Morgunblaðið - 04.11.2004, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 37
FRÉTTIR
Sími 533 4040
Fax 533 4041
Ármúla 21 • Reykjavík
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
jöreign ehf Opið mán.–fim.
frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.
2JA HERBERGJA
VESTURBÆR/SEILUGRANDI: Falleg og snyrtileg 2ja herb. íbúð á jarðhæð
með sérgarði. Stærð um 52,0 fm. Ljóst parket á gólfum. Hús og sameign í góðu ástandi.
LAUS STRAX. Verð 11,5 millj. Nr. 4090
3JA HERBERGJA
SAFAMÝRI - M/BÍLSKÚR: Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herb. íbúð á 2.
hæð ásamt bílskúr. Frábær staðsetning. Fallegar innréttingar og parket á gólfum. Hús og
sameign í góðu ástandi. Verð 15,5 millj.
4RA HERBERGJA
AFLAGRANDI: Glæsileg og vönduð 122,0 fm íbúð á 3. hæð, efstu, í litlu fjölbýli.
Sérinngangur af svölum. Vandaðar innréttingar. Björt íbúð. Stórar suðursvalir. Verð 24,7
millj. Nr. 3957
SÉRHÆÐIR
SELTJARNARNES Falleg efri sér-
hæð um 178,0 fm og sérbyggður bílskúr
um 30,0 fm Fjögur góð svefnherbergi og
rúmgóðar stofur. Parket og flísar á góflum.
Bílskúr. NR. 3888
SÉRHÆÐIR
GRÆNAHLÍÐ m/bílskúr. Efsta hæð í fjórbýli Íbúð 148,2 fm. og bílskúr 36,3
fm. Tvennar svalir. Hús í góu ástandi. Nýtt gler og gluggar að hluta. Sér þvottahús í íbúð.
Útsýni. Verð 26,5 millj. nr. 5000
ÓÐINSGATA - RISÍBÚÐ Í TVÍBÝLI Vorum að fá rúmlega 62 fm risíbúð á
þessum vinsæla stað. Góð lofthæð. Hús er steinsteypt. Ágæt suðurlóð. Geymsluskúr á
lóðinni. Þvottaaðstaða í forstofu. Verð 11,5 millj. Nr. 5003.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag í nóvem-
ber. Þú getur farið til þessarar fegurstu borg Evrópu á einstökum kjör-
um. Þú getur valið um úrval góðra hótel í hjarta Prag og að sjálfsögðu
nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða í Prag allan tímann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Prag
frá kr. 9.990
15. nóvember
Verð kr. 9.990
Flugsæti til Prag. Önnur leiðin 15.nóv.
Netverð.
Hótelverð - kr. 3.400.-
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi,
hótel Ilf, pr. nótt með morgunmat.
Ragnheiður Nielsen og Hjördís
Sigurjónsdóttir Íslandsmeist-
arar í kvennaflokki
Mótið fór fram um síðustu helgi
með þátttöku 18 para, sem er nokkuð
minni þátttaka en undanfarin ár og
var bridgekvenna af landsbyggðinni
sárt saknað.
Ragnheiður Nielsen og Hjördís
Sigurjónsdóttir urðu Íslandsmeist-
arar í tvímenning kvenna 2004. Þetta
er fyrsta skipti sem þær báðar vinna
þennan titil og voru þær vel að hon-
um komnar, enda leiddu þær allan
seinni helming mótsins. Elín Jó-
hannsdóttir og Hertha Þorsteins-
dóttir urðu í 2. sæti en þær leiddu
mótið fyrripartinn.
Lokastaðan:
Hjördís Sigurjónsd.- Ragnh. Nielsen 118
Elín Jóhannsd. - Hertha Þorsteinsd. 87
Kristjana Steingrd. - Guðrún Jóhannesd. 69
Erla Sigurjónsdóttir - Dóra Axelsdóttir 53
Soffía Daníelsd. - Hrafnhildur Skúlad. 45
Dröfn Guðmundsd. - Hrund Einarsdóttir 43
Alda Guðnad. - Grethe Iversen 41
Ragnheiður Nielsen og Hjördís Sigurjónsdóttir sigruðu á Íslandsmótinu í
tvímenningi sem fram fór um sl. helgi. Með þeim á myndinni er Kristján B.
Snorrason, forseti Bridssambandsins, en hann afhenti verðlaunin í mótslok.
Gullsmárabrids
Eftir 8 umferðir í sveitakeppni
Bridsdeildar FEBK Gullsmára er
staða efstu sveita þessi:
Sv. Guðjóns Ottóssonar 157
Sv. Einars Markússonar 147
Sv. Ara Þórðarsonar 140
Sv. Hlaðgerðar Snæbjörnsd. 133
Níunda og 10. umferð verða spil-
aðar fimmtudaginn 4. nóvember kl.
12.45.
Bridsfélag Selfoss
og nágrennis
Fimmtudaginn 28. október hófst
spilamennska í Málarabutlernum.
Þetta skemmtilega mót er tvímenn-
ingur, en útreikningur er á sveita-
keppnisformi. Þessi pör skoruðu
mest fyrsta kvöldið:
Harpa F. Ingólfsd. – Þórður Sigurðsson 41
Gísli Hauksson – Magnús Guðmss. 37
Grímur Magnúss. – Sigurður Vilhjálmss. 33
Brynjólfur Gestss. – Guðm. Theodórss. 27
Garðar Garðarss. – Gunnar Þórðarson 22
Nánar má finna um gang mála á
heimasíðu félagsins www.bridge.is/
fel/selfoss.
Mótinu verður haldið áfram
næstkomandi fimmtudag, 4. nóvem-
ber, í Tryggvaskála kl. 19.30.
Norðurlandsmót
í sveitakeppni
Norðurlandsmót í sveitakeppni
verður haldið á Akureyri 6.–7. nóv-
ember.
Spilað verður í Verslunarmið-
stöðinni Sunnuhlíð (fyrrv. starfs-
mannasal KEA, í kjallara, gengið
inn að sunnan). Spilamennska hefst
stundvíslega kl. 10.30 bæði laug-
ardag og sunnudag og lýkur um kl.
20 fyrri daginn og um kl. 17.30
þann seinni.
Verðlaun eru fyrir þrjú efstu
sætin og spilað er um silfurstig.
Keppnisgjald 11.000 kr. á sveit.
Kaffi, te og djús innifalið.
Þátttaka tilkynnist fyrir kl. 19 á
fimmtudag Stefáni Vilhjálmssyni,
sími 898 4475 og 462 2468 (á kvöld-
in) og Ásgrími Sigurbjörnssyni,
heimasími 453 5030.
Vinsamlega kynnið þetta á spila-
kvöldum nú í vikunni og við sjáum
hvort ekki verður spilafært. Hvetj-
um spilara kröftuglega til að mæta.
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
WWW.FEMIN.IS er að gefa þung-
uðum konum og nýbökuðum mæðr-
um barnaboxið.
Barnaboxið inniheldur m.a. sýn-
ishorn af bleium, brjóstakremi,
þvottaefni fyrir barnið, lekahlífar
og snuð. Konurnar þurfa aðeins að
skrá sig á www.femin.is og nálgast
svo barnaboxið sér að kostn-
aðarlausu í barnavöruverslunina
Fífu eða valið að fá barnaboxið sent
til sín gegn póstburðargjaldi. Einn-
ig er hægt að senda fyrirspurnir
um barnaboxið á netfangið barna-
box@femin.is.
Nú þegar hafa rúmlega 1.000
verðandi eða nýbakaðar mæður
fengið barnabox frá femin.is, segir í
fréttatilkynningu.
Femin.is gefur barnaboxið
Þróunarsamvinnustofnun Íslands
(ÞSSÍ) og læknadeild Háskóla Ís-
lands hafa skrifað undir samkomu-
lag um rannsóknarverkefni tveggja
íslenskra læknanema árið 2005 í
tengslum við framkvæmdir og þjálf-
unarverkefni í heilbrigðismálum,
sem ÞSSÍ hefur umsjón með í Monk-
ey Bay í Malaví.
Læknanemarnir munu dveljast í
Malaví við rannsóknir og gagnaöflun
í 1–2 mánuði á vormisseri á næsta ári
og vinna síðan á Íslandi við úrvinnslu
rannsóknanna og samningu ritgerða
um rannsóknarverkefni sín.
Undir samninginn skrifuðu Sig-
hvatur Björgvinsson framkvæmda-
stjóri fyrir hönd ÞSSÍ og Páll Skúla-
son rektor og Stefán B. Sigurðsson,
forseti læknadeildar, af hálfu Há-
skóla Íslands.
ÞSSÍ hefur umsjón með tvíhliða
þróunarsamvinnu milli Íslands og
Malaví og er stærsta verkefni stofn-
unarinnar uppbygging heilsugæslu í
Monkey Bay héraði. Tilgangur verk-
efnis læknanemanna er að skoða
fæðingarhjálp á heilsugæslustöðvum
á svæðinu. Gagnaöflun á því sviði er
afar mikilvæg og geta rannsóknar-
niðurstöður aukið skilvirkni þeirrar
þróunaraðstoðar sem ÞSSÍ veitir í
Monkey Bay.
Íslenskir læknanemar til
rannsóknarstarfa í Malaví
Á ÞRIÐJA þúsund manns hefur
tekið þátt í undirskriftasöfnun
stúdentaráðs þar sem háskólaráð
er hvatt til að samþykkja tillögu
stúdenta um að leggja átta millj-
ónir til kvöldafgreiðslutíma Þjóð-
arbókhlöðunnar. Nemendur skól-
ans geta skráð sig í undirskrifta-
söfnunina á www.student.is.
Undirskriftasöfnunin fór af stað
um helgina og stendur fram á
fimmtudagsmorgun en síðar um
daginn verður fundur í háskólaráði
þar sem tekin verður afstaða til til-
lögu stúdenta, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Skólayfirvöld ákvaðu fyrr á
árinu að veita ekki fé til þess að
hafa safnið opið á kvöldin eins og
gert hafði verið. Bókhlaðan var áð-
ur opin til klukkan 22 en frá og
með september er henni lokað
klukkan 19 alla virka daga nema
miðvikudaga en þá er lokað klukk-
an 22. Afgreiðslutími safnsins um
helgar var auk þess skertur.
Upphaflega nam fjárveiting til
að hafa opið á kvöldin 15 milljónum
króna en eftir að hagrætt hefur
verið í rekstri safnsins er sú upp-
hæð komin niður í 8 milljónir. Há-
skólaráð er æðsti ákvörðunaraðili
innan skólans og sitja tíu manns í
ráðinu.
Krefjast rýmri
afgreiðslutíma
Stúdentaráð HÍ
HJÚKRUNARÞING verður
haldið á morgun, en á þessu
ári eru 85 ár liðin frá því að
hjúkrunarfræðingar komu
saman og stofnuðu sérstakt fé-
lag. Yfirskrift Hjúkrunar-
þingsins er Hjúkrun – hvert
stefnir?
Á hjúkrunarþingum er
fjallað um stefnu félagsins í
faglegum málefnum hjúkrunar
og er opið öllum hjúkrunar-
fræðingum.
Dagskráin er samsett af
framsöguerindum, hópvinnu
og pallborðsumræðum og
munu Jón Kristjánsson heil-
brigðis- og tryggingaráðherra
og Elsa B. Friðfinnsdóttir,
formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, ávarpa
þingið.
Í hópunum verður m.a. rætt
um öryggi sjúklinga, kostnað-
arhlutdeild sjúklinga í heil-
brigðisþjónustunni og hlutverk
hjúkrunarfræðinga í síbreyti-
legu umhverfi.
Dagskrá þingsins er að
finna í Tímariti hjúkrunar-
fræðinga og á heimasíðu fé-
lagsins, www.hjukrun.is, og
þar er einnig hægt að skrá
þátttöku.
Þingið verður haldið á
morgun, föstudag, á Kaffi
Reykjavík kl. 9.00–16.30 og er
það opið öllum hjúkrunarfræð-
ingum.
Hjúkrunar-
þing á
afmælisári