Morgunblaðið - 04.11.2004, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 04.11.2004, Qupperneq 38
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Risaeðlugrín © DARGAUD ÉG ER AÐ SPARA PENING MEÐ ÞVÍ AÐ KLIPPA SJÁLFUR Á MÉR HÁRIÐ ÞÚ HLÝTUR AÐ VERA AÐ SPARA MILLJÓNIR ÞÚ? ÁTT ÞÚ JÖRÐINA ÞAR SEM ÞAÐ Á AÐ BYGGJA NÝJA FLUGVÖLLINN? EN AF HVERJU VILTU EKKI SELJA? ÞEIR ÞURFA Á LAND- INU AÐ HALDA! HVAÐ GETUR ÞÚ SVO SEM GERT VIÐ ÞAÐ? VERNDARSVÆÐI FYRIR FUGLA... ? HEFUR ÞÚ KYSST STELPU HOBBES? JÁ, ÆTLI ÞAÐ EKKI HVERNIG ER ÞAÐ EIGINLEGA? EINHVERN VEGINN SVONA AÐ VONA AÐ ÞAÐ YRÐI EKKI SVONA LOÐIÐ ÉG VAR framhald ... Dagbók Í dag er fimmtudagur 4. nóvember, 309. dagur ársins 2004 Víkverji er ekki mik-ið fyrir að fara í verslunarmiðstöðvar, fyllist ævinlega óskilj- anlegri þreytu þegar hann kemur í slíka staði og þegar hann lítur yfir sviðið og sér fólk í taumlausum neysluham missir hann einhvern veginn trúna á mannskepn- una, finnst hann ekki lifa á réttum tíma eða á réttum stað. Og bölvar því í hljóði að kvótinn hafi verið seldur af ættarjörð- inni þar sem Víkverji hefði getað gerst bóndi fjarri ys og þys borg- arinnar, engum öðrum háður nema sjálfum sér – og kannski fram- leiðslu- og skógræktarstyrkjum hins opinbera. Þarna hefði Víkverji getað lifað sæll og sáttur í bláum vinnu- samfestingi, hlustað á gömlu gufuna og lesið bækur á síðkvöldum með mjólkurglas í annarri og matarkex í hinni hendinni. x x x En nú hefur Víkverji gleymt sér ídraumórum, leiðin liggur ekki út á land í bláan samfesting og sveita- sæluna heldur þvert á móti í firring- una í verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæð- inu, þar sem fólk þveitist á milli versl- ana og fær sér ham- borgara og kók til þess að fá orku til þess að halda áfram að versla. Víkverji, sem að upp- lagi og stofni er frekar neikvæður, þunglynd- islegur og félagslega óhæfur einstaklingur, neyddist til þess að leggja leið sína í Smáralind á dögunum til að kaupa gjöf sem ekki varð hjá því kom- ist að gefa. Víkverji hafði dóttur sína með í för sér til halds og trausts enda bjargarlaus á þessu sviði. Eins og mönnum er kunnugt lifum við á tímum krafna um botnlausa já- kvæðni og að sjálfsögðu vill Víkverji ekki skorast undan kalli tímans. Hann bjóst nú við að þurfa að kaupa líka gjafapappír og borða til að festa utan um gjafapakkann en komst þá að því sér til ánægju að við þjónustu- borðið á neðri hæðinni í Smáralind er sérstakt borð með nóg af gjafa- pappír, gylltum borðum og öllum græjum til slíkra verka – og allt saman ókeypis. Afbragðs framtak, hugsaði Víkverji með sér. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is              Þjóðleikhúsið | Leikararnir Kristján Ingimarsson og Paulo Nani sýna í kvöld kl. 20, á stóra sviði Þjóðleikhússins, leikverk án orða sem nefnist Listin að deyja. Verkið fjallar um tvo gamanleikara sem frétta að annar þeirra sé dauðvona og þau áhrif sem þær fréttir hafa á samband þeirra jafnt á sviðinu og utan þess. Fjallar verkið þannig á vissan hátt meira um lífið en dauðann. Þeir félagar búa í Danmörku en hafa ferðast um heiminn með sýninguna undanfarið eitt og hálft ár. Morgunblaðið/ÞÖK Lífið í dauðanum MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Þér hafið tekið á móti Kristi, Drottni Jesú. Lifið því í honum. (Kól. 2, 6.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.