Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 41

Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 41 DAGBÓK Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna kl. 9–16.30, boccia kl. 9.30, helgistund kl. 10.30, leikfimi kl. 11, smíði, útskurður kl. 13–16.30, myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un, almenn handavinna, leikfimi, mynd- list, bókband, söngur, fótaaðgerð. Félagsstarf Lönguhlíð 3 | Bingó kl. 15. Félag eldri borgara Reykjavík | Staf- ganga kl. 11, brids kl. 13, námskeið í framsögn kl. 16.15, félagsvist kl. 20. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Bridsdeild FEBK Gullsmára spilar 9. og 10. umferð sveitakeppninnar í dag, kl. 12.45. Félagsstarf aldraðra Garðabæ | Gler- málun kl. 9, málun og karlaleikfimi kl. 13, trélist kl. 13.30, í Mýrinni er vatns- leikfimi kl. 8.30, í Garðabergi er spænska 400 kl. 10.45, opið í Garða- bergi kl. 13–17 Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund í samstarfi við safn- aðarstarf Fella- og Hólakirkju, frá há- degi spilasalur og vinnustofur opnar m.a. myndlist og fjölbreytt föndurgerð. Uppl. í s. 5757720 og www.gerduberg- .is. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna, bútasaumur, perlusaumur, kortagerð, hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 14 félagsvist, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa, bútasaumur kl. 9–13, boccia kl. 10– 11, hannyrðir kl. 13–16.30, félagsvist kl. 13. 30 gott með kaffinu. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir–hársnyrting. Hæðargarður 31 | Opið félagsstarf kl. 9–16, listasmiðja, glerskurður, aðstoð við böðun kl. 9–16, sönghópur Hjördís- ar Geirsdóttur kl. 13.30. Hárgreiðslu- stofa s. 568-3139. Skráning á Edith Piaf stendur yfir. Dagblöðin og mola- sopi í býtið, hádegisverður og síðdegiskaffi. S. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun föstudag, sundleikfimi í Grafarvogs- laug kl. 9.30. Norðurbrún 1 | Kl. 9–12 leir, kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 10 ganga, kl. 9 smíði, kl. 13–16.30 leir, kl. 15 kaffi. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14 aðstoð v. böð- un, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9–10 boccia, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 10.15– 11.45 spænska, kl. 13–14 leikfimi, kl. 13– 16 kóræfing. Helgistund kl. 10.30 í umsjá séra Jakobs Ágústs Hjálm- arssonar dómkirkjuprests. Kór fé- lagsstarfs aldraðra syngur undir stjórn Sigurbjargar Hólmgrímsdóttur. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, bókband, pennasaumur og hár- greiðsla kl. 9, morgunstund og fót- snyrting kl. 9.30, boccia kl. 10, hand- mennt, glerskurður og frjáls spil kl. 13. Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðarstund fimmtudag kl. 12. Léttur hádegisverður á eftir. – Samvera eldri borgara kl. 15. Margt góðra gesta. Söngur og kaffi- veitingar. Áskirkja | Opið hús 14–17 í dag fimmtu- dag. Samsöngur undir stjórn org- anista. Kaffi og meðlæti. TTT–samvera milli 17–18 (búið til handrit að stutt- mynd). Breiðholtskirkja | Biblíulestur á fimmtudögum í safnaðarsal Breið- holtskirkju kl. 20. Tilvist og trú í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, hér- aðsprests. Bústaðakirkja | Foreldramorgunn kl. 10–12. www.kirkja.is. Digraneskirkja | Leikfimi I.A.K. kl 11. 15. Bænastund kl 12. 10. Fella- og Hólakirkja | Foreldramorg- unn kl. 10–12. Kristín Árnadóttir hjúkr- unarfr. ræðir um svefnvandamál barna. Allir foreldrar, afar eða ömmur sem eru heima með barn eða börn velkom- in. Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í Vídalínskirkju kl. 22. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, ýmiss konar fyr- irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund í Hall- grímskirkju í hádegi kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður í safn- aðarheimili eftir stundina. Háteigskirkja | Vinafundur kl. 13.30. Á vinafundum hjálpast fólk við að vekja upp gamlar og góðar minningar, endur- uppgötva gleymdar tilfinningar og gildi s.s. nægjusemi, undrun og traust. Brids aðstoð á föstudögum. Klukkan 13 spilum við brids í Setrinu og veitum aðstoð þeim sem þess óska. Kaffi klukkan 15. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam- vera eldri borgara kl. 15. Söngur, guðs orð og kaffi. KFUM og KFUK | Ad, KFUM fimmtu- daginn 4. nóvember kl. 20. „Heimspeki og trú“ Hannes H. Gissurarson, pró- fessor fjallar um efnið. Upphafsbæn, Arnmundur Kr. Jónasson, hugleiðing, Karl Benediktsson. Allir karlmenn vel- komnir. Langholtskirkja | Opið hús fyrir for- eldra ungra barna kl. 10–12. Kaffisopi og söngstund. Umsjón hefur Rut G. Magnúsdóttir. Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrðarstund. Léttur málsverður á eftir. Kl. 14 Sam- vera eldri borgara. Vigfús Albertsson guðfræðingur: Eldist sálin? Kl. 17:30 KMS (14–18 ára.) Æfingar fara fram í Áskirkju og Félagshúsi KFUM & K. Kl. 18 Íþróttaæði (8. bekkur) Íþróttahúsi Laugarnesskóla. Neskirkja | Hádegiserindi kl. 12.15. Trúarsannfæring og umburðarlyndi, sr. Sigurður Pálsson. Umræður. Krakka- klúbburinn, starf fyrir 8 og 9 ára kl. 14.30. Fermingarfræðsla kl. 15. Stúlknakór kl. 16. 9–10 ára. 60+ kl. 17. Kór fyrir 60 ára og eldri. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Uppl. í 896 8192. Njarðvíkurprestakall | Ytri– Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskóli 7. nóv. kl. 11 í umsjá Margrétar H. Hall- dórsdóttur, Gunnars Þórs Haukssonar og Natalíu Chow Hewlett, organista. Staður og stund http://www.mbl.is/sos ÓL í Istanbúl. Norður ♠G843 ♥KD4 S/Allir ♦G106532 ♣-- Vestur Austur ♠-- ♠75 ♥Á10752 ♥86 ♦7 ♦KD984 ♣ÁKD10652 ♣G943 Suður ♠ÁKD10962 ♥G93 ♦Á ♣87 Úrslitaleikur ÓL hefst í dag, en þegar þetta er skrifað standa fjögurra liða úr- slitin sem hæst. Þar eigast við Ítalía og Kína annars vegar, og Holland og Rúss- land hins vegar. Sigursveitirnar úr þessum leikjum munu spila til úrslita og lýkur þeim leik ekki fyrr en á laug- ardag. Ítalía og Pakistan mættust í átta liða úrslitum og unnu Ítalir sannfærandi sigur. En þeir töpuðu þó orrustunni í spili dagsins, sem kom upp í fyrstu lot- unni: Vestur Norður Austur Suður Fazli Bocchi Allana Duboin -- -- -- 1 spaði 5 lauf 5 spaðar Pass Pass 6 lauf Pass Pass Dobl Pass Pass Pass Vestur á firnagóð spil, sem erfitt er að melda af vísindalegri nákvæmni. Pakistaninn Fazli valdi að fela hjartalit- inn og stökkva beint í fimm lauf við opn- un suðurs á einum spaða. Fazli barðist svo áfram í sex lauf við fimm spöðum og keypti samninginn þar. Hann fór einn niður, en það var lítið gjald fyrir slemm- una sem NS eiga í spaða. (Reyndar vek- ur furðu að Duboin skuli ekki reyna sex spaða, því pass Bocchis yfir sex laufum er væntanlega kröfusögn.) Á hinu borðinu kom Versace inn á tví- lita sögn með vesturspilin: Vestur Norður Austur Suður Versace Hadi Lauria Shoaib -- -- -- 1 spaði 2 spaðar * 3 lauf * 4 lauf 4 spaðar 5 lauf 5 spaðar Pass Pass 6 lauf Pass Pass 6 spaðar Pass Pass Pass Ekki er alveg ljóst hvað 3ja laufa sögn norðurs merkir, en það gæti verið yf- irfærsla í tígul. Alltént hafði þessi hæg- fara leið Versace þau áhrif að NS voru tilbúnir til að veðja á sex spaða yfir sex laufum. Sá samningur stóð sem stafur á bók og Pakistan vann sér inn 15 IMPa. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is KRISTJÁN Guðmundsson opnar sýninguna Arkitektúr í i8 í dag kl. 17. Þetta er þriðja sýning listamanns- ins í galleríinu. Á sýningunni sýnir Kristján málverk af torfbæjum og skúlptúra. Eða eins og segir í texta í sýningarskrá: „Í byggðasafninu í Görðum á Akranesi eru teikningar af síðustu torfbæjunum sunnan Skarðsheiðar. Sr. Jón M. Guðjónsson, fyrrverandi sóknarprestur á Akranesi, gerði þessar myndir á árunum 1958–1960. Teikningarnar vann hann eftir lýs- ingu fólks, sem búið hafði á viðkom- andi bæjum eða þekkti þar gjörla til. Sr. Jón vill láta það koma fram, að hann vann þessar myndir fyrst og fremst til þess að gefa hinum ungu innsýn í fortíðina, en vill ekki að þær séu skoðaðar sem listaverk. Samtals eru þetta 80 teikningar. 65 þeirra eru í byggðasafninu.“ Sjálfur segir Kristján: „Þegar ég rakst á þessar myndir af teikningum séra Jóns fannst mér að hér væri komið gott viðhengi, eða tenging við torfskúlptúra mína. Ekki þó í þeim skilningi að skúlptúrarnir dragi myndirnar á nokkurn hátt. Nei, en samt sterk tenging. Byggingafræði- leg tenging. Ég ákvað því að ættleiða þessar myndir. En sú ættleiðing fólst í því að breyta þeim í list. Og þegar hlutirnir eru svona góðir, eins og teikningar sr. Jóns, þá þarf listamað- urinn nærri því ekkert að gera annað en smella fingrum – og segja: þetta er list.“ Sýningin stendur til 18. desember nk. i8 er opið miðvikudaga til föstu- daga kl. 11–17, laugardaga kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Myndlist | Kristján Guðmundsson opnar sýningu í i8 Fingrum smellt Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kristján Guðmundsson í i8: Teikningum breytt í list. „ÉG HEF lært að færa orku og tíðnir inn í líkamann og inn í orku- sviðin til að hreinsa og samrýma og styrkja og fjarlægja gamlar tilfinn- ingar og trúarkerfi sem dvelja í meðvitundinni og undirmeðvitund- inni, til dæmis sársaukafullar minn- ingar um áföll eða atburði í æsku,“ segir heilarinn Karina Becker, sem dvelur hér á landi þessa dagana til að bjóða upp á námskeið og einka- tíma í heilun. Karina nam heilun við Barbara Brennan school of healing, en Barbara Brennan er m.a. höfundur bókarinnar Hendur lífsins. „Ég er aðallega að vinna við atburði úr þessu lífi, því ég trúi því að við þurf- um að skilja þetta líf og samband okkar við okkur sjálf, fjölskylduna, starfið og sköpun okkar,“ segir Karen. „Með þjálfun minni get ég séð og læknað alla persónuna, ég sé ekki bara einn hluta hennar, heldur sé ég kosti hennar og möguleika. Þá get ég hjálpað einstaklingnum að sjá möguleika sína líka.“ Karina hefur starfað við heilun í 23 ár og er með stofur í Þýskalandi og Englandi. „Ástæðan fyrir því að ég kom til Íslands er sú að ég hef bú- ið hér og vinir mínir báðu mig um að koma hingað og bjóða fram vinnu mína,“ segir Karina, sem síðan þá hefur komið til landsins tvisvar á ári, á vorin og snemma á veturna. Um helgina mun hún leiðbeina á námskeiði um hrygghreinsunar- aðferðir á vegum Félags íslenskra heilsunuddara. „Á námskeiðinu hjálpa ég fólki að skilja orku sína, verða meðvitaðri um sjálft sig, taka meiri ábyrgð á eigin lífi. Þá hjálpa ég þeim að verða ekki háð mér, heldur ná sjálfstæði. Þetta hjálpar við að glíma við streitu og finna eig- in styrk. Þetta snýst alltaf um ein- staklinginn sjálfan.“ Karen segir hámarksfjölda þátt- takenda á námskeiðinu vera um 15 manns, en venjulega séu það sem betur fer aðeins færri. „Þá get ég einbeitt mér betur að hverjum og einum. Allir verða að vinna í þessu og taka þátt í þessu með mér. Fólk þarf enga grundvallarþekkingu og þetta er mjög gaman.“ Þýskur heilari á Íslandi Morgunblaðið/Brynjar Gauti Námskeiðið verður haldið á laug- ardag og sunnudag. Nánari upp- lýsingar í síma 552 6625. NÝTT gallerí bætist í galleríflóru Reykjavíkur á laugardag- inn þegar Gallerí 49 verður opnað á Hringbraut 49, á gatna- mótum Hringbrautar og Furumels, beint á móti Elliheim- ilinu Grund. Fyrir Galleríinu standa þær Alda Ármanna Sveinsdóttir, Erna Guðmarsdóttir, Kristín Arngrímsdóttir og Kristjana F. Arndal, en allar hafa þær starfað sem rekstraraðilar í galleríi áður og eru fagfélagar í samtökum myndlistarmanna. Í Gall- eríi 49 munu verða málverk, vatnslitamyndir, grafík, myndir málaðar á silki, teikningar og fleira. Alda Ármanna segir Gallerí 49 tilkomið vegna þess að listakonurnar vildu finna hagstæðari kjör vegna sölu á mynd- um, en ein listakvennanna á húsnæðið, svo húsnæðiskostn- aðurinn er minni en ella. „Það er auðvitað hægt að selja á sýningum, en það er stopult og óáreiðanlegt. Það skiptir máli að geta gengið að einhverjum möguleikum á sölu á hagstæðu verði. Mörgum galleríum hefur verið lokað núna, þannig að þetta er erfiður markaður. Hann hrundi í sambandi við mál- verkafölsunina, þá fór fólk að kaupa annað á veggina hjá sér.“ Alda segist hlakka til að takast á við verkefnið og vinna með samstarfskonum sínum að rekstri gallerísins. „Við stóluðum á það að geta unnið saman og það verður gaman að sjá hvern- ig gengur. Við erum að vona að fólk taki sæmilega við okkur og þetta verði hrein viðbót við flóruna. Það er töluverð gerjun í gangi,“ segir Alda og bætir við að ekki sé heldur yfir að- genginu að kvarta. „Það er hagstætt að koma hingað, bíla- stæðin eru góð og gjaldfrjáls.“ Mikil gerjun í gangi Morgunblaðið/Kristinn Alda Ármanna Sveinsdóttir, Kristjana F. Arndal og Erna Guðmundsdóttir. Myndlist | Nýtt gallerí opnað á laugardag á Hringbraut 49 Gallerí 49 verður opið á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum milli kl. 12 og 18, en á laugardögum milli kl. 11 og 15. Galleríið verður opnað nú á laugardaginn kl. 11.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.