24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 26

24 stundir - 16.11.2007, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 24stundir Íslenskt handverk Tákn heilagrar þrenningar til styrktar blindum Tvær frábærar! holar@simnet.is Ótrúlega fyndin og kemur öllum í gott skap Bráðsmellin og reynir á hugmyndaflugið M bl 92 62 42 Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 10-18Opið Jólasilkidúkar Fjölbreytt úrval af gjafavörum Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur dista@24stundir.is „Við reynum að stemma stigu við stressinu. Kveikjum á kertum, höf- um afslappað andrúmsloft. Við liggjum ekki í föndri og jólastemn- ingu fyrr en líða tekur á desem- bermánuð og meira að segja þá reynum við að láta það ekki taka heilu dagana heldur höfum það lágstemmt og fallegt í staðinn,“ segir Valborg. „Einnig höfum við allt skipulag í föstum skorðum svo þau finni til öryggis. Við sem vinnum hér pössum líka að tala ekki um jólin, jólainnkaupin og baksturinn hvert við annað. Börn- in eru fljót að finna spennuna í okkur ef við erum ekki afslöppuð. Við þurfum því að mæta til vinnu meðvituð um hve börn eru við- kvæm fyrir streitunni.“ Óróleg og illa hvíld börn Valborg leggur áherslu á hve langur vinnudagur barna er og að þau þurfi góða hvíld. „Vinnudagur þeirra í leikskólanum er langur. Heilir 8 tímar. Því miður er það raunin að börnin eru tekin með í verslunarferðir eftir leikskólann og um helgar líka. Það er allt of mikill tætingur með börnin og við finn- um það á leikskólanum. Þau eru óróleg og finna til vanlíðunar og eru greinilega lítið hvíld.“ „Ég legg til að foreldrar taki ekki börnin með í verslunarferðir og eyði ekki helgunum í stórmörk- uðum með þeim. Þetta er of mikið áreiti fyrir þau. Hávaðinn og fólk- ið, ljósin og óróleikinn.“ Aðspurð hvort hún haldi að foreldrum finn- ist verslunarferðir vera afþreying fyrir börn, segist hún stundum halda það. „Ég heyri út undan mér foreldri segja við æst og órólegt barn sitt: Ég set þig út í bíl ef þú hættir ekki að láta svona. Og ég hugsa með mér. Það er nákvæm- lega það sem það vill. Börn vilja ekki vera í Kringlunni eða Smára- lind. Ef við spyrjum þau hér í leik- skólanum hvað þau vilji helst gera, segjast þau vilja vera heima hjá sér.“ „Ég legg til að foreldrar fari í verslunarferðir á fimmtudögum, þegar opið er lengur. Og þá kannski að eitt fari í einu þannig að annað foreldrið sé heima með barninu. Eða þá fyrir einstæð for- eldri að finna pössun fyrir barnið meðan skotist er í verslanir fyrir jólaundirbúninginn.“ Valborg leggur einnig til að for- eldrar eyði meiri gæðatíma með börnunum um helgar. „Ef ég á að leggja eitthvað til þá get ég til dæmis nefnt að það er mikið um að vera í Húsdýragarðinum í des- embermánuði. Einnig finnst börn- um gott að fá heitt kakó, spila og ræða við foreldra sína. Eins njóta þau sín á rölti um umhverfið þar sem litið er inn á stöku róló í ná- grenninu og jólaskrautið skoðað.“ 24 stundir/Kristinn Jólin eru hátíð barnanna Börnum líður ekki vel í jólastressinu ➤ Börn segjast aðspurð helstvilja vera meira heima hjá sér en þau eru. ➤ Börn segjast eyða helgunum ístórmörkuðum. ➤ Flest börn á leikskólaaldri eruí leikskólanum 8 tíma eða meira á dag. STREITA OG VANLÍÐAN Valborg Guðlaugsdóttir, leikskólastjóri á leikskól- anum Engjaborg í Graf- arvogi, er einn af mörg- um leikskólastjórum á höfuðborgarsvæðinu sem taka eftir vanlíðan barna í jólastressinu í desember. Börn vinna langan vinnudag segir Valborg Guðlaugsdóttir en á leik- skólunum er reynt að stemma stigu við jólastressinu. „Við sem gefum börnum gjafir verðum að vanda valið,“ segir Guðríður Sigurbjörnsdóttir hjá menn- ingar- og friðarsamtökunum MFÍK. Samtökin hafa sett saman nokkur ráð til foreldra sem vilja stuðla að friðvænu uppeldi. Nokkur ráð til þeirra sem vilja stuðla að friðvænu uppeldi: 1. Gefið barni ykkar ekki stríðsleikföng. 2. Gerið ykkur grein fyrir að börnin alast upp í umhverfi þar sem þau eru útsett fyrir þeim hug- myndum að vopn séu sama og vald og þess vegna séu vopn ákjósanleg. Ef barnið gerir sér vopn úr legókubbum eða ristuðu brauði segið þeim að byssur séu drápsvopn og þið viljið ekki að neinn sé drepinn. Það eru nægileg rök í málinu fyrir börn. 3. Byrjið snemma að gera barninu grein fyrir því að auglýsingar í sjónvarpi og annars staðar séu beggja blands og þær séu gerðar til þess að fá fólk til að kaupa hluti. 4. Skýrið vinum ykkar og ættingjum barnsins frá því að þið viljið ekki að barnið fái stríðsleikfang í jóla- eða afmælisgjafir. 5. Ef barnið þráir stríðsleikfang hugleiðið kostina við að gefa því hlutinn, en gerið því grein fyrir and- úð ykkar á að drepa og meiða. 6. Þegar barnið er í stríðsleik, má hjálpa því að meta leikinn: Hvers vegna fá turtles (eða aðrir) alltaf sínu framgengt með því að slást? Er nokkur önnur leið til að leysa málið? Að lifa í friði Ofbeldislaus jól
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.