma. AFP.
MEIRA en tugur manna slas-
aðist og slökkviliðsmaður lét
lífið þegar flugeldaverksmiðja
sprakk í bænum Kolding í Dan-
mörku í gær, en í bænum býr
fjöldi Íslendinga. Þrúður
Helgadóttir, sem býr í Frede-
ricia á sunnanverðu Jótlandi,
segist hafa fundið höggbylgj-
una frá sprengingunni. Þorleif-
ur Gunnar Gíslason, nemi sem
býr í um þriggja kílómetra
fjarlægð frá slysstað, segist
ekki vita til þess að Íslendingar
hafi slasast í tengslum við elds-
voðann. Hann segir um 80 Ís-
lendinga vera með honum í
skólanum þar sem hann
stundar nám auk þess sem
hann viti af fleiri Íslendingum í
bænum.
Þorleifur segir tugi rúðna
hafa brotnað í miðbænum þar
sem hann búi. Að hans sögn
voru eldsupptök þau að tveir
20 tonna gámar, sem voru full-
ir af flugeldum, sprungu í loft
upp þegar verið var að flytja
þá. Lögreglan lýsti yfir neyð-
arástandi í bænum, lokaði
svæðið af og rýmdi öll hús inn-
an 1,5 kílómetra radíuss. Hún
bað fólk í nágrenninu um að
halda sig innandyra, með dyr
og glugga lokaða og kveikt á
útvarpinu. Slökkviliðsmenn
börðust enn við eldinn í gær-
kvöldi sem var mikill.
Flugeldaverksmiðja
springur í Kolding
AP
Fjöldi Íslend-
inga býr í bæn-
um en engan
sakaði
KOSIÐ var til embættis ríkisstjóra í
11 af 50 sambandsríkjum í Banda-
ríkjunum á þriðjudag. Allt benti til
þess að ekki yrðu breytingar á hlut-
föllum milli flokkanna í þessum efn-
um. Repúblikanar verða eftir sem
áður með 28 ríkisstjóra og demó-
kratar 22, að sögn CNN-sjónvarps-
stöðvarinnar.
Þrír ríkisstjórar voru endurkjörn-
ir, repúblikaninn John Hoeven í
Norður-Dakóta, repúblikaninn Jim
Douglas í Vermont og demókratinn
Mike Easley í Norður-Karolínu.
Repúblikaninn Mitch Daniels,
fyrrverandi yfirmaður fjárlagagerð-
ar í Hvíta húsinu, velti úr sessi
demókratanum Joe Kernan í Ind-
iana en George W. Bush forseti beitti
sér mjög í þágu Daniels. Á hinn bóg-
inn sigraði demókratinn John Lynch
repúblikanann Craig Benson í New
Hampshire en Benson hafði setið
eitt kjsörtímabil, að sögn Inter-
national Herald Tribune.
Mikil spenna var lengi vegna úr-
slitanna í Missouri en þar sigraði
repúblikaninn Matt Blunt keppinaut
sinn, Claire McCaskill, með litlum
mun.
AP
Mitch Daniels (t.v.), nýr ríkisstjóri Indiana, og eiginkona hans, Cheri, með
aðdáendum í Indianapolis. Daniels var áður háttsettur starfsmaður Bush.
Þrír ríkisstjórar
náðu endurkjöri