Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 44
TEBOÐ hjá Hattaranum í Undralandi, eigið þyngdarafl og eigið hugmyndaflug; hreyfingar eins og þær gerast dásamlegastar. Svona hefur Pilobolus-dansleikhópnum verið lýst af virtum gagnrýnendum sem lofa hópinn einróma. Íslend- ingum gefst nú tækifæri til að berja þessa nýstárlegu listamenn augum. Hópurinn leggur leið sína hingað í mars en miðasala hefst tuttugasta þessa mánaðar. Það er ekki auðvelt að skilgreina Pilobolus því í raun er um að ræða nýja tegund af danssýningum. Dans, leik- fimi, list og vísindi renna saman í eitt en áberandi ein- kenni á flokknum er að dansarar tengja saman líkama sína og nota þannig lögmál eðlisfræðinnar til að fram- kvæma það sem áhorfendum virðist óframkvæmanlegt. Um leið munu dansararnir vera óhræddir við að flétta skopskyn við listina og skemmta áhorfendum. Ný listastefna fyrir tilviljun Pilobolus varð til fyrir hálfgerða slysni árið 1971. Nokkrir háskólanemar sóttu dansnámskeið en gekk illa að læra dans svo þeir voru látnir búa til dans í staðinn. Skemmst er frá því að segja að talað er um að dansinn sem þeir nefndu Pilobolus, hefur farið sigurför um heim- inn í yfir þrjátíu ár. Charles Reinhart, yfirmaður einnar virtustu danshátíðar heims; American Dance Festival hefur sagt þetta um hópinn: „Ef þú ert heppinn sérðu listamenn á um það bil ára- tugar fresti sem láta þig standa á öndinni.“ Aðeins sex fullfærir Pilobolus-dansarar í heiminum Stofnendur Pilobolus eru nú orðnir listrænir stjórn- endur flokksins og ný kynslóð dansara hefur verið þjálf- uð upp til að koma fram. Aðeins 6 manneskjur í heim- inum eru nú fullfærir Pilobolus-dansarar og verða þeir allir á sviði Laugardalshallarinnar 12. mars 2005. Einnig verða allir stofnendur flokksins með í för. Sýning Pilobolus-dansleikhópsins verður eins og áður segir laugardaginn 12. mars 2005, í Laugardalshöll. Ein sýning verður haldin svo aðeins eru rúmlega 2.000 núm- eruð sæti í boði. Miðaverð er frá kr. 3.800 til 7.800 og er skipt í fjögur verðsvæði. Af hálfu Pilobolus-hópsins eru gerðar miklar kröfur til aðbúnaðar í Höllinni og skal tryggt að vel fari um alla gesti og að allir sjái vel það sem fram fer á sviðinu. Miðasala hefst laugardaginn 20. nóv- ember kl 10:00 í verslunum Skífunnar en einnig má nálg- ast miða á vefslóðunum www.skifan.is og event.is eða í síma 575-1522. Fram að jólum verður kaupendum boðið upp á sérstök gjafakort. Pilobolus | Viðkoma á Íslandi í sigurför um heiminn Unnið með eðlisfræðina. Aðeins eru sex dansarar í heiminum sem ráða við Pilobolus-dansinn. Miðasala hefst 20. nóvember Kvikmyndir.is H.J.Mbl.  ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6.15, 8, 9.15 og 10.20. M.M.J. Kvikmyndir.com  H.J. Mbl.  Ó.Ö.H. DV  KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Shall we Dance? Richard Gere Jennifer Lopez Susan Sarandon Það er aldrei of seint að setja tónlist í lífið aftur Frábær rómantísk gamanmynd með Richard Gere, Jennifer Lopez og Susan Sarandon í aðalhlutverki. AKUREYRI kl. 6. Enskt tal. Sýnd kl. 10. Kvikmyndir.is  Ó.H.T. DV H.L. Mbl.  VG. DV Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6. Ísl tal. NÆSLAND LEIKSTJÓRN FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON    Ó. H. T. Rá s 2 Sýnd kl. 6. ÁLFABAKKI kl. 4 og 6. Ísl tal./ kl. 4, 6, 8 og 10.10. Enskt tal. Einu sinni var... Getur gerst hvenær sem er. HILARY DUFF CHAD MICHAEL MURRRAY EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8 OG 10.20. 44 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Eftir að hafa séð In theMood for Love,mynd Wong Kar-Wai, sem gerist í Hong Kong milli 1960 og 1970, hlakkaði ég til að ferðast aftur á sömu slóðir og sjá nýju mynd- ina, 2046, sem er nýlega farið að sýna í Frakklandi. Það var slangur af fólki í salnum á fyrsta degi klukkan fjögur. Það veit á gott, því að sögn þeirra sem til þekkja ráðast aðsókn- arörlög bíómynda í Frakklandi strax á fyrsta degi, sem er alltaf miðvikudagur. 2046 vakti mikla athygli í Cannes í vor eins og undan- farnar myndir Wong Kar-Wai hafa gert. Aðalleikarinn, Tony Leung, fékk verðlaun fyrir besta leik í Cannes fyrir In the Mood for Love. Hér leikur hann aftur sömu aðalpersónuna, rit- höfundinn Chow, í stöðugri leit að glötuðum tíma. Það er hugarvíkkandi aðhverfa inn í þennanausturlenska heim,sem er kunnuglegur úr síðustu mynd leikstjórans. Áhorfandinn er dreginn inn í veröld saknaðar og örvæntingar þar sem ástin gengur ekki upp, inn í heim andartaka þar sem ekki er hægt að halda sér í ann- að en minningar um andartök, söknuð og rigningu og tár. Það er hins vegar hægt að búa til landið 2046 og lestarferð þangað í leit að glötuðum tíma, fortíð og framtíð. Rithöfund- urinn Chow er að skrifa sam- nefnda skáldsögu (2046) um það efni, en ekki einu sinni í hans eigin bók er hægt að höndla ást- ina og tímann. Þetta tvennt er ósamrýmanlegt og ástin því ófá- anleg nema ef vera skyldi hug- ástin. 2046 er ferð um hug- arheim, staðinn þar sem minningarnar eru geymdar og draumarnir. Leikstjórinn leggur hefð- bundnar leikmyndir að mestu til hliðar, en býr til nokkurs konar leikmynd úr konunum í lífi rit- höfundarins, þar sem þær slöngvast þokkafullar milli her- bergja, í glæsikjólum með stór- fenglegar hárgreiðslur. Hér er hver einangraður í sínu her- bergi sem sést reyndar aldrei hvernig er umhorfs í. Þó er gef- ið til kynna að veggirnir séu ekki veigamiklir miðað við hvað gengur á þegar einangrunin í næsta herbergi víkur um stund fyrir ástaleikjum. Í 2064 hefur konunum fjölgað síðan í síðustu mynd, minning- arnar eru flóknari, svo og allur vefnaður myndarinnar, tilfinn- ingaskalinn er breiðari og tím- inn grimmari. En sama tegund af fegurð svífur yfir vötnum, og hún verður reyndar svolítið þreytandi hér. Ein af stóru spurning-unum sem söguhetj-an spyr sig, og glæsi-konurnar með tárin sem verða á vegi hans: Elskaði hann mig, elskaði hún mig … Góð spurning en kannski ekki gagnleg. Í þessari mynd eru spyrjendur ekki bænheyrðir um svör því heittelskaðir eru farnir og með þeim leyndarmálið, alla leið. B í ó d a g u r 2 0 4 6 Atriði úr myndinni 2046. Ástin og tíminn eru ósamrýmanleg Eftir Steinunni Sigurðardóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.