Morgunblaðið - 08.11.2004, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sæunn Pálsdóttirfæddist í Reykja-
vík 7. febrúar 1979.
Hún lést á heimili
sínu, Hamraborg 38 í
Kópavogi, aðfaranótt
mánudagsins 1. nóv-
ember síðastliðins.
Foreldrar hennar eru
hjónin Sólveig Boga-
dóttir, f. 30. ágúst
1955, starfskona í
Pottagöldrum, og
Páll Einarsson, f. 15.
nóvember 1952, versl-
unarmaður í Nettó í
Mjódd. Þau eru búsett
í Hrauntungu 13 í Kópavogi. For-
eldrar Sólveigar: Hrafnhildur
Margrét Viggósdóttir, húsfrú í
Kópavogi, f. 9. október 1928 á
Stokkseyri, d. 29. mars 1987, og
Bogi Þórir Guðjónsson, vélvirki og
hjálpartækjasmiður í Kópavogi, f.
30. september 1926 á Siglufirði.
Foreldrar Páls: Valdís Viktoría
Pálsdóttir, húsfrú í Grindavík, f.
14. september 1929 á Fáskrúðfirði,
og Einar Guðmundsson, stýrimað-
ur í Vestmannaeyjum, f. 29. mars
1930 í Reykjavík, d. 25. desember
1985. Systkini Sæunnar eru: Vign-
ir, f. 19. júní 1969,
skrifstofumaður hjá
Kópavogsbæ; Eyrún,
f. 31. ágúst 1972, rit-
ari hjá Símanum,
hennar sambýlismað-
ur er Andri Snædal
Aðalsteinsson sölu-
maður, börn þeirra
eru Sandra, f. 1993,
og Páll Snædal, f.
1994.
Sæunn giftist
Magnúsi Einarssyni
7. apríl 2001. Börn
þeirra eru Sóley
Sara, f. 3. apríl 2000,
og Hlynur Freyr, f. 13. ágúst 2003.
Sæunn ólst upp í Kópavogi, var í
Kópavogsskóla og lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Kópa-
vogi vorið 2000. Ári síðar lauk hún
námi við skrifstofubraut í sama
skóla. Hún stundaði verslunar-
störf, var launafulltrúi á Droplaug-
arstöðum, starfaði á leikskólanum
Arnarsmára og hjá Hreint. Hún
tók þátt í sjálfboðastarfi Rauða
krossins, m.a. Hjálparsímanum.
Útför Sæunnar verður gerð frá
Digraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Elsku Sæunn systir okkar. Þú
manst ekki þegar mamma kom með
þig heim af fæðingardeildinni. Þú lást
á rúminu og Magga amma sagði við
okkur: „Hugsa sér að svona lítil
manneskja skuli kannski eiga eftir að
eignast annað lítið barn.“ Og nú ertu
farin en skilur eftir handa okkur tvö
yndisleg börn. Söknuðurinn er óbæri-
legur, minningarnar óteljandi, hjörtu
okkar eru að springa. Ljósu lokkarnir
þínir, fallega brosið þitt. Útgeislun
þín var oft notuð á pabba og mömmu
til að fá okkar vilja framgengt. Ákveð-
in, forvitin, sjálfstæð. Við munum
þegar ykkur vinkonurnar vantaði
einu sinni pening. Þá skorti þig ekki
úrræðin, fórst inn í blaðakörfu, náðir í
gömul krossgátublöð og glansmynda-
tímarit. Svo fóruð þið út og selduð
blöð. Allir nágrannarnir keyptu enda
feimnislega brosið ómótstæðilegt.
Peningaskorturinn var úr sögunni!
Umhyggjusemin var ekki lítil.
Kötturinn Jói var klæddur í dúkkuföt,
settir á hann plasteyrnalokkar og
húfa. Jói lét sér vel líka enda var ekki
hægt að standast ákveðni þína og
blíðu, sem fóru svo vel saman.
Svona gætum við haldið áfram
endalaust. Ljúfu minningarnar lifa
með okkur. Það er víst hluti af eilífa
lífinu. Þessir eiginleikar þínir komu
svo enn betur í ljós þegar þú eltist,
kláraðir menntaskólann, fórst að
vinna og fórst að starfa sem sjálfboða-
liði hjá Rauða krossinum. Þótt þú tal-
aðir stundum fullmikið að okkur
fannst, varstu líka svo góð að hlusta,
hafðir alltaf tíma fyrir okkur og við
vissum að við gátum trúað þér fyrir
öllu. Þessir eiginleikar þínir nýttust
öðrum vel. En best af öllum börnun-
um þínum yndislegu.
Minningarnar um þig munum við
geyma í hjörtum okkar. Hjálpsem-
inni, viðhorfum þínum og umhyggju
þinni fyrir öðrum og því sem þú stóðst
fyrir munum við miðla til gullmolanna
þinna. Börnin verða vel geymd hjá
ömmu sinni og afa, fjölskyldan ætlar
öll að standa saman og gera vel við
börnin. Og leiða þau í framtíðina eins
og þú mundir vilja.
Elsku dýrlingurinn okkar, þín
verður sárt saknað.
Þín systkini
Vignir og Eyrún.
Það var frost og kuldi, snjór yfir
öllu, svo mikill að varla var hægt að
komast frá húsinu heima. Tvær for-
vitnar frænkur horfðu á þegar Palli
mágur bar Sollu systur í fanginu yfir
skaflana til að koma henni á fæðing-
ardeildina. Litla fjölskyldan heima í
kjallaranum var að stækka og mikil
eftirvænting var í loftinu. Þetta var
morguninn 7. febrúar 1979 þegar Sæ-
unn frænka okkar fæddist. Lítill sól-
argeisli sem bar með sér hlýju og
birtu, og þannig var allt hennar líf.
Þar til nú 25 árum síðar er eins og
vetrarkuldinn nísti allt þegar hún er
hrifin á brott frá okkur öllum með
voveiflegum hætti. Það sem gerst hef-
ur er óskiljanlegt. Það verður aldrei
hægt að sætta sig við það sem gerðist
en með Guðs hjálp getum við vonað að
sárin sem í dag svíða svo sárt muni
gróa.
Við systurnar á efri hæðinni vorum
heppnar að Solla systir og Palli mág-
ur bjuggu í kjallaranum hjá mömmu
og pabba með börnin sín þrjú. Mjög
mikill samgangur var á milli hæða þar
sem við krakkarnir vorum öll á svip-
uðum aldri. Sæunn var okkur sem
litla systir. Hún óx úr grasi í faðmi
stórfjölskyldunnar með eldri systkin-
um sínum í samfloti með okkur móð-
ursystrunum. Sæunn var einstaklega
vel af Guði gerð. Naut þess að gleðja
aðra og gera öðrum gott. Hún hafði
stórt hjarta og var alltaf tilbúin að
hjálpa öllum sem á þurftu að halda.
Sæunn skilur eftir hjá okkur tvo gull-
mola, Sóleyju Söru og Hlyn Frey,
yndisleg börn, lifandi eftirmynd móð-
ur sinnar. Hún var einstaklega natin
móðir og bar velferð þeirra fyrir
brjósti og hlúði vel að þeim eins og
best má sjá á Sóleyju Söru sem er
skýr og glaðlynd fjögurra ára stúlka,
alin upp með ástúð og hlýlegri festu.
Hlynur Freyr mun njóta þess að eiga
hana fyrir stóru systur og læra af
henni þegar fram líða stundir. Börnin
þín, elsku Sæunn, munu veita okkur
huggun og í þeim sjáum við þig. Þann-
ig munt þú lifa áfram með okkur. Við
lofum þér því að hugsa vel um fallegu
börnin þín um alla framtíð. Megi Guð
gefa öllum ástvinunum styrk í sorg-
inni.
Hvíldu í friði, elsku frænka.
Heba og Linda Lea.
Að setjast niður og rita eftirmæli
um unga og glæsilega konu, finnst
manni ekki vera eðlilegur þáttur í líf-
inu. Hvað sem því líður, þá er það
staðreynd, að í dag er verið að bera til
hinstu hvílu elskulega frænku mína.
Blíð og tær rödd hennar, sem end-
urspeglaði hennar frábæru sál, hefur
klingt í höfði mínu síðastliðna daga. Í
hennar fallega brosi mátti lesa enda-
lausa hlýju og væntumþykju. Þessa
eiginleika hennar fengu margir skjól-
stæðingar vinalínu R.Í. að njóta, sem
og vistmenn elliheimila. Sjálfboða-
vinnu þessa vann hún í hljóði, og laun-
in voru að geta hjálpað þeim sem van-
máttugir voru. Þessi góðverk sín bar
hún ekki á torg,
Úr þeirri fjarlægð sem ég fylgdist
með Sæunni blasti við glæsileg fram-
tíð. Hún eignaðist tvö yndisleg börn,
Sóleyju Söru og Hlyn Frey. Hún lauk
stúdentsprófi frá MK með glæsibrag.
Þó uppeldi barnanna hefði allan for-
gang tókst henni samt að halda áfram
að mennta sig, og hjálpa til við að afla
fjölskyldunni tekna við ýmis störf.
Við bjuggum í nágrenni við Palla
og fjölskyldu þegar Sæunn var lítil
stelpa. Urðu þá eldri dóttir okkar
Elva Dóra og hún góðar vinkonur.
Þessir tímar hafa nú öðlast allt annað
gildi, og verða hluti af þeim minning-
arbrotum sem við ætlum að eiga sem
okkar mestu gersemi meðan lífið var-
ir.
Sem barn var Sæunn ákveðin og
fjörug stelpa. Hún lét skoðanir sínar
ljós og stóð við þær.
Þessum eiginleika bjó hún yfir og
þroskaði með sér á meðan lífið entist
henni. Það er svo að oft áttar fólk sig
ekki á verðmætum fyrr en þau renna
því úr greipum. Hefði einhvers staðar
verið ritað að ævi Sæunnar yrði svo
stutt sem raun varð, þá hefðum ég og
mín fjölskylda lagt okkur í líma við að
umgangast hana meir síðastliðin ár.
Iðulega, þegar við komum í heimsókn
til Palla bróður og Sollu, var Sæunn
og fjölskylda hjá þeim, ellegar þau
nýfarin eða væntanleg. Það var frá-
bært hversu náin fjölskyldan var. All-
ar stundir sem gáfu tækifæri á voru
börn og barnabörn Palla og Sollu hjá
þeim, og sýnir það hversu miklir kær-
leikar voru milli þeirra.
Nú hefur dimmt yfir og skelfileg
sorg ríkir. Það er ólíkindum hvílíkum
styrk fjölskyldan í Hrauntungu 13
býr yfir. Litlu börnin hennar Sæunn-
ar eru nú í faðmi fjölskyldu afa og
ömmu, og veita þau hvert öðru mikla
huggun. Heimili þeirra er blómun
skrýtt, og allar hillur fullar af falleg-
um samúðarkortum. Margur svignar
í ágjöf, ef ekki er stutt við! Það er það
sem okkur ber að gera sem að þessari
samheldnu fjölskyldu stöndum, að
styðja þau á allan þann veg sem við
erum fær um.
Það er með votum augum og mikl-
um söknuði sem þessi fátæklegu og
máttlausu orð eru skrifuð, en með
mikilli samúð með fjölskyldunni í
Hrauntungunni.
Við vottum ykkur öllum okkar
dýpstu samúð, Palli, Solla, Vignir,
Eyrún, Andri og aðrir sem nú syrgja,
og vitum að börnin hennar Sæunnar
gætu ekki verið í betri höndum
Guðmundur, Hafdís og Ólöf Anna.
Elsku Sæunn. Á jólum fyrir tæpum
níu árum komst þú inn í líf fjölskyld-
urnar. Ung og falleg stúlka sem öllum
líkaði vel við og þú varst mjög listræn.
Fallegu kortin sem þú sendir og
myndirnar sem þú saumaðir út.
Hugsaðir vel börnin þín og fólkið í
kringum þig. Þú varst yndisleg og
alltaf varstu boðin og búin að veita
hjálp þína við pössun og slíkt.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs eru að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Nú kveð ég þig í hinsta sinn með
þökk fyrir allt.
Þín tengdamóðir.
Anna.
Faðir vor, þú sem ert á himnum,
helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð
og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunaut-
um.
Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá
illu.
því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin
að eilífu. Amen.
Elsku Sæunn. Takk fyrir alla pöss-
unina. Við elskum þig.
Ragnar og Guðný.
Elsku besta frænka okkar. Okkur
langar svo til að kveðja þig með
nokkrum orðum. Það var svo gott að
eiga þig að. Þú varst alltaf svo dugleg
að passa okkur. Þakka þér fyrir það.
Nú er komið að okkur að passa litlu
snúllurnar þínar. Þú átt það inni hjá
okkur. Guð blessi þig.
Sandra og Páll.
Ekki syrgja mig því nú er ég frjáls.
Ég held þá leið sem Guð lagði, tek í hönd hans
þegar ég heyri hann kalla og skil allt eftir.
Ég fékk ekki að staldra við lengur til að hlæja,
elska og leika, svo margt er ógert sem liggur
eftir. Degi mínum lauk allt of fljótt.
Ykkur sýnist eðlilega að ævin mín hafi verið of
stutt, en reynið ekki að lengja hana með sökn-
uði. Brosið gegnum tárin og leyfið mér að
brosa með ykkur.
Guð kallaði mig og ég er frjáls.
Þínar frænkur í Ameríku
Heiða og Þórunn.
Elsku Sæunn frænka. Langt er síð-
an ég sá þig síðast, ætli það hafi ekki
verið í Smáralind fyrir nokkru, og þú
varst svo kát og hress.
Ég var að taka til í skápunum hjá
mér fyrir skömmu og fann ég þá
mynd af okkur saman sem tekin var í
Tívolíinu í Hveragerði fyrir mörgum
árum, ég ellefu ára og þú níu ára. Á
þessum árum vorum við mikið saman,
þú varst ekki bara frænka mín heldur
líka besta vinkona. Ég man sumarið
sem við fengum báðar alveg eins hjól,
bleik á litinn, hvað við vorum montn-
ar. Ég man næturnar sem við fengum
að gista saman og sögðum hvor ann-
arri sögur fyrir svefninn.
Svo komu unglingsárin og leiðir
okkar skildu eins og oft vill verða.
Fylgdist ég þó alltaf með þér og fjöl-
skyldunni og var ánægð með hve allt
gekk vel hjá ykkur. Framtíðin virtist
svo björt hjá þér. Þú og Fjóla vinkona
mín hittust oft og rædduð þið um hve
gaman væri að hittast allar saman.
Fljótt skipast veður í lofti. Örlögin
tóku völdin, og þú dáin. Mér þykir svo
sárt að skrifa þessi orð, en það kemur
að því að við hittumst allar aftur, þótt
það verði einhver bið á því.
Blessuð sé minning þín.
Þú sæla heimsins svalalind,
ó, silfurskæra tár,
er allri svalar ýtakind
og ótal læknar sár.
Æ, hverf þú ei af auga mér,
þú ástarblíða tár,
er sorgir heims í burtu ber,
þótt blæði hjartans sár.
Mér himneskt ljós í hjarta skín
í hvert sinn, er ég græt,
en drottinn telur tárin mín –
ég trúi og huggast læt.
(Kristján Jónsson.)
Elsku Sóley Sara, Hlynur Freyr,
Palli, Solla, Eyrún og Vignir.
Megi guð styrkja ykkur í þessari
miklu sorg.
Elva Dóra Guðmundsdóttir.
Elsku Sæunn mín. Ég kveð þig nú
hinstu kveðju eftir alltof stutt ferða-
lag sem við áttum saman. Það verður
erfitt að horfa á eftir svo ástkærum,
trúum vin. Þú varst alltaf til staðar og
erfitt er að ímynda sér lífið án þín. Ég
veit að þú hefðir viljað vera með okk-
ur mun lengur, þróa vináttuna enn
frekar og sjá börnin þín vaxa úr grasi.
Það hefðum við hin líka viljað og ég
held því fram að hinn 1. nóvember
hafi heimurinn orðið fátækari svo um
munar.
Ég vil nýta þessa hinstu kveðju
mína til að þakka þér fyrir þær stund-
ir, góðu og slæmu, sem við gengum í
gegnum saman. Takk fyrir að vera sú
fyrsta sem tók vel á móti mér þegar
ég flutti í Kópavoginn. Takk fyrir at-
hvarfið sem þú gafst mér og öxlina til
að gráta á þegar mér leið illa.
Takk fyrir að sjá allt sem var gott
við mig þegar ég sá það ekki sjálf.
Takk fyrir að sýna mér leiðina út úr
hremmingum þegar ég rataði ekki
sjálf. Takk fyrir þær góðu minningar
sem þú gafst mér á meðan þú varst
enn á meðal okkar og umfram allt,
takk fyrir að elska mig eins og ég er
og að smita mig af kærleik, trausti og
umhyggju. Þú varst ómetanlegur vin-
ur í raun og ég á eftir að sakna þín
með mikilli sorg og trega, allt þar til
við hittumst á ný. Ég bið að þú hafir
það gott og að Guð gæti þín á góðum
stað, þar sem þú vakir yfir okkur hin-
um þar til sá dagur kemur að við er-
um öll sameinuð á ný. Takk fyrir allt.
Sigrún Katrín Kristjánsdóttir.
Okkur langar að minnast Sæunnar
vinkonu okkar í nokkrum orðum. Sæ-
unni kynntumst við fyrir um 19 árum,
þannig að hægt er að segja með nokk-
urri vissu að við erum æskuvinkonur
hennar. Í þessari grein langar okkur
að rifja upp skemmtilegar minningar
frá æsku okkar.
Okkar fyrstu kynni af Sæunni voru
nokkuð skondin. Þannig var að við
vorum að reyna að finna okkur eitt-
hvað skemmtilegt að gera og sáum
þetta gullfallega vegasalt í garði ein-
um ekki langt frá. Við ákváðum að
skella okkur á það og reynsluaka því.
Nokkrum mínútum síðar sáum við
stelpu í glugganum í því húsi sem
garðurinn tilheyrði, við héldum
ótrauðar áfram að vega og létum okk-
ur fátt um finnast. Nokkru síðar kom
stelpan út. Hún tjáði okkur að við
mættum ekki nota vegasaltið, og að
það væri líka bannað að fara inn í ann-
arra manna garða. En stuttu síðar
skemmtum við okkur konunglega við
að hlaupa í gegnum garða hjá ná-
grönnum okkar allar þrjár. Þetta
voru okkar fyrstu kynni af Sæunni en
hún var einmitt eigandi vegasaltsins.
Á næstu árum lékum við þrjár okkur
mikið saman og brölluðum margt.
Eina sögu hefur oftast borið á
góma þegar við hittumst og gamlar
minningar rifjaðar upp. Þannig var að
við vorum í apaleik í trjám sem voru
miðja vegu milli heimila okkar
þriggja. Allir völdu sér tré sem voru
með nokkuð traustum greinum þann-
ig að einn api gæti setið uppi í því. Þar
sem trén voru mishentug til búsetu
ákvað ein okkar að stilla sér upp á
næsta bílþak og gera að sínu apa-
heimili, ekkert óeðlilegt við það þegar
maður er lítill. Síðan hófust heim-
sóknir á milli apafjölskyldna og eng-
inn kom til apans sem bjó á bílþakinu
og til þess að bæta úr því ákvað öll
apaættin að kíkja í heimsókn til þess
sem bjó á bílnum. Þegar raunveruleg-
ur eigandi bílsins sá fjögur börn
hoppa á þakinu á bílnum sínum varð
hann ekki sáttur og hringdi á lögregl-
una, sem kom innan stundar. Við
hlupum sín í hverja áttina og lögregl-
an á eftir. Foreldrum okkar fannst
þetta ekki eins fyndið og okkur finnst
það núna.
Þótt sambandið hafi ekki verið eins
mikið í seinni tíð gætti Sæunn þess að
við hittumst reglulega, sem lýsir
hennar persónu ágætlega, passasöm
og skipulögð. Við áttum það til að hitt-
ast og spila saman, föndruðum saman
fyrir jól og gerðum okkur oft glaðan
dag.
Við kveðjum kæra vinkonu sem var
tekin frá okkur í blóma lífsins. Hún
gaf okkur og kenndi svo margt og var
ávallt til staðar þegar við þurftum á
hennar vináttu að halda.
Vinur er sá er í kulda kemur
og kalið hjarta þiðið fær.
Vinur er sá er tregann temur
og tekur þig að hjarta nær.
(Ágúst Vernharðsson.)
Elsku Sóley Sara og Hlynur Freyr,
þið voruð blómin hennar mömmu
ykkar og munuð vera það áfram, hún
vakir yfir ykkur um alla tíð.
Solla, Palli, Eyrún, Vignir og fjöl-
skylda, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð.
Hamingja er ekki eitthvað sem þú
upplifir. Hún er eitthvað sem þú
minnist. Sæunn, kæra vinkona, við
söknum þín sárt.
Guðrún (Dúna) og Sandra.
SÆUNN
PÁLSDÓTTIR
Í rökkur-ró hún sefur,
með rós við hjartastað.
Sjá haustið andað hefur
í hljóði á liljublað.
(Guðm. Guðm. skólaskáld.)
Ég kveð þig, elsku Sæunn
mín, með þakklæti fyrir öll
jólakortin þín. Góður guð
geymi þig.
Börnum þínum, foreldrum
og systkinum sendi ég sam-
úðarkveðjur.
Rannveig Leifsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
Fleiri minningargreinar
um Sæunni Pálsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Erla
Heiðrún Benediktsdóttir og
Gunnvör Braga.