Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 42
42 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
VINCE VAUGHN BEN STILLER
DodgeBall
Ó.Ö.H. DV
S.V. Mbl.
THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID
Þorirðu að velja á milli?
Toppmyndin á
Íslandi í dag
Toppmyndin á
Íslandi í dag
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
kl. 6,8.30 og 10.40. B.i. 12 ára.
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI RAUNVERULEGT?
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI
RAUNVERULEGT?
Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 6 og 10.20. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
Loksins mætast frægustu skrímsli
kvikmyndasögunnar í mögnuðu
uppgjöri!
i í li
i í
j i
MERYL STREEPDENZEL WASHINGTON
HEILL og sæll Bjössi. Það er orðið
langt síðan ég heyrði síðast í þér.
Nú er nokkur tími liðinn frá því þú
hvarfst af sjónarsviðinu, svo ég noti
fullorðins orðalag. En fyrir þau sem
ekki vita, hver er Bjössi?
Það er nú það. Ég held það sé lang-
best að spyrja bara pabba og
mömmu. Sum voru börn þegar ég var
og hét í Stundinni okkar. Ég er
skemmtilegt stórt barn og vinur
barnanna, mikill vinur þeirra. Mig
langar að koma aftur og kynnast
nýrri kynslóð.
En ertu ennþá sami strákurinn?
Já, eiginlega. Ég er ennþá sami
prakkarinn og hressi strákurinn. Ég
hef ekkert elst, en ég hef grennst
mikið.
Varstu kannski að horfa á leikritið
um Latabæ?
Já, Latibær er í miklu uppáhaldi
hjá mér. Ég þekki alla í Latabæ og
manninn sem lék bæjarstjórann
þekki ég mjög vel. Þar er einmitt boð-
skapurinn að borða hollan mat og lifa
heilbrigðu lífi. Ég veit að margir
krakkar eru orðnir of þungir og vill
kenna þeim að breyta lífsstílnum eins
og ég gerði sjálfur. Ég ætla að boða
jákvætt hugarfar gagnvart namminu.
Það er best að hafa einn nammidag í
viku og gera hann eins heilbrigðan og
hægt er. Það sem er hollt er nefnilega
svo gott líka. Við eigum ekki alltaf að
borða pítsur og hamborgara.Við
verðum að muna eftir hafragrautnum
og lýsinu og skyrinu líka.
Í gamla daga borðaði ég svo mikið
nammi og gos að ég var búinn að
missa tennur og orðinn eins og loft-
belgur í laginu af óhollustufæði. Ég
vil kenna krökkum að hugsa betur
um sig eins og ég geri núna, það er
helsta breytingin frá því í gamla
daga. En ég verð samt alltaf sami
prakkarinn, það breytist ekkert.
En Bjössi, veistu hvers vegna þú
varðst svona vinsæll? Ég heyrði að
einu sinni hefðir þú ekki komist á all-
ar skemmtanir sem þér var boðið á
og hefðir stundum þurft að leigja
flugvél til að komast á milli staða.
Vinsældir mínar voru fyrst og
fremst þær að ég náði vel til krakk-
anna með söng, gríni og gleði. Ég er
svolítið hrekkjusvín eins og er smá af
í öllum krökkum. Maður verður bara
að passa að koma alltaf fram við aðra
eins og maður vill sjálfur að sé komið
fram við mann.En það má samt alveg
vera kátur.
Fyrir jólin kemur út myndband
með þér. Hvað er á myndbandinu?
Myndbandið heitir Bjössi bolla
bregður á leik og kemur út á VHS og
DVD.
Þetta eru þættir sem gerðir voru
fyrir Stundina okkar og hér er þeim
safnað saman. Það eru nokkrir
krakkar búnir að sjá þetta og þeim
finnst það skemmtilegt svo ég hlakka
til að koma aftur og skemmta nýrri
kynslóð.
Er Bjössi semsagt með endur-
komu í skilningi þess að koma fram á
ný og skemmta fólki?
Já, nefnilega. Ég ætla að fylgja
myndbandinu eftir með því að koma
fram á sölustöðum og gefa krökkum
eiginhandaráritanir á plaköt sem
fylgja diskinum. Svo sjáum við hvern-
ig mér verður tekið og ég held von-
andi áfram að skemmta.
Áður en við kveðjumst, geturðu
sagt mér frá einhverju skemmtilegu
sem er á myndbandinu?
Í miklu uppáhaldi hjá mér er glím-
an við Jón Pál Sigmarsson, sterkasta
mann heims. Þetta hefur aðeins einu
sinni verið sýnt í Sjónvarpinu en ekki
eftir að Jón Páll dó. Þetta var hörku-
keppni en ég svindlaði reyndar mikið.
Mér fannst mjög gaman að kynnast
Jóni Páli. Þótt ég væri þungur þá, tók
hann mig eins og fis upp á öxlina og
labbaði með mig. Hann var svo sterk-
ur. Mér hefur aldrei fundist ég eins
léttur og þegar hann lyfti mér.
En ég er samt líka sterkur. Næsta
sumar langar mig svo að taka þátt í
kraftajötnamóti. Þá get ég sagt eins
og í gamla daga: „Svona polla tekur
Bjössi bolla!“
Barnaefni | Nýtt myndband
Bjössi bolla
snýr aftur
Bjössi bolla er nafn sem hvert mannsbarn á Íslandi
kannaðist einu sinni við. Þær fregnir bárust að
Bjössi bolla væri nú kominn til baka að skemmta ís-
lenskum krökkum. Hann segir frá endurkomunni í
viðtali við Morgunblaðið.
Prakkarinn Bjössi bolla hefur
grennst mikið frá því í gamla daga.
aps@mbl.is
NÝLEGA fannst myndupptaka
með Bítlunum sem bráðlega verður
sjónvarpað í fyrsta sinn síðan 1964.
Upptakan verður sýnd á Banda-
rísku tónlistarverðlaununum (Am-
erican Music Awards) fjórtánda
nóvember en það er ABC-stöðin
sem sjónvarpar hátíðinni í Banda-
ríkjunum.
Haft er eftir framleiðandanum
Dick Clark að upptakan sé úr
ónefndum breskum sjónvarpsþætti
og mun af ókunnum ástæðum hafa
farið í glatkistuna. Upptakan, sem
er um tvær og hálf mínúta að
lengd, sýnir flutning Bítlanna á lög-
um sínum She Loves You og I
Want To Hold Your Hand.
Bítlarnir | Týndar myndupptökur
Fjörutíu ára
Bítlaupptaka sýnd
AP
Bítlarnir fjórir fyrir framan Buck-
ingham-höll í London eftir að Elísa-
bet Englandsdrottning heiðraði þá
með MBE-orðu breska heimsveld-
isins í október 1965.
„VOFA gengur laus um göt-
ur heimsins, vofa Bítlanna.“
Þannig hefst Bítlaávarp Ein-
ars Más Guðmundssonar en
síðastliðinn fimmtudag var
haldið útgáfuhóf bókarinnar.
Teitin var haldin á kaffihús-
inu Súfistanum í verslun
Máls og menningar á Lauga-
vegi. Bítlahljómsveitin forn-
fræga, Hljómar, skemmti
gestum en sjálfur las Einar
Már upp úr verki sínu.
Í fréttatilkynningu frá
Máli og menningu segir að
Bítlaávarpinu hafi verið ætl-
að að leysa öll önnur ávörp af hólmi,
Áramótaávarpið og Kommúnista-
ávarpið. Bókin er sögð margslungin
skáldsaga sem sameini alvöru og
skemmtun. Einar Már Guðmunds-
son hefur ritað fjölda skáldsagna og
ljóða og hlotið ýmsar viðurkenn-
ingar og verðlaun fyrir verk sín.
Hafa bækur hans notið mikilla vin-
sælda og verið gefnar út í 22 löndum.
Morgunblaðið/Sverrir
Einar Már flytur Bítlaávarpið.
Bítlaávarpið kynnt
til sögunnar