Morgunblaðið - 04.11.2004, Side 32

Morgunblaðið - 04.11.2004, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ásgeir Guð-mundsson fædd- ist í Reykjavík 19. febrúar 1926. Hann lést 22. október síð- astliðinn. Hann var sonur hjónanna Guð- mundar Jónssonar skrifstofumanns, f. 14.10. 1893, d. 31.12. 1947, og Kristínar Margrétar Jónsdótt- ur, f. 8.11. 1900, d. 20.5. 1927. Alsystkini Ásgeirs eru: 1) Jón, f. 5.5. 1922, d. 7.10. 2000, 2) Eysteinn, f. 5.8. 1923 og 3) Kristín, f. 29.4. 1927. Hálfsystkini Ásgeirs, samfeðra, eru: 4) Sigríður Ósk, f. 1.10. 1930, 5) Ólafur, f. 16.10. 1931, d. 4.2. 17.6. 1977, maki Eyrún Eiðsdóttir, f. 22.3. 1977, börn þeirra eru Steinn Andri Viðarsson, f. 21.12. 1995, Hjördís María, f. 25.10. 2002, og Ingibjörg Svana, f. 16.6. 2004. b) Jó- hanna, f. 1.5. 1982, maki Hörður Birgisson, f. 22.8. 1982. c) Ásta, f. 20.11. 1991. 2) Guðmundur, f. 9.7. 1958, maki Kristbjörg Baldursdótt- ir, f. 11.9. 1957. Börn þeirra eru Baldur Már, f. 25.2. 1983, Ástrós, f. 4.9. 1987, og Smári Nikulás, f. 16.2. 1995. 3) Þorsteinn, f. 28.11. 1963, maki Oddný Hildur Sigurþórsdótt- ir, f. 18.1. 1965. Börn þeirra eru Þóra, f. 6.7. 1984, d. 7.7. 1984, Yrsa Örk, f. 16.6. 1985, Salka, f. 8.6. 1989, og Jóhanna Embla, f. 11.10. 1995. Ásgeir lærði málaraiðn hjá Ing- þóri Sigurbjörnssyni á Selfossi. Út- skrifaðist sem málarameistari og starfaði sjálfstætt allan sinn starfs- feril við þá iðn. Útför Ásgeirs fer fram frá Frí- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 1978, 6) Árni, f. 20.11. 1933, d. 4.6. 1999, 7) Ólína, f. 21.5. 1938 og 8) Sigurður, f. 7.2. 1940, d. 13.8. 1971. Ásgeir kvæntist 31.12. 1955 Jóhönnu Þorsteinsdóttur, f. 3.5. 1929. Foreldrar henn- ar voru Margrét Ingi- björg Geirmundsdótt- ir, f. 26.10. 1899, d. 15.2. 1976, og Þor- steinn Sigfússon bóndi á Sandbrekku í Hjalta- staðaþinghá, f. 29.9. 1898, d. 25.2. 1986. Börn þeirra Ásgeirs og Jóhönnu eru: 1) Ingibjörg, f. 2.3. 1956, maki Vilhjálmur Ari Arason 27.4. 1956. Börn þeirra eru: a) Ásgeir Snær, f. Menn skyldu varast að halda að þeir viti nú alla skapaða hluti þó þeir hafi lesið eitthvert slángur af bókum því sannleik- urinn er ekki í bókum, og ekki einu sinni í góðum bókum, heldur í mönnum sem hafa gott hjartalag. (Halldór Laxness.) Þorsteinn Ásgeirsson. Ég vil minnast tengdaföður míns Ásgeirs Guðmundssonar, með nokkrum þakklætisorðum. Fyrst og síðast vil ég þakka honum að hafa verið mér einstaklega góður tengdafaðir og börnum mínum frá- bær afi, jafnframt að hafa verið börnum sínum góður faðir og góður eiginmaður tengdamóður minnar Jóhönnu. Á betra varð ekki kosið. Hann var mér einstakur trúnaðar- vinur í meira en þrjá áratugi sem alltaf var jafngott að leita til og aldrei bar skugga á. Alltaf tilbúinn til viðræðna og lét sér ekkert mannlegt óviðkomandi og var skoð- anafastur. Við í fjölskyldunni treystum manna best minni hans þegar eitt- hvað bar á góma sem menn voru ekki vissir með að muna rétt svo og var hann viskubrunnur um flest sem tengdist sögu þjóðarinnar á þessari öld og ekki var hann verri í landafræðinni. Ásgeir var afburða hjálpsamur þegar taka þurfti til hendinni ein- hvers staðar í fjölskyldunni og ófá skiptin sem hann tók upp pensilinn og rúlluna þegar einhvers staðar þurfti að mála eins og hjá syni mín- um fyrir tæpum tveimur árum og ég sjálfur fjarverandi úti á landi. Hann var mjög félagssinnaður og mannblendinn hvar sem hann kom og því ekki að undra að hann þurfti að koma þeirri orku og hæfileikum frá sér sem hann gerði í félagsskap með Oddfellowum. Þar veit ég að hann var mjög vel liðinn og gegndi mörgum trúnaðarstörfum. Hann hafði mikinn áhuga á íþróttum og þá sérstaklega fótbolta sem hann hafði yndi af að horfa á, sérstaklega síðustu árin þegar starfsþrekið var farið að þverra. Hann var eitilharð- ur Framari. Ég þakka guði og læknavísind- unum fyrir að hafa gefið honum aukalíf eftir að hjartað hans gaf sig fyrir rúmum áratug en þá gekkst hann undir erfiða hjartaaðgerð. Ár- anna á eftir naut hann á einstak- lega innihaldsríkan hátt á hlýju heimili sínu samvistum með Jó- hönnu í Fannafoldinni. Ég þakka Jóni Högnasyni hjartalækni fyrir að hafa fylgst með hjartanu hans brothætta síðan. Ég þakka Ásgeiri fyrir að hafa verið fjölskyldunni allri ættarhöfðingi sem gott var heim að sækja fram á síðasta dag, hvernig sem á stóð. Alltaf veitingar á borð bornar og hann gaf sér tíma til að spjalla. Frábærastur var þó Ásgeir sem afi barnabarna sinna tíu. Þau bókstaflega dýrkuðu hann öll en þau yngstu fengu alltaf for- gang á athygli hans hvar og hve- nær sem var. Þakka þér, Ásgeir minn, fyrir að hafa verið mér fyrirmynd í flestu sem prýtt getur góðan mann, betri læriföður er ekki hægt að finna. Ég vona að ég eigi eftir að standast væntingar sem þú gerir til mín á móti. Þinn tengdasonur Vilhjálmur Ari Arason. Minn elskulegi tengdapabbi er dáinn. Við lögðum upp í helgarferð til Kaupmannahafnar sem átti að vera öllum til gleði og ánægju. En eins og hendi væri veifað fórst þú í lengri ferð, ferð sem við öll munum á endanum fara. En þrátt fyrir þessa vitneskju er það alltaf svo óendanlega sárt að kveðja. Þú varst albesti tengdapabbi sem ég gat fengið. Ég er búin að þekkja þig nánast alla mína ævi, því ung að aldri kynntist ég Dodda syni þínum, og það má segja að þið Jóhanna hafið ekki bara eignast tengdadótt- ur, heldur líka táning sem bættist við fjölskyldu ykkar. Þið reyndust okkur unga fólkinu vel, og leið- beinduð okkur í gegnum lífið á þann máta að allir englar himinsins hafa fylgst stoltir með. Þú tengda- pabbi varst í raun alltaf tímalaus hvað aldur varðar. Þú kunnir að gleðjast á góðum stundum með börnunum þínum, umbarst ung- lingana okkar og skildir manna best litla fólkið í fjölskyldunni. Alltaf varst það þú sem gast sett þig í spor annarra sem urðu á vegi þín- um, aldrei dæmdir þú neinn heldur reyndir að gera gott úr öllu þannig að allir gætu unað vel við sitt. Guð hefur fengið til sín þann allra besta sáttasemjara sem mannkynið hefur átt. Um þig á ég bara góðar minn- ingar, minningar um hjartahlýjan og kærleiksfullan tengdapabba. Tryggðina við börnin þín, barna- börn og tengdabörn ætla ég að hafa sem mitt veganesti í lífinu, og ég þakka fyrir þá gæfu að hafa þekkt þig. Hafðu þökk fyrir allt elsku tengdapabbi minn. Þín tengdadóttir Oddný Hildur Sigurþórsdóttir. Elsku afi, það tekur mig sárt að þurfa að setjast niður og skrifa minningargrein um þig núna, en þegar ég hugsa til baka á ég ekkert annað en yndislegar minningar sem geta varla annað en komið mér til að brosa. Ég man frá því ég var pínulítil í bangsaleik með þér við ljónið, alla leikina sem þú komst til að horfa á mig í fótboltanum og all- ar sögurnar sem þú hefur sagt mér frá sjálfum þér þegar þú varst ung- ur. Þú kenndir mér mikið og þá sérstaklega alla þessa þolinmæði, umbyrðarlyndi og gæsku sem þú sýndir öllum þeim sem að þér komu. Þinn faðmur var opinn öll- um. Afi minn er besti maður sem ég hef kynnst. Ég sakna þín. Yrsa Örk. ÁSGEIR GUÐMUNDSSON  Fleiri minningargreinar um Ás- geir Guðmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Ragnhildur Karlsdóttir og Guðmundur M. Sig- urðsson, Jóhanna Vilhjálmsdóttir. ✝ Halldóra Júlíus-dóttir fæddist í Hítarnesi 29. maí 1920. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 23. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Júlíus Jónsson, f. 23. júlí 1885, d. 16. ágúst 1975, og Kristín Stefánsdótt- ir, f. 29. maí 1891, d. 31. desember 1958. Systkini Halldóru eru Þorvarður, f. 30. júlí 1913, d. 20. nóvember 1991, Lovísa, f. 12. september 1914, Stefán Halldór, f. 26. september 1915, d. 9. des- ember 1980, Jón, f. 8. apríl 1917, d. 11. maí 1917, Jón Valberg, f. 18. ágúst 1918, Valtýr, f. 15. mars 1923, d. 26. apríl 2003, Laufey, f. 8. maí 1925, Unnur, f. 25 apríl 1928, Aðalsteinn, f. 2. september 1931, d. 8. febrúar 1959, Páll, f. 20. desember 1934, d. 9. desember 1987. Hinn 20. desember 1959 gift- ist Halldóra Magnúsi Finnboga- syni, f. 5. október 1927. Börn þeirra eru: 1) Hafliði, f. 20. júní 1958, kvæntur Svanhildi Agn- arsdóttur, f. 1. nóvember 1958, börn þeirra eru Halldór Rúnar, f. 30. maí 1985, Hrafnhildur, f. 18. júní 1989, og Guð- mundur Örn, f. 26. apríl 2001. 2) Krist- ín, f. 1. nóvember 1964, d. 2. nóvem- ber 1964. Fyrir átti Magnús tvær dæt- ur. Fram eftir vann Halldóra á ýmsum stöðum á veturna við þjónustustörf en á sumrin dvaldist hún í Hítarnesi og vann við bú- skapinn bæði innandyra og ut- an. Eftir að hún giftist fluttist hún alfarið til Reykjavíkur, fyrst á Laugaveginn í stuttan tíma, en síðan í Heima- og Voga- hverfið þar sem hún bjó í 44 ár. Frá þeim tíma starfaði hún við saumaskap og sölumennsku meðan heilsan leyfði. Halldóra var virk í félagsmálum bæði í Kvenfélagi styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra og Kvenfélagi Langholtskirkju þar sem hún var meðal annars í stjórn. Útför Halldóru verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Þér kæra sendir kveðju með kvöldstjörnunni blá. Það hjarta, sem þú átt, en sem er svo langt þér frá, þar mætast okkar augu, þótt ei oftar sjáumst hér. Ó, Guð minn ávallt gæti þín, ég gleymi aldrei þér. (Bjarni Þorsteinsson.) Magnús Finnbogason. Móðir mín, ég á svo erfitt með að sætta mig við að þú sért farin. Þrátt fyrir erfið veikindi þá hélt maður alltaf í vonina. Sem barn man ég eftir að við vor- um oft í Hítarnesi á sumrin. Þar leið þér greinilega vel, enda varstu alltaf með mjög sterkar rætur þar. Aldrei leið þér betur en þegar þú varst á kafi í hvort sem var inni- eða útiverk- um. Ég smágutti, á vappi í kringum þig. Þó mikið væri að gera, þá hafðir þú samt alltaf stund fyrir mig til að sýna mér allt í sveitinni, segja mér sögur og svara óteljandi spurningum sem dundu á þér. Þú kenndir mér svo margt, kenndir mér að meta það sem ég á, ég gat ekki fengið betri leiðsögn fyrir lífið en frá þér. Heima í Reykjavík vannst þú líka mikið, ég man eftir að ég öfundaði oft vini mína sem höfðu mömmur sínar heima hjá sér allan daginn. Þegar barnabörnin komu tókstu þeim fagn- andi hendi og varst alltaf svo góð við þau. Alltaf áttu þau vísan stað hjá þér. Síðasta ár var erfitt hjá þér, en það hjálpaði mikið hve margir voru góðir og tilbúnir að hjálpa til. Sér- stakar þakkir vil ég færa göngudeild Landspítalans Landakoti, göngu- deild Eirar og deild A7 á Landspít- alanum Fossvogi. Þarna voru margir sem sýndu þér mikla umhyggju og hlýju og eiga fyrir það skilið góðar þakkir. Þakka þér fyrir allt og hvíl í friði. Hafliði. Amma í Gnoðarvogi eins og við kölluðum hana lést hinn 23. október sl. 84 ára að aldri. Kveðjum við hana með hryggð í hjarta og minnumst allra þeirra stunda er við áttum sam- an. Á hverju einasta ári síðan við munum eftir okkur hafið þið afi hald- ið upp á jólin með okkur. Eigum við margar góðar minningar frá jólun- um. Man ég (Halldór) sérstaklega eftir þegar ég var um fimm ára gam- all og orðinn óþolinmóður að komast í pakkana að ég spurði ömmu „af hverju borðar þú svona mikið amma“? því ekki mátti opna pakkana fyrr en búið var að borða. Var mikið hlegið að þessu næstu jólin. Erfitt er að trúa því að næstu jól munt þú ekki vera með okkur. Alltaf var gott að koma í heimsókn til ykkar afa. Alltaf varstu tilbúin með eitthvað gómsætt handa okkur og stjanaðir í kringum okkur með bros á vör. Elsku amma, komið er að kveðju- stund. Við þökkum þér allar þær samverustundir sem við höfum átt, við munum sakna þín og minnast þín með ást. Við biðjum guð að varðveita þig, eins og við munum í hjarta okk- ar. Halldór Rúnar og Hrafnhildur. Elsku Dóra. Langt er síðan þú varst frænkan í sveitinni hjá ömmu og afa, þú varst þessi þolinmóða frænka sem kenndir og huggaðir, þú áttir alltaf stund fyr- ir okkur börnin. Tilfinningabönd systkinanna frá Hítarnesi, barna Kristínar Stefánsdóttur og Júlíusar Jónssonar, eru svo sterk og ég hef verið svo heppin að njóta þeirra. Sem barn var ég hjá ömmu og afa á sumrin og þá var gott að nokkur systkinanna voru heima, t.d. Dóra, Páll og Aðalsteinn sem báðir eru farnir langt um aldur fram. Að njóta þolinmæði, fræðslu og hlýju frá þér góða frænka hefur ver- ið gott vegarnesti í lífinu. Svo fluttir þú til Reykjavíkur og alltaf var gott að hitta þig, en þú varst mjög viljug að sinna stórfjöl- skyldunni, bæði með boðum og heim- sóknum. Jólaboðin þín voru fjölsetin, bæði kaffi- og matarboð, þar hitt- umst við oft og bárum saman bækur okkar. En allt hefur sinn tíma og nú hefur þú lagt augun aftur og ég þakka þér fyrir allt. Samúðarkveðja til fjölskyldu þinn- ar. Guðrún Magnúsdóttir. HALLDÓRA JÚLÍUSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Hall- dóru Júlíusdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Kristín Stefáns- dóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Minningar- greinar Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG LÚÐVÍKSDÓTTIR, Smáragrund 15, Sauðárkróki, sem andaðist mánudaginn 25. október, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 6. nóvember kl. 14.00. Stefán Birgir Pedersen, Árni Ragnar Stefánsson, Ása Dóra Konráðsdóttir, Olgeir Ingi og Hólmar Smári Árnasynir. JAKOBÍNA ÁSKELSDÓTTIR, Hólmavík, sem lést laugardaginn 30. október, verður jarðsungin frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 6. nóvember kl. 14.00. Áshildur Vilhjálmsdóttir, Halldór D. Gunnarsson, Sigurður Vilhjálmsson, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Svanhildur Vilhjálmsdóttir, Jón E. Alfreðsson, Sóley Vilhjálmsdóttir, Arnór Grímsson, Jón Vilhjálmsson, Svanhildur Jónsdóttir, Áskell Vilhjálmsson, Magnea Símonardóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.