Morgunblaðið - 04.11.2004, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 vitur, 4 fær, 7
ljósgjafa, 8 nam, 9 álít, 11
rifa, 13 svalt, 14 trylltur,
15 maður, 17 sundum, 20
óhljóð, 22 verkfærið, 23
erfið, 24 hæsi, 25 tíu.
Lóðrétt | 1 buxur, 2 kind-
ar, 3 hæverska, 4 stórhýsi,
5 gamla, 6 byggt, 10 gufa,
12 illmenni, 13 knæpa, 15
lítil tunna, 16 auðugum, 18
fim, 19 venslamaður, 20
hina, 21 karldýr.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 fjandskap, 8 ríður, 9 dugga, 10 and, 11 afræð, 13
innst, 15 sogar, 18 anker, 21 ónn, 22 keyrt, 23 gands, 24
fiðringur.
Lóðrétt | 2 jaðar, 3 nýrað, 4 suddi, 5 augun, 6 örva, 7 falt,
12 æða, 14 nón, 15 sekk, 16 geymi, 17 rótar, 18 angan, 19
kunnu, 20 rósa.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Rausnarskapur gagnvart maka og nán-
um vinum gerir vart við sig í dag. Eða þá
að þeir eru einstaklega gjafmildir við
þig. Ætli aðdáunin geri ekki vart við sig
á báða bóga.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samstarfsmenn þínir eru hressir og
hjálpsamir í dag. Vandinn er hins vegar
að þú ert ekki í nokkru vinnustuði og vilt
helst sitja og láta dæluna ganga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þetta er frábær dagur fyrir leiki, veislur,
ástarævintýri, og glens og grín með smá-
fólkinu. Aðstæður eru jafngóðar fyrir
fjárfestingar og lánið gæti leikið við þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nýttu daginn til þess að tjá tilfinningar
þínar. Bjóddu skyldfólki í heimsókn og
hafðu ofan af fyrir félögunum. Taktu
fram fjölskyldualbúmið og berðu fram
kökur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er mjög góður dagur til þess að
skrifa undir samninga og samkomulag
við aðra. Ekki gleyma þér samt sem áð-
ur, þér hættir til að fara yfir strikið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er rétti tíminn til þess að þéna pen-
inga. Reyndar áttu líka auðvelt með að
eyða um þessar mundir, samt sem áður
fylgir heppnin þér í fjármálum núna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Aðstæður fyrir ástarævintýri eru góðar
og reyndar eru öll sambönd þín við aðra
hlý og innileg í dag. Þú finnur fyrir vel-
vild í garð annarra og vilt lyfta þér upp.
Allt í lagi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nýttu daginn til þess að leggja fjölskyld-
unni lið. Það er reyndar sjálfsagt mál, en
ekki láta tilfinningarnar bera þig ofur-
liði. Aumingjagæska er þekkt fyrirbæri.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér hættir til að vilja fórna þér fyrir aðra
í dag og þú tekur þarfir þeirra fram yfir
þínar eigin. Ekki samt gleyma þér alveg,
þú átt rétt á þér líka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fólk lítur þig einstaklega jákvæðum
augum í dag. Öfund gæti meira að segja
gert vart við sig. Þú talar ekki skýrt í
samskiptum við e-n náinn, passaðu þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Farðu gætilega í samskiptum við vinnu-
félaga og yfirmenn en taktu málefnum
sem tengjast ferðalögum, útgáfu og öðr-
um menningarheimum með opnum
huga.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú er lag að þéna smávegis af pening-
um, taka á móti gjöfum eða auka fjár-
festingar sínar. Það er engu líkara en að
alheimurinn skuldi þér, vertu með vas-
ana opna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Sporðdreki
Afmælisbarn dagsins:
Fólk dregst að þér því þú hefur persónu-
töfra og þykir bæði áhugaverð og hnyttin
manneskja. Það veistu reyndar. Þér hætt-
ir til að ögra fólki með ummælum þínum
og valda uppnámi. Kannski áttu til að
stríða öðrum vegna eðlislægrar glettni.
Tækifærin bíða þín á næstunni.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. c4 Rb6 4. d4 d6 5.
exd6 exd6 6. Rc3 Be7 7. Bd3 O-O 8.
Rge2 Rc6 9. b3 Bg4 10. Be3 Bh5 11. O-O
Bg6 12. He1 He8 13. Dd2 Bf8 14. h3 Re7
15. Rg3 d5 16. c5 Rd7 17. Bxg6 hxg6 18.
b4 c6 19. Dd3 b6 20. Bf4 a5 21. a3 axb4
22. axb4 bxc5 23. bxc5 Rf6 24. Be5 Ha5
25. Heb1 Rd7 26. Bf4 Hxa1 27. Hxa1
Rf6 28. Ha7 Rh5 29. Rxh5 gxh5 30. Df3
Rf5 31. Dd3 g6 32. Hc7 He1+ 33. Kh2
Oft glata skákmenn taktískum tæki-
færum sem koma upp í skák og getur
það skipt sköpum á milli feigs og ófeigs.
Í þessu lenti túníski stórmeistarinn
Slim Bouaziz (2341) í opnum flokki á
Ólympíuskákmótinu en hann hafði svart
í stöðunni gegn Weiming Goh (2353).
33... Df6? Svartur hefði unnið eftir 33...
Bh6! þar eð biskupinn hvíti getur sig
hvergi hrært vegna hróksins á c7 og 34.
Dd2 gengur ekki upp vegna 34...Dxc7!.
34. Dd2 He8 35. Re2 De6 36. Rg3 Hc8
37. Hb7 Bg7 38. Rxf5 Dxf5 39. De3 Bf6
40. Bd6 De4 41. Dxe4 dxe4 42. Hb4 He8
43. Bf4 Hd8 44. Bd6 He8 45. d5 cxd5
46. c6 Be7 47. Bxe7 Hxe7 48. Hb7 e3 49.
fxe3 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Tónlist
Grandrokk | Tónleikar Ames Hickman og
Frogsplanet kl. 23.
Hafnarborg | Gospelsystur með tónleika
sem bera yfirskriftina Banuwa; gráttu
ekki, litla stúlka. Gestasöngvari er Andrea
Gylfadóttir, en hljómsveit skipa Agnar
Már Magnússon á píanó, Snorri Sigurð-
arson á trompet, Robert Þórhallsson á
bassa, Stefán S. Stefánsson á saxófón og
Erik Qvick á slagverk.
Háskólabíó | Hljómsveitin Nýdönsk spilar
með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórn-
andi er Bernharður Wilkinson.
Salurinn | Havanaband Tómasar R. Ein-
arssonar leikur úrval af latíntónlist Tóm-
asar í kvöld kl. 20.
Myndlist
Gallerí I8 | Kristján Guðmundsson sýnir
„Arkitektúr“. Kristján vinnur verk sín í
ýmsa miðla og gerir tilraunir með form
og aðferðir í myndlist, m.a. með því að
leika sér með skynjun á því hvað teikning
er.
Árskógar 4 | Kristín Andrésdóttir sýnir
20 pastelmyndir.
Bækur
Bókabúð Máls og menningar | Í dag kem-
ur út hjá Máli og menningu BÍTLA-
ÁVARPIÐ eftir Einar Má Guðmundsson.
Útgáfuhóf verður í Bókabúð Máls og
menningar, Laugavegi 18, klukkan 20.
Einar Már les, Hljómar taka lagið og 100
kaupendur bókarinnar fá kilju með verk-
um Einars. Allir eru hjartanlega velkomn-
ir.
Skemmtanir
Bar 11 | Hljómsveitin Astara heldur út-
gáfutónleika á Bar 11 í tilefni Ep-plötunnar
þeirra „Alright Alright Alright.“ Tónleik-
arnir hefjast kl 21 og með þeim spila Isi-
dor. Platan verður til sölu og frítt inn.
Café Victor | Trúbadorarnir Basic Souls í
kvöld.
Kaffi Sólon | Grænn fimmtudagur á Sól-
on, Dj Andrés með electronic niðri. Á efri
hæð verða Magni og Sævar með party-
session á íslenska vísu.
Pravda | Sessý & Sjonni bjóða upp á lif-
andi tónlist með gítar & söng þar sem
leitast er við að mynda þægilega stemn-
ingu með tónlistina í fyrirrúmi. www.-
sessy.net.
Fyrirlestrar
Háskóli Íslands | Ástralski bókmennta-
fræðingurinn Anne Brewster flytur fyr-
irlestur á vegum RIKK í stofu 101 í Odda
um skrif ástralskra frumbyggja, einkum
kvenna. Anne hefur m.a. sérhæft sig í því
hvernig hugmyndir um þjóðerni, alþjóða-
menningu, hnattvæðingu og svo fem-
ínisma hafa haft áhrif á umræður um og í
fyrrverandi nýlendum.
Karuna Búddamiðstöð | Friðsæll Hugur
er markmiðið með leiddri hugleiðslu hjá
Karuna Búddamiðstöð að Ljósvallagötu
10 í hádeginu kl. 12.10. www.karuna.is.
Fundir
Hótel Loftleiðir | Framhaldsaðalfundur
Stokkseyringafélagsins í Reykjavík verður
í kaffiteríunni á Loftleiðum hinn 14. nóv.
nk. kl. 15. Efni: lagaviðbót. Stjórnin.
Kaffi Krús | Beinvernd á Suðurlandi held-
ur aðalfund í Kaffi Krús, Selfossi, fimmtu-
daginn 4. nóvember kl. 20. Ella Kolbrún
Kristinsdóttir sjúkraþjálfari skýrir orsakir
beinbrota og Unnur Þormóðsdóttir hjúkr-
unarfræðingur segir frá beinþéttnimæl-
ingum á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Kalkríkar veitingar.
Útivist
Stafganga í Laugardalnum | Stafganga í
Laugardalnum á þriðjudögum og fimmtu-
dögum kl. 17.30. Nýtt námskeið hefst 2.
nóvember. Þeir sem hafa verið á nám-
skeiði áður geta komið og tekið staka
tíma. Gengið er frá Laugardalslauginni.
Upplýsingar á www.stafganga.is.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
ROKKSVEITIN Astara heldur útgáfu-
tónleika á Bar 11 í kvöld í tilefni af útgáfu
nýrrar þröngskífu sveitarinnar, Alright Al-
right Alright. Sveit-
in, sem hefur nú
starfað í rúmt ár er
skipuð meðlimum
hljómsveitarinnar
Spildog frá Mos-
fellsbæ auk fyrrum
söngvara Snafu Sig-
urðar Alexanders
Oddssonar og spilar hún nokkurs konar
dimmt bílskúrsrokk í anda áttunda áratug-
arins.
„Platan inniheldur þrjú lög tekin upp í
Veðurstofunni og Studio Snakeboots af
Palla Pakku og Walkman og Redguy og
kemur út á okkar vegum, eða Aim for the
Head eins og það kallast,“ segir Sigurður,
en fyrsta lag plötunnar, „The Fields of To-
morrow“, er nú farið að hljóma á Xinu 977.
Að sögn Sigurðar er sveitin meðal ann-
ars undir áhrifum frá sígildum rokksveitum
eins og Zeppelin, Creedence, The Stooges,
The Guess Who, og jafnvel Pink Floyd og
The Band og fleiri af þeim meiði, þótt efn-
istökin séu nútímalegri. „Við viljum end-
urskapa stemmninguna og sköpunarfrelsið
sem einkenndi þetta tímabil sem okkur er
kært og erum ekki síst undir áhrifum kvik-
mynda á borð við Dazed and Confused, Al-
most Famous og annarra í svipuðum dúr
hvað varðar lífsstíl okkar og viðhorf gagn-
vart tónlist.“
Ásamt Astara koma fram sveitirnar Isi-
dor og Vera. Tónleikarnir hefjast um 21.00
og kostar ekkert inn.
Harðrokksveitin Astara kynnir útgáfu sína á Ellefunni
Fréttir
í tölvupósti
LISTAKONAN K.AND., sem
einnig er þekkt sem Kristín
Andrésdóttir, heldur nú
sína sjöundu einkasýningu í
Árskógum 4 í Breiðholti.
Kristín stundaði nám frá
sjö ára aldri í MHÍ, en hún
tók stúdentspróf frá lista-
sviði FB og síðan mynd-
menntakennarapróf frá
MHÍ. Myndir K.AND. á sýn-
ingunni eru tuttugu talsins
og allar unnar með þurrp-
astellitum. Viðfangsefni
listakonunnar er landslag
Íslands og segir hún að í
raun sé hér um að ræða nokkurs konar óð
til Íslands. „Myndirnar eru af vel þekktum
stöðum víða um land og viðfangsefnin
fengin víða að,“ segir Kristín og bætir við
að myndirnar séu allar til sölu.
Sýningin stendur út nóvember.
K.AND. sýnir í Árskógum
„VOFA gengur laus um götur heimsins,
vofa Bítlanna.“ Þannig hefst Bítlaávarpið
sem ætlað var að leysa öll önnur ávörp af
hólmi, til dæmis Áramótaávarpið og
Kommúnistaávarpið, en í dag kemur út
hjá Máli og menningu bókin Bítlaávarpið
eftir Einar Má Guðmundsson. Haldið verð-
ur upp á útkomu bókarinnar með pompi og
prakt í Bókabúð Máls og menningar,
Laugavegi 18, klukkan 20 í kvöld.
Einar Már mun á þessari útgáfuhátíð
lesa upp úr Bítlaávarpinu og rabba við
gesti og gangandi auk þess sem fyrsta ís-
lenska bítlahljómsveitin, Hljómar úr
Keflavík, tekur nokkur lög. Þá fá 100
fyrstu kaupendur bókarinnar í kaupbæti
bók eftir Einar í kilju að eigin vali.
Í Bítlaávarpinu heldur rokktónlistin
innreið sína í veruleika íslenskra skóla-
barna á sjöunda áratugnum – og byltir lífi
þeirra. Tónlistin leysir margt úr læðingi og
verður ásamt ástinni það afl sem breytir
heiminum. Bítlaávarpið er sjálfstæð
skáldsaga, sem í frásögn og aðferð teng-
ist fyrri verkum Einars.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bítlaávarpið í kvöld
HJÁ Máli og menn-
ingu er komin út
bókin Emil í Katt-
holti eftir Astrid
Lindgren, í þýðingu
Vilborgar Dag-
bjartsdóttur.
Hér er að finna í
einni bók allar hin-
ar sígildu sögur um
„Strákskrattann“ Emil í Kattholti í
Smálöndum, sem hafði, þrátt fyrir
skammarstrik sín, einstakt gullhjarta.
Eftir verstu óknyttina þurfti hann að
dúsa í smíðaskemmunni þar sem
hann dundaði sér við að tálga spýtu-
karla. Mamma Emils skráði skamm-
arstrikin í bláar stílabækur sem á
endanum fylltu heila kommóðuskúffu
og spýtukarlarnir urðu 369 talsins áð-
ur en yfir lauk.
Börn