24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir
Norski hagfræðiprófessorinn Karen Helene Ullt-
veit-Moe vill skipta á hluta fæðingarorlofsins og
greiðslum fyrir barnagæslu eða heimilishjálp. „Fyr-
irkomulagið með fæðingarorlof og greiðslur til for-
eldra kemur í veg fyrir að konur hafi sömu möguleika
á vinnumarkaðnum og karlar,“ segir hagfræðiprófess-
orinn, sem er tveggja barna móðir, í viðtali við Dagbla-
det í Noregi en þar eru sex vikur orlofsins ætlaðar
körlum.
Prófessorinn vill skipta á síðustu fjórum mánuðum
fæðingarorlofsins og greiðslu fyrir dagheimilisvist.
,,Það myndi auðvelda þeim lífið sem ekki geta verið
burtu frá vinnumarkaðnum í heilt ár,“ segir hagfræ-
ðiprófessorinn í viðtalinu.
Karen segir það vera mjög erfitt fyrir konu á frama-
braut að vera heima með barn í heilt ár. Hún segir
jafnframt væntingar margra kvenna óraunhæfar.
,,Verði þær að hætta í vinnunni klukkan fjögur til að
sækja börnin á dagheimilið verða þær að vinna á
kvöldin. Karlar á framabraut verða að forgangsraða.
Það verða konur líka að gera.“
ingibjorg@24stundir.is
Vill skipta á fæðingarorlofi og greiðslu fyrir barnagæslu í Noregi
Konur verða að forgangsraða
24stundir/Kristinn
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur
beva@24stundir.is
Tillögur um nýskipan í þróunar-
málum ná bæði yfir marghliða að-
stoð og tvíhliða þróunarhjálp sem
Þróunarsamvinnustofnun annast.
Áhersla verður lögð á alþjóðlega
þróunarsamvinnu. Aðkoma
stjórnmálaflokkanna að þróunar-
starfi verður styrkt. Ráðgjafanefnd
verður utanríkisráðherra til að-
stoðar og fjallar um allan mála-
flokkinn, bæði þá þætti sem unnir
eru í ráðuneytinu og verkefni Þró-
unarsamvinnustofnunar.
Meira gert úr framlagi
Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
stjórnsýslufræðingur hefur unnið
tillögur sem koma fram í nýju frum-
varpi til heildarlaga um málaflokk-
inn. Hún segir að komið verði á
skipulagi sem opni möguleika á
nýrri nálgun í þróunarhjálp. Með
aðild að DAC-þróunarnefndinni
verður hægt að mæla árangur okkar
og taka þátt í samanburði sem skipt-
ir máli. Þannig verði hægt að gera
meira úr framlagi Íslendinga. Hilm-
ar Þór Hilmarsson, lektor á Akur-
eyri, gagnrýnir að stjórn þróunar-
mála á Íslandi sé dreifð um víðan
völl og verkefnanálgun einhliða.
Gagnrýnin úrelt
„Gagnrýnin átti við, en ekki
lengur,“ segir Sigurbjörg. „Fram-
undan eru breyttir tímar, miklir
möguleikar með eðlilegri nútíma-
stjórnsýslu. Þróunarsamvinnu-
stofnun verður áfram sjálfstæð en
ábyrg gagnvart nýju þróunarsam-
vinnusviði í utanríkisráðuneytinu.
Fagstofnun er nauðsynleg, engum
dytti í hug að taka Landspítalann
inn í heilbrigðisráðuneytið. Þá tel
ég að þróunarmálaráðuneyti sé
óþarft. “
Unglingurinn Ísland
Efast hefur verið um árangur af
verkefnum Íslands. Sigurbjörg seg-
ir að Þróunarsamvinnustofnun
hafi fengið góða dóma fyrir sum
verkefni og lakari fyrir önnur. Erfitt
sé fyrir Íslendinga að bera sig sam-
an við reynsluboltana Norðurlönd.
Þau hafi lagt línurnar á heimsvísu.
Íslendingar séu unglingurinn en
framundan sé spennandi tímar og
mikið verk.
Horft fram í
þróunarstarfi
Nýtt heildarskipulag og ný nálgun í þróunarstarfi
Þróunarhjálp Verkefni
Íslands í Þróunarsam-
vinnu eru í sex löndum.
➤ Skipting milli tvíhliða ogmarghliða verkefna hefur
verið nokkuð jöfn. Þróun-
arsamvinnustofnun sér um
tvíhliða verkefnin.
➤ Með nýju skipulagi gerist Ís-land aðili að þróunarnefnd
innan OECD og fær reglulega
óháða úttekt á árangri.
ALLT UNDIR EINN HATT
24stundir/Þorkell
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Karlmaður var í gær dæmdur
af Hæstarétti í 15 mánaða
fangelsi fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás og til-
raun til nauðgunar með því að
reyna með ofbeldi að þröngva
fyrrverandi sambýliskonu
sinni til samræðis.
Maðurinn brá belti um háls
konunnar og herti að. Mað-
urinn var í héraðsdómi dæmd-
ur í 9 mánaða fangelsi, þar af 6
mánuði skilorðsbundið.
Hann á að greiða konunni 600
þúsund krónur í bætur. mbl.is
Nauðgaði
konu sinni
15 mánaða dómur
Verið er að reisa nýja sundmið-
stöð á Ásvöllum í Hafnarfirði sem
áætlað er að verði opnuð hinn
fyrsta apríl á næsta ári. Í bygging-
unni verður fimmtíu metra löng
keppnislaug með tíu brautum auk
barnalaugar og líkamsræktarsalar.
Er byggingin sérstaklega hönnuð
með þarfir fatlaðra í huga.
Útboð fór fram vorið 2006 og
lægsta útboðið áttu hafnfirsku fyr-
irtækin Feðgar, verkfræðistofan
Strendingur og hönnunarstofan
Batteríið sem vinna nú að bygging-
unni.
„Ef áætlanir standast ekki von-
umst við til þess að geta opnað
sundmiðstöðina 1. júní 2008 vegna
100 ára afmælis bæjarins,“ segir
Gunnar Svavarsson, forseti bæjar-
stjórnar. thorakristin@24stundir.is
Opnun nýrrar sundmiðstöðvar
Synt í Hafnarfirði
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin höfðu samband við nokkrar hár-
greiðslustofur og spurðust fyrir um verð á dömu-
klippingu, nýrri línu fyrir millisítt hár. Algengt verð á
slíkri klippingu virðist vera á bilinu tæplega 4000 -
5000 krónur en þó var ein hárgreiðslustofa sem skar
sig verulega úr og býður tæplega 40% lægra verð á
klippingu en næstódýarasta stofan sem könnuð var.
Dömuklippingin misdýr
Hildigunnur
Hafsteinsdóttir
NEYTENDAVAKTIN
Dömuklipping, ný lína fyrir millisítt hár
Stofa Verð Verðmunur
Hárgreiðslustofan Hárstíll 2.800
Hárgreiðslustofan Aþena 3.900 39,30 %
Hárgreiðslustofan Hárið 4.200 50,00 %
Hárgreiðslustofan Soho 4.900 75,00 %
Höfuðlausnir 4.900 75,00 %
Hárstofan Touch 5.000 78,60 %
HÁSKERPA
HEIM Í STOFU
WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
MIRAI 32” LCD háskerpusjónvarp
79.900-
TILBOÐ
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir