Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 52

Morgunblaðið - 04.11.2004, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga Heilsukoddar Heilsunnar vegna EIGNATENGSL sem víða er að finna meðal félaga á íslenskum verðbréfamarkaði, ekki síst með að- ild fjármálafyrirtækja, kunna að ráða nokkru um gengisþróun hluta- bréfa. Þetta kom fram í máli Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins (FME), á ársfundi stofnunarinnar í gær. Hann sagði þetta vera áhyggjuefni. „Þannig geta gagnkvæm eigna- tengsl haft áhrif á gengisþróun fé- laga á víxl þannig að hætta er á að í hækkun spinnist gengið upp langt umfram eðlilega verðþróun,“ sagði Páll Gunnar. „Þessi áhrif geta líka komið til sögunnar í lækkunarferli. Hvort og þá með hvaða hætti þau áhrif koma fram nú verður tíminn einn að leiða í ljós.“ Útganga virks eiganda hugsanlega skilyrt Páll Gunnar sagði að FME teldi eðlilegt að hugað verði að því hvort undirstrika megi í lagaákvæðum um virka eignarhluti í félögum mik- ilvægi þess að langtímahagsmunir séu hafðir að leiðarljósi í slíku eign- arhaldi. Velta megi fyrir sér hvort skilyrða megi með einhverjum hætti útgöngu virks eiganda úr fyr- irtæki. Fram kom í máli hans að núgild- andi reglur um eignarhald í fé- lögum kveði með nokkuð afgerandi hætti á um aðkomu nýs eiganda virks eignarhlutar að fyrirtæki. Sagði hann að eigandinn þurfi að leita samþykkis fyrir öflun eign- arhlutarins og uppfylla ákveðin skilyrði. Eigandinn lúti síðan við- varandi eftirliti þar sem FME byggir upp reynslu af eignarhaldi hans og krefjist úrbóta eða grípi inní með atkvæðisréttarsviptingu ef eigandinn fer þannig með hlut sinn að skaði heilbrigðan og traustan rekstur fyrirtækisins. „Hann getur hins vegar horfið á braut og selt eignarhlut sinn þegar hann vill og án nokkurra takmark- ana, annarra en þeirra sem hugs- anlega hljótast af seljanleika hluta- bréfanna. Velta má fyrir sér hvort skilyrða megi með einhverjum hætti útgöngu virks eiganda úr fyr- irtækinu,“ sagði Páll Gunnar. Eignatengsl á verðbréfa- markaði áhyggjuefni  Fjármálaeftirlitið/B1 RAUNTÍMAUPPLÝSINGAR á vef Fiski- stofu um afla fiskiskipa geta skaðað og þeim ætti að seinka, að mati Guðmundar Smára Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Guðmundar Runólfs- sonar hf. á Grundar- firði. Hann segir dæmi um að erlendir ferskfiskkaupendur nýti sér upplýsing- arnar til að knýja fram lægra fiskverð þegar aflabrögð eru góð. „Það er í lagi mín vegna að þessar upp- lýsingar séu aðgengi- legar en ég get ekki ímyndað mér að það breyti neinu þó að birtingu þeirra til þriðja aðila verði seinkað um einhverja daga eða viku.“ Landanir fiskiskipa eru skráðar inn í afla- skráningarkerfið Lóðs, gagnagrunn Fiski- stofu, á viðkomandi löndunarhöfnum. Lóðsinn er uppfærður einu sinni á sólarhring og birt- ast þá upplýsingarnar jafnóðum á vefnum. Höskuldur Steinarsson, forstöðumaður upp- lýsingasviðs Fiskistofu, segir að fram til þessa hafi krafan verið að upplýsingarnar séu birtar fyrr. „Þannig höfum við þróað vefinn með það fyrir augum að veita sem besta þjónustu fyrir atvinnugreinina og aukinn hraði er að sjálf- sögðu hluti af því. Að öllu óbreyttu höfum við ekki hugsað okkur að stíga skrefin afturábak í vefþróuninni,“ segir Höskuldur. Rauntíma- upplýsingar um afla skaða  Nýta vef/C1 CENTURY Aluminium, móðurfyrirtæki Norðuráls, hefur ákveðið að fjárfesta fyrir rúmlega 7,3 milljarða króna í stækkun ál- vers Norðuráls á Grundartanga umfram það sem áður hafði verið ákveðið. Í stað þess að auka afkastagetu álversins um 90 þúsund tonn hefur verið ákveðið að bæta við 32 þús- und tonnum, þannig að hún verði 212 þús- und tonn. Þar með verður álverið á Grund- artanga stærra en álverið í Straumsvík. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið í október 2006 og er vilji til 8 þúsund tonna viðbótarstækkunar í lok þess árs, en um hana hefur enn ekki verið tekin ákvörð- un. Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs Norðuráls, segir að eigandi Norðuráls hafi haft áhuga á að stækka í sinni álframleiðslu. „Fyrirtækið er líka með framleiðslu í Bandaríkjunum en tækifærin til stækkunar eru helst á Íslandi,“ segir Ragnar. „Norður- ál hefur fengið samkeppnishæfan orku- samning og þessi framkvæmd er því mjög hagkvæm.“ Ekki liggur fyrir á þessu stigi hvaðan raf- skaut til verksmiðjunnar verða keypt að sögn Ragnars. Talið er að stækkun álversins muni skila um 4 milljörðum í auknar útflutningstekjur. Vegna stækkunarinnar hefur Norðurál gert samning um raforkukaup við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja og mun raforkusala til Norðuráls aukast um 54 MW á ári. Um 800 manns munu starfa við uppbyggingu orkuvera og álvers og að lokn- um framkvæmdum munu 30–40 manns starfa við virkjanirnar auk þess sem starfs- mönnum hjá Norðuráli fjölgar um 160. „Þessi stækkun sýnir að við höfum trú á íslensku viðskiptaumhverfi og starfsfólki Norðuráls,“ segir Craig A. Davis, forstjóri Century Aluminium. 7,3 milljarða viðbót- arstækkun Norðuráls  Norðurál/B2 HELDUR var farið að réna í Skeiðará þeg- ar ljósmyndari Morgunblaðsins var þar á ferð í gær. Hlaupið virðist hafa náð hámarki í fyrradag en rennslið var þá um 2.900 rúm- metrar á sekúndu. Veginum um Skeiðar- ársand var lokað af öryggisástæðum í fyrri- nótt, en ekki var talin ástæða til að loka og minnkaði eftir því sem leið á daginn. Úr gosvirkni í Grímsvötnum dró nokkuð í gær en í fyrrinótt var virknin í gosstöðvum á svæðinu nokkuð breytileg. Ekki var hægt að fljúga yfir gosstöðvarnar í gær vegna veðurs en áfram er fylgst með framvindu gossins./4 brúnni í nótt. Vegfarendur eru þó beðnir um að hafa vara á sér. Engar skemmdir hafa orðið á veginum í hlaupinu, en vegagerð- armenn frá Höfn hafa fylgst vel með ástandinu. Um hádegisbilið í gær var rennsli hlaups- ins komið niður í 1.100 rúmmetra á sekúndu Morgunblaðið/RAX Fylgst með Skeiðarárhlaupi BAUGUR Group keypti í gær 102 milljónir króna að nafnverði hlutafjár í Íslandsbanka, sem er um 1% af hlutafé bankans. Skarphéðinn Berg Steinars- son, framkvæmdastjóri inn- lendra fjárfestinga Baugs Group, segir að ástæða kaupanna sé ein- faldlega sú að um sé að ræða góða fjárfestingu. Engin djúp merking sé að baki kaupunum. Miðað við lokaverð hlutabréfa Íslandsbanka í gær hefur kaup- verð þess hluta sem Baugur keypti verið um einn milljarður. Baugur kaupir 1% í Íslands- banka OKTÓBER síðastliðinn var fyrsti mánuður- inn þar sem hitinn var undir meðallagi, eða sem nemur 0,1 gráðu, en meðalhiti í Reykja- vík var í eða yfir meðallagi þrjátíu mánuði í röð. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir þetta til marks um þau hlýindi sem hafa verið á landinu und- anfarin ár. Hann segir ástand hafsins hafa haft sitt að segja varðandi loftslagsbreyting- arnar, en sjórinn umhverfis landið hefur ver- ið vel hlýr á þessu þrjátíu mánaða skeiði og segir Einar ekkert lát munu verða á sjáv- arhitanum á næstunni. Hann segir ástæðuna fyrir því að október var undir meðallagi norðanhret þar sem hitinn tók dýfu, en fram- an af hafði mánuðurinn verið nokkuð hlýr. Einar segist sjá hlýindi í kortunum á næst- unni. Hiti í eða yfir meðal- tali 30 mánuði í röð ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.