Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða glæsilega helgarferð til Vínarborgar í 3 nætur þann 19.nóvember í beinu flugi frá Íslandi á hreint ótrúlegum kjörum. Kynnstu þessari höfuðborg lista og menningar um leið og þú nýtur toppþjónustu fararstjóra Heimsferða sem kynna þér borgina og lystisemdir hennar. Frábær hótel í boði. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 29.990 Flug og skattar. Glæsilegt hótel í boði. Vínarborgar 19. nóvember frá kr. 29.990 KB banki hefur breytt skilmálum sínum vegna KB íbúðalána á þann veg að framvegis gefst lántakendum kostur á lánsfjárhæð jafnhárri markaðsvirði hinnar veðsettu eignar sé um íbúðakaup að ræða. Lánsfjár- hæð með 100% fjármögnun getur að hámarki verið 25 milljónir króna. Lánað er sem fyrr með 4,2% verð- tryggðum, föstum vöxtum. Í ákveðnum tilfellum er nú boðið upp á kaup á viðbótarbrunatryggingu sé mikill munur á brunabótamati og markaðsvirði eigna. Framangreind breyting tekur gildi um leið og af- greiðslur bankans verða opnaðar í dag, mánudag. KB banki með 100% íbúðalán LANDSBANKI Íslands ætlar bjóða viðskiptavinum sínum 100% lán til íbúðakaupa með sambærilegum skil- yrðum og kjörum og aðrir bankar bjóða. Veitt verða lán sem nema sömu fjárhæð og markaðsvirði fast- eignar. Bankinn hvetur þó fólk til að fara varlega við skuldsetningu vegna kaupa á íbúðarhúsnæði sem alla jafna eru stærstu viðskiptasamning- ar sem einstaklingar ráðast í. Að sögn Sigurjóns Árnasonar bankastjóra er um að ræða verð- tryggð lán þar sem hætta sé á að verðtryggingin safnist upp til viðbót- ar höfuðstólnum. Til einföldunar má nefna verð- tryggt lán með 5% vöxtum þar sem verðbólga er 3%. Miða má við að lán- takandi greiði 1% af höfuðstól árlega fyrstu árin en síðan hækkar þetta hlutfall eins og venjan er með hús- næðislán. Á fyrsta árinu eru því greiddir 5% vextir af láninu auk 1% af höfuðstól og 3% verðbætur af vaxtagreiðslu og afborguninni. Af- gangurinn af verðbótunum af höfuð- stólnum leggst hins vegar við hann. Lánið hækki hraðar „Þegar fólk tekur 100% verð- tryggt lán er hætta á því að þau skil- yrði myndist að lánið hækki hraðar en verðmæti íbúðarinnar og þá get- ur fólk lent í erfiðleikum,“ segir Sig- urjón og nefnir að 100% verðtryggt lán geti við þessar aðstæður verið komið í 106% eftir þrjú ár. Því sé mikilvægt að fólk fari varlega í þess- um efnum. Landsbankinn býður upp á 100% íbúðalán Bankastjór- inn hvetur fólk til varfærni FÓLK hefur óþarfa áhyggjur afbráðnun jökla og hækkun sjávar- máls að mati Nils Axels Mörner jarðeðlisfræðings sem heldur erindi á fundi Félags íslenskra veðurfræð- inga í dag, mánudag. Mörner starfar við Stokkhólmsháskóla og var for- maður INQUA-nefndarinnar 1999– 2003 sem fjallaði um breytingar á sjávarstöðu og þróun strandlengja. Hann hafnar algerlega staðhæf- ingum vísindamanna um að yfirborð sjávar eigi eftir að hækka um 1 metra næstu áratugina samfara bráðnun jökla með þeim afleiðingum að stór landsvæði eigi eftir að fara á kaf í sjó. Gagnrýnir hann hina fjöl- þjóðlegu loftslagsbreytinganefnd (IPCC) fyrir að spá annarri eins hækkun sjávarmáls. Spáir hann miklu minni yfirborðshækkun, e.t.v. um 5–10 cm. Aðspurður segir hann það fara í taugarnar á sér hvað almenningur hefur verið afvegaleiddur með svart- sýnisspám í þessum efnum því rann- sóknir INQUA sýni að það séu engin teikn á lofti um að yfirborð sjávar muni hækka eins gríðarlega og al- mennt er talið. „Vísindamenn gegna ábyrgð gagnvart almenningi og ef mér væri alveg sama um hvað fólki er talin trú um, sæti ég bara heima hjá mér við skriftir í stað þess að ræða mál- ið á opinberum vettvangi,“ segir hann. „Það er alls ekki viðtekin skoðun meðal fræðimanna á sviði sjávaryf- irborðsmælinga að yfirborð sjávar sé að hækka,“ bendir hann á. Máli sínu til stuðnings nefnir hann rannsóknir INQUA á Tuvalu-eyjum í Kyrrahafinu þar sem engin gögn sýni hækkun sjávarmáls síðustu 25 ár þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða. Með gervihnattamæl- ingum á sjávaryfirborði megi draga niðurstöður IPPC mjög í efa. Mörner veltir eins og margir fyrir sér bráðnun jökulíss og hvaða áhrif hún kann að hafa. „Hvað varðar heimskautaísinn breytist staða sjáv- ar ekkert þótt hann bráðni því hann er hvort eð er í sjónum. Hvað varðar Grænlandsísinn væri bráðnun hans skelfileg þróun, en jafnvel IPPC tel- ur hann ekki vera að bráðna.“ Í þessu sambandi staðhæfir hann að þótt allir jöklar á föstu landi hvar sem er í heiminum bráðnuðu, þá gætu þeir ekki hækkað sjávarstöðu nema í mesta lagi 50 cm. Og hann bendir á að þeir hafi ekki einu sinni horfið jafnvel þótt meðalhitastig hefði verið 4 gráðum hærra á jörð- inni fyrir 5 þúsund árum. „Við spörkum því ekki jöklunum út svo glatt,“ segir Mörner. Sjávaryfirborð hefur hækkað og lækkað sveiflukennt Hann tekur fram að sjávaryf- irborð hafi hækkað og lækkað sveiflukennt í gegnum árhundruðin en leggur mikla áherslu á að það séu miklar ýkjur að halda því fram að yf- irborðshækkun næstu öldina nemi heilum metra. Hann nefnir rann- sóknir á Maldaví þar sem sjávarborð hefur lækkað frekar en hitt og segir það stemma við vitnisburð aldinna heimamanna sem sögðu honum að fyrr á tíð hafi þeir munað eftir hærri sjávarstöðu. Áður hafi þeir getað ró- ið milli eyja en það sé nú liðin tíð. „Ég greindi yfirvöldum frá nið- urstöðum mínum en þau brugðust illa við. Þau vildu nefnilega að land væri á leið undir sjó svo þau gætu krafið aðra um skaðabætur,“ segir hann. Hann segir það líka hljóma und- arlega úr munni þeirra vísinda- manna sem spá hlýnun á jörðinni með tilheyrandi bráðnun jökla og hækkandi sjávarstöðu, þegar jörðin sé einmitt á leiðinni inn í litla ísöld. Í þessu sambandi greinir hann frá sveiflum í hitageislun sólar sem hef- ur náð hámarki á tveggja alda fresti undanfarin árhundruð. Sólin sé nýbúin að ná hitahámarki sínu og nú stefni hún niður á við á nýjan leik. Á bilinu 2040–2050 verði sólin komin á „botninn“ og þá megi gera ráð fyrir að kólnað hafi á jörðinni um 0,5 stig eða svo. Aðspurður segir hann að lokum framtíðina bera í skauti „dásamlegar fréttir“ fyrir þá sem hafa óttast hækkandi sjávarstöðu á næstu ára- tugum með afdrífaríkum afleið- ingum. Sænskur jarðeðlisfræðingur segir fólk hafa óþarfa áhyggjur af hækkun sjávar Spáir því að sáralítil hækkun sjávar verði næstu áratugina Nils Axel Mörner ELDUR kom upp í Borgarholts- skóla í gær og var Slökkvilið höf- uðborgarsvæðisins kallað út. Eng- an sakaði og urðu ekki miklar skemmdir á húsinu að því er talið er. Eldurinn mun hafa kviknað út frá ljósi og fór brunakerfi skólans í gang. Þegar að var komið reyndist eldur þó ekki mikill en reykur fór um alla bygginguna. Tók það drjúgan tíma að reyk- ræsta hana. Morgunblaðið/Kristinn Eldur í Borgarholtsskóla KOLBRÚN Halldórsdóttir, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, flutti í annað sinn þingsályktunartillögu um stofn- brautarkerfi fyrir hjólreiðar á Al- þingi, þar sem tekið var fram að stofnuð yrði nefnd sem tæki þennan möguleika til skoðunar. „Hlutverk nefndarinnar verði að undirbúa áætlun og lagabreytingar sem geri ráð fyrir hjólreiðum sem viður- kenndum og fullgildum kosti í sam- göngumálum. Hjólreiðabrautir verði sérstaklega skilgreindar og þeim fundinn staður í vegalögum auk þess sem kveðið verði á um ábyrgð eða þátttöku ríkisvaldsins í gerð þeirra. Þannig verði komið upp sérstöku stofnbrautarkerfi fyrir hjólreiðar sem ríkisvaldið sjái um eða taki þátt í að kosta í samstarfi við sveitarfélög- in,“ segir í tillögunni en að henni standa fulltrúar allra flokka. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Kol- brúnu að því hver ætti að standa straum af kostnaði stofnbrautarinn- ar. Hann velti upp þeim möguleika hvort skattleggja ætti hjólreiða- menn sérstaklega eða hvort öku- menn ættu að greiða fyrir brautina, því ljóst væri að umferðin sjálf stæði straum af vegakerfinu og öllu því sem fylgir. Kolbrún svaraði því til að hjól- reiðamenn ættu að fá frímiða sökum þess hve mikill sparnaður hlytist vegna þeirra. Hún benti auk þess á að hestafólk væri ekki skattlagt sér- staklega vegna reiðvega sem væri að finna vítt og breitt um landið, því ætti síður en svo að skattleggja hjól- reiðamenn. Kostir stofnbrautar margir Kolbrún benti á að kostir stofn- brautarinnar yrðu margir, s.s. út frá kostnaðar- og umhverfissjónarmið- um. Segir í greinargerðinni að tillag- an styðjist við hugmyndafræði um sjálfbærar samgöngur sem byggist á því að skipulagning og stjórn sam- gangna taki mið af markmiðum um sjálfbæra þróun samfélagsins. Þingsályktunartillaga um stofnbrautarkerfi fyrir hjólreiðar Verði fullgildur kostur í samgöngumálum UNNIÐ hefur verið að því að setja upp neyðarsíma á bryggj- ur á Akureyri. Alls verða settir upp 12 slíkir sím- ar og er verkið komið vel á veg. Það er Síma- land sem sér um uppsetn- inguna en fyrirtækið hefur flutt símana inn frá Bandaríkjunum. Þegar hafa verið settir upp slíkir neyðar- símar á bryggjur á Dalvík og Ólafsfirði. Ekki er hér um hefð- bundna síma að ræða með tóli og snúru, heldur aðeins hnapp- ur sem ýtt er á og þá hringir hjá Neyðarlínunni í 112, sem fær jafnframt upplýsingar um hvaðan hringt er. Jafnframt kviknar á ljósi á staurnum sem síminn er festur á Neyðar- símar sett- ir upp á bryggjum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.