Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 7
– K r a f t u r i n n t i l a ð þ j ó n a þ é r Stjórn, stjórnendur og starfsmenn harma þátt Olíufélagsins Esso í samráði íslenskra olíufélaga á árum áður og biðjast afsökunar fyrir hönd fyrirtækisins. Unnið hefur verið náið með samkeppnisyfirvöldum til að upplýsa málið og fyrirtækið mun axla fulla ábyrgð gjörða sinna. Samráð keppinauta á frjálsum markaði um verðmyndun er óásættanlegt athæfi sem hvorki samræmist nútíma viðskiptaháttum né almennum reglum um heiðarleika í samskiptum. Olíufélagið mun leggja metnað sinn í að standa vörð um góða viðskiptahætti í framtíðinni þar sem áhersla verður lögð á samkeppni í verði, kröftuga þjónustu og virðingu fyrir hagsmunum viðskiptavina. Félagið mun í dag kynna næstu skref á þeirri braut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.