Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 31

Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 31
Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Elsku Brynja, John Arve, Hemmi, Sigurveig, Ágústa Hlín, Hallur, Stíg- ur og aðrir aðstandendur, ykkur sendi ég mína dýpstu samúð. Þín Berglind. Í minningu stúlku sem vakti að- dáun okkar með þokka sínum og hugrekki. Hví var þessi beður búinn, barnið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: „Kom til mín!“ Kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með ljóssins öndum. (Björn Halldórsson.) Kær kveðja til ykkar allra sem nú eigið um sárt að binda. Sigrún, Arnar og börn. Mikil hetja hefur nú kvatt eftir heljarklifur bratt. Baráttuvilji, seigla og styrkur hennar vopn fram í svartasta myrkur. Nú hefur vorað í hennar hjarta. Hún hleypur um engi, sér sólina bjarta. Glöð og falleg í fanginu á afa því feiknarmikið þau þurfa að skrafa. Eftir brennur minningin bjarta og betrumbætir okkar hjarta. Hetjuna ungu með koss á kinn og þakklæti ég kveð um sinn. Elsku Brynja, Jon Arve og Ágústa. Hemmi, Sísí og synir. Hel- ena og aðrir ástvinir. Guð veri með ykkur og styrki ykkur í sorginni. Vera og fjölskylda. Elsku Þórdís. Þegar ég settist niður til að skrifa kveðju til þín voru mörg orð sem komu upp í hugann, hugrekki lýsir þér svo vel, þegar þú varst bara 6 ára og þurftir að fara í geislana þá hlust- aðir þú á sögur og beiðst eftir að meðferðinni lyki. Það er líka hug- rekki þegar maður er 7 ára að út- skýra fyrir afa sínum að það sé ekk- ert vont að fara í geisla og það sé betra að missa hárið heldur en að deyja. Alltaf varstu tilbúin að grínast og prakkarast, alveg sama hvað þú varst að ganga í gegnum í veikind- unum þínum og á myndunum af þér er alltaf prakkaraglampi í augunum þínum. Við gleymum aldrei vatns- slagnum sem þið frændsystkinin fór- uð í í fyrrasumar í garðinum ykkar og þá blotnuðum við hin nú líka, og þú hlóst svo innilega að okkur. Þú varst líka svo blíð og góð og alltaf tilbúin að knúsa okkur þegar við hitt- umst og segja okkur að þú saknaðir okkar þegar langt var á milli okkar. Þú varst líka flott stelpa og vildir vera töffaraleg og þegar hún Sandra ætlar að vera flott fer hún í fötin sem hún Þórdís stóra frænka í Noregi sendi henni. Í fermingunni hennar Ágústu í sumar hélstu svo fallega ræðu til stóru systur og hafðir áhyggjur af því að hún væri að verða fullorðin og þú myndir sakna hennar svo mikið þegar hún flytti að heiman, nú er það hún Ágústa sem á eftir að sakna litlu systur sinnar sem hún hefur alltaf passað svo vel uppá og setið hjá á erf- iðum stundum. Þegar við kvöddumst í sumar baðstu mig að segja Steinari og Söndru að ef þau yrðu leið yfir því að þú ættir að deyja, að reyna bara að hugsa um eitthvað skemmtilegt, það væri það sem þú gerðir. Við huggum okkur við það að núna líði þér vel og við trúum því að Biggi afi taki á móti þér í hlýja faðminn sinn og þú getir núna aftur kúrt á mjúku bumbunni hans. Elsku Þórdís, við eigum eftir að sakna þín sárt og geyma minninguna um sterku hugrökku frænkuna okk- ar í hjarta alla okkar framtíð. Elsku Ágústa, Brynja og John- Arve, Hemmi og fjölsk., ömmur og afar, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Linda frænka og fjölskylda. Elsku Þórdís, nú ertu farin frá okkur og komin til Bigga afa. Þú ert búin að heyja erfiða baráttu í mörg ár, og nú loksins líður þér vel. Við sitjum eftir með sárt hjarta en verð- um að reyna að vera jafn dugleg og þú varst. Þú fluttir til Þrándheims aðeins þriggja ára gömul svo við hittumst alltof sjaldan en við fylgdumst með þér. Í huga okkar núna er stundin sem við áttum í febrúar þegar þú komst til Íslands og við hittumst í mat hjá mömmu, þá vorkenndir þú mér að þurfa að nota staf, og fannst ég eiga bágt en varst ekki að hugsa um þig. Þetta lýsir þér vel. Við kveðjum þig með sorg í hjarta en trúum því að ykkur afa líði vel núna. Elsku Brynja, John Arve, Hemmi, Sigurveig, Ágústa Hlín, Hallur og Stígur, innilegar samúðarkveðjur. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Með þessum orðum kveðjum við þig. Sólveig, Daníel Kristófer og Svava Ósk. Elsku Þórdís. Mikið er erfitt að hugsa til þess að þú sért ekki lengur á meðal okkar. Það hlýtur að vera mikil þörf fyrir 13 ára engil á himnum. Þú ert búin að vera hetjan okkar þau sjö ár sem þú barðist við þennan illvíga sjúkdóm sem sigraði að lok- um. Við minnumst heimsóknarinnar í febrúar sl. þegar þið komuð öll frá Noregi og við áttum svo góðar stund- ir saman. Þú varst svo dugleg og glöð og varst orðin svo mikill „unglingur“, þú fékkst lit í hárið, keyptir þér flott föt og varst algjör „pæja“. Þér fannst stundum svolítil læti í frænkum þín- um sem voru bara 10 ára og lagðir þig gjarnan í sófanum til að hvíla þig. Elsku frænka, við þökkum þér fyr- ir yndislegar stundir og þú ert alltaf hetjan okkar. Við vitum að Biggi afi gætir þín núna. Guð blessi minningu þína, Rósa, Harpa Dögg og Sólveig Svava. Elsku Þórdís frænka. Við kveðjum þig með söknuði og minnumst alltaf gleði þinnar og hlýju. Sérstaklega hvað þú hafðir mikinn áhuga og gaman af hestum. Þú komst í vor og heimsóttir okkur öll og fórst á hestbak hjá ömmu og afa. Við trúum að nú líði þér vel á nýja staðnum og farir glöð á hestbak. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Bergur og Kristín Fjóla. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Brynja, þá ungur nýstúdent, kom til mín á Árbæjarsafn og óskaði eftir vinnu við fornleifarannsóknir. Hún var einbeitt og áhugasöm á leið í nám í fræðunum. Ég fann um leið hve mikið var spunnið í þessa ungu og dugnaðarlegu konu. Þá hófst sam- starf okkar og umfram allt góð vin- átta. Ég fylgdist með því þegar Brynja stundaði sitt nám í sagnfræði og fornleifafræði, hóf störf sem fræðimaður hér heima og í Noregi, ætíð með frábærum árangri. Ég fylgdist líka með því þegar Brynja eignaðist tvær fallegar dætur, Ágústu og Þórdísi, sem hafa ætíð verið stolt hennar og yndi, og lífi þeirra í Þrándheimi. Það var mikils- vert hve miklum styrk þær mæðgur hafa búið yfir þegar takast þurfti á við erfið veikindi og sorgir. Aðdáun- arvert hefur verið að fylgjast með dugnaði Brynju, móðurumhyggju og æðruleysi. Brynja hefur ekki vikið frá dóttur sinni í baráttunni við ill- vígan sjúkdóm og jafnframt séð til þess að hún fengi að upplifa ævintýri og gleði. Það má glögglega sjá þegar skoð- aðar eru myndir af glaðlegum andlit- um systranna í gegnum árin þar sem hamingja og væntumþykja skín út úr hverri mynd þrátt fyrir veikindin. Ágústa hefur reynst einstök stóra systir og sýnt ótrúlegan styrk og hlýju í garð systur sinnar. Þegar þær mæðgur heimsóttu mig fyrir nokkr- um mánuðum var sannarlega yndis- legt að verða vitni að móðurástinni og kærleikanum á milli þeirra allra. Þórdís var sem lítill engill, sem lýsti allt umhverfi sitt. Fallegt augnaráð- ið, brosið og einlægni Þórdísar snart mig djúpt ekki síður en þroski þeirra allra. Augljóst var hvernig Þórdís hafði verið umvafin hlýju og ást alla tíð frá mömmu sinni og systur, John Arve og pabba sínum sem og fjöl- skyldunni allri. Þórdís var einstök stúlka, sem mun verða ljóslifandi í hugum allra sem henni kynntust, sannkölluð hetja og engill í senn. Elsku Brynja mín, ég vil votta þér, Ágústu, John Arve, Hermanni, bræðrunum og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Megi minning Þórdísar lifa. Með vinarkveðju, Margrét Hallgrímsdóttir. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, – hvert andartak er tafðir þú hjá mér við sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. … já vita eitthvað anda hér á jörð, er ofar standi minni þakkargjörð í stundareilífð eina sumarnótt. Ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt. (Halldór K. Laxness.) Með þessum orðum langar mig að kveðja litla einstaka vinkonu. Nú er Þórdísin orðin að yndislegum engli hjá afa Birgi. Þannig mun ég hugsa til þessarar litlu hetju, sem nú hefur fengið hvíld eftir löng og erfið veik- indi. Þó við hittumst allt of sjaldan þá gaf hún Þórdís mér svo mikið með sinni einlægni og stóra faðmlagi. Mér er hugleikin einstök jákvæðni og hugrekki hennar sem við öll getum lært af. Elsku Brynja, Ágústa, Jon Arve, Helena, Hermann og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessari sorgarstund. Megi guð geyma fallega engilinn okkar allra. Ástríður Eggertsdóttir (Addý). MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 31 MINNINGAR HINSTA KVEÐJA Elsku Þórdís Ég veit að við hittumst sjaldan, en ég vil að þú munir að ég sakna þín og elska þig. Steinar. Elsku Þórdís Ég sakna þín mjög sárt og ég vildi óska að við gætum sést og talað sam- an aftur, en ég veit að sú ósk verður ekki uppfyllt. En ég veit að þér líður vel hjá Bigga afa. Sandra. Elsku Þórdís Björk. Við kveðjum þig í dag með bæninni sem mamma kennir okkur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Hvíldu í friði. Valtýr Borgar og Þórdís Ösp. Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Ástkær eiginkona mín og systir okkar, JENNÝ ST. GUÐLAUGSDÓTTIR GRÖTTEM, Skjalgsgt. 35, 4041 Hafrsfjord, Noregi, lést á heimili sínu mánudaginn 25. október sl. Jarðarförin hefur farið fram. Nils-Johan Gröttem og fjölskylda, Katrín Þ. Guðlaugsdóttir, Hildur Björg Guðlaugsdóttir, Pétur Guðlaugsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og bróðir, GUÐJÓN JÓNSSON, Núpi II, Vestur-Eyjafjöllum, verður jarðsunginn frá Ásólfsskálakirkju laugar- daginn 6. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á reikning Kvenfélagsins Eyglóar nr. 0182-05-690, kt.: 571188-1399. Ásta Sveinbjörnsdóttir, Jón Kristinn Guðjónsson, Linda Bára Finnbogadóttir, Hanna Valdís Guðjónsdóttir, Guðmundur Ingi Guðjónsson, Bryndís Hrund Brynjólfsdóttir, Svanhildur Ósk Guðjónsdóttir, systkini og fjölskyldur. Ástkæri vinur okkar, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, JÓN STEFÁNSSON, Götu, Hrunamannahreppi, lést sunnudaginn 31. október. Útförin verður auglýst síðar. Ólöf Guðnadóttir, Lilja Björg Jónsdóttir, Guðni Þór Valþórsson, María Jónsdóttir, Eymundur Sigurðsson, Ágúst Scheving Jónsson, Hildur Gylfadóttir, Stefán Scheving Kristjánsson, Ágústa Sigurdórsdóttir og barnabarn. Elskulegur eiginmaður minn, SIGTRYGGUR ÓLAFSSON, Skarðshlíð 27c, Akureyri, lést þriðjudaginn 2. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín Stefánsdóttir. LOUISE BAKER INDRIÐASON frá Héðinshöfða, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga föstudaginn 29. október sl., verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 8. nóvember kl. 14.00. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.