Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 29 MINNINGAR Ástkær vinur okkar, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, JÓN STEFÁNSSON, Götu, Hrunamannahreppi, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju miðvikudaginn 10. nóvember kl. 14.00, en jarðsett verður í Hrepphólakirkjugarði. Ólöf Guðnadóttir, Lilja Björg Jónsdóttir, Guðni Þór Valþórsson, María Jónsdóttir, Eymundur Sigurðsson, Ágúst Scheving Jónsson, Hildur Gylfadóttir, Stefán Scheving Kristjánsson, Ágústa Sigurdórsdóttir og barnabarn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi JÓN KRISTINN KRISTINSSON Eystra Íragerði, Stokkseyri. Lést á Sjúkrahúsi Suðurlands Selfossi aðfara- nótt 5. nóvember. Ólafía Kristín Jónsdóttir, Sigurjón Jónsson, Hafsteinn Jónsson, Erla Karlsdóttir, Gylfi Jónsson, Dagbjört Gísladóttir, Ófeigur Jónsson. Verðmæti einnar mannsævi eru ekki mæld í árafjölda. Þar eru önnur og dýpri lögmál að verki. Höfundur lífsins heldur sínum höfundarrétti og við, mannfólkið, fáum ekki svör við óréttlæti heimsins. F.h. Krafts þakka ég Önnu Pálínu Árnadóttur hennar óeigingjarna framlag til Krafts í gegnum þau fimm ár sem Kraftur hefur verið til, þau sömu fimm ár sem Anna Pálína tókst á við námskeiðið Krabbamein og kynntist Kröbbu frænku. Við þökkum fyrir það að hafa fengið að kynnast henni, því við erum ríkari manneskjur á eftir. Minningin um Önnu Pálínu er minning um gleði. Við vottum Aðalsteini, börnum þeirra og öðrum aðstandendum okk- ar dýpstu samúð. Fyrir hönd Krafts – stuðnings- félags Anna Ingólfsdóttir. Sorgin ber að dyrum. Helst vildum við breiða upp yfir haus, láta eins og við værum ekki heima og vona að hún fari framhjá. En við verðum að opna og hleypa henni inn. Augun fyllast tárum þegar húsið fyllist af gleði minninganna og öll borð eru hlaðin gjöfum. Gjafirnar eru veganestið sem Anna Pálina Árnadóttir skildi eftir handa öllu sínu fólki. Hún skildi eftir veislu minninga fyrir nánustu að njóta, dýrgripi til að halda fast að hjartastað. Anna Pálína var skemmtileg og fyndin, hún var galgopi og hún var háfleyg, hún var heimspekingur og trúður. Anna Pálína var frumleg og djúp. Hún var mikill og sannur lista- maður, hún var einlæg, tilfinningarík og sjálfri sér trú. Anna Pálína var óhemju frumleg og heillandi og síð- ustu árin var engu líkara en hún hefði höndlað sannindi sem voru langt ofan við það sem venjulegur maður getur skilið. Anna Pálína var gjafmild og hún gaf ekki aðeins sínu fólki heldur öllum þeim sem vildu hlusta, finna og sjá. Í sporin sín lagði hún hamingju, fallega lífsýn, alúð og sköpunarkraft áður en hún lagði í langferð með englum. Ef lífið er skóli þá var Anna Pálína skipuð í prófessorsstöðu án þess að hafa sótt um starfið. Lítil þjóð átti ýmislegt ólært um lífið og dauðann, hamingjuna, óttann, angistina, eilífð- ina og allar stóru spurningarnar sem allir þurfa að horfast í augu við, fyrr eða síðar. Hún hafði frásagnargáfu stórskálds og heimspeki hennar, líf- speki og reynsla nýtist ekki aðeins þeim sem berjast við einstakan sjúk- dóm heldur má yfirfæra hana á allt lífið og viðhorf til lífsins. Hún kenndi okkur að með huganum einum getum við snúið aðstæðum okkur í hag, tek- ið ógn sem áskorun. Þótt dauðinn komi fyrr eða síðar þá er lífið allt of stutt hvort sem maður deyr ungur eða gamall. Manni ber skylda til að nýta þann tíma sem manni er gefinn, hver dagur er hráefni til að skapa eitthvað fallegt fyrir fjölskylduna, listina, sjálfan sig eða heiminn. Mikilhæf listakona hefur kvatt jarðneska vist og stórt skarð er höggvið í raðir íslenskra listamanna. Það skarð verður ekki fyllt en verkin tala um ókomna tíð. Sorgin á sinn tíma, en gjafirnar vara að eilífu. Í þeim leynist styrkurinn til að halda áfram á lífsins gönguför og minning- arnar varða leið. Okkar dýpstu samúð vottum við Aðalsteini, Árna Húma, Þorgerði Ásu, Álfgrími, móður, tengdaforeldr- um, systkinum og frændgarði öllum á þungbærri stund. Stjórn Rithöfundasambands Ís- lands, framkvæmdastjóri og makar: Kristín Helga Gunnarsdóttir, Andri Snær Magnason, Karl Ágúst Úlfsson, Rúnar Helgi Vignisson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Bragi Ólafsson, Ragnheiður Tryggvadóttir. Kveðja frá félögum í samtökum íslenskra barna- og unglinga- bókahöfunda, Síung Það er komið að kveðjustund. Vin- kona okkar, Anna Pálína, er fallin frá eftir langa og hetjulega baráttu. Ekkert okkar ber sigurorð af dauð- anum, en hún leyfði ekki skugga hans að myrkva líf sitt, heldur bar höfuðið hátt og lifði heil og sönn alla þá daga sem henni voru gefnir. Anna Pálína hreif jafnt unga sem gamla með söng sínum, en hún hafði einstakt lag á að ná til barna. Það var ekki síst vegna þess að hún kom fram við þau af virðingu, eins og jafningja, í stað þess að tala niður til þeirra eins og við sem þykjumst vera fullorðin gerum allt of oft. Börn eru næm á það hvort fullorðnir koma fram við þau af einlægni eða gera sér upp eitt- hvert sérstakt viðmót sem þeir telja vera við hæfi. Uppgerð var ekki til í fari Önnu Pálínu. Það skildu börnin og kunnu að meta. Það var unun að fylgjast með henni þegar hún söng fyrir börn. Lífsgleði hennar og út- geislun bræddi öll hjörtun í áheyr- endahópnum, hvort sem þau voru feimin eða frökk, lítil eða stór og hvert einasta litla bullutröll og um- skiptingur söng með í viðlögunum af hjartans lyst. Framlag Önnu Pálínu og Aðalsteins til íslenskrar barna- menningar er og verður ómetanlegt. Söngfuglinn er þagnaður. En söngurinn mun óma áfram í hugum og hjörtum allra sem á hann hlýddu. Það er söngur um gleði og von, söng- ur um undur og fegurð lífsins. Hann er áminning til okkar allra um að njóta hvers einasta dags sem okkur er gefinn. Ragnheiður Gestsdóttir. Það var kröftugur og skemmtileg- ur hópur sem settist á skólabekk í Kennaraháskólanum haustið 1985. Við urðum A-bekkurinn. Hann þótti erfiður því þar rökræddu menn ákaft og höfðu sterkar skoðanir. Haft var á orði að í bekknum væru of mörg gjós- andi eldfjöll. Þrátt fyrir þetta, eða ef til vill vegna þessa, kynntumst við mjög vel og urðum miklir vinir. A-bekkurinn var samheldinn hópur. Anna Pálína var í þessum hópi. Hún varð strax áberandi. Hún var hæfileikarík og samviskusöm og ákaflega sterkur og heilsteyptur karakter. Við áttum í Kennó þrjú ótrúlega skemmtileg ár. Ár, sem mótuðu okk- ur öll að einhverju leyti. Síðan skildi leiðir eins og gengur. Bekkurinn hef- ur þó alltaf haldið sambandi og við höfum fylgst hvert með öðru. Auð- velt var að fylgjast með Önnu Pálínu í gegnum störf hennar. Hún varð alltaf af og til á vegi manns; ef ekki í eigin persónu þá í útvarpinu, í viðtali einhvers staðar eða uppi á sviði að syngja. Alltaf jafn geislandi. Anna Pálína var í okkar huga ótrúlega já- kvæð kona sem mótaði sér ákveðna lífssýn. Jafnframt mótaði hún um- hverfi sitt eins og best hefur sést á verkum hennar síðustu árin. Anna Pálína notaði tímann sem hún fékk vel. Hún gaf óspart af sjálfri sér. Hún fékk miklu áorkað og með sinni sterku útgeislun og einlægni tókst henni að miðla öðrum jákvæðri lífssýn sinni, bjartsýni og dugnaði. Anna Pálína fékk aðeins 41 ár í líf- inu. Af þeim fengum við þrjú frábær ár með henni. Núna, sextán árum síðar, eru þau ár okkur enn í fersku minni. Svo verður um ókomna tíð. Fyrir það erum við þakklát. Bekkjarsystkin úr KHÍ. „Sleppiði óttanum“ sagði Anna Pálína á Ingólfstorgi laugardaginn 16. október sl. Hún var að ávarpa fé- laga sína í Krafti, samtökum ungs fólks sem hefur greinst með krabba- mein, og gríðarstóran hóp samferða- fólks sem sýndi þessum hetjum sam- stöðu með því að ganga í fylkingu frá Hallgrímskirkju niður á Ingólfstorg. Hún vissi að hún fengi líklega ekki fleiri tækifæri til að ávarpa þessa vini sína svo það var mikilvægt að skila- boðin væru skýr. Og við sem eftir stöndum getum tekið við þessum boðskap og komið honum áfram. Sleppum óttanum og lifum lífinu á hverjum degi. Látum ekki fánýti og smámuni skemma fyrir okkur daga sem hægt er að njóta með óttalausri gleði. Jafnvel þótt áföllin séu alvarleg og sorgin mikil þá verðum við hvert og eitt að finna leið til að „ganga sól- armegin“ í okkar lífi. Einhvern tímann í lok áttunda ára- tugarins varð til óformlegur hópur ungra manna sem fannst gaman að hittast á kaffihúsi og síðar við skemmtilegt borðhald. Einstaka kvenmaður slæddist með í hópinn og síðan vinkonur og makar. Margir fé- laganna voru góðir tónlistarmenn en sumir alveg lausir við slíka hæfileika. Samt festist skammstöfunin SÓT við hópinn og stendur T fyrir „tónlist- armenn“. Aldrei hefur þessi fé- lagsskapur orðið frægur af stórum afrekum sem slíkur en lifað áfram af gömlum og skemmtilegum vana. Fé- lagarnir hafa eignast börn sem hafa myndað tengsl sín á milli og tilefnin til að hittast hafa orðið fjölbreyttari. Aðalsteinn Ásberg var einn af stofnfélögunum í SÓT og Anna Pál- ína var öflug viðbót þegar þau festu ráð sitt. Þau eignuðust börnin sín og það var gaman sjá þau dafna. Börn- um okkar hinna þótti ekki ónýtt að fá að hitta þessa fínu og glaðlegu söng- konu öðru hvoru og eiga hana fyrir sig um stund. Það var mikið áfall fyrir okkur öll þegar Anna Pálína greindist fyrst með krabbamein fyrir nokkrum ár- um. En hún tók það að sér sjálf að hjálpa okkur að vinna úr því með lífs- gleði sinni og bjartsýni. Og úr því að henni var ekki ætluð starfsævi af venjulegri lengd ákvað hún að klára sín verk í snarheitum. Hún gerði út- varpsþætti, hélt tónleika, söng inn á hljómplötur, hélt fyrirlestra og skrif- aði stórmerkilega bók um lífsreynslu sína. Eftir stendur ævistarf sem er stærra en margra sem ná lögbundn- um eftirlaunaaldri. Allt þetta gat hún gert því Aðalsteinn og börnin, Árni Húmi, Þorgerður Ása og Álfgrímur, stóðu með henni í öllum hennar störf- um. Við þekkjum engin hjón sem svo vel hafa getað starfað saman og látið sameiginlega drauma rætast. En nú hefst nýr kafli í lífi Aðalsteins og barnanna. Það verður kúnst að stilla hljóðfærið þegar svo mikilvægur strengur er slitinn en vonandi geng- ur það með góðum stuðningi. Um leið og við þökkum Önnu Pál- ínu allt sem hún var okkur vottum við okkar kæra vini Aðalsteini, börnun- um og öllum ástvinum hennar inni- lega samúð. Ungir og gamlir SÓT-félagar. Það hafa verið forréttindi að eiga Önnu Pálínu fyrir vinkonu. Að njóta og smitast af óþrjótandi lífsgleði hennar og orku, sem ein- kennt hefur hennar líf. Að horfa á málin eins og við höfð- um ekki séð þau áður, rökræða og læra á hugarflug hennar. Hugarflug sem stundum varð svo víðfeðmt og mikið að hún bað okkur að kippa sér niður á jörðina áður en hún flygi burt frá okkur. Að hlusta á sönginn hennar, heyra hvernig röddin óx og dafnaði í gegn- um árin, dást að henni á sviði og fylgjast spenntar með hverjum nýj- um geisladiski sem kom út. Að vera þátttakandi í lífi vinkonu á venjulegum degi, fylgjast með fjöl- skyldunni stækka og deila með þeim hátíðarstundum. Við höfum glaðst yfir hverju ári og mánuði sem við höfðum hana með okkur eftir að hún greindist með krabbameinið. Hún hefur kennt okk- ur að lifa upp á nýtt og reyna að nýta hvern dag án ótta. Það er veganesti sem hún skilur eftir til okkar allra. Við gleðjumst yfir vináttu okkar og ómetanlegum tíma sem við áttum saman. Lífið snýst jú um að gleðjast og innantómar áhyggjur sendum við lönd og leið. Söknuð frænda bjóðum við vel- kominn, þar til við hittumst allar aft- ur. Elsku Alli, Árni Húmi, Ása, Álf- grímur og fjölskyldan öll, Guð og góðir englar gæti ykkar allra. Leynifélagið og fjölskyldur. Miðsvetrartangó, uppáhaldssöng- konan mín, falleg, skemmtileg, sér- stök, vinkillinn alltaf óvæntur og nýr, listamaður, gömul sál, vitur, prakk- ari, svo kom í ljós þessi frábæri stíl- isti, konan hans Alla og besti vinur, mamma Árna Húma, Þorgerðar Ásu og Álfgríms, dóttir Esterar, systir, tengdadóttir, frænka, vinur. Hún er farin frá okkur, kannski af því að hennar tími var kominn, kannski vegna þess að hennar bíður hlutverk annars staðar, kannski vegna þess að hún hafði komið á framfæri við okkur því sem henni var ætlað, ég veit það ekki, ég reyni ekki einu sinni að svara. Þetta verður allt í lagi sagði hún sjálf og auðvitað verður það það, en bara ekki alveg strax, við syrgjum, við grátum, við minnumst, við verð- um reið, leið, öskuvond, ósátt. „Eng- in björg er í að barma sér. Brátt mun sólin aftur ylja mér,“ hljómar í eyr- um mér, Anna Pálína syngur fyrir mig og huggar: „Viltu lifa til fulls? Lifðu nú.“ Ég get ekki hætt að hugsa um hana, ég vil ekki hætta að hugsa um hana. Hún er hér. Augun spurul, brosið ómótstæðilegt, röddin full túlkunar, gleði, sannleika. Ég þakka Önnu Pálínu þá kennslu- stund sem líf hennar hefur verið mér, að hafa kynnst henni hefur þroskað mig, bætt, breytt, hvað við henni tek- ur nú er ekki á mínu áhyggjusviði … okkar hinna er að standa með ástvin- um hennar, hlusta og minnast. Við Jón þökkum fyrir fallega bros- ið, hláturinn, tilsvörin, sönginn. Hún gaf mikið, okkar er að meta þær gjaf- ir. Við sendum innilegustu samúðar- kveðjur til Alla, Árna Húma, Þor- gerðar Ásu, Álfgríms, Esterar, systkina, tengdaforeldra, fjölskyldu og vina. Guð blessi minningu Önnu Pálínu Árnadóttur. Ragnheiður Tryggvadóttir. Anna Pálína, Anna Pálína, Anna Pálína, Anna Pálína, Anna Pálína með trilljón mismunandi tilbrigðum í höfði mér, eins og ljóðið sem Hólm- fríður flutti í fertugsafmælinu. Anna Pálína – svo stórbrotin og mögnuð, svo viðkvæm, svo sterk, svo djúpvitur og spök, svo einlæg og þroskuð, svo ung og svo gömul. Anna Pálína velur mig fyrir vin- konu. Á fyrsta skóladegi okkar í Kennó, fyrir 19 árum og 2 mánuðum. Við eigum að taka viðtal við bekkjar- félaga. Anna Pálína spyr hvort ég vilji vera memm. Anna Pálína heldur að hún sé ólétt. Ég líka. Við förum með þungunar- próf í apótekið. Við fáum báðar já- kvætt svar og flissum í símann. Við erum ungar og óttalausar og lífið leikur við okkur. Anna Pálína er með krabbamein. Hún situr í eldhúsinu mínu á Ægisíð- unni og við grátum svolítið. Ég er reið og skammast. „Af hverju fannst krabbinn ekki fyrr?“ Hún segist ekki hafa verið tilbúin í þetta verkefni fyrr. Hún er æðrulaus og til í slaginn. Anna Pálína fer í langa göngutúra meðfram sjávarsíðunni. Ég fer með og fæ að kynnast ritúalinu. Við biðj- um og öndum saman og hún segir mér frá tilfinningum sínum og upplif- unum. Hún er með Kröbbu frænku í hendi sér. Anna Pálína tekur mataræðið í gegn. Hún snæðir niðurskorna ávexti í borðstofunni á Laufásvegin- um. Hún er að styrkja ónæmiskerfið og losa eiturefni úr líkamanum. Lík- aminn fær aukinn kraft til að halda krabbanum í skefjum. Anna Pálína er beintengd við al- mættið. Hún býður mér með í hug- leiðslu. Sálin fer á flug og leikur sér í ljósinu. Anna Pálína er í samstarfi við æðri máttarvöld og veit að hún ræð- ur við verkefnið sem henni var út- hlutað. Hún tekur Kröbbu frænku í sátt. Anna Pálína þekkir óttann. Ég fæ kvíðakast í stofunni heima hjá henni. Hún leiðir mig til móts við óttann. „Leyfðu óttanum að koma til þín, slakaðu á og skoðaðu hvað hann vill þér.“ Við bjóðum kvíðann velkominn og umvefjum óttann. Anna Pálína syngur með hjartanu. Hún stendur á sviðinu í Salnum og mig langar til að faðma hana að mér. Tilfinningarnar flæða og ég er upp- numin og þakklát fyrir þessa stund. Anna Pálína óttast ekki dauðann. Við erum á göngu í Skerjafirðinum þegar hún kynnir mig fyrir dauðan- um. Henni finnst hann ekki slæmur kostur. Hún hefur velt því fyrir sér að velja dauðann. Hún lifir áfram fyr- ir okkur hin. Fyrir Aðalstein og krakkana. Anna Pálína breiðir út boðskapinn. Hún miðlar af reynslu sinni, innsæi og visku. Hún lýkur ætlunarverkum sínu hverju af öðru. Hún fylgir Álf- grími í skólann, fermir Þorgerði Ásu og fylgist með Árna Húma fyrstu vikurnar í framhaldsskóla. Anna Pálína hefur lokið ætlunar- verki sínu á þessari jörð. Ég er þakk- lát fyrir hennar hlut í mínu lífi. Ásdís Olsen.  Fleiri minningargreinar um Önnu Pálínu Árnadóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Gunnar og Gréta, Vala Þórsdóttir, Kjartan Sigurjónsson, Elín María Guðjóns- dóttir, Guðrún Þórðardóttir, Gunn- hildur Óskarsdóttir, Sigríður E. Halldórsdóttir, Sigríður Stefáns- dóttir, Egill Friðleifsson, Rúna, Bára Friðriksdóttir, Margrét Odds- dóttir, Kristín Guðrún Gestsdóttir, Sigríður Pétursdóttir, Pétur Grét- arsson, Sigurlaug, Vilfríður, Rósa, Jón Einar og Hólmfríður, Anna, Álfhildur, Emil, Erla, Herbert og Linda, Hjörtur Pálsson, Guð- mundur Andri Thorsson, Lars S. Haupe.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.