Morgunblaðið - 04.11.2004, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 04.11.2004, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Jón Sigurðsson hafnaði í öðru sætiStjörnuleitarinnar eins og frægt er oggefur nú út sína fyrstu hljómskífu,Our Love. Um er að ræða eins konar temaplötu þar sem ástin er í forgrunni og plötuna prýða sí- gildir ástaróðar á borð við „Annie’s Song“ eft- ir John Denver, „Honesty“ eftir Billy Joel, „The Sound Of Silence“ eftir Paul Simon (sem Simon & Garfunkel gerðu frægt) og „The First Cut Is The Deepest“ eftir Cat Stevens. Naut Jón handleiðslu Þóris Úlfarssonar sem útsetti og stýrði upptökum auk þess sem valinkunnir hljóðfæraleikarar léðu lögunum handbragð sitt. Mjúkur „Maður er svona smátt og smátt að venjast þessu,“ segir Jón um plötuna. „Ég er að venj- ast því að heyra mig syngja þessi lög. Þetta er blanda af kvíða og spennu þar sem maður veit ekkert út í hvað maður er að fara. Maður er óþekkt stærð, svona þannig séð.“ Jón og Kalli Bjarni, sigurvegari Stjörnu- leitarinnar, fóru langt á eðlislægum sjarm- anum en Jón lýsir þeim þó sem frekar ólíkum mönnum. „Ég og Kalli náðum mjög vel saman. En það er meiri töggur í honum á meðan ég er mýkri.“ Jón lýsir sér sem venjulegum strák úr Breiðholtinu, nánar tiltekið úr Bakkahverf- inu, þessum strák sem var „hvorki góður í íþróttum né lélegur“. Systir Jóns var forfallinn aðdáandi Stjörnu- leitarinnar áður en hún barst til Íslands og hvatti hann til að fara í keppnina. „Keppnin er mjög sniðug fyrir „meðal- Jóninn“ sem langar til að koma sér á fram- færi en er ekki með nein sambönd. Ég tel þó um leið að það verði að passa að þetta verði ekki yfirkeyrt þannig að allir fái ógeð á keppninni.“ Jón segist hafa komið alveg grænn inn í hljóðverið og datt ekki í hug að það væri svona mikið mál að koma saman plötu. „En eftir því sem á leið í ferlinu skólaðist maður í þessu. Til dæmis töluðu Bubbi, Sigga og Þorvaldur oft um „pitch“ í keppninni (og voru að meina tónhæð raddanna) og ég hafði ekki hugmynd um hvað þau voru að tala um!“ Lagaval plötunnar var í höndum Jóns og Eiðs Arnarssonar hjá Skífunni. „Við sendum á milli okkar lagalista og völd- um þetta í sameiningu. Ég og Þórir ákváðum svo hvernig þetta ætti að hljóma. Ég er auð- vitað svo gott sem reynslulaus í þessu en ég passaði mig á því að velja lög við hæfi en ég er algerlega þessi mjúka týpa. Þetta eru allt lög sem eiga vel við mig og þetta er spurning um að þekkja sín takmörk.“ Jón syngur dúett á plötunni með Oddi Carli Thorarensen, í laginu „The Sound of Silence“, en Oddur var á meðal keppenda í síðustu Stjörnuleit. Jón segir að ýmsar hugmyndir hafi verið uppi um hvern ætti að fá í dúettinn og var mörgum þekktum nöfnum kastað á loft. „Mig langaði til að fá Odd þar sem mér finnst hann vera frábær söngvari. Persónu- lega finnst mér að hann hefði átt að fara miklu lengra. Vonandi verður hægt að kynna hann frekar með þessari plötu.“ Jón hefur fullan hug á að nýta þann með- vind sem Stjörnuleitin færði honum og segist með ýmislegt á prjónunum til uppfyllingar því markmiði. Með hvaða hætti það verður kemur í ljós á næstu vikum. Tónlist | Jón Sigurðsson gefur út Our Love Í örmum Amors Our Love er komin út www.skifan.is arnart@mbl.is Jón Sigurðsson: „Ég er algerlega þessi mjúka týpa …“ BRYNJAR Jóhannsson, sem kallar sig Brylla, hefur samið lög og texta býsna lengi, en þó hann hafi ekki gefið út plötu áður sendi hann frá sér ljóða- bók 1996. Hann tók sér loks tak fyrir tveimur árum og byrjaði að vinna plötu þá sem nú lítur dagsins ljós. Næstumþví mað- urinn er sann- arlega mjög for- vitnileg frumraun, mjög skemmtileg plata, fjölbreytt og lifandi. Brynjólfi er mikið niðri fyrir og kemur boðskapnum vel frá sér. Hann kveður oft sterkt að orði, en getur líka verið galsafenginn eins og í „Eigum við ekki bara að vera vinir“, mjög skemmtilegt lag með húmorískum texta með fínum broddi. Sumstaðar skýtur hann reyndar yfir markið, „Ungfrú Ísland“ er fjarkalega þreytt minni og „Þar sem Sódóma rís“ virkar litað af fordómum. Miklu skiptir hvað Brynjar er með magnaða sveit með sér, sjóðheita rokksveit með Hallvarð Ásgeirsson þar fremstan meðal jafningja, en hann fer hreinlega á kostum í fjölda laga. Röddun er líka einkar skemmtilega af hendi leyst, gefur aukinn kraft og lyft- ir mörgum laganna. Útsetningar eru svo skemmtilega fjölbreyttar framan af, kröftugt súrt rokk í upphafslaginu, „Hús hégómans“, „Óður til deildar 12“ er sveiflukennt kassagítarrokk og „Fígúrur lífsgæðakapphlaupsins“, skemmtilega snúið lag. Eina lagið sem mér finnst ekki ganga almennilega upp er „Manstu þá stund“, sem er einskonar vendipunkt- ur á plötunni, kaflaskipti, því lögin eftir það eru tekin upp á öðrum tíma og með annan mannskap að mestu. Lag- ið sjálft, sem er fulllangt, er í tveim hlutum, fyrst kassagítarraul og síðar kröftum ómstrítt rokk – hugmynd sem gengur ekki upp þó skiptingin sé vissulega rökrétt þegar rýnt er í text- ann. Seinni hluti plötunnar er ekki eins rokkaður og sá fyrri, útsetningarnar fjölbreyttari og hreinni, ef svo má segja. Fyrir vikið dettur stemningin nokkuð niður, söngurinn verður ein- tóna og brotalamir á lögum koma bet- ur í ljós. Brynjar er ekki með mikla rödd og á það til að syngja full tilgerðarlega, heyr til að mynda í upphafslagi plöt- unnar, „Húsi hégómans“, en þegar hann lætur vaða, sleppir sér í söngn- um, heyrist að hann er með fína rokk- rödd, sérstaklega með ólgandi gítar- surg á bak við sig. Hún kemur ekki eins vel út í seinni hluta plötunnar, nema í síðasta laginu, titillaginu. Brynjar er ágætur lagamiður og textarnir almennt bráðgóðir, til að mynda „Hús hégómans“, „Fígúrur lífsgæðakapphlaupsins“, „Eigum við ekki að vera vinir“ og „Næstumþví maðurinn“, en sums staðar hrasar hann, eins og í „Óð til deildar 12“, lag með beittum og skemmtilegum texta þar sem sagt er frá manni í „jakka- klæddum fötum“. Í þeim texta vitnar hann reyndar á skemmtilegan hátt í Magnús Þór Jónsson. Bestu lög plötunnar, „Fígúrur lífs- gæðakapphlaupsins“, „Eigum við ekki að vera vinir“ og „Næstumþví maðurinn“, eru fyrirtak, sérstaklega það fyrsttalda, sem er að auki með mögnuðum texta og frábærlega flutt. Forvitnileg frumraun Tónlist Íslenskar hljómplötur Næstumþví maðurinn, sólóskífa Brynjars Jóhannssonar sem kallar sig Brylla. Með honum leika ýmsir tónlistarmenn, en sjálfur syngur hann og leikur á kassagít- ar. Lög og textar eftir Brynjólf. Ósóma gefur út. 52,14 mín. Brylli – Næstumþví maðurinn  Árni Matthíasson Miðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall  Ó.Ö.H. DV  S.V. Mbl. THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID Loksins mætast frægustu skrímsli kvikmyndasögunnar í mögnuðu uppgjöri! Loksins mætast frægustu skrímsli kvikmyndasögunna r í mögnuðu uppgjöri! Þorirðu að velja á milli? Þorirðu að velja á milli? Toppmyndin á Íslandi í dag Toppmyndin á Íslandi í dag Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára. kl. 6,8.30 og 10.40. B.i. 12 ára. J U L I A N N E M O O R E HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI RAUNVERULEGT? SÁLFRÆÐITRYLLIR AF BESTU GERÐ SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! J U L I A N N E M O O R E HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI RAUNVERULEGT? SÁLFRÆÐITRYLLIR AF BESTU GERÐ SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Sýnd kl. 6 og 10.20. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 4. Ísl. tal.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.