Morgunblaðið - 04.11.2004, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 39
DAGBÓK
Samviskuraddir!
HVAÐ er að? Valdamenn og valda-
konur þessa lands þjást alvarlega af
afneitun eða að þau einfaldlega
„meika“ ekki að horfast í augu við
mörg gríðarlega mikilvæg málefni
að mati margra okkar smáborgara.
Er bara allt í lagi að byggja vegi,
hringtorg, perlur o.fl. byggingar á
kostnað okkar skattborgara?
Einnig hefur verið umræða um að
lækka skatta í haust en ráðamenn
geta ekki fengið það af sér að hækka
laun kennara sem eru sumir hverjir
með 135–165 þús. á mánuði. Halda
ráðamenn virkilega að þessi pening-
ur endist kennurum mánuðinn út? Í
einu af dýrustu löndum heims! Ja,
kannski ef þeir versla eingöngu í
Bónus, eru ekki að borga skuldir
fyrir meira en 10.000 kall á mánuði,
borga leigu, bílinn, fyrir krakkana
og leyfa sér svo ekkert eins og fata-
kaup eða hvers kyns þægindi sem
auðugur maður myndi ekki hugsa
sig tvisvar um að gera. Hvað er
ríkisstjórnin með í laun?
Það þarf að kunna að forgangs-
raða, þ.e.a.s. ef maður situr í ríkis-
stjórn. Hei, það er nú búið að semja
við sjómenn!?
Unnur Brynjólfsdóttir.
Vantar svæði til útivistar
Í MORGUNBLAÐINU mánudag-
inn 1. nóvember var mynd á bls. 14
af MS-félögum í gönguferð en þeir
búa við Sléttuveg. Við Sléttuveginn
býr fjöldi manns, bæði fatlað fólk og
eldri borgarar. Nú á að fara að
byggja 70 íbúða hús á opnu svæði
fyrir ofan Sléttuveginn og þá eykst
umferðin á þessu svæði. Hvert á fólk
þá að fara þegar það vill fara út og
hreyfa sig? Það er ekki mikil aðstaða
á þessu svæði til útivistar.
Við höfum nokkur reynt að kvarta
undan þessu skipulagi og því að
svona há bygging verði reist en ekk-
ert er hlustað á okkur.
Ásta.
Þrjár kisur fást gefins
ÞRJÁR ein-
staklega fallegar,
blíðar, yndislegar
og veluppaldar
kisur á misjöfnum
aldri fást gefins
vegna flutnings
eigenda. Upplýs-
ingar gefur Gunn-
laugur í síma
698 0330.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Ungir Íslendingar í ljósi vís-indanna er yfirskrift mál-þings sem hefst í Há-skóla Íslands á morgun
kl. 12.45. Að því standa rektor HÍ og
umboðsmaður barna, en þar munu
vísindamenn og fagfólk af ýmsum
fræðasviðum kynna alls fimmtíu og
tvö rannsóknarverkefni um hagi og
hætti íslenskrar æsku.
Þórhildur Líndal, umboðsmaður
barna, segir málþingið ætlað öllum
sem áhuga hafi á málefnum barna og
unglinga og vilji eiga samræðu við
fagfólk og fræðimenn. „Ég tel það
mikilsvert og hef ætíð lagt áherslu á
að þeir sem vinna að velferð barna
og unglinga, á einn eða annan hátt,
ræði saman á þverfaglegan hátt,“
segir Þórhildur. „Hér gefst einmitt
gott færi á slíkri samræðu milli
ólíkra fagstétta, fræðimanna og al-
mennings.“
Hvernig er staða barna öðruvísi í
nútímasamfélaginu heldur en fyrr á
öldum?
„Þau umskipti sem hafa orðið á ís-
lensku þjóðfélagi á síðustu áratugum
hafa að sjálfsögðu gjörbreytt upp-
vaxtarskilyrðum barna. Staða barna
við upphaf síðustu aldar einkenndist
að nokkru leyti af varnarleysi; heil-
brigðiskerfið var frumstætt, almenn
lífskjör voru bág og þetta bitnaði
ekki síst á börnum. Með bættum lífs-
skilyrðum hafa kjör barna breyst til
hins betra, þ.á m. líkamlegt heil-
brigði þeirra og fjárhagslegur að-
búnaður. Þær þjóðfélagsumbætur
sem áttu sér stað á nýliðinni öld urðu
þess valdandi að réttindi barna og
unglinga styrktust á marga lund.
Nútímanum fylgja hins vegar ýmis
áður óþekkt vandamál. Geðrænir
sjúkdómar verða stöðugt meira
áberandi, átröskun, slys, þyngd
barna og hreyfingarleysi svo dæmi
séu tekin. Of mörg börn búa við erf-
iðleika og ótryggar aðstæður. Hraði
og tímaskortur setur æ meira mark
á nútímasamfélagið samfara kapp-
hlaupi eftir veraldlegum gæðum.“
Hvernig hagnýtast þessar rann-
sóknir?
„Vísindalegar rannsóknir eru
besti grunnur sem byggt verður á til
að bæta velferð barna í þjóðfélaginu.
Því er mikilvægt að niðurstöður
slíkra rannsókna nái eyrum þeirra
sem með valdið fara hverju sinni,
jafnt á sviði löggjafar sem og stjórn-
sýslu. Ég tel afar brýnt að hér á
landi verði mótuð opinber heild-
arstefna til lengri tíma í málefnum
barna og unglinga, en þar skipta nið-
urstöður rannsókna á breiðum
grundvelli miklu máli og einnig við
lagasetningu. Þá má ekki gleyma
þeirri þýðingu sem rannsóknir hafa í
því að upplýsa og fræða almenning
um ýmis mál.“
Í Barnasáttmálanum er gengið út
frá því að barn sé sjálfstæður ein-
staklingur með eigin hagsmuni, þarf-
ir og réttindi. Litið er á æskuna sem
sjálfstætt æviskeið með eigið gildi í
stað þess að vera fyrst og fremst
undirbúningstími fullorðinsáranna.
Segja má að með þessu hafi börn
loks hlotið viðurkenningu sem borg-
arar nútímans í stað þess að vera
álitin borgarar morgundagsins.“
Börn | Málþing í HÍ um rannsóknir á stöðu barna og unglinga í samfélaginu
Þríhliða samræða mikilsverð
Þórhildur Líndal er
fædd í Reykjavík
1951. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MH
1971 og embættis-
prófi í lögfræði við
lagadeild HÍ 1977 og
öðlaðist hdl. réttindi
árið 1989.
Þórhildur hefur
starfað við ýmis lög-
fræðistörf, m.a. sem
dómarafulltrúi, yfir-
lögfræðingur í félags-
málaráðuneyti, deild-
arstjóri og lögfræð-
ingur hjá forsætis-
ráðuneytinu. Þór-
hildur var skipuð
umboðsmaður barna
árið 1995 og endur-
skipuð til fimm ára
árið 2000.
Þórhildur er gift Ei-
ríki Tómassyni pró-
fessor og eiga þau
þrjá syni og tvö
barnabörn.
Tilboðsmyndatökur
Jólamyndatökur
Hefðbundnar myndatökur
Barnamyndatökur
Pantið tímanlega
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 554 3020
Mynd, Hafnarfirði s. 565 4207
www.ljósmynd.is
Fréttir á SMS