Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 27

Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 27 ilvægur liður í því er að skilja verkefni samkeppni- eftirlits frá öðrum verkefnum sem nú eru á könnu Samkeppnisstofnunar. Nýtt frumvarp til sam- keppnislaga gerir ráð fyrir þessu og því ber að fagna. Það gerir einnig ráð fyrir skilvirkara stjórnskipulagi og er það einnig til bóta. Tekið er undir að rétt sé að stofna til sérstakrar neytenda- stofu til þess að gæta hagsmuna neytenda. Traust málsmeðferð er nauðsynleg: Í þessu sam- bandi er þó rétt að velta upp tveimur mjög mik- ilvægum atriðum er lúta að stjórnsýslu sam- keppnismála í ljósi þess að heimildir samkeppnisyfirvalda eru mjög víðtækar og geta verið mjög afdrifaríkar. Í fyrsta lagi er rétt að velta því fyrir sér hvort rétt sé að færa skipan mála nær því sem tíðkast í Svíþjóð og Finnlandi og greina betur á milli rann- sóknarvaldsins og íhlutunar-/dóms-/refsivalds. Í þessum löndum gegna dómstólar veigameira hlut- verki og í mörgum tilvikum þarf úrskurð dómstóla fyrir aðgerðum. Við verulega íþyngjandi ákvarð- anir á borð við bann við samruna eða álagningu sekta vegna brota á bannreglum samkeppnislaga verður að sækja mál fyrir dómstólum (Marknads- domstolen). Með þessu móti er betur tryggt en hér hefur verið að andmælaréttur sé virtur. Ákveðna tilraun í þessa átt er að finna í frum- varpi til nýrra samkeppnislaga en betur má ef duga skal. Þeim möguleika má einnig velta fyrir sér að Samkeppniseftirlitinu verði ekki heimilt að ákvarða sektir vegna brota á bannreglum né held- ur að amast við samruna án þess að sækja málið fyrst fyrir áfrýjunarnefnd þar sem þeim, sem ákvörðun beinist gegn, gefst kostur á að taka til varna. Í öðru lagi er rétt að skoða mjög vel alla þætti er lúta að málsmeðferð, s.s. andmælarétti, að hvaða þáttum rannsókn beinist, fyrningarreglum og fleira í þeim dúr. Ekki verður séð að lögin sjálf taki á þessum þáttum með fullnægjandi hætti. T.d. er ekki beint kveðið á um fyrningarfrest brota. Lagt er til að sett verði ákvæði um að fyrningarfrestur brota á samkeppnislögum verði 5 ár til samræmis við það sem segir í hegningarlögum um brot af því tagi. Í núgildandi lögum og einnig frumvarpi til nýrra samkeppnislaga er gert ráð fyrir að Sam- keppnisstofnun/samkeppniseftirlit setji sér sjálft reglur um málsmeðferð, sbr. Reglur um málsmeð- ferð samkeppnisyfirvalda nr. 922/2001 og gefnar eru út í B-deild stjórnartíðinda. Þetta er óeðlilegt fyrirkomulag og ekki til þess fallið að skapa traust á vinnubrögðum og að þess sé nægilega gætt í reglunum að réttur þeirra, sem sæta rannsókn, sé ekki fyrir borð borinn. Lagt er til að viðskipta- ráðuneytið semji og gefi út þessar reglur. Samkeppnisákvæði samkeppnislaga Bann við samruna falli brott: Vinnuhópurinn leggur til að fellt verði á brott ákvæði úr lögum sem heimila bann við samruna og tilheyrandi til- kynningarskyldu. Þetta er og hefur verið afdrátt- arlaus skoðun Samtaka iðnaðarins. Þetta á enn frekar við í ljósi þeirra breytinga sem lagðar eru til á samkeppnislögum og hlutverki nýs Sam- keppniseftirlits sem á að verða enn betur í stakk búið til þess að hafa eftirlit með samkeppnislaga- brotum, ekki síst misnotkun markaðsráðandi stöðu. Á þann þátt hafa Samtök iðnaðarins ávallt bent sem einn hinn mikilvægasta í störfum sam- keppnisyfirvalda. Þröskuldar fyrir afskiptum hækki verulega: Verði ekki fallist á að fella ákvæði um bann við samruna fyrirtækja úr gildi á að breyta ákvæðinu verulega og ekki á að vera heimilt að banna eða hindra samruna nema sýnt sé fram á að hann hafi veruleg óæskileg áhrif á samkeppni og það valdi þjóðhagslegum og efnahagslegum skaða. Þá þarf að hækka þröskulda sem eru fyrir afskiptum sam- keppnisyfirvalda til samræmis við það sem tíðkast t.d. í Danmörku, enda starfa íslensk fyrirtæki á sama eða sambærilegum mörkuðum og hin dönsku. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. samkeppnislega ber fyrirtækjum að tilkynna samruna til stofnunar- innar sé heildarvelta yfir einum milljarði IKR og ársvelta a.m.k. tveggja þeirra yfir 50 milljónum IKR. Þessar viðmiðunarfjárhæðir eru alltof lágar sem sést vel á hlutfallslegum samanburði við ná- grannaríki á Norðurlöndum. Við blasa þær afleið- ingar að íslensk fyrirtæki sem fá ekki að stækka hér en mega stækka í nágrannalöndum, einfald- lega hverfi úr landi. Þess vegna leggjum við til að teknar verði upp sömu viðmiðunarreglur og fjár- hæðir í Danmörku sem eru 300 milljónir DDK og 3,8 milljarðar DDK. Umreiknað til íslenskra króna eru það um 3,5 milljarðar og 44,8 milljarðar. Lagst gegn heimildum til að breyta skipulagi/ uppbyggingu fyrirtækja: Sterklega er varað við öllum hugmyndum um að fá samkeppnisyfirvöld- um heimildir til frekari íhlutunar í uppbyggingu atvinnulífsins en nú er. Samkeppnisyfirvöld hafa hins vegar og eiga að hafa heimildir og úrræði til þess að koma í veg fyrir að ákvæði laganna séu brotin og sérstaklega eiga þau að hafa eftirlit með hegðan markaðsráðandi fyrirtækja. Það hlutverk íslenskra samkeppnisyfirvalda er einmitt sérlega mikilvægt hérlendis þar sem aðstæður eru þannig að líklegt er að á mörgum sviðum muni verða fá- keppni líkt og hingað til. Fákeppni er þó alls ekki ávísun á skort á samkeppni eins og bent hefur ver- ið á nýlega í grein Snjólfs Ólafssonar, prófessors við viðskiptaskor Háskóla Íslands. Styrkja verður ákvæði um aðskilnað samkeppn- isrekstrar opinberra aðila: Samkeppnislög eiga að ná yfir samkeppnisrekstur opinberra aðila, sbr. 2. gr. þeirra. Á þessu er verulegur misbrestur eins og fjölmörg dæmi sanna. Í 14. gr. samkeppnislaga er kveðið á um fjárhagslegan aðskilnað rekstrar opinbers fyrirtækis sem nýtur einkaleyfis eða verndar og þess hluta rekstrar sem er í frjálsri samkeppni. Hér verður að ganga enn lengra og skilja innviði sérleyfisrekstrar að fullu frá sam- keppnisrekstri með því að hann fari fram á að- skildum starfsstöðvum og í öðru félagi (formi) er lýtur sérstakri sjálfstæðri stjórn og hafi sjálfstæð- an fjárhag. Í þessu samhengi er einnig rétt að benda á ákvæði innkaupastefnu ríkisins um fráhvarf hins opinbera af markaði ef einkaaðili getur sýnt fram á og boðið hagkvæmari lausn. Því miður hefur komið í ljós að mjög skortir á vilja stjórnvalda sjálfra til þess að framfylgja henni. Breytingar á hlutafélagalöggjöf Ekki má íþyngja smærri fyrirtækjum: Gera verður skýran greinarmun á almenningshlutafélögum sem skráð eru í kauphöll eða gefa út skuldabréf og minni einkahlutafélögum. Starfsemi þeirra er í mörgum tilvikum eðlisólík og oft og tíðum með öllu óþarft að leggja nýjar byrðar fundahalda og skýrslugerðar á eigendur smáfyrirtækja sem rek- in eru í formi einkahlutafélags. Það er óþarft að íþyngja mörg þúsund einkahlutafélögum með reglum sem ætlað er að taka til stórfyrirtækja með tugum, hundruðum eða jafnvel þúsundum hluthafa. Það gengur einnig gegn alþjóðlegri við- leitni til þess að auðvelda stofnun og rekstur smærri fyrirtækja. Við leggjum því til að þegar í stað verði hafin vinna sem hefur að markmiði ein- földun laga um einkahlutafélög og að því verki verði lokið hratt og vel. Rétt er að benda sérstaklega á nýjar reglur um stjórnarhætti fyrirtækja sem Kauphöllin, Samtök atvinnulífsins og Verslunarráð Íslands hafa gefið út. Heppilegast er að slíkar reglur komi að eins miklu leyti í stað laga og unnt er. Ekki lengja boðunarfresti: Lagst er gegn breyt- ingu á 63. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög, sbr. 1. gr. frumvarpsins enda fæli breytingin í sér þreng- ingu á rétti hins almenna hluthafa. Það er öf- ugþróun að lengja frest á boðun hluthafafunda um leið og í orði kveðnu er horft til þess að rafræn samskipti séu aukin. Störf stjórnarformanns: Við leggjumst eindregið gegn því að ganga jafn langt og tillögur nefnd- arinnar gera ráð fyrir. Það er óþarft inngrip í starfsemi hlutafélaga og skerðing á félagafrelsi. Það er á ábyrgð stjórnar almenningshluta- félaga að marka stefnu en ekki einungis að hafa eftirlit með störfum framkvæmdastjóra. Lagt er til að í lögum verði kveðið á um að samþykkt um starfskjör og starfssvið stjórnarformanns verði lagt fyrir hluthafafund. Það er sjálfsagt að frá þessu sé gengið með formlegri hætti en hingað til hefur verið tíðkað. Ekki ákvæði um fundi án framkvæmdastjóra: Óþarft er að kveða á um það í lögum að stjórnir megi funda án framkvæmdastjóra. Það getur stjórnin ákveðið sjálf telji hún þess þörf. Skýrar reglur þarf um hverjir séu stofnanafjár- festar: Varðandi upplýsingaskyldu stofnanafjár- festa þarf að setja skýrari reglur og skilgreina betur hvað við er átt með stofnanafjárfesti. Það verður að vera alveg skýrt til hverra reglan um upplýsingaskyldu tekur til. uhóps Samtaka iðnaðarins um íslenskt viðskiptaumhverfi ar til vaxtar eru forsenda útrásar Hreinn Jakobsson Þorgeir BaldurssonJón Diðrik Jónsson Helgi Magnússon Víglundur Þorsteinsson ð rangt. Þá var sagt að ekk- naði konum að vera dómarar ið að skipa konur í dóm- tíma var íslam túlkað svo að ki verið dómarar og síðar gætu verið dómarar! Við unar á íslam sem samrým- kar.“ ki einungis barist fyrir rétt- heldur einnig barna. smenningin hefur áhrif á Hún lítur svo á að börnin tt sinni. En barn er sjálf- lingur. Feðraveldismenn- að síðasta nafn barns sé ætt- s. Sama menning kennir að f feðrum sínum en gefur kna engan gaum. Ég verð að gar ég tala um feðraveld- vísa ég ekki einungis til er að tala um menningu ðurkennir ekki gildi mann- ta er hræðileg menning. una innan heimilisins og óðfélagslega né stjórn- ekið lýðræði. Lýðræðið einstaklingsins. Feðraveldið di manneskjunnar og getur kið lýðræði. Réttindi kvenna tvær hliðar á sama kvarða. di lítil á lýðræðið erfitt upp- veldið er því það sem kemur einna verst.“ ki einungis gagnrýnt heim nningarinnar heldur einnig r eitthvað sem við þurfum ri vegar? g því að konur séu þving- slæður í múslímalöndum. móti því að konur séu þving- slæðurnar niður á Vest- urlöndum. Í íslömskum löndum er slæðu- kvöðin komin frá feðraveldinu. Þrátt fyrir það er ég á móti slæðubanninu í Frakk- landi. Þar í landi er litið svo á að slæðurnar séu trúartákn. Frakkland sé veraldlegt land og þess vegna bannað að bera trúar- tákn. Samt hafa þeir ekki bannað körlum að bera síð skegg, sem eru tákn um bók- stafstrú meðal karla. Það má því spyrja hvers vegna hömlurnar lenda alltaf á kon- unum en ekki körlunum?“ Þú hefur einnig gagnrýnt að ályktanir Sameinuðu þjóðanna virðist hafa misjafnt vægi, eftir því gegn hverjum þær beinast. „Ef samþykktir Sameinuðu þjóðanna gegn Ísrael eru skoðaðar þá sést að þeim er alls ekki fylgt eftir. Öðrum ályktunum er hins vegar strax fylgt eftir. Þegar Írak réðst inn í Kúveit samþykktu Sameinuðu þjóðirnar strax að Írakar yrðu reknir út úr Kúveit. Ef Kúveit hefði ekki átt olíu og bara verið eitthvað land úti í buskanum, hefði þá þessari sömu ályktun verið fylgt eftir? Skoðum aðeins Saddam. Hann var harðstjóri og kúgaði þjóð sína. Það er eng- um vafa undirorpið að hann var svívirðileg- ur glæpamaður. En réðust Bandaríkin á Írak vegna þess að Saddam var harðstjóri eða vegna þess að Írak á olíu? Er Saddam eini harðstjórinn í heiminum? Gleyma Sameinuðu þjóðirnar öllum hinum harð- stjórunum t.d. í Suður-Ameríku, Afríku og víðar? Því miður eru dýrmæt hugtök eins og lýðræði og mannréttindi misnotuð.“ Það hefur vakið athygli undanfarið að þú hefur höfðað mál gegn bandarískum stjórnvöldum. „Ég skrifaði endurminningar mínar. Ritskoðun kom í veg fyrir að ég gæti gefið þær út í heimalandi mínu svo ég ákvað að gefa bókina út í Bandaríkjunum. Þá var mér sagt að vegna þess að ég er írönsk gæti ég ekki gefið út bók þar í landi. Bandaríkin settu viðskiptabann á nokkur lönd og Íran var þeirra á meðal. Þeir létu viðskiptabannið ekki aðeins ná til viðskipta heldur einnig til skipta á upplýsingum og uppfræðslu. Það á ekki að gera. Þetta er bannað samkvæmt bandarísku stjórn- arskránni svo þeir hafa brotið gegn henni. Ég fór því í mál til að geta gefið út bók mína. Útgefandi minn lagði til að ég gæfi bók- ina út í Evrópulandi og sendi hana þaðan til Bandaríkjanna, en ég neitaði því. Mark- mið mitt er að vefengja þessi lög sem tak- marka tjáningarfrelsið. Ég hef barist fyrir tjáningarfrelsi í heimalandi mínu og verið verjandi margra rithöfunda. Ég er að verja tjáningarfrelsið með því að fara í mál gegn Bandaríkjunum.“ Hvaða gildi hafði það fyrir starf þitt að fá friðarverðlaun Nóbels? „Friðarverðlaunin voru staðfesting og viðurkenning á starfi íslamskra mennta- manna. Mér þótti sem heimurinn hefði við- urkennt að íslam er andvígt hryðjuverk- um. Verðlaunin sögðu mér að heimurinn hefði ákveðið að afskrifa okkur ekki þrátt fyrir mistök nokkurra einstaklinga í nafni trúarinnar. Það voru drýgðir margir glæp- ir gegn múslímum í stríðinu í Bosníu, en enginn sakaði kristnina um þá. Rangar gerðir nokkurra einstaklinga hafa ekkert með kristindóm sem trúarbrögð að gera. Það sem gerist í Ísrael hefur ekkert með gyðingdóm að gera. Spurning mín í dag er þessi: Ef nokkrir íslamskir einstaklingar hafa drýgt misgjörðir, hvers vegna er þá reynt að varpa ábyrgðinni á íslam? Í Bandaríkjunum er meira að segja notað orðatiltækið „íslamskir hryðjuverka- menn“. Þegar forsætisráðherra Ísraels var drepinn af gyðingi talaði enginn um „gyð- inglegan hryðjuverkamann“. Við skulum greina á milli misgjörða fólks og trúar þess. Ég viðurkenni að til eru múslímar sem gripa til ólöglegra aðgerða, en það er ekki íslam að kenna heldur þeim sjálfum.“ Þú ert hingað komin til að veita viðtöku heiðursdoktorsnafnbót frá félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Hvað vissir þú um Ísland áður en þetta bar til? „Ég hafði lesið greinar um Ísland en vissi ekki mikið um landið. Þetta er fyrsta heimsókn mín til Íslands og ég er mjög glöð yfir að hafa fengið tækifæri til að koma hingað. Þegar ég fór í Bláa lónið varð ég mjög hissa. Við höfum heitar upp- sprettur í Íran, en þær eru miklu minni en það sem ég fékk að sjá hér.“ Shirin Ebadi segist hafa séð árangur af starfi sínu og það gefur henni von. Hún hefur séð lögin í heimalandi sínu breytast til hins betra. Þótt áfangarnir séu litlir miði þróuninni í rétta átt. „Ég segi alltaf við sjálfa mig að ég verði að vera bjartsýn. Ef ég tapa voninni get ég ekki haldið baráttu minni áfram,“ sagði Shirin Ebadi. tsýn“ ðursdoktors- tkomandi narsson nds. Morgunblaðið/Kristinn Dr. Shirin Ebadi er fædd í Íran árið 1947. Hún lauk lagaprófi frá Háskólanum í Teheran og var einna fyrst kvenna til að gegna dómarastarfi í landi sínu. Hún var forseti borgardóms í Teheran 1975–79, en eftir byltinguna 1979 var hún neydd til að segja af sér og boðið ritarastarf við dómstólinn. Shirin Ebadi hefur barist fyrir mannréttindum og lengi verið verjandi baráttufólks fyrir mannréttindum í Íran. Shirin Ebadi hlaut friðarverðlaun Nóbels 2003 fyrir þrotlausa baráttu fyrir mann- réttindum í heimalandi sínu Íran. Hún er talsmaður hófsamra sjónarmiða í trú- málum og fylgir íslamskri endurskoðunarstefnu sem hún telur að geti vel átt sam- leið með mannréttindum og lýðræði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.