Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Opnunartími:
11-18:30 mán-fös
10-18 lau / 13-17 sun.
Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Í vélinni er nýi Intel Prescott
örgjörvinn ásamt Kingston
vinnsluminni með eilífðarábyrgð,
hljóðlátur harður diskur, netkort,
geislaskrifari, XP Pro
og margt fleira.
verð 89.900.-
Skrifstofuvélin sem uppfyllir
ítrustu kröfur nútímans.
NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN
Technology so advanced, it´s
TURN-FREE
Amerískar
lúxus heilsudýnur
á tilboði
TURN-FREE
Queen 153x203 cm
Verð frá 89.900.-
Skipholt 35
Sími 588 1955
www.rekkjan.is
Heitir & fallegir
Ofnar
Ofnlokar
Handklæðaofnar
Sérpantanir
www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is
Háteigisvegi 7
Sími: 511 1100
HÚS & HEIMILI
Borgarfjörður | „Ég opna dyrnar að
tamningastöðinni hér á Stað og sýni
hvernig tamningamaður vinnur að
þjálfun hesta í átta mánuði,“ segir
Benedikt Líndal er hann segir frá
mynd sinni. Þar er fylgst með átta
hestum, frá því að þeir eru teknir inn
um veturinn og fram á sumar.
Reyndar slasaðist einn þeirra á
tímabilinu, svo hætta varð þjálfun
hans tímabundið.
„Ég sýni hvernig ég haga vinnu
minni við að þjálfa hesta og hvernig
ég byggi hana upp. Þjálfunin tengist
auðvitað frumtamningunni og ég
vitna oft í fyrri mynd mína „Frum-
tamning“ til að spara pláss og tíma.
Sú mynd varð mjög vinsæl og þó að
ég hafi frá byrjun verið ákveðinn í að
gera framhald urðu móttökurnar
sannarlega hvatning til að halda
áfram.“
Allt síðastliðið ár hefur Benedikt
nánast unnið eingöngu að gerð
myndarinnar og þjálfun hrossanna
sem koma við sögu jafnhliða. Það var
Kvik hf. kvikmyndagerð sem sá um
myndatökuna eins og við hina fyrri.
„Það var mjög gott að hafa sama
liðið með sér og síðast,“ segir Bene-
dikt sem sjálfur stjórnaði upptök-
unum. Myndatökumaður var Frið-
þjófur Helgason og sagði Benedikt
að sér þætti það kostur að hann er
ekki hestamaður. „Hann sér svo
margt með öðrum augum sem mér
finnst gefa myndinni aukið gildi,“
segir hann.
Jens Einarsson hestamaður sem-
ur tónlistina í myndinni eins og síð-
ast en að þessu sinni samdi hann
hana sérstaklega fyrir myndina.
„Þetta hefur verið hörkuvinna,
ekki síst eftir að myndatökum lauk.
Þá tók við vinna í stúdíói og við
klippingar. Ég hef unnið með kvik-
myndagerðarmönnunum við það,
enda sleppi ég ekki takinu af þessu
fyrr en allt er tilbúið.“
Myndin kemur út í vikunni á
myndbandi á fjórum tungumálum,
íslensku, ensku, sænsku og þýsku
auk enskrar útgáfu fyrir Banda-
ríkjamarkað. Einnig verður hægt að
fá DVD-disk með alls kyns aukaefni
og öllum tungumálunum.
Hestarnir hafa pláss
til að vera hestar
„Þótt aðaltilgangurinn með mynd-
inni sé að sýna þjálfun hesta legg ég
mikla áherslu á sérstöðu okkar hér á
landi. Ég reyni að koma til skila
hversu góðar aðstæður við höfum til
að ala upp hross, góðar aðstæður til
tamninga og þjálfunar, að hér séu
stunduð fagleg vinnubrögð og landið
hafi upp á fjölbreytilegar útreiðar-
leiðir að bjóða. Í þeirri miklu sam-
keppni sem við eigum við að etja á
mörkuðum erlendis skiptir máli að
við getum sýnt fram á jákvæða sér-
stöðu og fagleg vinnubrögð. Það
styrkir vonandi íslenska hrossa-
ræktendur og sýnir útlendingum
fram á að það borgi sig ef til vill að
koma hingað til að kaupa sér hesta.
Hér hafa hestarnir pláss og tækifæri
til að vera hestar,“ segir Benedikt.
Hann segir að ekki séu fyrirhugaðar
fleiri myndir. Mikill tími hafi farið í
útgáfuna. En Sigríður Ævarsdóttir,
kona hans, og börnin hafa aðstoðað
hann dyggilega.
Nú fari hann aftur að huga að því
að taka inn hóp af ungum hrossum
til frumtamningar. Allt eru þetta
hross sem hann hefur ræktað ásamt
bandarískum félaga sínum á Eyri í
Flókadal. Þar hafa þeir komið sér
upp fjórum hryssum með 1. verðlaun
og eiga þar að auki 3–4 efnilegar
hryssur. Þeir fá 7–8 folöld á ári.
Benedikt er einnig reiðkennari og
hefur oft boðið upp á námskeið í
reiðmennsku. Hann segist ekki vera
viss um hvort hann verði með nám-
skeið á næstunni.
„Það er ekki hægt að gera allt í
einu,“ segir hann. Þó er hann ákveð-
inn í að halda áfram að taka þátt í
keppni.
„Ég hef gaman af því að taka þátt
í keppni. Mér finnst það líka vera
hluti af vinnu minni sem reiðkennari
að geta rökstutt mitt eigið þjálf-
unarmunstur. Mér finnst sjálfsagt
að sýna það á keppnisvellinum.“
Vil sýna jákvæða
sérstöðu okkar og
fagleg vinnubrögð
Nýrri mynd um þjálfun hesta eftir Benedikt
Líndal tamningameistara var fagnað af áhorf-
endum á frumsýningunni síðastliðinn föstudag.
Ásdís Haraldsdóttir heimsótti Benedikt og
fjölskyldu að Stað í Borgarfirði þar sem stór
hluti myndarinnar gerist.
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
asdish@mbl.is
VESTURLAND
Stykkishólmur | Nokkrir áhugasamir skákmenn
tóku sig saman á síðasta ári og endurvöktu
starfsemi taflfélags í Stykkishólmi en slíkt félag
hafði legið í dvala í nokkur ár. Í vetur hittast fé-
lagarnir vikulega og reyna sig á taflborðinu.
Taflfélag Stykkishólms og Taflfélag Snæfells-
bæjar stóðu nýlega fyrir skákhátíð í Stykkis-
hólmi. Félögin fengu til liðs við sig Skákfélagið
Hrókinn sem hjálpaði heimamönnum að skipu-
leggja dagskrána. Mæting var góð af Snæfells-
nesi, skákmenn á öllum aldri, og úr Reykjavík
kom sex manna skáksveit frá KR ásamt Henrik
Danielsen, stórmeistara frá Danmörku.
Henrik Danielsen var með skákkennslu og
tefldi síðan klukkufjöltefli. Þar náðu 4 kepp-
endur að sigra stórmeistarann. Efnt var til
skákkeppni, bæði einstaklingskeppni og sveita-
keppni. Í einstaklingskeppni sigraði Guðfinnur
Kjartansson úr KR. Í sveitakeppninni sigraði
Taflfélag Stykkishólms og ástæðan fyrir þeim
sigri var að Daninn Henrik Danielsen keppti
með liði Hólmara og þótti sjálfsagt að hann til-
heyrði því liði þar sem félagar í taflfélaginu
tala dönsku á sunnudögum.
Að sögn skákmannanna var mikill fengur að
fá í heimsókn sterka sveit KR-inga og ekki síð-
ur Henrik Danielsen. Skákhátíðin mun efla
skákáhugann á Snæfellsnesi, en hann er fyrir
hendi eins og svo víða annarsstaðar á landinu
um þessar mundir.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Verðlaunahafar Skákmennirnir sem unnu til verðlauna á skákhátíðinni eru Henrik Daniel-
sen, Guðfinnur Kjartansson, Kristján Stefánsson og Þór Örn Jónsson.
Sterkir skákmenn í
heimsókn í Hólminum