Sunnudagsblaðið - 01.02.1959, Blaðsíða 2

Sunnudagsblaðið - 01.02.1959, Blaðsíða 2
50 SUNNUDAQSBLAÐIÐ Larsen kom labbandi eftir gangstéttínni á leið til skrifstof- unnar. Flink lögregluþjónn var nýkominn í embættið og langaði til að láta taka tillit til sín. Hann sér að hundur labbar á eftir Larsen, gengur til Larsens og segir: — Þér eigið að hafa þennan hund í bandi. — Nei, það kæri ég mig ekkert um, sagði Larsen og var dálítið undrandi á svipinn. — Jú, það verðið þér að gera. Vitið þér ekki, að samkvæmt nýju lögunum verða hundaeigendur að teyma hunda sína í bandi um göt- urnar. — Kann vel að vera, en hund- urinn er ekki minn. — En hann elti yður. — Það gerðuð þér líka, og kærið þér yður þó sennilega ekki um, að ég teymi yður í bandi. —o— Tvær rosknar jómfrúr, Emelía og Jósefína, bjuggu saman einar í húsi. Eitt sinn bar svo við að betiari barði að dyrum þeirra og bað þær gefa sér karlmannsbuxur. Jósefína varð fyrir svörum og sagði: — Nei, hér getið þér engar karlmannsbuxur fengið, því að það býr enginn karlmaður í þessu húsi. . .. Og þar með skellti hún í lás. „Það var heimskulegt af þér að svara svona“, sagði Emelía. „Nú kemur hann áreiðanlega og brýst hér inn í nótt, fyrst hann veit, að við erum einar.“ Jósefína opnaði þá í skyndi gluggann og kallaði á eftir bétl- aranum: „En þér megið reiða yð- ur á það, að við höfum hér karl- mannsbuxur hverja einustu nótt.“ —o—- í Svíþjóð er lögskipuð hljóð- laus umferð. • Læknir einn var á leið í sjúkra- vitjun í bíl sínum og náði bónda, sem ók gamla Ford sínum í ró- legheitum eftir veginum. Læknirinn kemst ekki framhjá og flautar. Bóndi víkur sér til hliðar, en um leið og læknirinn ekur fram hjá honum, stingur bóndi höfðinu út um bílgluggann og segir: . , .' ' — Vitið þér-ekki, að^ búið er að lögleiða hljóðlausa umfdrð? — Reynið þá að'halda yður sam an, anzaði læknirinn. III ss 85 liliiiliiiiteiipi , > •* : v»4vur 4ic4ur veriu mm.l snjOKoma a meg.mauumu og i jsngtandi. og neiu «1’ laudi. ffér sést vániíÍTjrttþngg^tj þc-iíj fóf út af sporinu i Buður-E slys Várð tnóajiuin í því sambandi,

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.