24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 14

24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: 24stundir@24stundir.is, frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is Prentun: Landsprent ehf. Í dag er dagur íslenskrar tungu sem jafnframt er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Í hugum fjölmargra Íslendinga væri ómögulegt að kenna daginn við annað skáld en Jónas Hallgrímsson. Jónas er fyrst og fremst ís- lenskt skáld. Hann lofaði landið í ljóðum sínum og unni náttúru þess. Hann var ekki bara staðfastur vörður íslenskrar tungu heldur einnig einkar frumlegur orðasmiður, kannski sá snjallasti sem þjóðin hefur átt. Án hans væri orðaforði landsmanna fátækari. Hann bjó yfir ríkulegum skammt af hrifnæmi. Það er eiginleiki sem mönnum er einkar tamt að vanmeta en er þó einn helsti drifkraftur list- rænnar tjáningar. Hann var fagurkeri sem hafði smekkvísi ætíð að leið- arljósi og þess vegna eru verk hans fullkomlega laus við þá tilgerð sem get- ur orðið annars góðum skáldum að falli. Börn hrífast auðveldlega af ljóðum Jónasar enda orti hann af kærleiks- ríkri umhyggju fyrir öllu sem lifir. Í barnshuga er Óhræsið magnaðasta hryllingskvæði allra tíma og „gæðakonan góða“ skelfilegt skrímsli. Full- orðnar sálir halla sér fremur að Gunnarshólma sem auðveldlega má færa rök fyrir að sé besta kvæði sem ort hafi verið á íslensku. Þeir sem vilja sökkva sér í tilvistarlegar vangaveltur geta svo endalaust deilt um hver sé „hjartavörðurinn“ í Alsnjóa meðan rómantískar sálir hrífast af Ég bið að heilsa! Hvaða erindi á Jónas í dag í veröld sem er orðin svo tæknivædd og hröð að æ færri gefa sér tíma til að setjast niður og lesa góðan skáldskap? Svarið er að Jónas á sífellt erindi við þá sem vilja auðga skynjun sína. Ræður landsfeðranna á hátíðarstundum um Ísland, landsins gæði og verndun tungunnar eru góðra gjalda verðar en gleymast auðveldlega daginn eftir, þegar hátíðarhöldum er lokið og hversdagurinn tekur við. Ljóð Jónasar eru hins vegar orðin hluti af þjóð- arvitund Íslendinga og hverfa aldrei frá þeim sem hafa gengið þeim á hönd. Í dag verður skáldsins minnst með tilheyrandi ræð- um og húllumhæi. Þetta verður löng veisla. Mun- urinn á þessari minningarveislu og ýmsum öðrum sem haldnar eru til heiðurs látnum listamönnum er sá að fæstir þurfa að rifja upp afrek þessa listamanns. Jónas Hallgrímsson varð ekki langlífur maður. Sjálfur spurði hann: Hvað er langlífi? Svarið er eitt- hvað á þá leið að sá einn er langlífur sem í lífi sínu vinnur þörf verk. Samkvæmt þeirri skilgreiningu er Jónas Hallgrímsson ódauðlegur. Skáldið eilífa SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Hér er atvinnustig hátt, lífskjör hafa batnað, störfum fjölgað í heildina tekið og möguleikar þjóðarinnar til þess að njóta vel- sældar hafa aldrei verið svona mikl- ir. En orð for- sætisráðherra voru í tíma töluð. Þau voru mælt að gefnu tilefni. Og jafnvel þeir sem vernda vilja stundarhagsmuni sína, verða að sýna umræðunni þá virðingu að hefja sig upp úr sérhagsmununum sínum. Of- hitnun efnahagslífsins, þensla og skortur á sparnaði hjá þeim sem tvímælalaust geta dregið úr út- gjöldum sínum, hefnir sín að lok- um. Einar K. Guðfinnsson ekg.blog.is BLOGGARINN Mikil ofhitnun Nú vill svo til að öll mín börn eru strákar og ég er strákur og öll mín systkin eru strákar og pabbi minn var strákur. […] Samt fer ég ekki ofan af því að á meðan meirihluti þeirra sem eiga í vanda í skóla undir 15 ára aldri eru drengir, meirihluti þeirra sem eru undir tvítugu og gefast upp í framhaldsskóla eru piltar og meirirhluti þeirra sem eru undir þrítugu og fyrirfara sjálf- um sér eru ungir karlar … þá held ég að umræða um vandamál ungviðis í þessu samfélagi ætti fyrst og fremst að vera karlmiðuð … Pétur Tyrfingsson eyjan.is/peturty Karlar í vanda Í morgun fékk ég tölvubréf, þar sem sagði meðal annars: „Sæll nafni. Á afmælisdegi mín- um, 26. ágúst, setti ég upp heimasíðu á slóð- inni www.björn- .is. Hún olli nokkuð meira fjaðrafoki en ég bjóst við og fór svo að ég lokaði henni viku síðar. Síðan þá hef ég velt því fyrir mér hvað væri sniðugt að gera við lén- ið. Ný hugmynd kviknaði um miðjan september, þegar ég var að lesa yfir æviágrip þín. [...] Mig langar að gefa þér lénið björn.is í 63 ára afmælisgjöf.“ Undir þetta vinsamlega bréf rit- aði Björn Swift. Björn Bjarnason bjorn.is Afmælisgjöf Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@24stundir.is Heimili og skóli – landssamtök foreldra láta sig varða umhverfi barna almennt innan skóla sem utan og samtökin leggja ríka áherslu á að hvatt sé til eftirlits og öryggis í vinnuumhverfi barna jafnt sem fullorðinna. Í grunnskólalögunum er meðal annars tekið fram að grunnskólinn sé vinnu- staður nemenda og við hönnun og byggingu skóla- húsnæðis skuli taka mið af þörfum nemenda og líðan og að lögð sé áhersla á öruggt námsumhverfi. Einnig er tekið fram að í skólahúsnæði skuli, auk kennsluað- stöðu fyrir allar námsgreinar, gera ráð fyrir aðstöðu nemenda til náms, annarra starfa og hvíldar utan kennslustunda. Heimili og skóli hafa sérstakan áhuga á málefnum sem snerta heilsu og hag nemenda, þar með talin heilsu- farsleg áhrif notkunar nýmiðla. Fáir grunnskólar á Ís- landi bjóða upp á þráðlaust net og kennslu í gegnum fartölvur en staðan er önnur á framhaldsskólum og enn önnur í háskólum. Mest eru þó þráðlaus net að ryðja sér til rúms á íslenskum heimilum. Rannsóknir á heilsufarslegum áhrifum nýmiðla hafa verið af skorn- um skammti á Íslandi og erfitt að meta áreiðanleika þeirra mælinga sem umhverfisverndarsamtök í Noregi vísa til í frétt 24 stunda í gær. Fréttin gefur hins vegar tilefni til þess að málið sé skoðað á opinberum vett- vangi og álits leitað hjá þeim sem best til þekkja. Það er engum blöðum um það að fletta að tölvunotk- un barna og unglinga er komin til þess að vera og mikilvægt að við horfum ekki einungis á hvaða áhrif þráðlaust net hefur á börn heldur að við setjum okkur reglur hvað varðar tímalengd, siðferði og öryggi í þeim ókunna heimi sem Netið er. Rannsóknir hafa sýnt að einelti er að færast úr skólastofunni yfir í netheima þar sem börn nota blogg- síður, MSN og spjall til að gera lítið úr öðrum einstaklingum. Þennan heim þurfum við foreldrar að kynna okkur og brýna fyrir börn- unum okkar að sömu siðferðilegu gildi og reglur gilda á Netinu og í daglegu lífi. Höfundur er framkvæmdastjóri Heimilis og skóla Heilsufarsleg áhrif nýmiðla ÁLIT Björk Einisdóttir bjork@heimiliogskoli.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.