Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 37
FRÉTTIR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
á Grenivík.
Verður að hafa
bíl til umráða
Upplýsingar gefur
Ólöf Engilberts-
dóttir í síma
569 1376.
á Skúlagötu
Aldurstakmark
13 ára.
Upplýsingar
í síma 569 1122
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Neskirkja
Aukasafnaðarfundur
Nessóknar
Aukasafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn
þriðjudaginn 16. nóvember kl. 17.00 í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Dagskrá: Nýtt safnaðarheimili og lántaka.
Sóknarnefnd Neskirkju.
TILKYNNINGAR
Verðlaunasjóður
í læknisfræði
Verðlaunasjóður í læknisfræði, stofnaður af
læknunum Árna Kristinssyni og Þórði Harðarsyni,
óskar eftir tilnefningum um vísindamenn til að hljóta
verðlaun úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að veita
verðlaun og/eða styrki til rannsókna og framþróunar í
læknisfræði og lífvísindum á Íslandi.
Allir akademískir starfsmenn í læknisfræði og
lífvísindum geta sent rökstuddar tilnefningar í pósti til
undirritaðs eða á netfangið thordhar@landspitali.is
fyrir 31.12. 2004. Til greina koma vísindamenn sem
náð hafa framúrskarandi árangri í rannsóknum sínum,
en einnig ungir vísindamenn sem sýnt hafa óvenjulega
hæfni til rannsókna og náð frábærum upphafsárangri.
Sérstaklega er leitað eftir tilnefningum úr hópi
starfsmanna Landspítala-háskólasjúkrahúss og Háskóla
Íslands. Forstjóri LSH mun afhenda verðlaunin á
ársfundi Landspítala-háskólasjúkrahúss vorið 2005.
Verðlaunafjárhæð er kr. 2 milljónir.
F.h. stjóðsstjórnar,
Þórður Harðarson, prófessor
Landspítali-háskólasjúkrahús v/Hringbraut.
Félagsfundur
Félags íslenskra náttúrufræðinga!
Félagsfundur FÍN verður haldinn þriðjudaginn
9. nóvember 2004 kl. 16:00 í salnum Gullteigi
B, (jarðhæð) á Grand Hóteli, Sigtúni 38.
Félagar fjölmennið
MÍMIR 6004110819 III
HEKLA 6004110819 VI
Hamar 6004110819 III Hfj.
GIMLI 6004110819 I H&V
I.O.O.F. 19 1851188 0*
I.O.O.F. 10 18511088 G.H.
og Kk.
GAMLIR Loftleiðamenn hafa hug
á að endurnýja skúr við Miklavatn
í Fljótum sem var miðstöð þeirra á
fyrstu árum félagsins, strax sum-
arið 1944, þegar flugmenn sinntu
síldarleitarflugi frá Miklavatni.
Skúrinn er kominn að niðurlotum
en hugmyndin er að gera hann
upp í fyrri mynd og hafa þarna af-
drep til að minnast gömlu áranna.
Á dögunum tóku nokkrir frum-
herjanna þátt í ferð á flugsýningu
í Duxford í Englandi en tilgangur
hennar var að minnast þess að 60
ár eru nú liðin frá stofnun Loft-
leiða.
Þrír fyrrverandi flugstjórar hjá
Loftleiðum, Dagfinnur Stefánsson,
Magnús Guðmundsson og Smári
Karlsson, ásamt Kristjönu Millu
Thorsteinsson, ekkju Alfreðs
Elíassonar, voru heiðurgestir í
þessari ferð sem farin var til að
minnast Loftleiðaáranna og þess
að 60 ár eru liðin frá stofnun fé-
lagsins. Gunnar Þorsteinsson var
fararstjóri og skipuleggjandi en
hann hefur skipulagt margar ferð-
ir og uppákomur til að minnast
ýmissa áfanga í íslenskri flugsögu
og voru alls um 60 manns í ferð-
inni.
„Við höfum ekki áður farið í
svona leiðangur saman en þetta
var mjög skemmtilegt,“ sagði Dag-
finnur. Smári tók undir og sagði
ekki amalegt ef þetta yrði nú ár-
viss viðburður og Magnús Guð-
mundsson sagði mikilvægt að
halda nafninu lifandi. Rætt var við
þá á dögunum á Loftleiðahótelinu
þar sem fyrrverandi flugmenn
koma saman reglulega til að ræða
landsins gagn og nauðsynjar og
þeir voru sammála um að það
hefði verið sterkur leikur hjá
Flugleiðasamsteypunni að taka
Loftleiðanafnið upp á dótturfyr-
irtækinu sem sinnir leiguflugi víða
um heim. „Þetta nafn er svo sterkt
og lífseigt að margir erlendir flug-
umferðarstjórar töluðu lengi vel
um Loftleiðir Icelandic þegar við
vorum einhvers staðar á ferðinni,“
sögðu karlarnir og fannst þeim
sem gömlum Loftleiðamönnum að
nafnið hefði átt að lifa áfram þegar
félögin voru sameinuð í Flug-
leiðum.
Kunnátta sem gleymist ekki
Í Duxford eru nokkrar sérsýn-
ingar á hverju ári og um hverja
helgi er unnt að fara í stutt útsýn-
isflug á gömlum vélum. Í ferðinni
gafst þeim félögum kostur á að
fara í flugferð með Dragon flugvél
en Flugfélag Íslands átti tvær slík-
ar á fyrstu árunum og eru tvær
slíkar vélar flughæfar í safninu.
Magnús og Smári flugu slíkum vél-
um og sögðu þær hafa reynst vel.
Önnur þeirra fórst við síldarleitina
sumarið 1945 og var flugmanni
bjargað um borð í fiskiskip en hin
var í þjónustu félagsins til 1950.
„Ég er ekki frá því að maður gæti
bjargað sér um borð í svona vél ef
maður yrði að taka í stýrið, ég er
viss um að við gætum það allir,“
sagði Smári og sagði flugið svipað
og hjólreiðar, kunnátta sem gleym-
ist ekki þótt hún sé ekki stunduð á
hverjum degi. „En ég er ekki viss
um að fluglagið eða hjólreiðarnar
væri mjög áferðarfallegt til-
sýndar,“ bætti Smári við.
Vilja endurnýja síldar-
leitarskúr við Miklavatn
Frá vinstri eru þeir Smári Karlsson, Magnús Guðmundsson, Gunnar Þor-
steinsson og Dagfinnur Stefánsson.
UMMÆLI Halldórs Halldórsson-
ar, bæjarstjóra á Ísafirði og full-
trúa í tekjustofnanefnd sveitarfé-
laganna, um að fáist ekki ekki svör
frá fulltrúum ríkisins um leiðrétt-
ingar á tekjustofnum sveitarfélag-
anna verði viðræðum slitið, eru
ótímabær segir Sigurjón Örn
Þórsson, aðstoðarmaður félags-
málaráðherra.
Hann minnir á í þessu sambandi
á viljayfirlýsingu milli félagsmála-
ráðherra, fjármálaráðherra og for-
manns Sambands íslenskra sveit-
arfélaga sem undirrituð var í
haust.
Þar segir meðal annars að end-
anlegar tillögur um verkefnaflutn-
ing og breytingar á tekjustofnum
sveitarfélaga verði kynntar með
hæfilegum fyrirvara áður en til
allsherjar atkvæðagreiðslu komi
um tillögur til sameiningar sveit-
arfélaganna í apríl í vor. Þá stend-
ur og í viljayfirlýsingunni að sam-
starfssáttmáli ríkis og sveitarfé-
laga verði endurskoðaður fyrir
árslok 2004.
Segir ummæli
Halldórs ótímabær
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111