Morgunblaðið - 04.11.2004, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
GAMANLEIKRITIÐ Kvenfélagið
er samið og leikstýrt af innanfélags-
fólki, hinu sama og stóð að sýning-
unni Allt sem þér viljið fyrir nokkr-
um árum. Í stuttu máli fjallar verkið
um kvenfélag í litlu plássi á Norður-
landi og vandræðin sem verða þegar
í ljós kemur að félagið er ekki starf-
hæft vegna þess að í lögum þess seg-
ir að lágmarksfjöldi félagskvenna
verði að vera ellefu en þær eru að-
eins tíu. Fléttan snýst að einhverju
leyti um samkeppni við karlaklúbb-
inn í plássinu um að halda hátíðina
miklu og fléttað er inn tveimur
litlum ástarsögum, annarri róm-
antískri og hinni grátbroslegri. Hug-
myndin að verkinu er ágæt og margt
er vel unnið í leikstjórn og leik auk
þess sem tónlistin er vel samin og
áheyrileg með skýrum textum. Hins
vegar er ýmislegt í leikstjórninni
ekki nógu vel hugsað, búningar og
hárkollunotkun að miklu leyti út í
hött og síðast en ekki síst hefði þurft
þriðja augað til þess að taka leikritið
og skera niður málalengingar, end-
urtekningar og upplýsingar sem
ættu aðeins að liggja milli línanna.
Það þarf sérstaka hæfileika til þess
að leikstýra eigin verki og hér hefði
sýningin grætt mikið á því að fá ann-
an leikstjóra en einn af höfundunum
því eins og áður sagði er hugmyndin
skemmtileg og margt vel gert.
Það sem drífur sýninguna áfram
er hressandi ærslaleikur með mis-
skilningi og orðaleikjum, í stíl gömlu
farsanna. Mörg fyndin og eft-
irminnileg atvik verða til á sviðinu
en best er þar unnið með misskiln-
inginn með karlinn í kvenfötunum
og bleiku slæðuna sem átti að verða
kennimark ungrar konu en verður
til þess að allt kemst upp. Umgjörð-
in er í raun í sama ærslastílnum; öllu
ægir saman í hárkollum og bún-
ingum frá ýmsum tímum en þar er
heldur betur farið yfir markið. Af
sextán leikurum eru allir með kollur
nema þrír og áhorfendur hljóta að
spyrja sig af hverju þeir eru und-
anskildir. Flestar hárkollurnar eru
bara hallærislegar og þjóna engum
tilgangi. Það er margítrekað í text-
anum að verkið gerist á þessu ári og
því engan veginn tímalaust. Hið
sama má segja um búningana, þeir
eiga að undirstrika ýktar persón-
urnar og gera það oft ágætlega en
eru sumir allt of bundnir við hin og
þessi stíltímabil. Það verður svo að
nefna hér þá furðulegu ákvörðun að
troða líkamslýtum eins og maga og
afturenda inn í búninga nokkurra
leikaranna alveg án tilgangs auk
þess sem sumir eru farðaðir óeðli-
lega mikið.
Leikurinn er misjafn eins og eðli-
legt er þegar svo margir taka þátt
og leikararnir misþjálfaðir. Leik-
stjórinn velur sumum leikaranna
ýktan stíl og hávaðasaman sem
heppnast stundum ágætlega en er of
oft bara hávaði. Aðrir leika á lágu
nótunum en það heppnast oftar vel
og er yfirleitt auðveldara til að fram-
kalla hlátur. Dæmi um mjög efnilega
leikara sem hafa ekki fengið agaða
leikstjórn eru Guðbjörg Jóhann-
esdóttir sem formaður kvenfélagsins
og Olga Albertsdóttir sem hin
stjórnsama Klara. Þessar konur
hefðu getað átt sviðið en gerðu ekki
vegna yfirgengilegs leikstílsins. Af
þeim sem léku lágstemmdara verður
að nefna Ara Baldursson sem lék
skemmtilega og áreynslulaust til
viðbótar því að syngja mjög fallega.
Það var svo Lárus Heiðar Sveinsson
sem kom, sá og sigraði en hann
skipti mjög eðlilega milli þess að
leika ungan mann og mann að leika
konu. Einnig var fallegur samleikur
hans og Katrínar Sifjar Árnadóttur.
Það er synd að sýning Leikfélags
Dalvíkur geldur fyrir að aðstand-
endur hennar hafa ekki gert al-
mennilega upp við sig hvernig upp-
færsla þetta átti að verða því með
vandaðri undirbúningsvinnu hefði
Kvenfélagið orðið flott farsasýning.
LEIKLIST
Leikfélag Dalvíkur
Höfundar: Arnar Símonarson, Dana Jóna
Sveinsdóttir, Friðrik Ómar Hjörleifsson og
Sólveig Rögnvaldsdóttir. Leikstjóri: Arn-
ar Símonarson. Tónlist: Friðrik Ómar Hjör-
leifsson. Söngtextar: Gunnar Þór Þór-
isson. Sýning í Ungó 30. október.
Kvenfélagið
Hrund Ólafsdóttir
BÓKAFORLAGIÐ Bjartur hefur gefið út
barnabókina Blíðfinnur og Svörtu ten-
ingarnir: Lokaorustan eftir Þorvald
Þorsteinsson. Bókin
er beint framhald
sögunnar Blíðfinnur
og svörtu tening-
arnir: Ferðin til Targ-
íu sem út kom fyrir
tveimur árum.
Blíðfinnur er nú
kominn til Targíu,
borgar Hinnanna,
eftir langt og erfitt
ferðalag á sjóræningjaskipinu Hafgú-
unni og hyggur á hefndir fyrir mis-
gjörðir Otta og rummunga hans. Áður
en yfir lýkur hefur Blíðfinnur þó kynnst
nýjum hliðum á ógnum og ævintýrum
þessa framandi lands og öðlast betri
skilning á því allra dularfyllsta sem
sögur fara af, nefnilega lífinu sjálfu.
Börn
BÓKAFORLAGIÐ Bjartur hefur gefið
út unglingabókina Ljónadrengurinn
eftir Zizou Corder í íslenskri þýðingu
Jóns halls Stef-
ánssonar.
Eftirförin er
framhald bók-
arinnar um ljóna-
drenginn Charlie
Ashanti sem vakn-
ar við það einn
daginn að foreldrar
hans eru horfnir.
Hann slæst í för með farandsirkus
til að hafa uppi á þeim og berst leik-
urinn frá London, til Parísar og það-
an áfram austur á bóginn. Charlie er
þeirri gáfu gæddur að geta talað við
kattardýr, stór og smá, og getur not-
fært sér vináttu sína við ljónin í sirk-
usnum.
Unglingar
Rakarinn morðóði
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Fös. 12. nóv. kl. 20 - sun. 14. nóv. kl. 20 - fös. 19. nóv. kl. 20
sun. 21. nóv. kl. 20 - lau. 27. nóv. kl. 20 - Allra síðasta sýning lau. 4. des. kl. 20
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst.
Litla stúlkan með eldspýturnar
Lau. 6. nóv. kl. 14 - sun. 7. nóv. kl. 13 - lau. 13. nóv. kl. 14 - sun. 14. nóv. kl. 14
lau. 20. nóv. kl. 14 - sun. 21. nóv. kl. 14 - lau. 27. nóv. kl. 14 - sun. 28. nóv. kl.14
Misstu ekki af SWEENEY TODD!
Einhver magnaðasta sýning sem sést hefur á íslensku leiksviði
Aðeins ÖRFÁAR sýningar eftir!
Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is
Þjóðleikhúsið sími 551 1200
• Stóra sviðið kl. 20:00
LISTIN AÐ DEYJA – Gestasýning frá Danmörku. Kristján Ingimarsson og Paolo Nani
Í kvöld 4/11 örfá sæti laus. Aðeins þessi eina sýning.
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason /leikgerð Baltasar Kormákur
Fös. 5/11 örfá sæti laus, fös. 12/11 örfá sæti laus, lau. 20/11 nokkur sæti laus.
EDITH PIAF – Sigurður Pálsson
Lau. 6/11 uppselt, lau. 13/11 uppselt, fös. 19/11 uppselt, fim. 25/11 uppselt,
fös. 26/11 uppselt, lau. 4/12 uppselt, lau. 11/12 uppselt, mið. 29/12 uppselt.
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner
Sun. 7/11 kl.14:00 örfá sæti laus, sun. 14/11 kl.14:00 nokkur sæti laus,
sun. 21/11 kl. 14:00.
NORÐUR – Hrafnhildur Hagalín
4. sýn. sun. 7/11 örfá sæti laus, 5. sýn. fim. 11/11 örfá sæti laus.
6. sýn. sun. 14/11 nokkur sæti laus, 7. sýn. fim. 18/11 nokkur sæti laus.
• Smíðaverkstæðið kl. 20:00
SVÖRT MJÓLK – Vasílij Sígarjov
Lau. 13/11 nokkur sæti laus, sun. 14/11 nokkur sæti laus, fös. 19/11.
• Litla sviðið kl. 20:00
BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson
Fös. 5/11 örfá sæti laus, sun. 7/11 örfá sæti laus, fös. 12/11 örfá sæti laus,
sun. 14/11, fim. 18/11, lau. 20/11 nokkur sæti laus.
LISTIN AÐ DEYJA
SPRENGHLÆGILEGUR GAMANLEIKUR ÁN ORÐA!
CHICAGO
Missið ekki af vinsælustu sýningu ársins
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Í kvöld kl. 20 - UPPSELT
Su 7/11 kl 20, Su 21/11 kl 20, Su 28/11 kl 20
Aðeins þessar sýningar
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Fö 5/11 kl 20, Su 14/11 kl 20,
Fö 19/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20
NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA HEFST Í BORGARLEIKHÚSINU 11. NÓVEMBER
Kennarar: Böðvar Guðmundsson, Gísli Sigurðsson, Helga Ögmundardóttir, Viðar Hreinsson
Skráning hjá Mími - Símenntun á mimir.is eða í síma 580 1800
Híbýli vindanna - frumsýning 7. janúar 2005
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun:
Vinsælasta sýningin og bestu búningarnir.
Lau 6/11 kl 20,
Lau 13/11 kl 20,
Lau 20/11 kl 20,
Lau 27/11 kl 20
Síðustu sýningar
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
eftir Edward Albee
Fö 5/1kl 20, Su 14/11 kl 20,
Fö 19/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20,
Síðustu sýningar
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fö 12/11 kl 20, Su 14/11 kl 20,
Fö 19/11 kl 20 Su 21/11 kl 20, Fö 26/11 kl 20,
15:15 TÓNLEIKAR
Caput/Vox Academica, Ný endurreisn.
Rómeó og Júlíu kórinn frá Dramaten í Stokkhólmi
Lau 6/11 kl 15:15
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 7/11 kl 14, Su 14/11 kl 14,
Su 21/11 kl 14, Su 28/11 kl 14,
Su 5/12 kl 14
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN:
SCREENSAVER eftir Rami Be'er
4. sýning su 7/11 kl 20 - Græn kort
5. syning fö 12/11 kl 20 - Blá kort
Su 21/11 kl 20
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGA
☎ 552 3000
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
• Fimmtudag 4/11 kl 20 NOKKUR SÆTI LAUS
• Föstudag 12/11 kl 23
• Fimmtudag 25/11 kl 20
eftir LEE HALL
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is
“EINSTÖK SÝNING
sem gengur upp að öllu leyti. Leikararnir fara á kostum” SS Rás 2
Nýdönsk
og Sinfó
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Nýdönsk ::: gömul og ný lög
Maurice Ravel ::: Bolero
Aram Katsjatúrjan ::: Maskerade svíta
Aram Katsjatúrjan ::: Spartakus
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Útsetningar ::: Kjartan Valdimarsson og Samúel Jón Samúelsson
HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 4. NÓVEMBER KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS
FÖSTUDAGINN 5. NÓVEMBER KL. 19.30 LAUS SÆTI
LAUGARDAGINN 6. NÓVEMBER KL. 19.30 UPPSELT
MI‹ASALA Í SÍMA 545 2500
E‹A Á WWW.SINFONIA.IS
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
SVIK e. Harold Pinter,
Fös. 5/11 kl. 20 7. kortas. UPPSELT
Fös. 5/11 kl. 22 30 Aukasýning
Sun. 7/11 kl. 20 8. kortas. Örfá sæti laus
Síðustu sýningar á Akureyri
Ausa og Stólarnir
Fim 11/11 kl 20 Frums. UPPSELT
Fös 12/11 kl 20 2.kortas. Örfá sæti laus
Lau 13/11 kl 20 3.kortas. Örfá sæti laus
Mán 15/11 kl 20 UPPSELT
Þri 16/11 kl 20 UPPSELT
Mið 17/11 kl 20 UPPSELT
Fim 18/11 kl 20 UPPSELT
Svik
víkur fyrir
Ausu og
stólunum
Lau . 06 .11 20 .00 T ILBOÐ MBL.
Sun . 07 .11 20 .00 T ILBOÐ MBL.
F im. 11 .11 20 .00 LAUS SÆTI
Lau . 13 .11 20 .00 LAUS SÆTI
„Ekk i spurn ing að þet ta er e inn best i
söng le ikur sem ég hef séð . Ég át t i
e r f i t t með að ha lda mér í sæt inu og
stökkva ekk i upp á sv ið og vera með“
-B i rg i t ta Haukda l , söngkona- .
NEMENDALEIKHÚSIÐ
Draumurinn
eftir William Shakespeare
10. sýn. fös. 5. nóv. kl. 20
11. sýn. lau. 6. nóv. kl. 20 uppselt
12. sýn. þri. 9. nóv. kl. 20 uppselt
Miðaverð 1000 kr.
Sýnt í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13
552 1971 - leiklistardeild@lhi.is