Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 17

Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 17
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898- 5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg- arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Verndun Sómastaða | Að fengnu leyfi Þjóðminjasafns hefur nú verið unnið að endurbótum á Sómastöðum í Reyðarfirði, til að vernda húsið meðan á byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls stendur. Búið er að laga vegghleðslu á norðausturhorni hússins og skipta út jarðvegi við húsið til að minnka áhrif frost- og þíðuhreyfinga yfirborðs. Á næstunni verður tenging gamla vegar við þann nýja færð fjær húsinu, til að losna við titring frá umferð um gamla veginn. Sprengingum á álverslóð verður hagað þannig að áhrif þeirra á Sómastaði verði lágmörkuð og jafnframt verður stöðugt fylgst með titringi við húsið á byggingar- tímanum. Þetta kemur fram á vef Alcoa. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Prjóna af kappi | Nokkrar eldri konur á Djúpavogi hafa undanfarið munda prjón- ana í þágu góðs málefnis, en frá því er sagt á vef sveitarfélagsins. Þær hafa prjónað barnaföt úr endum og afgöngum sem eru svo send til barna í Rúmeníu með aðstoð SOS barnaþorpanna. Efnið í fötin kemur frá Gerðubergi sem fær það gefins frá hin- um ýmsu aðilum.    Styrkir til þjálfunar | Alls stunda 1.338 börn tólf ára og yngri íþróttir í Reykja- nesbæ. Bæjarsjóður greiðir deildum þeirra styrki vegna þjálf- aralauna, alls rúmar 7 milljónir kr., sam- kvæmt samningi Reykjanesbæjar og íþróttafélaganna. Flestir iðkendur eru hjá Keflavík, íþrótta- og ung- mennafélagi, 939 talsins. Eru það um 70% barnanna. Hjá Ungmennafélagi Njarðvíkur eru 240 iðkendur, 83 hjá hestamannafélaginu Mána, 50 hjá Golfklúbbi Suðurnesja og 26 hjá Nesi, íþróttafélagi fatlaðra. Flestir æfa knattspyrnu og á það bæði við um Keflavík og Njarðvík. Körfuboltinn er í öðru sæti, ekki langt á eftir. Aðrar vin- sælar greinar eru fimleikar, sund og hesta- íþróttir, að því er fram kemur á vef Reykja- nesbæjar. Sveitarfélagið Horna-fjörður stendur fyr-ir fjölskyldudegi næstkomandi laugardag í samvinnu við Sindra og æskulýðs- og tóm- stundaráð. Margt verður til gamans gert, að því er fram kemur á vef sveitar- félagsins. Hægt er að fara í sundlaugina, Sporthöll- ina, Nýheima, prófa lit- bolta og hjólaskauta, fara í íþróttahúsið á Höfn, fé- lagsmiðstöðina, bókasafn- ið, jöklasýningu, Pakk- húsið og Sindrabíó. Tillaga Elínar Magn- úsdóttur bæjarfulltrúa um fjölskyldudag var sam- þykkt á fundi sveit- arstjórnar. Vísað er til þeirrar óvenjulegu stöðu sem nú er uppi hjá fjöl- skyldufólki og ábyrgðar sveitarstjórnarmanna gagnvart íbúum. Und- irbúningur er nú í fullum gangi og dagskráin er á Samfélagsvef Horna- fjarðar, hornafjordur.is. Fjölskyldudagur Svanhvít Árnadóttirhafði heppninameð sér og vann sjálfvirka jura espresso- vél í happdrætti sem fram fór meðal viðskiptavina Nóatúns sem keyptu Lavazza-kaffi á Ítölskum dögum í versluninni. Kristján Friðjónsson, verslunarstjóri Nóatúns í Austurveri, og Jón Ágúst Benediktsson, sölumaður hjá Karli K. Karlssyni, af- hentu Svanhvíti espresso- vélina. Vann espresso-vél Jón Ingvar Jónssonleggur út af frétt-um liðinna daga: Það í fréttum helst er hér að heyrist lítt af Óla, við Grímsfjall hafið eldgos er og æskan fer í skóla. Þá veltir hann fyrir sér talningunni í bandarísku forsetakosningunum: Vestra er velja menn sjóla er vart hægt á úrslit að stóla, en sú er ein lausn að sýna þeim rausn og gefa þeim eftir hann Óla. Rúnar Kristjánsson las vísur um Ingibjörgu Sól- rúnu á þessum stað sl. þriðjudag og orti: Þekkjast víða meinin mörg, margir kambinn ýfa. Einkum þeir sem Ingibjörg ætla sér að klífa! Gráðugir með genin körg, gleymnir mjög á artir, skjótast inn í Ingibjörg álfakratar svartir! Rúnar orti eftir að hafa horft á sjónvarpsfréttir: Sér á parti er sumum hjá samráðsmálalistin. Ýmsir hljóta að elska þá Einar, Geir og Kristin! Nóg í fréttum pebl@mbl.is Elliðavatn | Enn stendur yfir barátta eyðingarafla haustsins og vetrarins gegn gróðri sum- arsins. Birtist hún í ýmsum myndum sem hver um sig er einstakt listaverk náttúrunnar. Jurtin sem lifað hefur gott sum- ar á bakka Elliðavatns nær að halda velli enn sem komið er þótt ísinn hafi umlukið hana og vitað sé hvernig baráttan endar að lokum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Lífsbarátta á bakka Elliðavatns Náttúran Á AÐALFUNDI Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var vakin athygli á því í álykt- un að stöðugt fleiri nýti sér bætt sam- göngukerfi og sæki atvinnu um langan veg. Núverandi skattaumhverfi taki hins vegar lítt tillit til þessarar þróunar. Var fjármálaráðherra hvattur til þess að láta skoða hvaða breytingar hægt væri að gera til að skattaumhverfið stæði ekki gegn þessari jákvæðu búsetuþróun og í því sambandi sérstaklega nefndir þættir eins og ferðakostnaður til og frá vinnu og skipt- ing útsvars milli sveitarfélaga. Fjöldi ályktana var samþykktur á fundi SSV sem haldinn var í Stykkishólmi. Fund- urinn taldi til dæmis ekki tímabært að breyta fjölda fulltrúa á landsþingi Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, eins og gert er ráð fyrir í framkominni tillögu stjórnar sambandsins. „Það að fjölga fulltrúum fjöl- mennustu sveitarfélaganna endurspeglar ekki þá afstöðu sem ríkjandi hefur verið meðal sveitarstjórnarmanna að efla þurfi landið í heild sinni, ekki bara fjölmennustu svæðin,“ segir í ályktuninni. Fundurinn telur ekki rétt að gera tillögu um fjölgun fulltrúa fyrr en niðurstaða liggur fyrir um sveitarfélagamörk, sem ekki verði fyrr en að tveimur árum liðnum. Aðalfundurinn fagnaði opnun Fjöl- brautaskóla Snæfellinga og taldi að hann hefði án efa jákvæð áhrif á búsetuskilyrði á Sæfellsnesi. Jafnframt var hvatt til sam- starfs framhaldsskóla á Vesturlandi. Skattareglur hamli ekki búsetuþróun TVEIR nýir fulltrúar voru kosnir í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi á að- alfundi sem fram fór í Stykkishólmi. Þor- steinn Jónsson úr Dalabyggð var kosinn í stað Guðrúnar Jónu Gunnarsdóttur og Ólína B. Kristinsdóttur úr Snæfellsbæ tók sæti Ásbjarnar Óttarssonar. Aðrir í stjórn eru Jón Gunnlaugsson og Kristján Sveinsson af Akranesi, Helga Halldórsdóttir úr Borgarbyggð, Svein- björn Eyjólfsson úr Borgarfjarðarsveit og Sigríður Finsen úr Grundarfirði. Helga Halldórsdóttir verður áfram for- maður stjórnar SSV. Tveir nýir fulltrúar í stjórn SSV ♦♦♦ Síðumúla 33 - Sími 588 9490 - www.lyngvik.is - lyngvik@lyngvik.is F A S T E I G N A S A L A Grafarvogur Hef verið beðinn um að finna fyrir ákveðinn kaupanda lítið einbýlis-, par- eða raðhús í Grafarvogi á verðbilinu 23-26 millj. Bein kaup eða skipti á 230 fm parhúsi í Grafarvogi. Allar nánari upplýsingar veitir Daníel í símum 588 9490/897 2593Daníel G. Björnsson, daniel@lyngvik.is             Afmælishóf Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í Listasafni Reykjavíkur kl. 17:00-19:00 Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga býður hjúkrunarfræðingum til 85 ára afmælishófs í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, föstudaginn 5. nóvember kl. 17:00-19:00. Allir hjúkrunarfræðingar velkomnir   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.